Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 8

Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 8
VESTFIRSKA 8 Hörð aftan- ákeyrsla í Bitru Á þriðjudaginn í síðustu viku varð harður árekstur tveggja bíla skammt innan víð bæinn Þambárvelli í Bitru á Ströndum. Mjög slæmar holur og göt voru í slitlaginu og hemlaði bíll skyndilega vegna þess. Næsti bíll á eftir lenti aftan á bílnum og skemmdust bílarnir báðir mikið. Ökumaður bílsins sem ók aftaná leitaði læknis vegna eymsla í hálsi og baki. Vega- gerðin mætti á staðinn um kvöldið og fyllti upp í hvörfin á veginum. Lengi hafði verið kvartað yfir þessum holum en því var ekki sinnt fyrr en eftir ó- happið. -GHj. Auður Yngvadóttir útskrifast sem öku- kennari frá KHÍ Á morgun, fimmtudag, útskrifast 29 manna hópur ökukennara frá Kennaraháskóla íslands 27 karlar og tvær konur. Er þetta í fyrsta sinn sem skólinn útskrifar nem- endur í ökukennslu. Einn ísfirðingur er meðal nemendanna og öðlast hann full ökukennarrétt- indi. Þetta er ökuleiknis- kappinn, Auður Yngva- dóttir, sem sex sinnum í röð varð íslands- Auður Yngvadóttir. meistari í ökuleikni á vegum BFÖ. Blaðið hitti Auði í gær og spurði hana hvort hún hyggðist leggja fyrir sig ökukennslu á ísafirði. „Já, það ætla ég að gera“, sagði Auður. „Síðasta námskeið fyrir ökukennara var haldið á vegum Bifreiðaeftirlits ríkisins 1986. Ég ætlaði að fara á næsta námskeið en vegna þess að ekkert námskeið var fórst það fyrir. Þetta voru ein- ungis helgarnámskeið. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1986 sem útskrifaðir hafa verið ökukennarar. Við erum búin að vera í allan vetur í þessu námi sem tók einungis eina helgi að læra áðurfyrr. Það er allstaðar verið að auka kröfurnar og þar á meðal f þessari grein.“ - Heldur þú að karlremburnar vii læra á bíl hjá konu? „Þeir geta þá lært hjá karlmanni og hinir hjá mér“, sagði ökuleikniskappinn og verðandi ökukennari á Isafirði í samtali við blaðið í gær. -GHj. Tilboð óskast í vinnuskúr sem stendur á baklóð fyrirtækisins. Húsið er úr timbri, ca. 15 ára gamalt, 33 m2, einangrað og frágengið. Utan er standandi viðar- klæðning, innan er klætt með ómáluðum spónaplötum. Eitt rými. Byggt er á bjálkum og upphaflega smíð- að með tilliti til flutninga milli vinnu- svæða. Hentugt sem sumarbústaður. Upplýsingar gefur Óskar Eggertsson í síma 3092. PÓLLINN HF. Miðvikudagur 22. júní 1994 ---- \ FBFTTABLAÐIÐ Nýr sprautuklefi í Bílaverkstæði ísafjarðar - Dúddi Halldórs og Jóhann Pétur búnir að starfa saman frá 1948 Dúddi Halldórs og Jóhann Pétur ásamt starfsmönnum sínum í hinum nýja sprautuklefa á Bílaverkstæöi ísafjaröar. Bílaverkstæði ísafjarðar, sem sérhæfir sig í bílasprautun, tók í notkun nýjan sprautuklefa á dögunum. Klefinn er einn fullkomnasti sprautuklefi landsins og er af GARMANT gerð og var keyptur nýr frá framleiðanda í Belgíu. Að sögn Halldórs Halldórssonar (Dúdda Halldórs) annars eiganda verk- stæðisins eru loftskipti í klef- anum 20 þúsund sinnum á klukkustund, en klefinn sem var í notkun áður á Bílaverk- stæði Isafjarðar endurnýjaði loftið f sér fimm þúsund sinn- um á klst. „Það gerir það að verkurn að nú er miklu betra fyrir heilsuna að vinna í sprautuninni og loft- ið er að öllu leyti miklu betra“, sagði Dúddi. „Fyrir viðskipta- vini okkar þýðir þessi nýi klefi að verkið er miklu betur unnið. Það tók tvo og hálfan tíma að baka lakkið í gamla klefanum en nú tekur það einungis 40 mínútur. Klefinn bakar við miklu meiri hita núna, eða 65 gráður. Bæði stoppar bíllinn styttra við hjá okkur vegna þessa og svo eru gæðin á sprautuninni meiri en áður. Við getum núna sprautað mörgum litum í einu án þess að þeir hafi nokkur áhrif hver á annan. Loftskiptin eru það ör. T.d. getum við verið með fjórar hurðir inni og haft fjórar sprautukönnur með mismun- andi litum og gengið á röðina og sprautað." - Nú eruð þið félagar, Jóhann Pétur og þú, búnir að starfa æði Iengi saman... „Þetta verkstæði hérna á Seljalandsveginum hefur starf- að síðan 1964 sem sprautu- verkstæði og við almennar við- gerðir. Við hættum síðan með almennar viðgerðir og fórum alfarið í réttingar og bíla- sprautun 1985. Við Jói erum búnir að vera með verkstæði saman frá 1957. Við byrjuðum í Fjarðarstræti í húsnæði hjá Elí Ingvarssyni. Við erum búnir að vinna saman frá 1948.“ - Er alltaf nóg að gera? „Já það hefur verið ágætt hjá okkur“, sagði Dúddi Halldórs á Bílaverkstæði Isafjarðar í samtali við blaðið á mánudag- inn. -GHj. Olíubíll með 30 þús. lítra á hvolf í Bitru - mikill viðbúnaður var með tilliti til eldhættu og mengunar Um kvöldmatarleytið á þjóðhátíðardaginn, 17. júni, valt olíubifreið með aftanívagn með um 30 þúsund lítra af olíu rétt utan Krossár, neðan við bæinn Hvítarhlíð í Bitru á Ströndum. Bílinn var á leið frá Reykjavík til Hólmavíkur. Ó- happið var með þeim hætti að olíubifreiðin vék út í vegkant- inn til þess að hleypa bíl fram úr og lét kanturinn undan þunganum. Valt bíllinn rólega á hliðina og á hvolf utan vegar. Hús bílsins skemmdist talsvert en vagninn virðist vera heill. Engin meiðsl urðu. Slökkvilið frá Hólmavík og Hið árlega J.Ó.D.-mót fór fram á Golfvellinum í Tungu- dal á sunnudaginn var. Leiknar voru 18 holur m/án forgjafar. Efstu menn: Án forgjafar: 1. Pétur Þ. Grétarsson 77 2. Gylfi Sigurðsson 81 3. Bjarni Pétursson 85 Borðeyri kom á staðinn ásamt lögreglunni á Hólmavík. Gunnar Sæmundsson á Broddadalsá var einnig fenginn á staðinn með myndarlega haugsugu til þess að sjúga upp olíu sem lekið hafði úr bílnum, því stöðugt lak olía úr fremsta hólfinu í tank bílsins og einnig úr kálfinum. Saug Gunnar upp jafnótt og lak. Nokkuð magn af olíu hafði lekið niður áður en haugsugan kom á vettvang. Þrír tankbílar komu á staðinn, einn frá Hvammstanga og tveir frá Hólmavík og var olíunni dælt yfir á þá. Sent var eftir meng- unarvarnargám til Hólmavíkur, Með forgjöf: 1. Hreinn Pálsson 67 2. Pétur Þ. Grétarsson 68 3. Gylfi Sigurðsson 68 Þetta var annað mót sumars- ins hjá Golfklúbbi ísafjarðar. Pétur sigraði einnig á fyrsta mótinu, sem var flaggakeppnin en hann inniheldur m.a. flot- girðingu til þess að einangra olíu í sjó og vötnum. Var það gert vegna þess hve stutt er frá veginum niður að sjó. Stór Payloader var fenginn og vöru- bíll með krana til þess að rétta olíubílinn og kálfinn við og gekk það verk vel. Ekki varð mikil megnun vegna þessa óhapps og talið að olían, sem var gasolía, muni gufa upp úr jarðveginum fljót- lega. I samráði við heilbrigðis- fulltrúann á Vestfjörðum, sem mætti á vettvang til skoðunar, er ekki þörf á hreinsun. -GHj. um fyrri helgi. Holuverðlaunin að þessu sinni hlaut Ernir Ingason, formaður Golfklúbbs Isafjarðar. Julius Brand-mótið verður á sunnudaginn kemur á Golf- vellinum í Tungudal. Leiknar verða 18 holur m/án forgjafar. Mótið hefst kl. 10.00. Skráning á staðnum. Strandir: Grá- sleppan er bara búin - segir Brandur á Broddanesi „Það er engin grá- sleppuveiði og ég er bú- inn að fá níu tunnur síðan um miðjan apriT, sagði Guðbrandur Einarsson, grásleppukarl á Brodda- nesi á Ströndum. Hann rær ásamt karli föður sínum á Sigrúnu ST-66 sem eropinn Færeyingur. „Við höfum aðallega verið inn með Ennisland- inu og í Bitrukjaftinum. Einnig höfum við verið með nokkur net úti á Ingólfsgrunni. Gráleppan hefur bara verið ofveidd og er búin. Stærri bátimir girða fyrir slembruna fyrir utan og hirða hana um leið og hún gengur upp á grunnið. Það kemur ekkert inn í Flóann. Svo er líka allt of mikið af netum í Flóanum. Þetta hefur ekki verið nein grásleppuvertíð í vor. Annars er allt orðið grænt hér og túnin líta vel út". sagði Brandur á Brodda- nesi í samtali við blaðið í morgun. -GHj. Pétur Grétarsson sigraði á J.Ó.D.-mótinu - Julius Brand-mótið næsta sunnudag

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.