Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Side 10

Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Side 10
10 Sjáand- inn Erla Stefáns- dóttir sýnir í Slunka- ríki - myndir sem lýsa huldum verum á ísafirði Á Jónsmessunni, föstudaginn 24. júní, verður opnuð sýning í Slunkaríki á Isafirði á myndum eftir Erlu Stef- ánsdóttur. Erla býr yfir sérstæðum hæfileikum og næmi, hún sér og skynjar margt sem öðr- um er hulið. Á sýningunni verða 24 vatnslitamyndir, sem lýsa verum sem Erla fann þegar hún fór um Isafjörð með Kolbrúnu Leifsdóttur landslags- arkitekt til að vinna að huliðsvættakorti fyrir þetta svæði. Erla segist sjálf túlka innra líf á barnslegan og einfaldan hátt með myndum sínum, annars hafi hún það starf að kenna börnum á píanó og fullorðnum á lífið. Hún ber djúpa virðingu fyrir náttúrunni. „Við mynd- um lifa í betri samhljómi við okkur sjálf og jörðina sem við byggjum", segir hún, „ef við gerðum okkur almennt grein fyr- ir lífsmagni náttúrunnar og þeim verum sem byggja landið með okk- ur. Markmiðið með starfi mínu er að sýna fólki heiminn frá nýjum sjónarhóli, reyna að fá fólk til að líta ekki bara á ytra borð manneskj- unnar, heldur skilja að við erum öll neistar frá sömu sól og innri þættir okkar eru svo óendan- lega miklu fjölbreyttari en fólk gerir sér almennt grein fyrir.“ Sýningin í Slunkaríki er opin fimmtud.- sunnud. kl. 16-18 og henni lýkur sunnudaginn 17. júlf. VESTFIRSKA I FRÉTTABLAÐIÐ | VESTFIRSKA FRÉTTAB LAÐIÐ Fasteignaviðskipti ÍSAFJÖRÐUR Hlíðarvegur 20 Einbýlishús, kjallari, hæð og ris, samtals um 250 m2 ásamt bílskúr. Fagraholt 5 140 m2 einbýlishús ásamt 40 m2 bílskúr. Aðalstræti 20 4ra herb. íbúð á 2. hæð, u.þ.b. 130 m2. Laus eftir samkomulagi. Aðalstræti 20 3ja herb. íbúð á 2. hæð, u.þ.b. 95 m2. Aðalstræti 32 3ja herb. íbúð á 1. hæð. Silfurgata 11 3ja herb. íbúð á 1. hæð. Laus fljótlega. Strandgata 7 Nýuppgert, tvílyft einbýlishús úr timbri. Hjallavegur 1 Einbýlishús, íbúðarhæðin er 120 m2 Bílskúr og geymsla eru um 60 m2- Pólgata 4 5 herb. íbúð á 3. hæð. Aðalstræti 22b 3ja-4ra herb. íbúðir á 2. og 3. hæð. Fitjateigur 4 U.þ.b. 151 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Súðavík Aðalgata 60 Lítið einbýlishús. Bolungarvík Ljósaland 5 118 m2 einbýlishús. Ljósaland 6 2x126 m2 einbýlishús. Hagstæð lán. Hólastígur 5 Rúmlega fokhelt raðhús. Selst á góðum kjörum. Hlíðarstræti 21 Gamalt einbýlishús. Traðarland 24 Tvílyft einbýlishús, u.þ.b. 200 m2 með bílskúr. Stigahlíð 4 3ja herb. íbúð á 1. hæð. íbúðin er laus. Hlíðarstræti 20 Einbýlishús, ca. 150 m2. Húsið er laust. Suðureyri Eyrargata 3 Tvílyft einbýlishús úrtimbri, 134 m2 Sætún 9 Einbýlishús á góðum kjörum. Flateyri Ólafstún 9 Einbýlishús. Góð kjör. Húsið er laust. Amar G. Hinriksson Silfurtorgi 2, sími 4144 87 Nýjar vestfirskar þjóðsögur Meira af Jóni kút í Gjögri Jón kútur f Gjögri í Árneshreppi á Ströndum vann eitt sinn um tíma í síldar- verksmiðjunni í Djúpuvík. Ráðskonan sem sá um matseldina fyrir verksmiðjufólkið var svarkur mikill og stríðin með afbrigð- um. Kom þeim afar illa saman, Jóni og ráðskonunni. Eitt sinn hótaði hún Jóni að höggva af honum hausinn með eldhús- saxinu ef hann gerði ekki eitthvað viðvik fyrir hana. Jón brást hinn versti við og klagaði ráðskonuna fyrir verkstjóranum sem hét Steinólfur og bætti svo við: „Ef kerlingin lætur verða af þessu er ég far- inn!“ Jón kútur sagði af sér margar frægðar- sögur um dagana. Ein er svona: „Ég fór á sjó og fékk risastóran fisk á færið, svo stóran að ég hef aldrei séð annað eins um ævina. Þegar ég ætlaði að innbyrða skepnuna losnaði öngullinn úr henni og ég missti hana við borðstokkinn. Þá lagði ég út árar til þess að róa eftir fiskinum sem flaut burt frá bátnum. Ég var rétt að ná í sporðinn á þessum stórfiski þegar svart- bakshelvítið demdi sér niður og gleypti hann.“ -GHj. Vonast til þess að ferju- bryggjur við Djúp verði tilbúnar næsta vor - segir Jón Leví Hilmarsson hjá Hafnamálastofnun Bílaferjan Fagranes. Loksins hillir undir að byggðar verði ferjubryggjur handa því. Nú virðist vera kominn skriður á undirbúning að smíði ferjubryggja fyrir bílaferjuna Fagranes, bæði í ísafjarðar- djúpi og á ísafirði. I vor sam- þykkti samgöngunefnd Al- þingis að farið yrði út í smíði ferjubryggjanna og lagði til að Vegagerð ríkisins og Hafnar- málastofnun skipuðu í nefnd til þess að vinna að málinu. Blaðið hafði samband við Jón Leví Hilmarsson, forstöðumann tæknideildar Hafnarmálastofn- unar, og spurði hann hvað væri að frétta af bryggjumálunum. „Eins og þið vitið hefur þetta mál lengi verið að flækjast um kerfið", sagði Jón Leví. „Það hefur enginn viljað taka á sig að bera ábyrgð á þessu máli. Vegagerðin á samkvæmt lög- um að sjá um ferjumál í landinu og þið þekkið sjálfsagt aðstæð- ur heimafyrir og kannski eru þær að hluta til skýringin á því að lítið gerist. En nú er búið að mynda þessa nefnd. I henni eru tveir menn frá Vegagerðinni, Gísli Eiríksson og Eymundur Runólfsson, og tveir menn frá okkur, ég og Gísli Viggósson. Okkur hefur verið falið af samgöngunefnd Alþingis að undirbúa og koma í gang fram- kvæmdum við þessar ferju- bryggjur. Það hefur loksins verið samþykkt að fara í þetta. Við erum búnir að halda einn fund í nefndinni. Ut úr honum kom það að við erum að undir- búa undirbúningframkvæmdir. Það þarf að skoða aðstæður við eyrina utan við bryggjuna á Arngerðareyri og athuga hvort þar sé hægt að koma bryggju fyrir á nægjanlegu dýpi. Þarna þarf að dýpka og við verðum að vera vissir um að við náum því dýpi sem þarf. Við þurfum að bora holu til að kanna jarð- vegsaðstæður. Á Isafirði eru menn ekki endanlega búnir að ákveða staðsetningu ferjubryggju. Við settum upp plan þar sem við vonumst til að hægt væri að bjóða bryggusmíðina út í byrj- un ágúst. Framkvæmdir ættu að geta hafist í haust og ljúka á tveimur árum. Við vorum að vonast til þess að komast svo langt í haust að hægt væri að ljúka þessu fyrir ferðamanna- tímann á næsta ári. Við stefn- um að því að reyna þetta“, sagði Jón Leví Hilmarsson í samtali við blaðið í gær. -GHj.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.