Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Side 12

Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Side 12
 GRUNNVÍKINGABÓK BÓKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAR Sími 3123, ísafirði 8 FRÉTTABLAÐIÐ ] RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: SÍMI94-4011 • FAX 94-4423 Læti eftir ball á Suðureyri Fimmtudagskvöldið 16. júní var unglingadansleikur á Suðureyri og flykktust þangað unglingar af öllum norðan- verðum Vestfjörðum í rútum og einkabílum. Þetta ball er árviss atburður. Að sögn lögreglu fór sjálft ballið mjög vel fram. Eftir ballið upphófust mikil læti á götum plássins enda var mikil ölvun. Reynt var að komast í sundlaugina, brotnar voru rúður, líkamsárásir gerðar, innbrot framin og sitthvað fleira. Hálft lögregluliðið frá Isafirði var upptekið vegna þessara láta fram undir morgun. Vildi lögreglan taka það skýrt fram að mikill meirihluti unglinganna hafi verið til sóma og ekki verið þátttakendur í þessum látum. Hafi þeir einungis verið á góðu balli og skemmt sér vel. En lítill hluti unglinganna virtist vera haldinn þessari óseðjandi þrá að fara um bæinn og skemma fyrir bæjarbú- um. Þetta er eins og þeir sem koma óorði á brennivínið, hinum til bölvunar sem kunna með það að fara. -GHj. Enn af garðarollum Starfsmönnum ísafjarðarkaupstaðar virðist ganga illa að reka garðarollurnar úr bæjarlandinu. Að sögn lögreglunnar á ísafirði berast stanslausar kvartanir um rollur í görðum, aðallega í Holtahverfi. Lögreglan getur ekkert annað að- hafst en láta starfsmenn kaupstaðarins vita. Gemlingar í trjánum Kona í Holtahverfi hringdi til Vestfirska og bað um meiri umfjöllun um garðarollurnar, því nú væru gemlingar komnir f trén hjá henni. Sagði hún að umsáturástand væri í Holta- hverfinu vegna garðafjárins og ætti bærinn að sjá sóma sinn í því að gera bæjarlandið rolluhelt. Rollurnar kæmu arkandi eftir þjóðveginum yfir Hauganesið og kæmust þannig inn í Holtahverfið. Þar ætti Vegagerðin að setja upp ristarhlið ef vel væri. Hverjir eiga rollurnar? Vestfirska vill biðja íbúa að gefa blaðinu upp mörkin á rollunum sem háma í sig lystigróður þeirra og heitir að fletta upp í markaskrá og birta nöfn eigendanna í blaðinu. Engar garðarollur á ísafirði??? (vikulegum upplestri Ríkisútvarpsins (Rásar tvö) úr hér- aðsfréttablöðum sl. mánudagskvöld greip fréttamaðurinn á ísafirði niður í frétt Vestfirska fréttablaðsins t síðustu viku af garðarollum á ísafirði. Hún lagði út af fréttinni eftir sínu höfði eins og venjulega, umsneri henni, breytti og túlkaði að eigin geðþótta. Var á henni að heyra að engar rollur væri að sjá á (safirði og helst að skilja að umræddar garðarollur á ísa- firði væru ekkert annað en hugarfóstur og tilbúningur blaðsins. -GHj/HÞM. Orlofsíbúö á Akureyri Lausar vikur í júlí og ágúst. Upplýsingar gefur Ingvar í síma 93-47783 og 93-47890 Verkalýðs- og sjómannafélagið Grettir, Reykhólum. Neyðarnúmer slökkviliðs, lögreglu og sjúkraliðs á Isafirði Fæðingarbær Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri verður endurbyggður Á virðulegri og skemmti- legri þjóðhátíð á Hrafnseyri við Amarfjörð var lagður hom- steinn að endurbyggingu fæð- ingarbæjar Jóns Sigurðssonar. Jón fæddist á Hrafnseyri 17. júní árið 1811. Nú stendur ekkert eftir af gamla bænum þar sem hann fæddist nema hluti af eldhúsvegg, en meira en níutíu ár eru nú liðin frá því að þar var flutt út f síðasta sinn. Nú verður bærinn endur- byggður eftir því sem fjárráð leyfa og mun sú framkvæmd auka enn á vegsemd Hrafns- eyrarstaðar, sem er einn af helgidómum landsins. Frá þjóðhátíðinni á Hrafnseyri. Þar var fjölskylduskemmtun og fór í alla staði hið besta fram. Foreldrafélög í sýslunni lögðu þar sitt af mörkum. Ljósm: Hörður Kristjánsson. Hnífsdcalur Er bærinn skaðabótaskyldur? - tvö slys á börnum í sama fótboltamarkinu Á þriðjudaginn í síðustu viku var barn að Ieik aftan við fót- boltamark á leikvellinum við barnaskólann f Hnífsdal. Markið var laust og féll á barn- ið, lenti á hendi þess og hand- arbraut barnið. Annað slys átti sér stað í sama markinu á mánudagskvöld þegar sláin féll úr því ofan á andlit barns og braut í því tennur og slasaði barnið talsvert. Þetta mark er á ábyrgð Isa- fjarðarkaupstaðar. Eftir laus- lega athugun blaðsins eru rnörk á sparkvöllum bæjarins ekki fest niður og skapar það ntikla hættu fyrir börn og unglinga sem eru að leik á þessum völl- um. Mikil umfjöllun var um hliðstæð mál í Reykjavík á síð- asta ári í fjölmiðlum, þegar stórslys urðu. Má gera ráð fyrir því að í tilvikum sem þessum séu bæjaryfirvöld skaðabóta- skyld. Vestfirska mun fylgjast með viðbrögðum bæjaryfirvalda við þessum slysum. Nú er að sjá hvort gerðar verði skjótar úrbætur og öll mörk á vegum bæjarins fest niður og gengið frá þeim þannig að þau liðist ekki í sundur og detti á leik- menn. -GHj. Sprautur eftir fíkla á víða- vangi Augnlæknir á HSÍ Einar Stefánsson augn- læknir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni á fsa- firði dagana 11.-15. júlí fyrir norðanverða Vestfirði, þ.e. Þingeyri, Flateyri, ísafjörð og Bolungarvík. Tímapönt- un í síma 4500 kl. 8-12 og 13-16. (Fréttatilkynning frá yfir- lækni HSÍ). Þolfimi (aerobic) fyrir 11-15 ára í Studio Dan Það verður brjálað fjör hjá 11-15 ára strákum og stelp- um í þolfimi (eróbikk) hjá Studio Dan á næstunni, að sögn Önnu Maríu Malmquist fþróttakennara, en hún byrjar með tíma fyrir þennan aldurshóp á mánu- daginn. Tímarnir verða milli hálfsex og hálfsjö þrjá daga í viku og fást nánari upplýs- ingar hjá Studio Dan í síma 4022. Að sögn lögreglunnar á ísa- firði hefur það borið við nokk- uð oft undanfarið, bæði á ísa- firði og í nágrannabyggðum, að börn og unglingar hafi fundið sprautur með sprautunálum þegar þau hafa verið að snyrta umhverfið. Einkum hefur þetta fundist bak við hús og á opnum svæðum, s.s. bak við ísafjarð- arapótek, við Grænagarð og við Pollgötu á Isafirði, og einnig á Að sögn Steindórs Ög- mundssonar á Táknafirði er nú byrjað á fullu við að undirbúa veginn yfir Hálfdán undir Þingeyri. Sagði lögreglan að þetta væru greinilega sprautur frá sprautufíklum. Vildi lögreglan brýna það fyrir fólki að vera ekki að fikta með þessar sprautur því mikil smithætta og alls konar óþverri fylgir þeim. Er fólki bent á að skila slíkum fundi til lögregl- unnar því hún hefur útbúnað til þess að eyða þessum óþverra. -GHj. bundið slitlag. Er eftir að leggja slitlag á 8 km á heiðinni og verður verkinu lokið í sumar. -GHj. Vestfirska hefur heyrt... ...að nú sé Ástþór Á- gústsson í Múla, oddviti Nauteyrarhrepps, orðinn einræðisherra í hreppnum að tilskipun Jóhönnu Sig- urðardóttur fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra á meðan kærur vegna sveitarstjórn- arkosninganna í hinum nýja Hólmavíkurhreppi eru til lykta leiddar. Þar sem nóg er um hross í hreppnum, samanber fréttir um lausa- göngu hrossa í Nauteyrar- hreppi undanfarin ár, er sagt að oddvitinn sé að stofna riddaralið til þess að gera atlögu norður í fyrrum Snæfjallahrepp til þess að frelsa hann undan oki Is- firðinga. Væntanlega hyggst einræðisherrann koma Strendinunum undir Hólmvíkinga... 17. júní á Tálknafirði Mikið var um að vera á Tálknafirði 17. júní, að sögn Steindórs Ögmundssonar, og voru hátíðahöldin með hefðbundnu sniði. Þar var skrúðganga, ræðuhöld, fjallkona, skemmtun fyrir börnin, útigrill og sitthvað fleira. Fjölmennt var á há- tíðahöldunum og sást ekki vín á nokkrum manni. -GHj. Bundið slitlag yfir Hálfdán

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.