Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Síða 1

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Síða 1
VESTFIRSKA E3jörnsJb>tJc> Opið laugardaga og sunnudaga Sjá tilboð á baksíðunni i FRÉTTABLAÐIÐ 1 Miðvikudagur 30. nóvember 1994 • 46. tbl. 20. árg. S 94-4011 • FAX 94-4423 VERÐ KR. 170 m/vsk. Öflugur almennur fundur í Dalabúð í Búðardal í fyrrakvöld: Gilsflöröup ve * I fyrrakvöld var haldinn í Búðardal almennur fundur um fyrirhugaða þverun Gilsfjarðar og var þar saman kominn mikill fjöldi fólks. Austur-Barðstrendingar fjölmenntu (fyrir Gilsfjörð) í tvísýnu veðurútliti og sýndu í verki áhuga sinn á þessu mikilvæga hagsmunamáli byggðanna við innanverðan Breiðafjörð. Nú er orðið fullvíst að innan skamms verður ráðist í brúargerð og vegagerð fremst í Gilsfirði, frá Kaldrana yfir í Króksfjarðarnes. Og það getur varla talist sérstök óskhyggja þótt búist sé við því að verkinu verði lokið eftir tvö og hálft ár eða þar um bil. Frásögn af fundinum er á bls. 6. Kaldrani í Gilsfirði þar sem vegurinn mun liggja noröur yfir fjörðinn. Myndin hér til hliðar sýnir hluta núverandi vegar inn Gilsfjörðinn að norðanverðu. Ljósm. Hördur Kristjánsson. Rílcíð hundsar Vestfirðinga: Ætlunin að setja umdæmisskrifstofu Fast- eignamats ríkisins niður í Borgarnesi - og hætta við að hafa hana á ísafirði, eins og stefnt var að Nú er verið að ganga frá því fyrir sunnan að um- dæmisskrifstofa Fasteignamats ríkisins verði sett niður í Borgarnesi en ekki á Isafirði, eins og stefnt hefur verið að síðustu árin. Fasteignamat ríkisins heyrir undir fjármálaráðuneytið og endanleg ákvörðun er í höndum Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra. Nokkur undanfarin ár hafa Vestfirðingar reynt að fá því framgengt að umdæmisskrif- stofu Fasteignamats rfkisins yrði valinn staður á Isafirði, í samræmi við stefnu stjórn- valda um flutning ríkisstofnana út á land. Aðallega hefur verið unnið að þessu á Fjórðungs- þingum og á vettvangi Fjórð- ungssambands Vestfirðinga. Ýmsir aðrir hafa látið málið til sín taka, þar á meðal bæjaryf- irvöld á ísafirði. Þess má geta, að Magnús Ólafsson, forstöðu- maður Fasteignamats rfkisins, kom á Fjórðungsþing Vest- firðinga árið 1991 og flutti þar erindi um málið. Upphaflega var reyndar stefnt að því að skrifstofan yrði á Flólmavík, en fljótlega var tekið skýrt fram af hálfu Fasteignamatsins að sá staður kæmi ekki til greina. Samkvæmt heimildum Vest- firska fréttablaðis er nú langt komið í kerfinu að ákveða end- anlega að setja þessa skrifstofu niður í Borgarnesi og hundsa þar með óskir og vilja Vest- firðinga. Þetta er alvarlegt mál fyrir Vestfirðinga, þetta er prinsippmál, og verður að bregðast við af fullum þunga nú þegar. Stjórnsýsluhúsið á ísafirði. Fasteignamat ríkisins er hluti stjórnsýslunnar. Meðal efnis: Þönunga- verksmiðjan á Reykhólum - 2 - Körfubolti: KFI - Tindastóll - 3 - Vestfjarða- aðstoð - baksíða PÓLLINN HF. S 3092 Sala & þjónusta © PÓLUNNHF Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki Jólavörurnar streyma inn Jólaseríur og gluggaskraut í miklu úrvali og verðið er frábært. Til dæmis er 20 Ijósa sería á aðeins 350 krónur! -------------ÖPIÐ LAUGARDAG 10 - 16 Daglegt áætlunarflug um Vestfirði. Leiguflug innanlands og utan, fimm til nítján farþega vélar. FJ-UGFÉLAGIB Brottför frá ísafirði ^ F kl. 11 alla virka daaa. ÍSAFIROI Sjúkra- og Sími 94-4200 neyðarflugsvakt allan sólarhringinn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.