Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 2

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 2
2 Miðvikudagur^0^ióvembeHi99^^^^^^^^^^^^^^J VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ Hrannargötu 2 ísafirði Innocent Moves Allar ferðir hefjast með einu skrefi. Hér er á ferðinni sérlega Ijúf og skemmtileg saga sem höfðar svo sannarlega til allrar fjölskyldunnar. Hún erbyggðá sönnum atburðum og segir frá hinum sjö ára gamla Josh Waitzkin sem er góður skák- maður sem keyrður er áfram af hörku með kröfu um árangur. Krákan SPENNUMYND Nákvæmlega einu áriu eftir morðin, snýr Krákan aftur til að hefna sín á fólkinu sem tók líf hans og hamingju. Þetta er dökk saga sem gerist í skugga- legri veröld ofbeldis og glæpa. RedSa*pion í Bandaríkjunum hefur hópur hryðjuverkamanna undir stjórn hins geðveika Kendrick, náð að festa rætur. Kendrick hefur ákveðið að losna við alla „óæskilega kynþætti. TOPP TIU 1. Cool Runnings 2. NakedGun 331/3 3. The Chase 4. The Pelican Brief 5. Serial Mom 6. Greedy 7. Mrs. Doubtfire 8. Crumpy Old Men 9. Sugarhill 10. Aladdin -- J Þörungaverksmiðjan á Reykhólum: Aukin eftirspurn eftin panamjöli á heimsmankaði - Afurðaverð verksmiðjunnar virðist heldur á uppleið og frumathuganir í gangi um sæeyraeldi á Reykhólum Úr þörungaverksmiðjunni á Reykhólum. Þaravinnsla er í fullum gangi í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum þessa dagana. Að sögn Bjama Óskars Halldórs- sonar framkvæmdarstjóra, þá liggur þangskurður og vinnsla niðri yfir vetrarmánuðina en aftur á móti er reynt að halda vinnslunni gangandi með verkun á þara. Þarinn er sóttur á dýpri mið en þangið og tekinn með plóg og hafá menn verið að síðan hætt var í þangvinnslu 26. október. Aðspurður um fréttir af sæeyraeldi sagði Bjarni að það væri vart tíma- bært að ræða það á þessu stigi. Athugun á slíku eldi væri á al- gjöru frumstigi. Sagði hann menn vera að skoða ýmsa hluti út um allt land og að til þeirra hafi komið menn til að ræða þessi mál, en það væri lítið meira af því að segja. Sæeyra er að sögn Bjarna skeldýr af sniglaætt og lifir á þara. Til- raunaeldi hefur verið í gangi á sæeyrum hjá Hafrannsókna- stofnun og tilfellið er sagði Bjarni, að þarna er um rándýra afurð að ræða. Sagði hann að það væri vissulega spennandi að skoða þennan möguleika, en þarna væri um hugmynd að ræða sem væri búin að vera lengi við lýði. Helsti markaður fyrir sæeyra er í Japan og á vesturströnd Bandaríkjanna. Að sögn Bjarna starfa nú um 17 manns í verksmiðjunni og verður unnið í vetur við þara- vinnslu. Agætt verð er fyrir þara, en hann er seinunnari en þangið. Gert ráð fyrir mán- aðarstoppi eða svo til að fara í viðhald á búnaði verksmiðjun- nar seinna í vetur. Afurðaverð virðist vera heldur á uppleið þessa dagana og fer töluverður hluti fram- leiðslunnar á Skotlandsmark- að. Sagði Bjarni að eftirspurn væri að aukast á hráefni til Alginatvinnslu. Alginat er notað sem hleypiefni, meðal annars í vörur fyrir prentiðnað og textíliðnað og má þannig segja að Þörungaverksmiðjan á Reykhólum eigi nokkurn þátt í framleiðsluferli Vestfirska fréttablaðsins. Þá er aukin eftirspurn eftir þara- og þör- ungaafurðum til fóðurgjafar og sem lífræns áburðar. Um framtíð verksmiðjunnar sagði Bjarni að þetta ætti að geta staðið undir sér, en skuldir verksmiðjunnar gerðu þeim vissulega erfitt fyrir. Annars væru fjölmargir þættir sem spiluðu inn í þetta eins og raf- orkuverð og fleira. - hk. Rettlæti í husnæðismalum - Sigmar B. Hauksson skrifar Að koma sér þaki yfir höf- uðið, eins og það heitir, er ein viðamesta og nauðsynlegasta fjárfesting hverrar fjölskyldu. Við búum hér á mörkum hins byggilega heims, byggingar- kostnaður er því mun meiri hérlendis en víðast hvar annars staðar í heiminum. Lánin eru hætt að brenna upp Hér á landi hefur sú stefna verið ríkjandi, að landsmenn eigi að eiga það húsnæði sem þeir búa í. Hið svo kallaða „fé- lagslega“ kerfi hefur ekki verið þróað á sama hátt og víðast hvar í nagrannalöndum okkar, t.d. í Bretlandi og Svfþjóð. Þegar verðbólga geisaði hér á landi var það frábær fjárfesting að byggja sér hús, lánin hrein- lega brunnu upp. Nú er öldin önnur. Það er dýrt að taka lán, allt of dýrt. Skuldir heimilanna hafa aukist um nær milljarð á mánuði það sem af er þessu ári og húsbréfakerfið er um það bil að hrynja. Eigið húsnæði er keppi- kefli hverrar fjölskyldu Þrátt fyrir þetta er það keppikefli hverrar fjölskyldu að eignast eigið húsnæði. Hér á Islandi er það nefnilega svo, að íbúðarhúsnæði er ekki ein- göngu heímili, heldur einnig fjárfesting eða trygging. Ef fjölskyldan verður fyrir skakkaföllum er hægt að selja, og þurfi að taka lán, þá er í flestum tilvikum hægt að fá það í bankakerfinu, ef við- komandi á húseign. Þegar börnin eru flogin úr hreiðrinu og fólk komið á eftirlaunaald- Sigmar B. Hauksson. „Hér á íslandi er það nefnilega svo, að íbúðar- húsnæði er ekki eingöngu heimili, heldur einnig fjárfesting eða trygging. Ef fjölskyldan verður fyr- ir skakkaföllum er hægt að selja, og þurfi að taka lán, þá er í flestuni tilvik- um hægt að fá það í bankakerfinu, ef viðkom- andi á húseign.“ ur, minnka margir við sig eins og það heitir, kaupa minna og hentugra húsnæði. Við þessi fasteignaskipti fá eldri borgar- arnir oft nokkurt fé sem milli- gjöf, fé sem hægt er að nota sem lífeyri. í stuttu máli má því segja, að fólki séu nær allar bjargir bannaðar eigi það ekki eigið húsnæði. Er þetta kerfi ekki ágætt þrátt fyrir ýmsa vankanta? Jú, mikil ósköp. Það er ágætt fyrir þá sem eru vel efnum búnir, eða búa á Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Á landsbyggðinni er kostnaðurinn við húsnæð- ið hærri en markaðsverð- ið lægra Víða á landsbyggðinni, t.d. hér á Vestfjörðum, er bygging- arkostnaður mun meiri en á suðvesturhorninu. Húshitunar- kostnaðurinn er töluvert hærri. Alvarlegast er þó, að markaðs- verð fasteigna úti á lands- byggðinni er mun lægra en á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Eg hef komið í sjávarpláss hérfyrir vestan, þar sem hið svo kallaða markaðsverð nýrra og glæsi- legra húsa dugar ekki einu sinni fyrir lánum sem tekin hafa ver- ið, þó svo að nokkuð hafi verið greitt af þeim. Húseignir víða um land eru því ekki fjárfesting í sama mæli og á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Sem dæmi mætti nefna, að glæsilegar og skuldlausar hús- eignir á landsbyggðinni hafa af bönkum og fjárfestingarsjóðum ekki þótt veðhæfar. Hér er um ótrúlegt óréttlæti að ræða sem verður að leiðrétta. Hver er ábyrgð lánastofnana? í þessu sambandi vakna ýmsar spurningar, t.d. um á- byrgð Húsnæðisstofnunar rík- isins, lífeyrissjóða og bank- anna. Er eitthvert vit í að vera að lána fólki háar fjárhæðir til húsbygginga, er sýnilegt þykir að húsið verði orðið verðlaust eftir nokkur ár? Fjárfesting í fasteign verðitryggð Auðvitað þurfa allir þak yfir höfuðið. Þess vegna þarf að byggja fleiri félagslegar íbúðir úti á landsbyggðinni. Þær stofnanir sem lána fé til hús- bygginga þurfa að taka aukna ábyrgð, m.a. með því að tryggja það að fólk sem býr á svæðum þar sem hætta er á að markaðsverð á fasteignum geti á vissum tímum Iækkað óeðli- lega í verði, m.a. vegna minnkandi fiskigengdar eða stjórnvaldsaðgerða, fái fé sitt sem það hefur lagt í fasteignina óskert eða lítt skert til baka, neyðist það til að flytja í burtu vegna atvinnuástands eða fé- lagslegra aðstæðna. Sérstakur sjóður eða fyrirtæki innan Húsnæðisstofnunar ríkisins keypti þessi hús og ætti. Hús- eignum þessum mætti svo breyta í félagslegar íbúðir eða nota sem embættismannabú- staði, eða leigja á frjálsum ntarkaði, eða þá selja síðar þegar staðan í atvinnumálum sveitarfélagsins batnar. Ef ó- venju margar fasteignir yrðu í eigu þessa sjóðs í einhverju sveitarfélagi, yrði ekki lánað þangað fé til húsbygginga fyrr en búið væri að selja einhvern hluta þeirra. Eins og staðan er nú verður fólk að selja eignir sínar fyrir smáar upphæðir langt undir kostnaðarverði eða það verður hreint og beint gjaldþrota. Húsnæði þetta nýtist oft illa og ósjaldan drabbast það niður. Öryggi í húsnæðismálum telst til sjálfsagðra mann- réttinda í stuttu máli er núverandi kerfi þjóðhagslega óhagkvæmt og dýrt, en helsti galli þess er þó sá, að fjölskyldur og ein- staklingar verða fyrir veruleg- um fjárhagslegum skakkaföll- um. Ekki er síður mikilvægt að efla enn frekar félagslega í- búðakerfið úti á landsbyggð- inni. Athuga þarf hvort ekki sé hægt að gera kerfið hag- kvæmara og skilvirkara, hvort t.d. sé hægt að lækka bygging- arkostnað. Að búa við öryggi í húsnæð- ismálum eru sjálfsögð mann- réttindi. Það óréttlæti sem fólk úti á landsbyggðinni hefur orð- ið að búa við verður að leið- rétta. Höfundur tekur þátt í próf- kjöri Framsóknarflokksins um nœstu helgi. Vöruflutningar Ármanns Leifssonar Bolungarvík Símar 94-7548 • 7538 Ferðir alla daga til og frá Reykjavík - Norður/Vestur- ísafjarðarsýslur isaTjaro y//^/rtWsW////ZZ///

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.