Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 4

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 4
4 Miðvikudagur 30. nóvember 1994 VESTFIRSKA \ frfttaBLAÐIÐ iTnnrrnrnrifr i Ógæftir hjá Patreksfjarðarbátum: FRÉTTABLAÐIÐ 1 Vestfirska fréttablaðið er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum. Blaðið kemur út síðdegis á miðvikudögum og fæst bæði í lausasölu og áskrift. Verð kr. 170 m/vsk. Ritstjórn og auglýsingar: Austurvegi 2, ísafirði, sími (94)-4011, fax (94)-5225. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja í síma (94)-3223 (ísprent) . Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon.Túngötu 17, ísafirði, hs. (94)-4446. Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf., Austurvegi 2, ísafirði. Prentvinnsla: (sprent hf., Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94J-3223. LEIÐARI Kjósendur, pólitík og lýð- ræði Áhugi almennings á stjórnmálum virðist fara heldur vaxandi hérlendis, ef nokkuð er. Jóhanna Sigurðardóttir sópar til sín fylginu. Söfnuður hennar er einhver breiðasta fylking sem um getur í íslenskri pólitík. í húsi hennar eru margar vistarverur. Þar sameinast í hinum nýja átrúnaði hörðustu postular kvótakerfisins og rótgrónir andstæðingar þess. Þar kyrja saman lofsðngva þeir sem vilja gera landið að einu kjördæmi með jöfnum atkvæðisrétti allra og þeir sem vilja standa vörð um sérstaka hagsmuni kjör- dæmanna á landsbyggðinni. Þar takast í hendur þeir sem vilja fara í norður og hinir sem ætla í suður og segja einum rómi: Við eigum samleið! Ef marka má skoðanakannanir virðast flestir íslendingar hafa mjög ákveðnar skoðanir á ESB og EFTA og GATT og öllu því. Undirritaður hefur gert það sér til gamans á liðnum vikum og mánuðum að leita eftir afstöðu fólks til ESB og fiska eftir því hvað menn vita yfirleitt um þessi mái. Niður- staðan er sú, að sárafáir vita neitt um hvað þetta snýst. Skoðanir fólks á efnahagsbandalögum og milliríkjasamn- ingum eru í rauninni yfirleitt ekki neinar skoðanir, heldur trúarbrögð. Þeir sem eru óákveðnir, þeir sem segjast ekki hafa næga þekkingu til að taka afstöðu, þeir sem telja sig ekki dómbæra, það eru yfirleitt þeir sem helst hafa ein- hverja þekkingu. Það vefst ekkert fyrir fólki sem ruglar saman ESB og EBS að vera með eða móti. En svona eru kjósendur og þess vegna er pólitíkin eins og hún er. Þess vegna eru til stjórnmálamenn. Þess vegna eru til miklir leiðtogar. Þess vegna koma fram stórmenni sögunnar. Þess vegna eru heimsstyrjaldir háðar. Lifi lýðræðið! Hlynur Þór Magnússon. Húsnæði — leiguskipti Óskum eftir 4ra herb. íbúð eða húsi á leigu á ísafirði fyrir starfsmann okkar. Leiguskipti á 3ja herb. íbúð í Reykjavík koma til greina. Upplýsingar hjá Póls-rafeindavörum hf. í síma 4400. Neyðarnúmer slökkviliðs, lögreglu og sjúkraliðs á Isafirði Togarap horfuðu undan óveðrinu um helgina Stirð veðrátta hefur verið undanfarna daga á Vestfjörð- um og hafa Patreksfirðingar ekki farið varhluta af því frekar en aðrir. Andey kom inn í gær með tæp 6 tonn og Guðrún Hlín og Núpur komu inn fyrir helgina og voru með um 25 tonn hvor um sig eftir þrjár Iagnir, en þeir komuinn á laugardaginn í vit- lausu suðvestan veðri. Stóð veðrið upp á Patreksfjarðar- höfn og það var vart meira en svo að hægt væri að landa úr bátunum. Að sögn Guðmundar Sig- urðssonar hafnarvarðar, þá lágu einir sex togarar inni á Patreksfirði vegna veðurs og þar á meðal Sólbakur frá Ak- ureyri. Létu skipverjar þar um borð ekki vel af veðrinu og sögðu að það hafi verið stórsjór útifyrir. Samkvæmt veðurkortaritara á hafnarvoginni á Patreksfirði, sem fær veðurspár um gervi- hnött frá breskum veðurspá- mönnum, þá er gert ráð fyrir áframhaldandi umhleypingum. Þrátt fyrir hvassviðrið á Pat- reksfirði, þá voru ekki neinar fréttir af skemmdum þar um slóðir. - hk. Vestfirðingar ná í gegn 13 þúsund tonna aukningu á úthafsrækjukvóta en fá minnst af því sjálfir: Þetta kerfi er eins vitlaust og það getur verið - segir Halldór Jónsson hjá Rit hf. á ísafirði og telur enga þörf á kvóta í úthafsrækjuveiðum hér frekar en í Noregi Á undanförnum vikum hafa forsvarsmenn rækjuverksmiðja við Djúp barist fyrir því að út- hafsrækjukvóti yrði aukinn svo ekki þyrfti að koma til lokunar verksmiðjanna. Ekki er búið að veiða nema um 15 þúsund tonn af þeim 50 þúsund tonna kvóta sem úthlutað var í byrjun kvótaársins, en samt hefur gengið erfiðlega hjá verk- smiðjunum að fá keyptan kvóta sem útgerðir loðnu- og síldar- báta í öðrum landshlutum hafa yfir að ráða. Virðist svo sem útgerðir þessara skipa vilji geyma sér kvótann ef loðnu- og síldveiðin skyldi bregðast. Barátta Vestfirðinga hefur nú borið þann árangur að fallist hefur verið á 13 þúsund tonna aukningu, þó vissulega hafi sumir rækjuvinnslumenn viljað sjá þennan hlut stærri. Það nierkilega við þessa aukaút- hlutun á rækjukvóta er það, að þeir sem fyrir henni börðust, bera minnst úr býtum. Síldar- og loðnubátar fá þannig kvóta upp á 4.600 tonn, sem er álíka mikið og heildarkvóti Vest- firðinga. Til gamans má geta þess að sjö skip Samherja- manna á Akureyri hafa nú yfir að ráða 5.500 tonna rækju- kvóta. Það hlýtur að teljast þó nokkurs virði á tímum hækk- andi rækjuverðs, ekki síst ef menn geta selt hluta hans aftur til hráefnissveltandi rækju- verksmiðja. Halldór Jónsson hjá rækju- verksmiðjunni Rit hf. á Isafirði segir það kapítula út af fyrir sig að það þurfi að ýta við stjórn- völdum með það að yfirfara útreikninga varðandi heildar- kvóta. „Þegar aðstæður breyt- ast, þá eiga menn auðvitað að endurreikna jafnóðum. Það á ekki að þurfa sífellt að benda mönnum á hvenær sé orðið til- efni til að endurreikna. Annars hefur maður margsinnis bent á að það sé ekki þörf á heildar- kvóta það á að duga að hafa eftirlit og beita skyndilokunum þegar það á við. Norðmenn hafa engan slíkan kvóta og ég hef aldrei fengið neinar skýr- ingar á því af hverju fiskifræð- ingar hér hafa aðrar skoðanir en félagar þeirra í Noregi sem hafa lært sömu fræði og jafnvel í sömu skólum. Þetta sýnir bara það að kerfið virkar ekki til að vernda fiskistofnana. Heldur er því eingöngu haldið við lýði til að gæta hagsmuna þeirra sem upphaflega fengu þessum kvótum úthlutað. Þetta kerfi gengur ekki upp til að vernda stofnana, en það gengur ágæt- lega upp til að skapa verðmæti fyrir utanaðkomandi aðila. Það Tæp 90 tonn at rækju úr Djupinu í síðustu viku Rækjuveiðar héldu áfram í ísafjarðardjúpi í síðustu viku og er nú búið að veiða samtals 68870 kíló síðan vertíð hófst f haust. Því er eftir af fyrirfram gefnum kvóta rúmlega fjórtán hundruð tonn. I síðustu viku komu 89 tonn og 567 kíló á land af 29 bátum við Djúp. Bakki í Hnífsdal fékk rúm 19,4 tonn, Básafell á Isa- firði fékk rúm 13,3 tonn, Frosti í Súðavík fékk rúm 12, 6 tonn. Ritur á ísafirði fékk tæp 28,2 tonn og Þuríður í Bolungarvík fékk rúm 16 tonn. Aflahæstur rækjubátanna þessa viku var Aldan IS 47 sem var með 6 tonn og 312 kíló. - hk. 77/ sölu Til sölu er verslunar- og iðnaðarhúsnæði á 2. hæð að Suðurgötu 9, ísafirði, alls 570 m2. L Landsbanki íslands ísafirði, sími 3022 er tómt bull að þetta virki til að stjórna fiskveiðum og það sýnir sig best þarna. Þetta kerfi er eins vitlaust og það getur verið.“ - hk. ■ I Mál og menning hefur sent frá sér skáldsöguna Þorvaldur víðförli eftir Árna Bergmann. Þorvald- ur víðförli, sem uppi var fyrir þúsund árum, slóst ungur í lið með Friðriki trúboðs- biskupi og lenti á íslandi í mannvígum fyrir Hvítakrist. Eftir það héldu honum eng- in bönd. Hann leitaði guðs síns í Noregi og Garðaríki, fór með Væringjum um víð- áttur Rússlands suður til Miklagarðs, var í hernaði, kom í konungshallir, gekk í klaustur og gerðist einsetu- maður. Guð reyndist heldur óþjáll til samræðu, en Þor- valdur fann að lokum ástina og enn tók líf hans breyt- ingum. Þorvaldur víðförli er söguleg skáldsaga um um- brotatíma í sögu íslands og Evrópu. Þetta er frásögn sem spannar vítt svið sögustaða og heimspeki- hugmynda, svo iistilega sögð að stundum veit les- andinn ekki hvort hann sjálfur er staddur í fortíðinni eða Þorvaldur víðförli í nú- tímanum. Þorvaldur víðförli er þriðja skáldsaga Árna Bergmann, en áður hefur hann skrifað sögurnar Geir- fuglarnir (1982) og Með kveðju frá Dublin (1984).

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.