Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 6
Miðvikudagur 30. nóvember 1994
VESTFIRSKA
J FRÉTTABLAÐIÐ
Gilsfjörður verður brúaður
Pétur Bjarnason í ræðustól á fundinum í Dalabúð í fyrrakvöld.
Við hliðina á púitinu sitja Jón Helgason, verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins, og Sigurður Þórólfsson, bóndi í Innri-
Fagradal, sem var fundarstjóri.
við orð sín
Alþýðueiníng
- Yfirlýsing starfshóps um vinstri
einingu, betri áherslur og jafnrétti
/ hópnum Alþýðueiningu eru einstaklingar, Al-
þýðubandalagsfólk, í mörgum byggðarlögum Vest-
fjarða, svo sem Vesturbyggð, ísafirði, Flateyri, Suð-
ureyri og á Ströndum.
Nú virðast engin ljón leng-
ur í vegi brúargerðar yfir
Giisfjörð milii Kaldrana og
Króksfjarðarness. Þar er um
að ræða brú nieð 60 metra
hafí og síðan miklar vegfyll-
ingar báðum megin. Þing-
menn Vestfjarða og Vestur-
lands standa einhuga að baki
þessu máli og fari allt sem
ráðgert er munu menn geta
ekið yfir hina nýju brú sum-
arið eða haustið 1997, eftir
liðlega tvö og hálft ár.
Gilsfjarðarnefnd stóð fyrir
fundi í Dalabúð í Búðardal í
fyrrakvöld og var væntanleg
brúargerð og þverun Gilsfjarð-
ar til umræðu. Til fundarins var
boðið Dalamönnum, Austur-
Barðstrendingum og þing-
mönnum beggja kjördæmanna
sem hlut eiga að máli, Vestur-
landskjördæmis og Vestfjarða-
kjördæmis. Geysilegur baráttu-
hugur ríkti á fundinum en hann
sóttu um 220 manns og má það
teljast ótrúlega mikil fundar-
sókn á þessum stað og tíma.
Af Vestfjarðaþingmönnum
voru tveir mættir, þeir Einar K.
Guðfinnsson og Pétur Bjarna-
son, en fimm þingmenn úr
Vesturlandskjördæmi, þau
Sturla Böðvarsson, Guðjón
Guðmundsson, Jóhann Arsæls-
son, Ingibjörg Pálmadóttir og
Gísli S. Einarsson. Kveðjur
bárust á fundinn frá Matthíasi
Bjarnasyni, Sighvati Björg-
vinssyni og Kristni H. Gunn-
arssyni. Sigurður Þórólfsson í
Innri-Fagradal stjórnaði fund-
inum af mikilli röggsemi.
Mikill hluti framkvæmda-
fjár þegar tryggður
Allir þingmennirnir sem
fundinn sóttu tóku til máls og
kom það fram í máli þeirra, svo
og í þeim kveðjum sem bárust
frá fjarstöddum þingmönnum,
að þingmenn kjördæmanna
beggja eru einhuga um að
standa fast við það að farið
verði eftir vegaáætlun og mál-
inu hrint í framkvæmd. Fjár-
veitingar sem fyrir liggja skv.
vegaáætlun eru fyrir árið 1985
kr. 98 milljónir úr Stórverk-
efnasjóði, 33 milljónir af vega-
fé Vesturlandskjördæmis og 7
milljónir frá Vestfjörðum. Fyrir
árið 1996 eru upphæðirnar 241
milljónir úr Stórverkefnasjóði,
59 milljónir frá Vesturlandi og
74 milljónir frá Vestfjörðum.
Þetta eru samtals 512 milljónir
króna. Aætlað „útboðsgengi"
framkvæmdanna er 600-650
milljónir, en í máli Jóns Helga-
sonar verkfræðings á hönnun-
ardeild Vegagerðar ríkisins
kom fram, að kostnaðaráætlun
á verðlagi ársins 1991 er 870
milljónir. Framreiknuð kostn-
aðaráætlun nú er því um 900
milljónir, en það er meðalverð
Vegagerðarinnar, sem aftur á
móti getur þýtt að heildar-
kostnaður verði um 700 millj-
ónir. þegar reiknað er með
sparnaði vegna útboða o.fl.
Af heildarupphæðinni liggja
nú þegar fyrir loforð um fjár-
veitingar upp á 512 milljónir,
eins og fyrr segir, eða um þrír
fjórðu hlutar. Fundurinn í
fyrrakvöld snerist fyrst og
fremst um það, í fyrsta lagi
hvort þessar fjárveitingar væru
tryggar, og það fullyrtu þing-
menn einum rómi, og í öðru
lagi hvort framhaldið yrði
tryggt á þeirri vegaáætlun sem
samþykkt verður á Alþingi í
vetur.
Urskurður umhverfisráð-
herra í málinu barst 3. nóvem-
ber sl. og segir þar að úrskurður
skipulagsstjóra ríkisins sé stað-
festur, þar sem gögn sem lögð
hafa verið fram teljist full-
nægjandi og svari þeim at-
hugasemdum sem gerðar hafa
verið.
Uggur um að málinu yrði
frestað eða eytt
Það kom fram í máli þeirra
nefndarmanna sem töluðu á
fundinum, að uggur hefur verið
að undanförnu í bæði nefndar-
mönnum og heimamönnum í
héraði og kvittur verið á ferð-
inni þess efnis að kominn væri
bilbugur á einhverja þingmenn
þessara kjördæma (sbr. minn-
isblað 9. nóv. 1994: Staðfestar
raddir urn seinkum fjárveitinga
til Gilsfjarðar). Þetta var rætt á
fundinum og kom það glöggt
fram að slíkir huldumenn fyrir-
finnist alls ekki, draugagangur
sé ekki til í þessu máli og
orðrómurinn eigi sér enga stoð
í raunveruleikanum.
Mönnum verður ekki
liðið að standa ekki
Sá kvittur sem hér var
nefndur og sá uggur sem hann
hefur leitt af sér mun vera
helsta ástæða þess að til þessa
fundar var boðað. Nánast hver
einasti heimamaður sem tók til
máls á fundinum sagði að ekki
yrði liðið, hvorki þingmönnum
eða öðrum ráðamönnum, að
standa ekki við orð sín. Bjarni
P. Magnússon hafði sérstakar
áhyggjur af seinkun, einkum ef
það drægist fram yfir kosningar
að samþykkja nýja vegaáætlun
og þessa röð framkvæmda.
Hann sagðist hafa heyrt efa-
semdaraddir um hug Vestfirð-
inga í þessu máli, og spurði: A
að skera niður, á að seinka
framkvæmdum? Jafnframt
minnti hann á nýlega ályktun
Fjórðungssambands Vestfirð-
inga, þar sem fullum stuðningi
er lýst við þetta mál.
Útboðsgögn geta verið
tilbúin í júní
Þeir tveir þingmenn Vest-
firðinga sem fundinn sátu tóku
síðan af öll tvímæli og fullyrtu
að enginn væri að bila í málinu.
Alla tíð hefur reyndar legið
fyrir það loforð, að þegar
Dýratjarðarbrúnni væri lokið
yrði ráðist í Gilsfjarðarbrú. Það
kom fram í máli Jóns Helga-
sonar verkfræðings, að af hálfu
Vegagerðarinnar væri í raun-
inni fátt að vanbúnaði, en þó
hefðu þau skilyrði sem henni
voru sett í úrskurðinum, þ.e. að
fylgjast með umhverfismati
o.fl., valdið því að rétt hefði
þótt að taka hönnunarforsendur
til endurskoðunar. Jón sagði að
hönnun mannvirkisins gæti
lokið í mars í vetur og útboðs-
gögn gætu verið tilbúin í sumar,
væntanlega í júní.
Friðjón Þórðarson fyrrv. al-
þingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins á Vesturlandi var á fundin-
um og sá sérstaka ástæðu til að
hrósa Össuri Skarphéðinssyni
umhverfisráðherra fyrir af-
skipti af þessu máli: Síðan
Össur kom að málinu hefur
hvert orð staðið, sem sagt hefur
verið.
Slysasaga
Gilsfjarðarvegar
Einn fundarmanna rakti
slysasögu Gilsfjarðarvegar á
seinni árum og var þar af nógu
að taka. Þess má geta að einum
áratug hafa fjórir menn týnt
lífinu í bílslysum í Gilsfirði.
Jóhann Arsælsson alþingis-
rnaður sagði að framhjá því
yrði ekki gengið, að ríkis-
stjórnin hefði krukkað í fram-
kvæmdaröð í kjördæmunum
tveimur og þar með tafið þetta
verk. Hann kvaðst þó ekki gera
það að ágreiningsmáli, svo
framarlega sem verkið gengi
eðlilega úr þessu.
Guðrún Konný Pálmadóttir,
oddviti Dalabyggðar, talaði um
þetta mál og lagði mikla á-
herslu á öryggismál og ekki
síður á atvinnumálaþátt þessar-
ar framkvæmdar.
Á undanförnum dögum hafa
birst í fjölmiðlum yfirlýsingar
nokkura nafnkunnra Alþýðu-
bandalagsmanna um breyttan
starfsvettvang sinn í pólitík. Til
er nefnd sérstaklega sú hreyf-
ing sem gert hefur vart við sig
í kringum brotthlaup Jóhönnu
Sigurðardóttur úr Alþýðu-
flokknum.
Nokkrir félagar í Alþýðu-
bandalaginu á Vestfjörðum
hafa myndað með sér hóp sem
vinnur að aukinni einingu inn-
an flokksins, aukinni virkni al-
mennra félagsmanna og betri
tengslum við sterkustu jafn-
réttisöfl, bæði innan flokks sem
utan og bæði innan kjördæmis
sem utan þess.
Leiðin til árangurs í barátt-
unni fyrir bættum kjörum al-
þýðu er hvorki sú að þramrna til
liðs við krataforingjann Jó-
hönnu Sigurðardóttur né að
rígbinda sig í viðjar flokkslegr-
ar einangrunar í hverju kjör-
dæmi fyrir sig. Hópurinn ætlar
sér ekki að láta það vanþakkláta
verkefni eftir þingmönnum og
forystu Alþýðubandalagsins að
skera úr um framtíð flokksins.
Það er bjargföst sannfæring
okkar, að forsendur sóknarfæra
flokksins sé m.a. að finna í
umróti stjórnmálanna á liðnum
mánuðum og í brimi þeirra á
næstu misserum. I slíkt umrót
ber að sækja flokknum styrk. I
þann leiðangur veljum við þá
sem best er treystandi til að
skila sósíalismanum auknu
fylgi í komandi alþingiskosn-
ingum.
Endurreisn flokksfélagsins í
Vestur-Barðastrandarsýslu og
sameining félaga á Ströndum í
eitt félag eru hvorttveggja teikn
um afnám úreltra landamæra.
Rætt er um sameiningu flokks-
félaga á nokkrum stöðum á
norðanverðum Vestfjörðum.
Þessi félagshyggja er vel að
merkja með áherslurnar á bætt
flokksstarf í ljósi bjartsýni eftir
ávinninga flokksins í síðustu
sveitarstjórnarkosningum. I
þessum félagsanda ber að
stefna til samstarfs við stjóm-
málaöfl með aðrar áherslur í
sinni vinstri stefnu. Hópurinn
mun á næstu misserum sýna
fram á, að sá uppreisnarbragur,
sem á liði Jóhönnu Sigurðar-
dóttur er, nærist aðeins, hvað
Alþýðubandalagið snertir, á
takmarkaðri óánægju nokkurra
einstaklinga. Alþýðubandalag-
ið þekkir líf þessarar þjóðar og
það er vissa okkar að innan
Alþýðubandalagsins er réttasti
og hentugasti vettvangurinn til
þess að virkja uppreisnarþrótt
þjóðarinnar til baráttu gegn
ríkisstjórn ójafnréttis, óréttlæt-
is og þröngra sérhagsmuna.
Nú stendur yfir forval Al-
þýðubandalagsfólks á Vest-
fjörðum vegna uppstillingar á
væntanlega framboðslista
flokksins í næstu alþingis-
kosningum. Alþýðueining
hyggst standa fast að baki þeim
félögum sem þar túlka ofan-
greind sjónarmið og skorar á
Vestfirðinga að leggja hlustir
við, í stað þess að kasta á dreif
samtakamættinum í flokksbrot
úr ríkisstjórnarsamsteypu Dav-
íðs Oddssonar. Slík sprengju-
brot mega ekki fá að grafa um
sig, grafa út frá sér og verða að
þrálátri meinsemd á vinstri
kanti stjórnmáiabaráttunnar.
Gilsfjarðarnefndin
Gilsfjarðarnefnd er fimm manna nefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa málið heima í
héraði. í henni eiga sæti Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkurbússtjóri í Búðardal, Sigurður Þór-
ólfsson varaþingmaður og bóndi í Innri-Fagradal, Sigurbjörn Sveinsson læknir, Bjarni P. Magn-
ússon sveitarstjóri á Reykhólum og Stefán Magnússon á Reykhólum.
Sigurbjörn Sveinsson var lengi héraðslæknir í Búðardal og þjónaði Reykhólum og átti ótaldar
ferðirnar fyrir Gilsfjörð en er nú fluttur suður. Á fundinum kom fram mikið þakklæti í hans garð fyrir
óþrjótandi dugnað og áhuga á hagsmunamálum byggðanna við innanverðan Breiðafjörð.
Ummæli að fundi loknum
Einar K. Guðfinnsson alþm. (D):
„Mér fannst þetta mjög góður fundur. Hann var gríðarlega fjölmennur og mér finnst það und-
irstrika mjög vel hvað fólk er staðráðið í að fylgja fast eftir þessu mikla hagsmunamáli, sem brú-
argerð og þverun Gilsfjarðar er. Ég er þeirrar skoðunar, að þetta sé mjög mikið hagsmunamál,
ekki bara fyrir Reykhólahrepp og Dali heldur einnig fyrir Vestfirði. Það var upplýst á fundinum að
útboðsgögn gætu verið tilbúin á næsta sumri, og það er ásetningur stjórnvalda og þingmanna
og annarra að í framhaldi af því verði verkið boðið út og framkvæmt. Hér er um að ræða gríðar-
lega gott mál og mikilvægt fyrir Vestfirðinga og við verðum að standa að því af fullri festu.“
Pétur Bjarnason alþm. (B):
„Þessi fundur var afskaplega skemmtilegur. Ég hef varla séð annan eins gneistandi baráttuvilja
á svo stórum fundi og þarna var. Ég hafði eins og aðrir heyrt þennan orðróm um einhvern bilbug
í málinu og ég er mjög ánægður að þessi fundur skuli hafa verið haldinn og öllum vafa eytt um
framgang þessarar mikilvægu framkvæmdar.“
Ályktun fundaríns
Almennur fundur íbúa Dala og Reykhólahrepps, haldinn í Búðardal 28. nóvember 1994, skorar á
Alþingi að standa við fyrri ákvarðanir sínar um þverun Gilsfjarðar, eins og þær birtast fgildandi vega-
áætlun. Fundurinn beinir því einnig til Alþingis að taka ákvörðun um verklok, til þess að bjóða megi
verkið út á fyrri hluta næsta árs. Fundurinn minnir áað engir tæknilegir meinbugir eru lengur áþvíað
verkið verði hafið, þar sem öll tilskilin leyfi liggja fyrir um vegargerðina. Fundurinn bendir á, að um-
ferðarþungi í Gilsfirði hefur aukist seinni árin og lýsir áhyggjum sínum yfir því að mjög alvarlegum
umferðarslysum hefur fjölgað þar. Fundurinn lýsir hér með þeirri skoðun sinni, að Dalamenn og íbúar
Reykhólahrepps muni ekki una þingmönnum sínum neinnarseinkunarframkvæmda frá þvísem þegar
hefur verið ákveðið.
PROFKJOR
IIIJ
Prófkjör Framsóknarflokksins
ót Vestfjörðum 1994
Kjörseðill
Kjósandi skal velja FJORA frambjóðendur, hvorki fleiri né
færri, og merkja með tölustöfum, 1, 2, 3 eða 4, við
nöfn þeirra íþeirri röð sem kjósandi vill að
frambjóðandi taki sæti á framboðslistanum.
Anna Jensdóttir
Anna Margrét Valgeirsdóttir
Guðmundur Hagalínsson
Gunnlaugur Sigmundsson
Pétur Bjarnason
Ragnar Guðmundsson
Sigmar B. Hauksson
Sigurður Kristjánsson
Sveinn Bernódusson
Kjörstaðir eru hjá Framsóknarfélög-
unum í kjördæminu, nánar auglýst í
götuauglýsingum.
Yfirkjörstjórn.