Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 9

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Qupperneq 9
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ V GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður: Staða gangavarðar/ ræstitæknis Gangavörður sér um gæslu á göngum skólans á skólatíma og ræstingu. Staða matmóður nemenda Matmóðir nemenda útbýr snarl fyrir nemendur í kaffifrímínútum og hádeg- ishléi. Störfin krefjast þolinmæði, samvisku- semi og vandvirkni og að viðkomandi hafi ánægju af að umgangast börn og unglinga. Umsóknir skulu sendar til skóla- stjóra, sem einnig veitir nánari upp- lýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. desember. Bæjarstjórinn á ísafirði. Hjálmar S. Björnsson Vestfjarðameistari í skvassi Stebbi Dan óskar Hjálmari til hamingju meö sigurinn og titilinn. Að loknu Vestfjarðamótinu í skvassi. Standandi f.v.: Viðar Konráðsson, Kristinn Arnarsson og Hjálmar S. Björnsson. Krjúpandi: Rósa Baldursdóttir og Hrafnhildur Hreinsdóttir. Vestfjarðamótið í skvassi fór fram í Studio Dan á ísafirði á laugardaginn. Sigurvegari varð Hjálmar S. Björnsson, annar varð Kristinn Arnarsson og Viðar Konráðsson þriðji. Kristinn Arnarsson fékk einnig sérstök verðlaun fyrir bestu frammistöðuna á árinu og Rósa Baldursdóttir fékk verðlaun fyrir mestu framfarir á þessu ári. Gestur mótsins var Hrafnhildur Hreinsdóttir, sem varð í öðru sæti á síðasta íslandsmóti og spilar með íslenska landsliðinu. Þátttakendur voru tólf og kepptu í opnum flokki, karlar og konur saman. Miðvikudagur 30. nóvember 1994 9 Af síðustu málefnum Patrekshnepps - Úlfar B. Thoroddsen skrifar Patreksfjarðarhöfn. „Ólafur hafði fjármálalegt eftirlit með Birni og Sigurði og þeir stjórnuðu honum. Sem sagt: Gagnkvœmt traust, vinátta og kœrleikskeðja. Einliver sagði: Kolkrabbi.“ Miðvikudag síðustu viku bárust fréttir af umfjöllun árs- reiknings Patrekshrepps 1993. Sagt var að ferða- uppihalds- kostnaður síðustu sveitar- stjórnar Patrekshrepps væri 5,5 milljónir eða um kr. 6.200 á hvern íbúa og því mjög vel fyrir þeim þörfum séð, eftir fréttum að dæma. Bæjarstjóri Vesturbyggðar sagði nefnda upphæð „óljósa“ en var svo óheppinn að blanda skrifstofustjóra í málið. Það ráðslag gerði allt tortryggilegt. Það var þá í reynd sett sama- sem-merki á milli fyrrum sveitarstjóra Olafs Arnfjörðs og ríflegs ferðakostnaðar. Og lítur svo út eftir fréttum og umræðum manna á meðal, að hann hafi staðið einn í að bruðla með almannafé í hótel og veit- ingar. Traust Björns og Sigurð- ar á nefndum Ólafi... Málið er ekki svo einfalt. O- lafur var starfsmaður síðustu sveitarstjórnar Patrekshrepps. Var hann ráðinn á ábyrgð Björns Gíslasonar, oddvita, og Sigurðar Viggóssonar, vara- oddvita, og annarra í meirihluta þeirrar sveitarstjórnar. Slíkt traust var á nefndum Ólafi af hálfu þeirra Björns og Sigurðar, að þeir settu hann til sjóðs- vörslu Patrekshrepps. Þá var Ólafur og settur í það fyrir at- beina Bjöms og Sigurðar, stjórnarmanna í Odda hf. á Patreksfirði, að endurskoða ársreikning þess og Utgerðar- félags Patreksfjarðar hf. Ólafur hafði fjármálalegt eftirlit með Bimi og Sigurði og þeir stjórn- uðu honum. Sem sagt: Gagn- kvæmt traust, vinátta og kær- leikskeðja. Einhver sagði: Kolkrabbi. Sveitarstjóri aðeins fram- fylgt samþykktum Það var hlutverk sveitar- stjórnar Patrekshrepps að gera fjárhagsáætlanir, marka út- gjaldaliði og meta þörf þeirra og innsigla þau verk með upp- hæðum og í þessu tilviki um kr. 5,5 milljónum og bera á því fulla ábyrgð. Það verður ekki sett samasem-merki á milli Ólafs sveitarstjóra og þeirrar upphæðar. Það er samasem- merki á milli Björns, Sigurðar, Drafnar og Kristinar og kr. 5,5 milljóna. Sveitarstjórinn, sá trausti sjóðshaldari síðasta meirihluta í hreppsnefnd Pat- rekshrepps, hefur aðeins fram- fylgt samþykktum og reitt fram greiðslur í hinar margvísleg- ustu ferðir starfsmanna og sveitarstjómarmanna, allt eftir mjög vönduðum og mar- gígrunduðum samþykktum. Hafi sveitarstjóri hins vegar farið á bak við sveitarstjóm og ausið út fé í ferðalög umfram heimildir, þá var hann í slæm- um málum. Um slíkt hefur ekkert heyrst og þess vegna getur það ekki verið. Það þýðir ekkert fyrir fyrrum meirihluta að baknaga Ólaf á götuhornum nú og kenna honum um allt, en líkt væri það liðinu. Hreppsreikningar fyrir 1993 enn óafgreiddir og óbirtir Enn eru þeir reikningar Pat- rekshrepps 1993 óafgreiddir. Ljósm.: Búi Bjarnason. sem áttu að afgreiðast í maí, og enn hafa þeir ekki komið fyrir almenningssjónir. Þar ber nú- verandi bæjarstjóri Vestur- byggðar jafna ábyrgð til móts við fráfarandi sveitarstjórn Patrekshrepps. Sveitarstjóri hafði lagalega stöðu til að þrýsta á sveitarstjórn um af- greiðslu ársreikningsins en lét hjá líða. Sorglegur endir á merkri sögu Það er sorglegt hvernig ann- ars merkri 87 ára sveitarstjórn- arsögu Patrekshrepps er að ljúka fyrir atbeina þeirra sem réðu ferðinni árin 1990-94. Ulfar B. Thoroddsen, Brunnum 23, Patreksfirði. Jóla- Ég tek að mér tu) gera hreint fyrir jólin... ...alla íbúðina eðtt einstök herbergi — loftin... veggina... teppin... húsgögnin... Massi Suðurtanga 2 sími 5196 ...og bílinn!

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.