Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Side 10
10
Niðurstöður
hlustunar-
könnunar:
Mjög lítið
hlustað á
Svæðisút-
varp Vest-
fjarða
Vestfirðingar hlusta
mjög lítið á Svæðisútvarp
Vestfjarða. Hlustun á
svæðisstöðvar Ríkisút-
varpsins á Austurlandi og
Norðurlandi er mun meiri
en á Vestfjörðum, en get-
ur þó alls ekki talist mik-
il. Þetta eru niðurstöður
könnunar sem Rfkisút-
varpið lét gera dagana
21 .-26. október sl.
Stofnunin hefur ekki
séð ástæðu til þess að
birta niðurstöður þessarar
könnunar opinberlega.
Það er raunar mjög skilj-
anlegt enda er ekki líklegt
að menn þar á bæ hafi á-
huga á því að þessi útreið
komist í hámæli.
Samkvæmt könnuninni
hlustuðu 63% Austfirð-
inga einhvern tíma á því
tímabili þegar könnunin
var gerð á útsendingu
svæðisútvarpsins á Aust-
urlandi og meðalhlustun
var 37%. A sarna tíma
hlustuðu 55% Norðlend-
inga einhvern tfmann á
útsendingu svæðisút-
varpsins á Norðurlandi og
meðalhlustun var 28%.
Einungis innan við 40%
Vestfirðinga hlustuðu
einhvern tímann á þessu
tímabili á útsendingu
Svæðisútvarps Vestfjarða
og meðalhlustun var að-
eins 23% samkvæmt
könnuninni.
Lista-
verka-
almanak
Þroska
hjálpar
Listaverkaalmanak
Þroskahjálpar fyrir árið
1995 er kornið út. Það
er með svipuðu sniði og
áður og prýtt glæsileg-
um grafíkverkum eftir
íslenska listamenn.
Almanakið er jafnframt
happdrættismiði. Vinn-
ingarnir eru 49 graf-
íkverk eftir íslenska
listamenn og þar á með-
al eru verk eftir Erró.
Dregið er í hverjum
mánuði um þrjá til
fimm vinninga. Alman-
akið er gefið út í aðeins
18 þúsund eintökum og
rennur andvirðið óskipt
til starfsemi Þroska-
hjálpar.
Miðvikudagu^30^ió\^mber^l99^^^^^^^^^^^^^^J
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Fasteignaviðskípti
ISAFJORÐUR
Aðalstræti 20 4ra herb. íbúð á 2. hæð, u.þ.b. 130 m2.
Laus eftir samkomulagi.
Aðalstræti 32 3ja herb. íbúð á 1. hæð.
Silfurgata 11 3ja herb. íbúð á 1. hæð. Laus fljótlega.
Smiðjugata 11a Húsið er tvær hæðir, kjallari og ris
(háaloft). Hvor hæð er rúmir 50 m2. Niðri er eldhús,
stofa og bað, uppi eru 4 svefnherbergi og salerni.
Strandgata 7 Nýuppgert, tvílyft einbýlishús úr timbri.
Pólgata 4 5 herb. íbúð á 3. hæð.
Aðalstræti 22b 3ja-4ra herb. íbúðir á 2. og 3. hæð.
Fitjateigur 4 U.þ.b. 151 m2 einbýlishús á einni hæð
ásamt bílskúr.
Bolungarvík
Ljósaland 5 118 m2 einbýlishús.
Ljósaland 6 2x126 m2 einbýlishús. Hagstæð lán.
Hlíðarstræti 21 Gamalt einbýlishús.
Traðarland 24 Tvílyft einbýlishús, u.þ.b. 200 m2 með
bílskúr.
Stigahlíð 2 3ja herb. íbúð á jarðhæð. Laus.
Stigahlíð 4 3ja herb. íbúð á 1. hæð. íbúðin er laus.
Völusteinsstræti 4 2x126 m2 einbýlishús. Á neðri
hæð er bílskúr og fokhelt húsnæði. Á efri hæð eru m.a.
4 svefnherbergi. Verð ca. kr. 9 milljónir, mest áhvílandi
húsnæðisstofnunarlán. Skipti á minni eign í Bolungar-
vík koma vel til greina.
Arnar G. Hinriksson
Silfurtorgi 1, sími4144
108
Nýjar vestfirskar þjóðsögur
Olræt, sloppinn maður!
Gísli Hjaitason í Bolungarvík var mágur
Einars heitins Guðfinnssonar. Hann var
lengi hafnarvörður og vigtarstjóri við
höfnina.
Einhverju sinni hafði Gísli tekið plöturn-
ar ofan af hafnarvoginni þannig að gryfjan
stóð opin. Hann var sjálfur ofan í damm-
inum með yfirborð jarðar í brjósthæð og
var eitthvað að bjástra.
Þá vildi svo til að Gamli-Gráni, merkur
vörubíll sem Einar Guðfinnsson átti og
stóð löngum í brekkunni fyrir ofan hafnar-
vogina, tók upp á því upp úr þurru að
renna af stað. Gísla verður litið upp og sér
hvar Gráni kemur á sívaxandi siglingu og
enginn undir stýri og stefnir beint á vogina,
líkast tii af gömlum vana þótt enginn væri
farmurinn til að vigta að þessu sinni.
Gamli maðurinn átti ekki annarra kosta
völ en að láta sig hverfa niður í gryfjuna og
vona hið besta. En svo merkilega og
heppilega vildi til að Gráni hitti með hjól-
unum nákvæmlega á langböndin í vog-
inni, fetaði sig klakklaust eftir henni endi-
langri og hélt síðan áfram ferð sinni hinum
megin.
Um leið og trukkurinn var sloppinn yfir
rétti Gísli sig upp og mælti: Olræt, slopp-
inn maður! I sömu andrá steyptist Gamli
sorrí Gráni niður í fjöruna fyrir aftan hann.
En orð Gísla Hjalta við þetta tækifæri
urðu fleyg og fylgdu honum æ síðan.
Uppskrift í Vestfirska
frá Sigurvin Hreiöarssyni á Tálknafirði
Eftirréttur
4 perur
ca 1 dl sykur
smjör
smásletta af koníaki
smávegis vanillusykur
rjómi
Perurnar hreinsaðar og skornar í 4-8
báta hver pera. Sykurinn brúnaður á
pönnu og farið eins að með perurnar og
þegar kartöflur eru brúnaðar (með
smjörinu). Síðan er rjóminn settur út í,
einnig koníakið og vanillusykurinn.
Gott með öllum ís.
I næstu viku verða hér fleiri uppskriftir
frá Sigurvin Hreiðarssyni, bæði steiktur
fiskur penslaður með barbecue- sósu
og einnig „sósa sem ég datt niður á“
eins og hann orðar það.
Kjósum Pétur Bjarnason
ífyrsta sœti íprófkjöri
framsóknarmanna
3. desember.
Stuðningsmenn.
Kjósum Vestfirðing
í 1. sietið
Kaffi og bók Bókakynning
verður á Hótel ísafirði nk. sunnudag milli kl. 3 og 5.
Lesið verður úr nýjum athyglisverðum bókum og ýmsar bækur munu
liggja frammi fyrir gesti til að glugga í.
Glæsilegt kökuhlaðborð, kaffi og heitt súkkulaði auk léttra jólalaga.
Stund fyrir alla fjölskylduna.
VERIÐ VELKOMIN - AÐGANGUR ÓKEYPIS
SÍMI4111
t BOKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
ísafirði, sími 3123