Morgunblaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Göngugarparnir Kjartan Long og Martin Swift fengu heldur betur óvænta heimsókn um síðustu helgi eftir að þeir höfðu komið sér vel fyrir í Bol- ungarvík. Á sama tíma og Martin hugðist gæða sér á vænum bita af ítalskri salami-pylsu ákvað tófa að vitja tjalds þeirra. Þrátt fyrir að vera heldur tætingsleg í útliti tókst skepnunni að heilla þá félaga upp úr skónum og fékk að laun- um bita áður en hún hélt aftur til síns heima. Vestfirskar tófur sækja í suðrænar pylsur Ljósmynd/Kjartan Long Tófa heilsaði upp á tvo göngugarpa á Ströndum og heimtaði bita af nesti þeirra Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is „Þetta er hverfandi vandamál,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, verkefna- stjóri markaðsdeildar í Bláa lóninu, spurður um sögusagnir þess efnis að algengt sé að gestir stundi kynlíf í náttúruperlunni frægu. Atli segir að Bláa lónið hafi strang- ar reglur um kynlíf gesta. Grannt sé fylgst með gestum. Fjórir gæslu- menn séu á vakt hverju sinni og manni þeir öll horn lónsins og fylgist vandlega með gestum. „Það er hluti af þeirra vinnu að fylgjast með aðförum og upplifun gesta. Við erum að vernda upplifun gestanna og á öllu svona er tekið hart, þar sem þetta er í raun ekki í boði.“ Hann segir þetta sérstaklega hafa verið vandamál í gamla lóninu, en sé ekki lengur. Atli segir að ef til vill skýrist þessi hegðan af því að vatnið sé gruggugt og því sé ekki hægt að sjá hvað gerist undir yfirborðinu. Séu gestir gripnir við verknaðinn er þeim skilyrðislaust vísað upp úr Bláa lóninu, að sögn Atla. Þetta sé brot á skilyrðum sem eru sett við miðakaupin. „Þetta hefur ekki gerst í mörg ár, en ef þetta gerist þá er vísað upp úr.“ Spurður hvort slíkir gestir séu settir á bannlista, segir Atli að þeir fái allavega ekki að koma aftur á sömu forsendum. „Það er tekið mjög strangt á þessum málum,“ segir hann. Kynlíf í Bláa lóninu er „hverfandi vandamál“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæsla Gæslumenn eru við öll horn lónsins og fylgjast með gestum.  Grannt fylgst með gestum Könnunarskurðir sem fornleifa- fræðingar gerðu á dögunum á Munkaþverá í Eyjafirði leiddu í ljós fornan graf- reit. Grafreit- urinn var í hól sunnan við bæj- arstæðið, þar sem áður hafa komið í ljós mannabein. Í hólnum fundust nokkrar kistugrafir sem all- ar snúa austur/vestur og með hjálp gjóskulaga var hægt að aldursgreina þær til 12. aldar og síðar. Uppgröfturinn var liður í rann- sókn Steinunnar Kristjánsdóttur prófessors og samstarfsfólks hennar á klaustrum á Íslandi á miðöldum. Á Facebook-síðu rannsóknarinnar segir að fundur þessa grafreits bendi til kirkju og kirkjugarðs á þessum stað, en um leið til þess að tvö kirkjustæði hafi fyrrum verið á Munkaþverá, eitt fyrir klaustrið og annað fyrir heimafólk eða sóknina. Nokkuð ljóst sé jafnframt að klaustrið hafi staðið nærri núverandi kirkju og hún því eflaust upphaflega verið byggð sem hluti af klaust- urbyggingunni. Nokkrar grafanna á staðnum eru frá því eftir Heklugosið 1104, en ein frá því fyrir það því gjóskan lá yfir henni. Nokkuð heillegar kistuleifar voru í sumum grafanna, en beinaleif- ar voru fáar. Fundu fornan grafreit Steinunn Kristjánsdóttir  Líklega tvær kirkjur á Munkaþverá Ríflega 5 metra langt eldstæði sem grafið var upp við fornleifauppgröft í Lækjargötu á dögunum mun fá að standa og verður fellt inn í nýtt hótel Íslandshótela sem mun rísa á lóðinni á næstu árum. Útfærslan á fram- kvæmdinni verður unnin í samráði við Minjastofnun. Óvíst er hvort langeldurinn verði hækkaður upp eða hægt verði að virða hann fyrir sér í gegnum glergólf en Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslands- hótela, segir að eldstæðið eigi eftir að setja skemmtilegan svip á hótelið og að ýmsir möguleikar séu fyrir hendi til að teikna upp skálann og gera sögu staðarins skil. Fornleifar hluti hótels SÓLAR í sólarhring! Hefst í dag kl. 12 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Mikil óvissa er með sölu á makrílaf- urðum á vertíðinni, sem er að komast í fullan gang. Nýjast í þeim efnum er að yfirvöld í Nígeríu hafa tilkynnt bann á innflutningi á fiski og fjöl- mörgum fleiri vöruflokkum. Til Níg- eríu fóru yfir 20 þúsund tonn af fryst- um makríl í fyrra og voru Nígeríumenn, ásamt Rússum, stærstu kaupendur makríls héðan. Þessi staða bætist ofan á erfiða stöðu á Rússlandsmarkaði, vegna efnahagsástandsins í landinu, en að auki hefur landið verið lokað nokkr- um stórum útflytjendum héðan síð- ustu mánuði vegna skilyrða sem Rússar kynntu í fyrrahaust. Í þeim hópi eru meðal annars Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, Skinney-Þinganes á Höfn og Huginn VE, sem frystir aflann um borð. Sigurgeir Brynjar Krist- geirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, segir að staðan á mörkuð- um sé grafalvarleg. Lokunin í Nígeríu frá síðustu mánaðamótum sé enn eitt áfallið, en markaðurinn þar hafi skipt miklu og vaxandi máli síðustu ár. Gjaldeyrisskortur í landinu „Þetta er ástand sem við höfum ekki séð áður og það tekur tíma að byggja upp markaði,“ sagði Sigurgeir Brynjar í gær. „Olíuverð hefur lækk- að og auðvitað kemur það útgerðinni til hagsbóta, en að sama skapi hefur það þær afleiðingar að olíuútflutn- ingsríkin eiga í erfiðleikum. Í Nígeríu er gjaldeyrisskortur og ég sé ekki mörg ráð til að þessu verði breytt á næstunni.“ Sigurgeir Brynjar segist telja að önnur lönd í Afríku taki ekki við því magni sem farið hefur til Nígeríu. Vissulega sé makríls neytt víða um heim og til dæmis sé stór markaður í Japan. Þar séu hins vegar yfirleitt gerðar aðrar kröfur til makrílsins en Íslendingar geti uppfyllt. Hann nefnir að undanfarið hafi ver- ið umræður hérlendis um fríverslun- arsamning við Kína og að innflutning- ur þaðan sé ekki nægur. Vinnslustöðin hafi hins vegar unnið að því síðustu vikur að flytja út gáma með makríl til Kína. Það hafi þó ekki verið hlaupið að því vegna skrif- finnsku og mikils flækjustigs. Lokað á makríl í Nígeríu  Mikil óvissa með sölu afurða á vertíðinni  Enn erfiðleikar á Rússlandsmarkaði  Höfum ekki séð slíkt ástand áður, segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar Vertíð Veiðar hafa gengið ágætlega suður af landinu síðustu daga. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.