Morgunblaðið - 14.07.2015, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2015
Franska freigátan Le Primauguet
kom til hafnar í Reykjavík á sunnu-
dagskvöld og verður við Skarfa-
bakka þar til á laugardag. Um
venjubundna heimsókn franska sjó-
hersins er að ræða, sem siglir
reglulega freigátum sínum um N-
Atlantshaf. Um borð eru á annað
hundrað sjóliðar, flestir ungir að
árum, jafnt karlar sem konur.
Frakkar halda upp á þjóðhátíð-
ardag sinn í dag, Bastilludaginn, og
er freigátan opin almenningi til
sýnis frá kl. 14 til 17 í dag, sem og
miðvikudag, fimmtudag og föstu-
dag.
Hins vegar er nauðsynlegt að
skrá sig og tilkynna komu fyrir-
fram með því að senda póst, bæði
með dagsetningu og tíma, á net-
fangið escale.islande@gmail.com.
Primauguet er sérstaklega út-
búin til þess að hafa eftirlit með
kafbátum. Skipið var tekið í notkun
árið 1984, er nærri 140 langt og
4.500 tonn að stærð. Það er vel búið
vopnum og hefur yfir tveimur þyrl-
um að ráða.
Frönsk freigáta til
sýnis við Skarfabakka
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Freigáta L Primauguet fylgt til hafnar við Skarfabakka af hafnsögubátunum Magna og Jötni.
Neytendasamtökin fagna hug-
myndum Bjarna Benediktssonar
fjármálaráðherra um að leggja af
tolla á fjölmörgum vörum, svo sem
á fatnaði. Samtökin harma hins
vegar að ekki séu um leið afnumdir
tollar á öllum matvörum. Ef bæta
eigi stöðu heimilanna með afnámi
tolla sé það best gert með afnámi
tolla á matvörum.
„Neytendasamtökin ítreka því að
löngu er tímabært að allir tollar
verði lagðir af á heimilisvörum.
Að fenginni reynslu er mikilvægt
að stjórnvöld tryggi að eftirlit verði
varðandi afnám tolla svo tryggt sé
að aðgerðin skili sér til neytenda,“
segir í tilkynningu samtakanna.
Neytendasamtökin
vilja einnig afnám
tolla á matvöru
Matur Margir vilja afnema þar tolla.
Á fundi skipulagsnefndar Akur-
eyrarbæjar var nýverið samþykkt
tillaga um að göngugötunni í mið-
bænum verði lokað fyrir bílaum-
ferð frá kl. 11–16 á föstudögum og
laugardögum til loka ágúst.
Í framhaldinu verða unnar verk-
lagsreglur um lokun götunnar í
samráði við hagsmunaaðila á svæð-
inu. Athygli er vakin á því að fötl-
uðum vegfarendum er heimilt að
aka um Brekkugötu og Ráðhústorg
að bílastæði fatlaðra við skrifstofu
sýslumanns í norðanverðu Hafn-
arstræti. Einnig hefur verið sam-
þykkt ósk frá Listasafninu á Akur-
eyri um að Grófargili (Listagili)
verði lokað fyrir bílaumferð frá kl.
14–17 á laugardögum þegar sýn-
ingar eru opnaðar á vegum safns-
ins. Þeir dagar sem um ræðir eru
25. júlí og 1., 15., 22. og 29. ágúst.
Göngugatan á Ak-
ureyri lokuð bílum
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Hafnarstræti Mannlíf í miðbæ Akureyrar.