Morgunblaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Fríverslunarsamningur við Kína var
undirritaður á síðasta ári og bundu
margir vonir við að það gæti gefið ís-
lenskum fyrirtækjum aukin tæki-
færi. Það lítur hins vegar út fyrir að
ekki hafi orðið miklar breytingar í
inn- og útflutningi til Kína í kjölfar
samningsins á þeim tíma sem liðinn
er. Innflutningur var nokkuð minni á
árinu 2014 en 2013 og það sem af er
ári er innflutningurinn tæpur 21
milljarður króna sem er 45% af inn-
flutningi síðasta árs. Útflutningur
var minni á árinu 2014 en 2013 og út-
flutningur fyrstu fimm mánuðina
nemur 3 milljörðum króna.
Erna Björnsdóttir, verkefnastjóri
hjá Íslandsstofu, segir að nokkur
vonbrigði hafi orðið þegar komið hafi
í ljós að fríverslunarsamningurinn sé
í raun bara fyrsta skrefið. „Það voru
miklar væntingar um að hægt væri
að selja til dæmis kjöt sem notað er í
matvælavinnslu í Kína en það er ekki
hægt því eftirlitsstofnanir sem eru
sambærilegar við Matvælastofnun
hér á landi eiga eftir að samþykkja
eftirlitsaðila. Það er verið að vinna í
að ná samningum en fulltrúi Mat-
vælastofnunar hefur farið á fund í
Kína og kínverskir eftirlitsaðilar
voru hér fyrir skömmu.“ Hún segir
að lambakjöt sé efst á listanum yfir
þær vörur sem áhugi er á að flytja út,
en einnig sé mikill áhugi á að flytja út
lifandi hross og kjúklinga.
Erna segir að gera þurfi ýmsa
hliðarsamninga til að viðskiptin geti
átt sér stað og að mestu hindranirnar
séu á matvælasviðinu og þá sérstak-
lega landbúnaðarafurðum. „Við er-
um fyrst og fremst að flytja til Kína
sjávarafurðir auk véla og búnaðar
sem tengist sjávarútvegi. Tollar sem
munar mikið um voru felldir niður en
kínverski markaðurinn er mjög stór
og því þurfa íslensk fyrirtæki að
finna minni markaðssillur.“ Hún seg-
ir að Kínverjar séu á höttunum eftir
ódýrum vörum sem kostar minna að
framleiða en hjá þeim sjálfum.
„Þetta eru mjög ólíkir markaðir.
Sem dæmi þá vilja þeir gjarnan
kaupa vatn héðan en vilja borga lítið
fyrir það. Það þarf því að vinna meira
í því að samræma framboð og eft-
irspurn.“
Kemur fyrirtækjum til góða
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar og
þjónustu, segir að það hafi alltaf legið
fyrir að til þess að fyrirtæki gætu
nýtt sér fríðindin í samningnum
þyrfti að vera beinn innflutningur frá
Kína og varan megi ekki vera toll-
afgreidd í öðru ríki á leiðinni til Ís-
lands. Hann segir ákveðin vonbrigði
vera með hversu litlu samningurinn
hefur skilað hingað til. „Við erum
annars vegar að horfa á stærsta hag-
kerfi heims og hins vegar eitt það
minnsta. Kínverjar eru þekktir fyrir
að vilja ekki afgreiða vöru nema í
ákveðið miklu magni og fyrirtæki á
Íslandi sem eru mörg hver mjög smá
hafa kannski ekki alltaf möguleika á
að kaupa inn í því magni sem kín-
verskir viðskiptamenn krefjast.“
Andrés bætir við leita þurfi leiða til
að greiða fyrir að fyrirtæki, án tillits
til stærðar, geti nýtt sér hagræði
samningsins. „Við vorum og erum
sannfærð um að hann komi íslensk-
um fyrirtækjum til góða.“
Samningur við Kína skilað litlu
Áhugi á útflutningi á kjöti, hrossum og kjúklingum Kínverjar vilja ódýrar
vörur Samræma þarf framboð og eftirspurn Fara fram á að selja mikið magn
Inn- og útflutningur til Kína 1999-2015
Heimild: Hagstofa Íslands.
Innflutningur
CIF
Útflutningur
FOB
50
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
*Janúar-maí.
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015*
í milljörðum
FOB - verð vöru komin um borð. CIF - FOB verð að viðbættum kostnaði.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2015
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
tekjuaukningu fyrir þann hóp að
sögn Björns Brynjúlfs. „Auk þess
eiga tekjulægri síður möguleika á
því að fara til útlanda og versla, t.d.
fatnað og skó.“
Gætu gengið lengra
Viðskiptaráð bendir á að afnám
tolla á matvæli myndi skila með-
alheimili um 76 þúsund króna
sparnaði á ári til viðbótar. „Afnám
tolla á matvæli væri veigameiri að-
gerð. Hún myndi skila næstum þre-
falt meiri ávinningi en afnám tolla á
allar aðrar vörutegundir saman-
lagt,“ segir Björn Brynjúlfur. Það
er sökum þess að um 38% af mat-
arkörfunni á Íslandi eru undir toll-
vernd en almenna reglan er sú að
tollverndaðar vörutegundir eru
dýrari.
Tollar á matvæli eru svo háir að
innflutningur dregst mikið saman
og því skila þeir afar litlum tekjum
fyrir ríkissjóð, að sögn Björns
Brynjúlfs. „Tollar á matvæli eru
fyrst og fremst til að vernda inn-
lenda framleiðendur en þeir virðast
ekki vera ná því markmiði. Einu
bændurnir sem standa undir
rekstri sínum án styrkja eru græn-
metisbændur sem eru þeir bændur
sem njóta ekki tollverndunar.“
sigurdurt@mbl.is
Aðgerð ríkisstjórnarinnar er varð-
ar afnám allra annarra tolla en á
matvæli fyrir árið 2017 mun draga
úr útgjöldum meðalheimilis um 30
þúsund krónur á ári, samkvæmt
nýjum útreikningum frá Við-
skiptaráði. „Lækkun neysluskatta
eða afnám tolla eykur jöfnuð í sam-
félaginu,“ segir Björn Brynjúlfur
Björnsson, hagfræðingur Við-
skiptaráðs. Hann bendir jafnframt
á að afnám matvælatolla væri mun
veigameiri aðgerð.
Þar sem tekjulágir einstaklingar
verja hærra hlutfalli ráðstöf-
unartekna sinna í neysluvörur mun
aðgerðin fela í sér hlutfallslega
Afnám tolla eykur jöfnuð í samfélaginu
Útgjöld meðalheimilis lækka um 30 þúsund krónur á ári
Morgunblaðið/Eva Björk
Tollar Háir tollar eru á matvælum.
● Hagfræðideild Landsbankans hefur
nú bæst í hóp þeirra aðila sem gefið
hafa út spá sína varðandi verðbólguþró-
unina í júlí. Deildin spáir því að 0,1%
lækkun muni mælast í mánuðinum og
ráða sumarútsölur þar mestu um. Það
sem helst mun vega á móti útsölunum í
spánni er hækkun flugfargjalda til út-
landa en þar er sagt að það hafi komið
á óvart að sá liður hafi ekki hækkað um
meira en 2,5% í júní og því megi eiga
von á því að hækkunin komi fram nú í
júlí.
Landsbankinn gerir ráð fyrir því að
ársverðbólgan muni mælast 2,5% í
október og muni því vera í samræmi við
verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Spáin er nokkuð samhljóða spá Íslands-
banka og Arion banka í þessum efnum
en þeir spá annars vegar 2,4% og hins
vegar 2,5% ársverðbóglu í október.
Spá verðhjöðnun í júlí
en hækkun í kjölfarið
! !
" #
#!!
!
"$$
%
!
!$ !
%!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#!
$ !
%%$
#$
"
"!%
% !
$$
!"#!
%$#
$"!
%$!
#$!
"#
"$
% $$
! %
!"
%$
% $%
● Akur fjárfest-
ingar sem er fag-
fjárfestasjóður í
rekstri Íslands-
sjóða hefur keypt
tæpan helming
hlutafjár í Iceland
Excursions Allra-
handa ehf., sem er
sérleyfishafi Gray
Line á Íslandi. Fyr-
irtækið sérhæfir sig í ferðaskipulagn-
ingu, er ferðaskrifstofa og hópferðafyr-
irtæki og hefur einkum sinnt
skipulögðum dagsferðum.
Þórir Garðarsson og Sigurdór Sig-
urðsson munu áfram eiga rúman helm-
ing í félaginu og starfa á vettvangi þess.
Kaupverðið er sagt trúnaðarmál en
fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sá um
ráðgjöf og hafði umsjón með fram-
kvæmd viðskiptanna.
Íslandssjóðir með tæp-
an helming í Gray Line
Þórir Garðarsson
STUTTAR FRÉTTIR ...
ÓSKASTJARNAN
Þann 17. júlí hittir einn af áskrifendum Morgunblaðsins á óskastund
þegar við drögum út glæsilegan, fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class
með 7 þrepa sjálfskiptingu að verðmæti 6.970.000 kr.* í áskriftarleik
Morgunblaðsins.
Víkkaðu hringinn með Morgunblaðinu í sumar.
*Innifalinn í verðinu er ríkulegur aukabúnaður: bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni, regnskynjari o.fl.