Morgunblaðið - 14.07.2015, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2015
✝ Einar Björns-son fæddist á
Sauðárkróki 29.
desember 1927.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
29. júní 2015. For-
eldrar hans voru
þau Björn Erlendur
Einarsson, f. 17.11.
1900, d. 27.2. 1986,
og Oddný Jóns-
dóttir, f. 18.5. 1903,
d. 6.4. 1984.
Systkini Einars voru þau Stef-
anía Ruth Björnsdóttir, f. 1924,
d. 2008, Jóhannes Björnsson, f.
1925, d. 2002, og Steinunn Helga
Björnsdóttir, f. 1930, d. 2000.
Oddný Erla Björnsdóttir, f. 1931,
er ein eftirlifandi.
Hinn 5. nóvember 1948 kvænt-
ist Einar Bergþóru Bergsdóttur,
f. 4.11. 1928, d. 13.10. 2008. For-
eldrar hennar voru Bergur Sig-
ursteinn Björnsson, f. 14.11.
1896, d. 27.10. 1975, og Guðrún
Andrésdóttir, f. 24.8. 1897, d.
6.10. 1970. Árið 1957 fluttu Ein-
ar og Bergþóra á Byggðaveg 149
á Akureyri og bjuggu þar alla tíð
síðan. Sonur þeirra er Björn, f.
4.4. 1958, og kona
hans er Lovísa
Kristjánsdóttir, f.
4.2. 1960. Þau eiga
þrjú börn, Margréti
Ósk Buhl, f. 1982,
Einar Berg, f. 1988,
og Kristján Breka,
f. 1998.
Einar flutti ungur
til Akureyrar með
fjölskyldu sinni. Frá
7 ára aldri fór hann
öll sumur í Villinganes í Skaga-
firði og var þar öll skólaárin og
tvö ár að lokinni skólagöngu.
Eftir það, eða um 16 ára aldur,
fór hann á sjó, á Kristjáni frá
Ólafsfirði. Hann sigldi á stríðs-
árunum til Bretlands með fisk.
Eftir það fór hann á vertíðir á
Suðurnesin og einnig á Seyð-
isfjörð. Á Seyðisfirði starfaði
hann í sex ár á síldarplani, við
afgreiðslu á olíu og við byggingu
Hafsíldar. Frá árinu 1969 vann
hann í Efnagerðinni Flóru á Ak-
ureyri og síðar í Mjólkursamlagi
KEA.
Útför Einars fer fram frá
Glerárkirkju í dag, 14. júlí 2015,
og hefst athöfnin kl. 13.30.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hver stund er dýrmæt því að
tíminn líður. Það eru vissulega
orðnir nokkrir áratugir síðan ég
kynntist þeim sæmdarhjónum
Beggu og Einari, foreldrum hans
Björns, litla bróður míns. Á þess-
um tíma höfum við fjölskyldan átt
margar ánægjustundir með þeim
hjónum og þá sérstaklega í Móas-
íðunni hjá Birni og fjölskyldu.
Það var gott að vera í návist
Einars. Hann var einstaklega
hógvær og hlýr maður sem hafði
auga fyrir því spaugilega í tilver-
unni. Í spjalli var það kannski
ekki hann sem talaði mest, en það
sem hann sagði var vel ígrundað
og oftar en ekki sást þá bregða
fyrir glettnisglampa í augunum.
Leiðir fjölskyldna geta legið
saman á ýmsa vegu. Frænka mín
og Einar voru samstarfsfélagar
um áratugaskeið. Hún hefur svo
búið á neðri hæðinni hjá þeim
Beggu og Einari um árabil og
reyndust þau hjónin henni ákaf-
lega vel allan þann tíma. Síðustu
árin má segja að frænka mín og
Einar hafi litið til hvort með öðru
með gagnkvæmri umhyggju.
Einar og Begga voru einstak-
lega samstíga hjón. Þau voru
dugleg að taka þátt í félagslífi og
rækta sambönd við vini og ætt-
ingja, svo sem eins og í Sund-
klúbbnum. Einar hélt upptekn-
um hætti í félagslífinu eftir að
hann var orðinn einn. Síðustu ár-
in vörðu þeir feðgar Einar og
Björn miklum tíma saman. Þeir
komu sér upp vinnuaðstöðu á Ós-
eyrinni og undu þar saman mörg-
um stundum við að laga og bæta.
Það var oft gaman að hlusta á
orðaskiptin milli þeirra þegar
þeir voru að bollaleggja saman.
Samband þeirra Einars og
Beggu var fallegt. Það sást ekki
síst síðustu árin þeirra saman.
Nú sé ég Einar fyrir mér dans-
andi við hana Beggu sína og að-
dáunin skín úr augunum eins og
forðum daga. Elsku litli bróðir,
Lovísa, Margrét, Einar og Krist-
ján. Þið eigið mína dýpstu samúð.
Hulda.
Einar
Björnsson
✝ Jón ViðarTryggvason
múrari fæddist á Ak-
ureyri 18. september
1925. Hann lést í
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 1. júlí 2015.
Foreldrar hans
voru Hallgríma
Árnadóttir hús-
freyja, f. 27. júlí 1898
í Traðarholti,
Stokkseyrarhreppi,
Árnessýslu, d. 4. desember 1977,
og Tryggvi Jónsson, búfræð-
ingur og afgreiðslumaður á Ak-
ureyri, f. 18. febrúar 1899 á
Hrafnagili í Eyjafirði, d. 9. júlí
1965. Systkini Jóns Viðars eru
Jóhanna, f. 16. janúar 1929, d. 7.
október 1999, Hrafnhildur, f. 30.
janúar 1932 og Njörður, f. 28.
janúar 1937, d. 18. júní 2010.
Jón Viðar kvæntist Guð-
mundu Sigríði Sigurðardóttur
hjúkrunarfræðingi hinn 26. des-
ember 1954. Foreldrar Guð-
mundu voru Aðalheiður Dýr-
fjörð verkakona, f. 30. mars
1895 á Ísafirði, d. 8. júní 1983, og
Sigurður Bjarnason verkamað-
ur, f. 26. febrúar 1893 á Björg-
um í Vindhælishreppi. d. 13. maí
1971. Jón Viðar og Guðmunda
hófu búskap í Reykjavík árið
1954 en fluttust í Kópavog árið
1973 þar sem þau hafa búið síð-
an.
Jón Viðar og
Guðmunda eign-
uðust fjóra syni,
þeir eru: 1)
Tryggvi, f. 11.
nóvember 1954,
maki Ingveldur
Bragadóttir. Dæt-
ur þeirra eru Elín
Björk, Signý og
Hanna Sigríður. 2)
Sigurður Helgi, f.
8. desember 1955,
maki Liv Kari Tyvand. Synir
þeirra eru Gisle Ivar, Jon Vidar
og Pål Runar 3) Jón Viðar, f. 20.
apríl 1969, maki Þorbjörg Hró-
arsdóttir. Dætur þeirra eru Her-
borg og Vigdís. 4) Hreinn, f. 11.
febrúar 1973, maki Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Dætur þeirra
eru Hrefna, Auður og Þórey.
Barnabarnabörnin eru fjögur.
Jón Viðar ólst upp á Ak-
ureyri. Hann sótti Héraðsskól-
ann á Laugarvatni tvo vetur og
lauk síðan námi í múraraiðn árið
1951 og starfaði við múrverk
alla sína starfsævi hjá ýmsum
meisturum, lengst af hjá Árna
Guðmundssyni. Hann var virkur
í félagsstörfum, bæði fyrir Múr-
arafélag Reykjavíkur og Al-
þýðuflokkinn.
Útför Jóns Viðars fór fram
frá Fossvogskapellu föstudag-
inn 10. júlí 2015, í kyrrþey að
hans ósk.
Elsku Jón, afi okkar, nú hefur
þú kvatt þennan heim eftir við-
burðaríka og afkastamikla ævi.
Við eigum margar ómetanlegar
minningar um þig og langar okkur
systurnar að rifja nokkrar þeirra
upp hér.
Þegar við vorum litlar þótti
okkur alltaf gaman að koma í
heimsókn til ömmu og afa í Star-
hólmann. Þar var ýmislegt brall-
að. Oft sátum við saman inni í
stofu og lásum saman, við Andrés
Önd og þú aðrar dýpri bókmennt-
ir. Þú og amma hugsuðuð ávallt
vel hvort um annað og ein af okkar
dýrmætustu minningum eru allir
göngutúrarnir sem við fórum í
með ykkur.
Þið hélduð þétt hvort um ann-
ars hönd og mátti sjá kærleikann
á milli ykkar. Þessi yndislegi kær-
leikur fylgdi ykkur ömmu alla tíð.
Mörgum ógleymanlegum
stundum var eytt í sumarbústaðn-
um í Grímsnesinu sem þið og syn-
irnir byggðuð frá grunni. Okkur
systrunum þótti fátt skemmti-
legra en að koma í krúttlega A-
bústaðinn þar sem ávallt voru
hlýjar móttökur. Sumarbústaða-
kakan, tjaldið í kjarrinu og sund-
laugin góða munu seint gleymast.
Þú varst alltaf duglegur að taka
þátt í öllum þeim atburðum er
sneru að okkur barnabörnunum
og þegar við komum í heimsókn
varstu ávallt áhugasamur um
hvað var að gerast hjá okkur. Þú
mættir í öll afmæli, útskriftir og
skírnir. Það er okkur ómetanlegt
að þú skyldir alltaf koma. Meira
að segja undir lokin þegar farið
var að draga af þér mættir þú í út-
skriftarveislu Signýjar. Brostir,
gafst af þér og gantaðist við
barnabörnin. Það var sérstaklega
gaman að sjá hvað þú lifnaðir við
þegar Ingibjörg Siv kom til þín.
Mikið rosalega var hún heppin að
fá að kynnast þessum yndislega
langafa.
Það lýsir þér og þínum karakt-
er vel hversu vel þú barst þig und-
ir lokin. Þú varst svo sterkur þeg-
ar við komum að kveðja þig og lést
lítið bera á þinni eigin vanlíðan.
Spjallaðir við okkur um daginn og
veginn, brostir til allra og hlóst.
Við erum þakklátar fyrir allar þær
stundir sem við höfum átt með
þér, elsku afi, þú munt ávallt lifa í
hjörtum okkar.
Hvíldu í friði.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Elín Björk, Signý
og Hanna Sigríður.
Jón Viðar
Tryggvason
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur,
lést á Droplaugarstöðum þann 29. júní
2015.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Alúðarþakkir til starfsfólks Droplaugarstaða
sem önnuðust hana s.l. átta ár.
Fyrir hönd ástvina,
.
Anna Guðmunds, Haraldur Þorsteinsson,
Baldur Andrésson, Rosenda Rut Guerrero.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og
tengdamóðir,
INGIBJÖRG SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
(Inga Sigga),
til heimilis að Móholti 3,
Ísafirði,
lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 6. júlí. Útförin fer fram frá
Ísafjarðarkirkju föstudaginn 17. júlí kl. 14.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktarsjóð MND
félagsins, sem er 0516-05-410900 kt. 630293-3089.
.
Guðmundur Salómon Ásgeirsson,
Ásgeir Guðmundsson, Margrét Jónsdóttir,
Arnar Guðmundson, Kristbjörg Tinna Sigurðard.,
Aron Guðmundsson, Anna Þuríður Sigurðard.,
Guðmundur Salómon Ásgeirsson, yngri.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
MAGNÚS KRISTJÁN BJÖRNSSON
frá Hofi,
Bíldudal,
lést af slysförum 7. júlí.
Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 18. júlí kl. 14.
.
Ása Dóra Finnbogadóttir,
Björn Magnús Magnússon, Silja Baldvinsdóttir,
Helgi Magnússon, Rut Stefánsdóttir,
Hildur Magnúsdóttir, Heiðar Ólafsson,
Lína Björk Magnúsdóttir, Ivan Dario Gonzalez,
Mardís Ylfa, Magnús Kristján,
Helma og Haukur Máni.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TRAUSTI SKÚLASON,
bóndi,
Syðra-Skógarnesi,
lést á heimili sínu 11. júlí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 18. júlí kl. 13.
Jarðsett verður frá Miklaholti.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Miklaholtskirkju.
.
Guðríður Kristjánsdóttir,
Kristín S. Traustadóttir, Hallgrímur Sigurðsson,
Hallfríður Traustadóttir, Sigurþór Ólafsson,
Elva Traustadóttir, Georg Óskarsson,
Sigríður G. Ólafsdóttir,
afabörnin og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞORSTEINN NIKULÁSSON,
lést á heimili sínu 10. júlí. Útför hans fer
fram frá Lindakirkju, föstudaginn
17. júlí kl. 15.
.
Ingibjörg Þórdís Sigurðardóttir,
Steinunn H. Sigurðardóttir, Gunnar Páll Gunnarsson,
Sigrún Sigurðardóttir, Jón Þorgeir Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma,
SIGURVEIG ERLINGSDÓTTIR,
frá Ásbyrgi,
Lundi 1,
Kópavogi,
sem lést á heimili sínu 6. júlí, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 13.
.
Sigrún Jónasdóttir, Björn E. Johannessen,
Helga Jónasdóttir, Tómas Þór Tómasson,
Jón Erlingur Jónasson, Védís Jónsdóttir,
Úlfhildur Jónasdóttir, Þorsteinn S. Karlsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL TRYGGVASON
frá Hrappsstöðum í Víðidal,
Næfurási 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu,
föstudaginn 17. júlí kl. 13.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
.
Ragnhildur M. Húnbogadóttir,
Einar S. Karlsson, Margrét M. Arnardóttir,
Gyða S. Karlsdóttir, Kristján H. Birgisson,
Hildur E. Karlsdóttir, Friðrik L. Gestsson
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar