Feykir - 13.04.1983, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983
FEYKIR 5
Ungmennafélagið
TINDASTÓLL
- Glœsileg bók
- Fjölbreytt efni
- Margar myndir
Kaupið þessa
eigulegu bók!
Bókina má panta í
Bókabúð Brynjars, sími
5950, hjá Páli Ragnars-
syni í síma 5560 og í
Safnahúsinu sími 5424.
Stf' 1
„Heimilisfriður úti vegna gruns um
hass í Fjölbrautaskólanum á Sauð-
árkróki,” er fyrirsögn greinar Ólafs í
Degi, sem hann óskar birtingar á og
er hér með orðið við því.
*,
Slökkviliðsmenn
æfa reykköfun
Fyrir skömmu æfðu slökkviliðsmenn af öilu Norð-vestur-
landi reykköfun á Sauðárkróki. Fengu slökkviliðsmenn-
irnir til afnota skúr rétt við Mjólkursamlag Skagfirðinga.
Reyksprengjum var hent inn í skúrinn, en síðan fóru
slökkviliðsmennirnir inn og leituðu þar að dúkku, sem
falin var í skúrnum. Þátttakendur voru frá Siglufirði,
Hofsósi, Sauðárkróki, Skagaströnd og Hvammstanga.
Bjöm Svemsson:
Nokkrar ábendingar frá EldvamareftirKtinu
Frá fyrstu tíð hefur eldur verið
okkur mönnum nauðsynlegur
og þannig mun það áfram verða
meðan líf finnst á jörðinni.
Óbeislaður eldur getur hins
vegar verið hinn miskunnarlausi
eyðingarmáttur.
Hefur þú einhvern tíma íhug-
að hvað gæti komið fyrir á þínu
heimili ef eldur yrði laus? Þú
gætir t.d. misst ástvin eða týnt
eigin lífi vegna þes að þú hafðir
ekki kynnt þér fyrirbyggjandi
ráðstafanir.
Við skulum þess vegna fara í
eftirlitsferð um heimilið og sjá
hvað við getum fært til betri
vegar
1. í forstofu hússins ætti að
vera eitt 6 kg ABC duft-hand-
slökkvitæki á þar til gerðum
snaga á vegg og ætti það ætíð að
vera aðgengilegt.
2. Síðan skulum við athuga
vartöflu hússins og aðgæta
hvort réttir vartappar séu þar.
Ómetanlegt er öryggisins vegna
að hafa lekastraumsrofa á raf-
kerfi hússins.
3. Er við komum inn í eldhús
skulum við aðgæta hvort mynd-
ast hafi ló á bak við ísskápinn og
eldavélina, einnig að sigti í gufu-
gleypi sé hreint. Leiðslur á kaffi-
vél, brauðrist, hraðsuðukatli og
öðrum rafáhöldum á að taka úr
sambandi eftir notkun og eiga
að vera heilar. Hafa skal eld-
varnarteppi 120 x 120 á áber-
andi stað í eldhúsinu, þannig að
húsmóðirin geti hæglega náð til
þess ef eldur kemur upp í feiti-
potti eða pönnu.
4. Er þú leggst til hvílu, þá
mundu að reykja ekki.
5. Háaloftið er dæmigerður
staður til þess að setja í hluti,
sem þú ætlar að nota aftur, en
gerir sennilega aldrei. Láttu
risið þitt ekki verða að eld-
gildru, hreinsaðu það.
6. Ef olíukynding er í húsinu
ætti að yfirfara hana tvisvar fá
ári og sjá svo um, að öll
öryggiskerfi hennar séu í full-
komnu lagi og að góð um-
gengni sé í kyndiklefanum. Þar
á raunar ekkert að vera sem ekki
tilheyrir kyndingunni sjálfri.
7. Gott er að venja sig á að
taka útvörp og sjónvörp úr
sambandi þegar maður yfirgef-
ur húsið, það er búið að marg
sýna sig að þessi tæki gætu
kveikt í þó að slökkt sé á þeim á
venjulegan hátt.
Dæmi eru til þess að elds-
voðar hafi orðið þó svo hand-
slökkvitæki hafi verið til staðar,
en vegna vankunnáttu um notk-
un þeirra hafa þau ekki komið
að gagni. Kynnið ykkur með-
ferð þeirra. Munið að kynna
ykkur hvernig boða á út slökkvi-
lið. Til viðkomandi slökkvi-
stöðvar getið þið leitað varð-
andi ráðleggingar um bruna-
varnir á heimilinu. Munið að
reykskynjarar eru bráðnauð-
synlegir á hverju heimili, það
eru þeir marg búnir að sanna.
Hefur þú nokkurn tíma sest
niður með fjölskyldu þinni og
rætt við hana um hvað gera
skuli ef kviknar í hjá ykkur og
hvernig þið eigið að bjarga lífi
ykkar? Mikill fjöidi húsbruna
verður á tímabilinu frá mið-
nætti og fram til kl. 6 á
morgnana. Venjulegur maður,
sem vaknar af værum blundi er
oft dálítið vankaður. Ef hann
vaknar við eldsvoða getur hann
orðið algerlega ruglaður, þótt
hann sé annars hinn gætnasti.
Ef hann hefur áður verið búinn
að hugsa um undankomuleið
yrði hann kannski rólegri. Ef
mögulegt er ættuð þið að upp-
hugsa tvær undankomuleiðir úr
hverju herbergi. Gættu þess vell
að ailir viti um báðar leiðirnar.
Hafðu brunaæfingu heima hjá
þér svo allir séu öruggir um
undankomuleiðir. Traustar og
vel lokaðar dyr tefja eldinn í
nokkrar mínútur, sem þú átt að
nota til þess að flýja. Opnaðu
ekki dyrnar ef hurðin er heit
viðkomu eða ef reykur síast inn
milli stafs og hurðar. Mundu
það, opnaðu þær ekki! Notaðu
dyrnar sem öryggislás. Komistu
ekki út um dyrnar þá notaðu
gluggana. Það er mjögáríðandi
að ákveða að allir í fjölskyld-
unni skuli hittast á einum
ákveðnum stað ef þeir flýja
húsið í eldsvoða. Það hefur allt
of oft komið fyrir að foreldrar
sem finna ekki eitthvert barna
sinna og vita ekki að það er
sloppið út, halda að það sé
iokað inn í húsinu og brjótast
inn til þess að bjarga því, en bíða
svo sjálf bana að óþörfu.
Opinberar skýrslur sína að
flestir eldsvoðar eiga upptök sín
sem hér segir: 37% byrja í stofu,
22% í eldhúsi, 14% í kjallara,
13% í svefnherbergi og 14%
annars staðar.
Athugasemd frá Ólafi M. Jóhannssyni
Frétt sem ég sendi í blaðið Dag á mótmælt kröftuglega. Þetta
Akureyri nú fyrir skömmu, um kannast ég ekki við úr fréttinni,
þann atburð er skólameistari
Fjölbrautaskólans á Sauðár-
króki tók stofublómið Heim-
ilisfrið og sendi til rannsóknar,
vegna gruns hans um að um
hassplöntu væri að ræða, hefur
orðið tilefni mikilla skrifa og
ádeilna í minn garð í Feyki sem
kom út 30. mars s.l.
Er ég átalinn af skólameist-
ara fyrir að láta frá mér fara frétt
um þetta mál án þess að hafa
samband við hann áður. Rit-
stjóri Feykis slær því meira segja
upp á forsíðu að orðstír skólans
sé í hættu vegna villandi frétta-
skrifa minna. Ekki má minna
við hafa en tala við forseta
nemendafél. skólans og skóla-
stjórnarfulltr. nemendafélagsins,
sem leggja skólameistara sínum
og Feykisritstjóranum lið í
ádrepu sinni á mig og starf mitt
sem blaðamanns.
Hefði mér þótt viðeigandi af
ritstjóra Feykis að birta frétt
mína í blaðinu svo lesendur
hefðu getað lesið hana í stað þess
að koma með afbakaðar spurn-
ingar og frásagnir úr greininni.
Dæmi: Dagur segir að heim-
sókn skólameistara haFi verið
heldur hitt að nemendur hafi
mótmælt kröftuglega er skóla-
meistari tók blómið. Ekki er
tekið fram í greininni að um
mikinn fjölda hafi verið að ræða.
Þetta eru þvi rangfærslur sem
ekki standast og tilbúningur rit-
stjóra Feykis. Einnig mótmæli
ég því að fréttin beri með sér
að illindi séu á milli nemenda og
skólameistara og því síður að
dróttað sé að því að hass sé
ræktað í Heimavistinni.
Skólameistari segir á forsíðu
Feykis. Enginn fótur er fyrir því
að hass sé ræktað í Heima-
vistinni. Skólameistari er hér að
reyna að koma því inn hjá
lesendum blaðsins, að ég hafi
haldið því fram í fréttinni, en því
mótmæli ég og læt lesendum
eftir að dæma um það. Þar sem
ég fæ vonandi birtingu á frétt-
inni með grein þessari. Ef frétt-
in er borin saman við viðtal við
fulltrúa nemenda á baksíðu
umrædds blaðs Feykis kemur í
ljós að efnislega er fréttin rétt að
því undanskildu að kennarar
skólans eru nefndir í fréttinni í
stað utanaðkomandi manns eins
og nemendur segja. Á þessum
mistökum biðst ég afsökunar og
mun leiðrétta þetta við fyrsta
tækifæri í Degi. í hnotskurn er
málið það að skólameistari
sjálfur hleypur eftir sögusögn-
um út í bæ og framkvæmir
leitina og sendir blómið í rann-
sókn eins og fram kemur í
viðtalinu við nemendurna. Þann-
ig að það er skólameistari sjálf-
ur sem er sem kastar steininum í
máli þessu, en ekki ég, þó ég
skrifi um atburðin frétt, en það
er jú starf mitt við blaðið. Þegar
svo skólameistari verður þess
áskynja að þessi verknaður hans
er orðinn opinber og aðhláturs-
efni manna víða um land,
hleypur hann til og setur í gang
maskínu til að koma því inn hjá
almenningi, að ég sé sökudólg-
urinn í málinu en hann og
skólinn píslarvottar þessa vonda
manns.
Til liðs við sig kallar hann tvo
af forsvarsmönnum nemenda,
sem að sjálfsögðu fyrir margra
hluta sakir vilja bera blak af
skólameistara sínum svo og rit-
stjóra Feykis sem geisistfram og
gerir mér upp orð og skoðanir
sem hvergi eru til nema í
hugarfóstri hans sjálfs. Þetta á
einnig við um nemendurna sem
nota sömu rökfærslu um frétt-
ina t.d. að hún beri með sér að
hún sé aðeins skrifuð til að
sverta skólann og koma óorði á
hann. Allt þetta eru ósannindi
og aðeins hugarfóstur þeirra
sem það láta hafa eftir sér en
eiga ekki við um mín skrif né
hugsanagang um skólann. Væri
vonandi að blessaðir nemend-
urnir skilji kennslubækur sínar
betur, en þeir virðast skilja frétt
mína í Degi.
Um það að ég hafi ekki haft
samband við málsaðilja áður en
fréttin var send vil ég segja.
Heimildarmaður minn fyrir
fréttinni stendur mjög nálægt
máli þessu og hafði aðstæður til
að fylgjast með því, jafnvel og
isumir þeir aðilar sem þenja
brjóst og sperra stél í Feyki nú
fyrir stuttu.
Það er staðreynd að skóla-
meistari tekur þetta tiltekna
blóm og treystir ekki nemend-
um sem segja að hér sé um
stofublóm að ræða sem ætt-
ingjar þeirfa hafi gefið þeim.
Gaman hefði verið að vita hvað
skólameistari hefði gert við
hassjurt ef hann hefði fundið
hana, þar sem þekking hans á
þessari tegund blóma virðist
vera takmörkuð. Jóni Hjartar-
syni þykir hann sjálfsagt hafinn
yfir gagnrýni og almennan
fréttaflutning af starfi hans og
gerðum nema hann sé ritskoð-
aður af honum sjálfum. Minnir
þetta óþægilega á skoðanir
ýmissa einræðisherra út í heimi,
sem við íslendingar höfum
hingað til talið okkur bless-
unarlega lausa við.
Einnig hefur skólameistari
komið sér upp lífvarðasveit eins
og sést í síðasta Feyki og mætti
líkja því við velheppnaða al-
mannavarnaæfingu hvað appa-
ratið funkerar vel, en vita skal
Jón Hjartarson og co. það að
meðan ég gegni starfi blaða-
manns Dags hér i bæ, mun ég
flytja fréttir úr bæjarlífinu og
um Fjölbrautaskólann ef þær
hafa við rök að styðjast, án þess
að bera þær undir Jón Hjartar-
son að öðru jöfnu.
Hitt er svo annað mál að Jón
Hjartarson skólameistari hefur
verið að mínu áliti duglegur að
vinna að uppbyggingu skólans
og á hann þakkir skildar fyrir
það. Eins vil ég taka skýrt fram
að ég tel Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki fyrirmyndarstofn-
un sem við Sauðárkróksbúar
megum vera mjög ánægðir með.
Að lokum vona ég að deila þessi
sem ég tel stafa mesta af mis-
skilningi falli niður ogfrá minni
hendi tel ég henni lokið.
Ólafur H. Jóhannsson
blaðamaður Dags á Sauðárkróki.