Feykir


Feykir - 13.04.1983, Síða 6

Feykir - 13.04.1983, Síða 6
6 FEYKIR MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 HÓTEL MÆLIFELL Vísur úr öllum áttum Á breiðsíðu fyrir u.þ.b. einum mánuði var allnokkuð um vísur og einnig gagnrýni Valnastakks á vísnagerð. Nú hefur „Gáski” sent okkur fyrripart og skorar á Valna- stakk að botna: Ergi forða fræði spjöll frí við orða löstinn. Við báðum um botn á þennan fyrripart: Norðlendingar æði oft illviðrin við glíma. Þótti mörgum þetta stirður fyrripartur og má rétt vera. Sigfús Steindórsson sendi þennan botn: Þessu halda lítt á loft lengi sjaldan híma. Þá kom „rödd í síma” með botn: Meðan syðra mengast loft og magnast álvers gríma. Þessi „rödd í síma” kynnti sig reyndar sem „skófla í tá” að þessu sinni og fer ég nú fram á liðsinni lesenda við að ráða þá gátu hver maðurinn er. Indíana Sigmundsdóttir botnar líka: Þeirra ferska fjallaloft finnst á hverjum tíma. Vísur hafa drifið að úr öllum áttumogermérvandiá höndum að velja úr þeim og verð því að „láta hendingu ráða”. Mjög margar vísur fjalla um pólitík, enda kosn- ingar alveg að bresta á. Hjalti í Víðiholti sendi nokkrarvísur og þar á meðal þessar: Tala þeir og tala þeir, tala þeir um efndir, alltaf fjölgar meir og meir, meiri og fleiri nefndir. Á Alþingi er þras og þjark, þar er margt að vinna, enda brestur ekki kjark öllum málum sinna. Hjalti yrkir einnig um þá nýjung sem tæknifrjóvgun er. Bregðist hjónum ástin ung: engin börn í vonum, gott er að hafa góðan pung geta miðlað konum. Hofsósingur yrkir um kjör- dæmisþing framsóknarmanna sem frægt er orðið að endem- um. Tekur hann upp mál-stað Páls á Höllustöðum og yrkir svo um Ingólf Guðnason: Ingólfur var ötull að ota sínum tota Geistist fram í glæstan sal, glaður reyndi að pota. Mörgum vildi skenkja skál skrúðs með orði vöndu. Sendum heim hann Péturs Pál pakk saddan af blöndu. Atlagan var æði hörð Ingólfs menn í vanda. Höllustaða bruna börð býsna lengi standa. Fylginn sér og sækjandi síst þurfti að hóta. Skriðu af fundi skrækjandi, skottið milli fóta. Hólmfríður Jónasdóttir hef- ur oft ort um pólitík og er enn að. Hún sendi okkur nokkrar vísur sem ortar eru undir eld- húsdagsumræðum á Alþingi. Giftudrjúgur Gunnar enn gjarnan fær í slarkið, hæversklega hirti menn hitti beint í markið. Að fást við skollans fjármálin fórst þér mörgum betur, reyndu að herða róðurinn Ragnar, sem þú getur. Nú er á enda þetta þing þrungið orðafálmi. Skít þó ausi allt um kring upp úr stendur Pálmi. Lítið haföi að segja sá sú var bót í máli. Hækkaði risið hvergi á Höllustaða-Páli. Alltaf glottir Ólafur ennþá knár á velli. Sómakarlinn sjötugur sigrar hrum og elli. Hólmfríður Jónasdóttir sendi blaðinu vísu eftir Konráð heitinn á Ytri-Brekkum og er hún góð tilbreyting frá póli- tíkinni. Þegar hann er með austanbyl yfir móa og grundir skárra er þá skömminni til að skíta vestanundir. Og Haraldi frá Kambi varð mannlífsbrekkan erfið: Fyrir eyrum ómar suð erfið er lífsins brekka Almáttugur góði guð gefðu mér nú að drekka. Þulur í útvarpi lýsti veðri á Sauðárkróki og varð þá Sigfúsi Steindórssyni að orði: Veðurguðinn völdin tók varla um það spaugum. Samfellt hríð á Sauðárkrók sér ei út úr augum. Og nú biðjum við lesendur að botna fyrripart eftir Sigfús: Mjög í fang á meyjunum manninn langað hefur. Hver er maðurmn? Enn leitum við til ykkar, lesendur góðir, með óþekktar myndir úr Héraðskjalasafni Skagflrðinga. Þessar myndir eiga allar það sameiginlegt að vera teknar af Jóni J. Dahlmann Ijósmyndara á Akureyri, að öðru leyti kunnum við á þeim engin deili. Upplýsingar skulu sem fyrr sendar til Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, Safnahús- inu, 550 Sauðárkróki, eða í síma Safnahússins 95-5424.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.