Feykir


Feykir - 13.04.1983, Page 11

Feykir - 13.04.1983, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 FEYKIR 11 Ásdís Sigrún Sigurjónsdóttir er fædd 1949, yngsta dóttir hjónanna Sigrúnar Júlíusdóttur og Sigurjóns Jónassonar en þau hófu búskap 1940 á Skörðugili. Og Ásdís fær orðið... Ég er uppalin hér á Skörðugili og gekk í skóla í Varmahlíð. Einn vetur var skólinn að vísu í Húsey. Þau börn voru í heimavist sem voru lengst að. Allan barnaskólann vorum við hálfan mánuð í skólan- um og hálfan mánuð heima. Kenn- ararnir voru tveir, Felix Jósafatsson og Steinunn Jónasdóttir frá Löngu- mýri. Hvað leggur þú fyrir þig þegar barnaskóia líkur? Ég fer suður til Reykjavíkur og lýk gagnfræðaprófi úr Hagaskól- anum. Fóru ungiingar yfirleitt í frekara nám eftir barnaskóla? Flestir létu sér nægja barna- skólaprófið. Ég fór heim á sumrin þessi íjögur ár, sem ég var í Hagaskólanum utan eitt sumarsem ég vann í búð á Akureyri og leiddist óskaplega. Viðskiptavinirnir voru fáir og veðrið alltaf sérstaklega gott. Þarna var ég lokuð inni allt sumarið. Það var mikil breyting frá því að vera úti öll sumur áður. Um haustið fer ég svo í Kennaraskól- ann, tvo vetur í undirbúningsdeild og tvo vetur í handavinnudeild og lýk þar prófi 1970. Ferðu þá í kennslu? Nei, ég fór að Hesti í Borgarfirði. Við Einar vorum búin að þekkjast í tvö ár þegar ég lauk skólanum og ég fór svo til hans að Hesti og varð þar staðarhúsmóðir en Einar var búinn að vera tilraunastjóri þar í nokkur ár. Ég kynntist honum sumarið 1968 þegar ég réði mig þangað í vinnu. Við giftum okkur svo með pompi og pragt 1971. Það voru mikið viðbrigði að flytjast að Hesti. Éghafði lítiðunnið við húshald en tók að mér gesta- móttökuna á þessum stóra stað þ_ar sem er stöðugur gestagangur. Ég var fimm sumur á Hesti en við fluttum svo norður 1974. Þá er ég búinn að eiga tvo elstu strákana en þeir eru nú orðnir fjórir. Var ekki erfitt að samrýma starfíð og heimilishaidið með tvö lítii böm? Jú, ég hef oft hugsað til þess eftir að ég eltist að þetta var ofboðslegt stökk að koma beint úr skóla og fara á þennan stað og vera algjör byrjandi í húshaldi. Ég hef alltaf haft gaman af útistörfum og öllu sem við kemur skepnum, en minni áhuga á inniverkum. Þegar við flytjum hingað norður, búum við fyrst í sambýli við pabba og mömmu. Við fórum strax að byggja og byrjuðum á öllum húsunum í einu: hesthúsi, fjárhúsi, hlöðu og íbúðarhúsi. Við fengum borgfirska smiði og vorum með vinnuflokk svo það var aldrei undir 20 manns í heimili, en okkur tókst að flytja inn í nýja húsið eftir rúmt ár. Hefur nokkurn tíma orðið hlé á þessu risahúshaldi siðan þú útskrif- aðist úr Kennaraskólanum? Ég helda varla. Þið hafið byggt myndarlegt íbúð- arhús og greinilega búist við að hafa margt í heimili og kannski fuilt af börnum. Hafið þið gert áætlanir um barnafjöldann? Nei, þar er nú happa og glappa aðferðin. Nú hefur Einar haft í svo mörgu að snúast útávið. Hefur þú ekki þurft að vera bxði bóndinn og húsmóðirin á heimilinu? Það kemur af sjálfu sér. Við höfum nú alltaf verið með meira eða minna mannahald enda með fullt bú og meira en það, en það er nú ekki eins og ég standi hér ein þó Einar sé oft ekki heima, því við búum í félagsbúskap við mömmu og pabba. Hjá þeim er í heimili móðurbróðir minn, Pálmi Júlíusson, sem öfugt við marga Skagfirðinga er alltaf heima og tilbúinn að gera það, sem gera þarf fyrir skepnurnar, enda er hann hvorki í hestamanna- félagi eða karlakór. Eruð þið með kúabúskap? Undanfarin sex ár höfum við verið með tvær heimiliskýr sem duga fyrir bæði heimilin. Pabbi og mamma höfðu alltaf verið með kýr, en þegar pabbi fær heilablæðingu 1975 var kúnum fargað. Var þetta alvarlegt með hann pabba þinn? Já, það var það. Hann var fluttur út á Krók, en læknarnir héldu lengi vel að þetta væri ekki svo slæmt. Meira að segja var hann dreginn út að glugga 17. júní, til að horfa á Einhvern túna hljóta rólegu árin að koma Á Skörðugili er allt á fleygiferð. Húsbóndinn á heimilinu, Einar Gíslason, verður fímmtugur 5. apríl og afmælisfagnaður er í undirbúningi. Frumburðurinn á bænum kemur inn úr hesthúsunum rjóður í kinnum og svarar greiðlega og af þolinmæði vafasömum spurningum aðkomukonu, sem hefur ruðst inn i annríkið, með myndavél og segulbandstæki. Fjölskyldan er greinilega vön allavega gestum. í þeirri trú að húsmóðirin, Ásdís Sigurjónsdóttir, hafí bara gott af því að setjast niður smá stund, er segulbandið sett í gang. Ásdís á Skörðugili segir frá ivwi^ivIDAG UMSJÓN: HELGA ÞORSTEINSDÓTTIR LJOSMYND: OSKAR HJARTARSON hópreið hestamanna. Þegar honum batnaði ekkert en fór heldur versn- andi, var hann sendur til Reykja- víkur og kom þá í ljós að hann var með hægfara heilablæðingu. Hann hresstist þó brátt. Eftir þetta byrjuðum við með heimiliskýr og höíum verið með þær síðan. Vinnur þú úr mjólkinni? Já, já, ég geri það, bý til skyr og smjör og þess háttar. Nú er heilmikill gestagangur í kring um starf Einars. Er það út í hött að álykta sem svo að þú hafir nóg með bömin og heimilishaldið þó þú bætir ekki á þig svona störfum sem þú gætir komist hjá. Eða er það kannski rótgróið viðhorf hér í Skagafírði að konan geti bætt á sig störfum endalaust? Er það ekki gömul hefð að konurnar vinni verkin og bænd- urnir geri eitthvað annað útávið? Segja þeir það ekki í Ferðabók Eggerts og Bjarna? Þetta er nú kannski djúpt í árina tekið, en ég held að það muni ansi mikið um það á mörgum heimilum hvað konan leggur af mörkum, bæði við bústörfin og heimilis- haldið. Annars hef ég þá trú að ef búskapur á að ganga þá verði bæði hjónin að vinna að því að hann dafni, bæði úti og inni. Það liggur beinast við að allir hjálpist að . Ég held líka að ef konur hafa gaman af skepnum þá hafi þær drjúgt gaman af því að komast út annað slagið. Það getur orðið leiðigjarnt að vera inni allan daginn í sömu verkunum. Ég veit það með sjálfa mig, mér finnst miklu skemmtilegra að kom- ast aðeins út. Vannst þú ekki eitthvað við kennslu fyrst eftir að þið fluttuð norður? Ég var fyrstu tvo veturna við kennslu í Varmahlíð, en þegar frá leið fannst mér það alveg af og frá í viðbót við það sem ég hafði að gera heima. Mér fannst það engan veginn borga sig. Ég var með heila stöðu og kom oft ekki heim fyrr en klukkan að verða sex. Þá varð það þannig að heimilisverkunum var frestað fram til helganna og þá var óskaplega mikið að gera. Einar var að byrja í sínu starfi og mikið upp- tekinn í því og þetta borgaði sig alls ekki. Gestagangur var mikill um helgar þegar ég varð að vinna þau verk sem hægt var að safna saman alla vikuna og nýtingin á svo mörgum hlutum var í lágmarki. Það var t.d. ekkí tími til að baka brauð og alls konar hlutir voru keyptir tilbúnir sem ég hefði annars útbúið sjálf. Þegar ég ákvað að hætta kennslunni þá var nú þriðji sonur- inn á leiðinni, þá fengum við okkur heimiliskýmar. Bömin krefjast okk- ar líka. Það var miklu meiri tími til að sinna þeim, þegar ég hætti að kenna. Einar þurfti svo oft að vera á fundum og menn halda fundi helst á kvöldin svo að undirbúningur minn við kennsluna var oftast unninn á næturna . Þú hefur aldrei fundið inn á það viðhorf að þú afkastaðir ekki nægi- legu í heimilisins þágu, þegar þú varst loksins komin heim á daginn? Nei, aldrei. Ég þekki ekki neina togstreitu út af verkefnum. Einar hafði fullan skilning á því að ég komst ekki yfir alla hluti og reyndi eins og hann gat að hjálpa til, hverja stund sem hann hafði, en hans stundir voru bara ekki svo margar að hann væri alltaf aflögufær. Mér fínnst það undirstaðan og ekki síst í sveit að hjón hjálpist að. Ef Einar hefur tíma aflögu, þá hjálpar hann mér inni við, hvort sem það er að sinna börnunum eða vaska upp, og þá á móti, ef eitthvaðsérstaklega er mikið að gera úti, þá kem ég og hjálpa til þar. Nú höfum við konur verið að berjast fyrir því að verða jafnokar karlmanna, þ.e.a.s. að vera ekkert „óæðra kyn”. Telur þú það raunhæfa baráttu? Þar sem reynir á vitsmuni ein- göngu, stöndum við þeim fyllilega jafnfætis, en frá náttúrunnar hendi erum við ekki eins sterkbyggðar. En ég álít að við höfum yfirburði á einu sviði. Það er það hlutverk okkar að ganga með börnin okkar og hafa þau á brjósti. Þeir hafa enga mögu- leika á að leika þetta eftir, hvað mikið sem talað er um jafnrétti. Ég held að í þessu hlutverki konunnar fylgi viss fullnægja í sjálfu sér. Ef til vill er það þess vegna sem konan sækist ekki eftir að komast á toppinn, hvorki í pólitík eða öðru. Hún er einmitt sátt við þetta hlutskipti sitt, og af því hún er sátt þá þarf hún ekki á þessu framapoti að halda. Nú hafa konur yfírleitt mikið að gera og kannski sérstaklega í dreif- býlinu. Finns þér störf þeirra metin að verðleikum? Ef fólk býr saman í sátt og samlyndi er með ólíkindum hvað maður getur afrekað í starfi ef maður er ánægður og fínnur að það er metið sem maður er að gera. Það er svo mikil lyftistöng. Hitt myndi draga mann algjörlega niður og er alveg dauðadómur í allri sambúð ef maður finnur að verk manns eru ekkert metin. Það er eins og að slíta sér út í óþökk. Ég veit dæmi þess að menn hafa notað hvert tækifæri til að vera að heiman og þykir alveg sjálfsagt að kopan sjái um búskap- inn á meðan. Ég hef ekki heyrt um að það hafi verið metið sérstaklega. Þú ert í stjórn kvenfélagsins í Seyluhreppi. Finnst þér gaman að starf að félagsmálum? Ég er búinn að vera ár í stjórn kvenfélagsins. Þetta er þó nokkur vinna ef á að stunda þetta samvisku- samlega, og ég er meðmælt kven- félögum. En þau væru ekki til ef þær konur væru ekki til sem vildu leggja á sig vinnu án þess að fá laun fyrir. Annars er hugsanagangurinn of mikið að verða sá að það sé ekki hægt að gefa vinnuna sína. Það verður að flokka hana niður í dag- vinnu, eftirvinnu og næturvinnu. En kvenfélögin hafa látið margt gott af sér leiða. Það er gaman að starfa með þeim og þetta er góður félagsskapur. Áttu einhver önnur áhugamál en góðan búrekstur og gott uppeldi á börnunum? Það er alveg geysilega margt sem ég á eftir að gera, þegar ég fæ tíma til þess því áhugamálin eru mjög mörg. En ég ætla að bíða eftir því að strákarnir stækki svolítið meira. Sem stendur er nóg að gera við búskapinn, uppeldið og heimilis- haldið. Einhverntíma hljóta rólegu árin að koma og þá fer ég að ferðast, lesa og gera svo margt, margt fleira sem mig langar til. Ég hef t.d. óskaplega gaman af því að vefa. Ég hef líka mikinn áhuga áþvt að halda til haga gömlum vinnubrögðum, svo sem tóvinnu og að vinna úr hrosshári og ýmislegt í þeim dúr áður en þessi vinnubrögð deyja út. Áhugann fékk ég í Kennaraskól- anum, Þar var okkur boðið upp á námskeið í þessum gömlu vinnu- brögðum. Segðu mér eitthvað um refarækt. Já, refurinn er merkileg skepna. Hann er svo trygglyndur í eðli sínu að hann vill helst aðeins eina læðu og sína fjölskyldu. Hann er ósköp lítið fjöllyndur. Það er ekki reiknað með að refur sinni meira en þremur til íjórum læðum um pörunartím- ann og það getur orðið tímafrekt að láta það ganga fyrir sig þótt þær séu ekki fleiri. Hvað hafíð þið margar læður? Þær eru um sjötíu en reftrnir eru um 30. Trygglyndi refsins sést líka í því hvað hann venst hirðinum og verður órólegur ef ókunnugir koma í húsið. Sérstaklega er það varasamt þegar læðurnar eru búnar að gjóta, það getur kostað ungann lífíð. Mér finnast þessi dýr skemmtileg. Mig rámar í orðtak sem er einhvern veginn svona: „Trygglynd sem tófa...” Fyrir þá sem hafa gaman af dýrum á annað borð er ekkert erfiðara að umgangast refi en önnur dýr. Hver heldur þú að sé mesti kosturinn við að ala upp börn í sveit? Ja, t.d. það að læra að vinna. Ég held að sá maður verði aldrei ham- ingjusamur sem lærir aldrei að vinna. Lífið hlýtur að verða honum óskapleg byrði. Vinnan er undir- staðan fyrir hamingjusömu lífi. Sambandið við náttúruna, dýr og gróður er líka nauðsynlegur hlutur. Þú drýgir nú tekjurnar með fleiru en að vinna úr mjólkinni. Ertu ekki með umsvifamikla matjurtaræktun? Jú nokkuð. Við höfum bæði áhuga á að rækta grænmeti. Einar kom gróðurhúsinu upp og síðan hefur það aðallega verið í minni umsjón. Gróðurhúsið sér okkur fyrir öllu grænmeti til heimilisins. Er vinnudagurinn ekki langur með öll Jiessi umsvif? Eg fer á fætur ekki seinna en hálf átta. Bóndinn fer á undan og hitar vatn í katlinum og leggur á borðið fyrir morgunverðinn áður en ég fer á fætur. Hann er mjög sjálfbjarga í heimilishaldinu. Þegar ég fór suður til að kynna mér refarækt, en það er mitt verk að sjá um refabúið, þá voru hér 6 smiðir í vinnu og 11 til 12 manns í mat og Einar sá alveg um heimilið þessa viku sem ég var í burtu. Einn maðursérstaklega.sem var hér þá, úr Reykjavík, dáðist óskaplega að Einari. Eg kann mjög vel að meta hvað hann er hjálplegur innanhúss. Ertu hestakona? Ég get ekki hugsað mér neitt skemmtilegra en útreiðar, en þær verða að bíða betri tíma. Það er gott að hafa eitthvað að hlakka til þegar frístundirnar verða fleiri. Ertu bjartsýn að eðlisfari? Ég er bjartsýn á framtíðina. Það var mér mikil gleði að flytja aftur á bernskustöðvarnar og ómæld ánægja fyrir synina að vera í nábýli við ömmu og afa og sú ánægja er gagnkvæm. Það fylgir því sérstakur blær „að skreppa yfir í ömmubæ.” Við látum þetta gott heita og ljúkum úr kaffibollunum. Göngum síðan í refabúið með broshýru hús- móðurinni á Skörðugili til að taka myndir af henni þar, vegna ein- dreginna tilmæla afmælisbarnsins. „Þar á að taka af henni myndir,” segir hann og hlær stórum. í refabúinu er verið að útbúa búr fyrir minka, af fullum krafti, sem þau ætla að bæta við sig. Þvílík atorka og vinnugleði. Að myndatöku lokinni rennum við úr hlaði og á hugann leitar hvort það sé ekki einmitt í samheldninni og þessari gagnkvæmu virðingu sem lífsgleðin sé fólgin, gleðin sem svo margir leita að, langt yfír skammt.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.