Feykir


Feykir - 16.11.1983, Blaðsíða 1

Feykir - 16.11.1983, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 16. nóvember 1983 - 23. tbl. Feykir bœtir fréttaþjónustuna BLAÐAMAÐUR í HÚNAÞINGI Fréttaþjónusta Feykis í Húna- vatnssýslum mun á næstunni aukast verulega, og hefur nú verið ráðinn blaðamaðurí hluta- starf til að sinna því. Það er Magnús Ólafsson á Sveinsstöð- um, en hann hefur verið í einni ritnefnd blaðsins frá upphafi. Blaðamaður Feykis í Húna- vatnssýslum mun verða tengi- liður ritnefndanna á Hvamms- tanga, Blönduósi og á Skaga- strönd. A þessu ári hefur Feykir bætt stöðu sína verulega hér á Norð- Skrifað undir samninga Steinullarfélagsins hf og Partek vesturlandi og framundan er frekari sókn, þegar útgáfan verður aukin í vor um helming og blaðinu breytt í vikublað. Liður í þessari sókn er aukin fréttaþjónusta við Húnavatns- sýslur. Ritstjómarskrifstofa blaðs- ins er staðsett á Sauðárkróki, og af þeim sökum hefur e.t.v. efni frá Skagafirði og Sauðárkróki verið meira áberandi í Feyki en efni úr Húnaþingi. Með ráðn- ingu sérstaks blaðamanns í hlutastarf í Húnaþingi vill blað- ið koma á meira jafnvægi í fréttaflutningi og styrkja stöðu sína á öllum vígstöðvum áður en ráðist verður í vikulega útgáfu. Magnús Ólafsson starfaði um árabil sem blaðamaður á einu dagblaðanna í Reykjavík og kann því starfið til hlýtar. Hann mun sinna blaðamannsstarfi fyrir Feyki a.m.k. fram á vorið, en þá verður staðan metin upp á nýtt og möguleikar kannaðir með tilliti til þeirrar reynslu sem þá verður komin á þessa til- högun. Magnús tekur til starfa um þessar mundir og í næsta blaði mun í fyrsta sinn birtast efni frá sérstökum blaðamanni Feykis í Húnavatnssýslum. Gífurleg þrengsli eru í Grunnskólanum á Hvammstanga Stærsta verkefni sem unnið hefur verið að í sumar á Hvammstanga á vegum hreppsins var við grunn- skólahúsið. Núverandi hús- næði skólans er rúmlega fjórðungur þess sem það ætti að vera samkvæmt reglum menntamálaráðu- neytis, miðað við nemenda- fjölda. Gífurleg þrengsli og aðstöðuleysi er í skólanum, þó hluti kennslunnar fari fram i Félagsheimilinu. Við- byggingin, sem er tveggja hæða með þriðju hæð í rislofti, eru tæpir þúsund fermetrar. I október var lokið við að steypa húsið upp og verður þar numið staðar í ár. Framkvæmdakostnaður verður nálægt 4 millj. króna, fjárveiting ríkisins var 1,1 millj. kr. Verktakar voru Samein- aðir verktakar sf. á Hvamms- tanga. Finnar eiga 12% hlutafíár Finnska stórfyrirtækið Partek verður hluthafi í Steinullarfé- laginu hf og nemur eignaraðild þess um 12% af hlutafé. Þann 3. nóvember sl. var skrifað undir samninga Steinullarfélagsins og Partek á Sauðárkróki um eignar- aðildina, en einnig um vélakaup. Steinullarfélagið tekur lán í Finnlandi til vélakaupanna sem nemur um 85% af andvirði vélanna, en þetta lán útvegar Partek og ábyrgist viðskipta- banki fyrirtækisins lánið. Vél- arnar, sem keyptar verða í Finnlandi, kosta um 80 milljónir ísl. króna. Viðstaddir undirritun samn- inga voru fulltrúar Partek, finnski sendiherrann á íslandi, stjórnar- menn Steinullarfélagsins og fleiri sem málinu tengjast og unnið hafa að því á undanförnum árum. Þorsteinn Þorsteinson, fram- kvæmdastjóri Steinullarfélags- ins, sagði í samtali við Feyki að þær vélar sem keyptar væru af Partek væru meginhluti véla- samstæðu verksmiðjunnar, nema bræðsluofninn, sem kemur til með að kosta um 20 milljónir. Þannig munu vélarnar allar kosta rétt um 100 milljónir. Viðræður standa yfir við Elkem í Noregi um kaup á ofni. Partek er stórt fyrirtæki á sviði byggingaiðnaðar, það velti um 1800 milljónum finnskra marka á síðasta ári. Hjá fyrir- tækinu vinna um 6200 manns í fjórum steinullarverksmiðjum, einni glerullarvericsmiðju og tveim- ur sementsverksmiðjum, sem framleiða í kring um milljón tonn af sementi á ári. Þorsteinn sagði ennfremur: „Partek verður með um 8 milljónir í hlutafé, sem er um 12% af heildarhlutafénu. Þeir munu væntanlega fá einn full- trúa í stjórn fyrirtækisins, sem verður trúlega sérfræðingur úr steinullarframleiðslunni hjá þeim. Það finnst okkur mjögjákvætt.” Nýlega, á framhaldsaðalfundi Steinullarfélagsins hf, var á- kveðið að Samband íslenskra samvinnufélaga sæi um dreif- ingu á framleiðslu steinullar- verksmiðjunnar alls staðar nema á höfuðborgarsvæðinu. Búið er að ganga frá samningi þar að lútandi, þó eftir sé að undirrita hann, en ólokið er að ganga frá nokkrum lögfræðilegum atrið- um. í atkvæðagreiðslu í stjóm- inni um dreifingarsamninginn sat fulltrúi fjármálaráðuneytis- ins hjá, en aðrir greiddu samn- ingnum atkvæði. Sambandið og Kaupfélag Skagfirðinga gerðu dreifmgarsamning þennan að skilyrði fyrir þátttöku sinni í félaginu, og eiga þeir nú 24% hlutafjár. Sem kunnugt er hafði Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra lýst andstöðu sinni við þennan samning og óttuðust margir að það kynni að setja strik í reikninginn, jafnvel að nkið drægi sig út úr fyrirtækinu. Á síðustu stundu tókst að koma í veg fyrir það og er fé á lánsfjáráætlun ríkisins nú ætlað til steinullarverksmiðjunnar. Um tildrög þess að afstaða Alberts breyttist er Feyki ekki kunnugt í smáatriðum, en ljóst er að hann var beittur miklum þrýstingi af samflokksmönnum sínum, s.s. Eyjólfí Konráði Jónssyni, en ekki síst mun Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra hafa beitt sér. Jarðvegsframkvæmdir eru hafnar á lóð Steinullarfélagsins hf á Eyri, en Króksverk hf var með lægsta tilboðið í það verk og vinnur það. Tilboð þeirra var um 40% af kostnaðaráætlun. „í vetur verður unnið að hönnun bygginga og útboð á þeim munu verða seinni hluta vetrar. Stefnt er að því að byggingaframkvæmdir geti haf- ist í maí eða júni á næsta ári. Afgreiðslufrestur á vélunum er tólf mánuðir, þannig að þær geta verið tilbúnar í nóvember og uppsetning á þeim hefst væntanlega í ársbyrjun 1985,” sagði Þcrsteinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri Steinullarfé- lagsins. Héraðsfundur Skagafjarðarprófastsdæmis Héraðsfundur Skagafjarðarpró- fastsdæmis var haldinn á Hofs- ósi 6. nóvember. Hófst hann með guðsþjónustu, þar sem séra Olafur Þór Hallgrímsson pre- dikaði en prófastur og prestar prófastsdæmisins þjónuðu fyrir altari. Að afloknu kirkjukaffi í Höfða- borg í boði sóknarnefnda Hofs- og Hofsóskirkju flutti séra Hjálm- ar Jónsson prófastur yfirlits- ræðu sína. Hann fór í upphafi nokkrum orðum um 500 ára afmæli siðbótarmannsins Mar- teins Lúthers og gildi siðbótar hans fyrir kirkju og þjóðlíf. Sagði hann að minningin um Lúther skyldi verða kirkju og söfnuði hvatning til aukins og fjölbreyttara safnaðarstarfs. Prófastur gat síðan um það helsta sem gerst hafði í prófasts- dæminu frá síðasta héraðsfundi. Prestaskipti hafa orðið á Mæli- felli, séra Ágúst Sigurðsson tekið við starfi sendiráðsprests í Kaupmannahöfn en íjians stað hafði komið séra Olafur Þ. Hallgrímsson. Messum í prófastsdæminu hefur fjölgað um 58 frá árinu áður, voru nú 309 en árið áður 251. Kvaðst prófastur vona að áhugi á safnaðarstarfi færi að sama skapi vaxandi. 1.-3. júlí var haldið leik- mannanámskeið á Hólum. Þar var fjallað um samstarf presta og starfsmanna safnaðanna. Var námskeiðið vel sótt. Hólafélagið hélt aðalfund sinn 3. júlí. Stjórn þess baðst undan endurkjöri og var því ný kosin í hennar stað. Hólahátíð var á venjulegum tíma um 17. sumarhelgi. Þar söng í fyrsta skipti kór Hóla- dómkirkju undir stjórn organ- ista kirkjunnar, frú Önnu Ein- arsdóttur á Hóíum. Endurvígð var kirkjan á Sjáv- arborg 21. ágúst í sumar en hún hefur verið endurbætt á vegum Þjóðminjasafns íslands og er í eigu þess. Þá ræddi prófastur um fjöl- breytt safnaðarstarf kirkjunnar á Löngumýri. Kvað hann í undirbúningi lagasetningu um það, að starfsmaður yrði þar launaður úr ríkissjóði. Hefðu þingmenn kjördæmisins verið stuðningsmenn þessa, enda þeim kunnugt um fræðslu- og félags- starf kirkjunnar þar. Mætti þar nefna umfangsmikið starf fyrir aldraða, fermingarfræðslu, org- anista- og söngmót, æskulýðs- mót o.m.fl. sem skili sér í öflugra safnaðarstarfí. Hafin er endurbygging Hofs- staðakirkju undir stjórn dug- mikillar sóknarnefndar þar. Þá kom fram að prófastur hafði Framhald á bls. 6.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.