Feykir - 29.08.1984, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1984
FEYKIR 5
ÚTSALA
AFSLATTUR
20% afsláttur af allri metravöru
10-20% afsláttur af fatnaði.
10-70% afsláttur af skótaui.
10-50% afsláttur af sportvörum
Skólavörurnar eru komnar
Þú þarft ekki annað!
Nýráðinn frarnleiðshistjóri
SteinuUarverksmiðjunnar
„Ég er Blönduósingur,” sagði Einar
Einarsson fyrst af öllu þegar hann
var beðinn að kynna sjálfan sig fyrir
lesendum Feykis. Einar, sem er
véltæknifræðingur, hefur verið
ráðinn framleiðslustjóri Steinull-
arverksmiðjunnar h.f. á Sauðár-
króki, en starfaði áður í tæknideild
Islenska álfélagsins.
Einar er sonur hjónanna Einars
Þorlákssonar f.v. sveitarstjóra á
Blönduósi og Arndísar Þorvalds-
dóttur. Hann ólst upp á Blönduósi,
og að loknu námi í Menntaskólan-
um á Akureyri fór hann í
Tækniskóla íslands. Námi lauk
hann síðan frá tækniskóla í
Oðinsvéum í Danmörku.
Einar var spurður hvernig honum
litist á að starfa hjá Steinullar-
verksmiðjunni.
„Þetta er alveg nýtt fyrir öllum,
en auðvitað er spennandi að takast á
við þetta. Ég mun byrja á því að fara
til Finnlands ogstarfa þar með þeim
sem munu setja upp vélar
verksmiðjunnar og sjá um þjálfun
starfsfólks.”
— Hvert verður hlutverk þitt
þegar verksmiðjan er komin í gang?
„Fyrst og fremst að sjá um
framleiðsluna, að hún gangi
hnökralaust fyrir sig. Ég mun sjá
um ráðningu starfsmanna og hafa
með starfsmannahald að gera.
Viðhald og umsjón með vélbúnaði
verksmiðjunnar verður á minni
könnu, en einnig áframhaldandi
vöruþróun og ég mun vinna með
framkvæmdastjóranum að mark-
aðssetningu.”
— Hvernig vinnustaður verður
Steinullarverksmiðjan?
„Ég held að þetta eigi að geta
orðið þrifalegur og góður vinnu-
staður, en það fer að sjálfsögðu eftir
starfsmönnum og vinnuanda. Alla
vega verður þarna mjög góður
hreinsibúnaður.
— Þurfa starfsmenn í verk-
smiðjunni á einhvers konar verk-
legri kennslu að halda áður en
starfræksla hefst?
„Já, hingað munu koma erlendir
menn til að sjá um þjálfun
starfsfólks á meðan á tilrauna-
framleiðslu stendur. Að öðru leyti
þarf ekki sérhæft starfsfólk til að
stunda almenna vinnu þarna.”
Einar sagðist hafa á undan-
förnum árum litið eftir starfi hér
fyrir norðan við hans hæfi og þegar
þetta hefði verið auglýst hefði hann
sótt um. Hann var því ánægður með
að fá stöðuna.
Eiginkona Einars er Hrefna
Guðmundsdóttir og eiga þau tvö
böm, níu og þriggja ára. Taldi
Einar að það væri miklu heilbrigð-
ara að vera með börn úti á landi en í
borginni, en sagðist þó ekki reikna
með að fjölskyldan flytti norður fyrr
en næsta haust til að valda sem
minnstri röskun á skólagöngu
barnanna.
Feykir býður Einar og fjölskyldu
hans velkomin norður og óskar
þeim velfarnaðar.
Ný þjónusta
á Sauðárkróki
Karl Davíðsson sjónglerjafræð-
ingur á Akureyri býður nú í
tengslum við fyrirtæki sitt, Gler-
augnaþjónustuna Skipagötu 7 á
Akureyri, nýja þjónustu fyrir íbúa
Sauðárkróks og nágrennis.
Þjónustan er fólgin í því að
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
verður Karl staddur í Bókabúð
Brynjars og sér um viðgerðir og
lagfæringar á gömlum umgjörð-
um. Einnigmælirhann uppgömul
gler og smíðar ný auk þess sem
hann mun bjóða fullkomna gler-
augnaþjónustu samkvæmt resepti
frá augnlækni.
Karl sagði að hann hefði unnið í
faginu undanfarin 15 ár en
Gleraugnaþjónustuna hefur hann
rekið á Akureyri sl. 3 ár. Þetta
mun í fyrsta skipti sem boðin er
þjónusta sem þessi á Sauðárkróki
og er ekki að efa að hún verði
mörgum kærkomin, sem mega illa
við því að senda gleraugun sín til
viðgerðar í aðra landshluta. Þess
má geta að Karl býður allar
réttingar og smærri viðgerðir
viðskiptavinum sínum að kost-
naðarlausu.