Feykir - 29.08.1984, Page 6
6 FEYKIR
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1984
Fjórðiingsþing Norðlendinga
26. Fjórðungsþing Norðlendinga
verður haldið að Reykjum í
Hrútafirði 30. ágúst til 1. septem-
ber 1984. Rétt til þingsetu eiga 94
fulltrúar sveitarfélaga og sýslu-
félaga á Norðurlandi, auk al-
þingismanna og annarra gesta.
Þingsetning fer fram fimmtu-
dag 30. ágúst kl. 8:30 e.h. og hefst
með setningarávarpi formanns,
Þórðar Skúlasonar, sveitarstjóra á
Hvammstanga. Gerð verður grein
fyrir framlögðum málum nefnda
og fjórðungsráðs. Fjamkvæmda-
stjóri sambandsins Askell Einars-
son, flytur skýrslu um starfsemi
sambandsins. Tillögur endur-
skoðunarnefndar sveitarstjórnar-
laga verða kynntar af ritara
nefndarinnar Hólmfríði Snæbjöms-
dóttur. Síðan verða ávörp gesta og
almennar umræður.
Á föstudagsmorgun að lokinni
skýrslu iðnráðgjafa, Friðfinns K.
Daníelssonar og framsögu Einars
Sveitaball
Eg vildi komast á sveitaball um
verslunarmannahelgina og fór að
huga að auglýsingum í fjölmiðlum.
Jú, hér var eitthvað fyrir mig,
auglýst var hestamannaball ínýlegu
félagsheimili í Skagafirðinum, ekki
langt frá Vindheimamelum, en
þangað ætlaði ég á hið árlega
hestamót Skagfirðinga. Það var á
sunnudagskvöld sem ballið átti að
vera og var nú sá ágæti dagur
runninn upp, hlýr og fagur. Eg
hugsaði gott til kvöldsins og einsetti
mér að koma tímanlega á staðinn til
að ná mér í borð á sæmilegum stað.
Eg var kominn 20 mínútum fyrir
auglýstan opnunartíma, þá brá svo
undarlega við að húsið var galopið
inn í danssal og heyrði ég að
hljómsveitin var að æfa sig. Rétt í
þessu komu líka þarna að hjón sem
ég kannaðist við og þau fóru að tala
um hvort ekki væri óhætt að setjast
við borð sem voru í holinu innaf
forstofunni. Ég taldi það óhætt og
fengum við okkur sæti við eitt
borðið og vorum búin að sitja þar í
nokkrar mínútur þegar inn snarast
maður, frekar myndarlegur í sjón,
glaðbeittur og nokkuð hávær og að
mér virtist með heldur stresskennda
framkomu.
Hvað eruð þið að gera hér? spyr
hann.
Við sitjum hérna, svaraði ég,
húsið var opið.
Fólk á ekki að ryðjast hér inn þó
ég bregði mér frá, sagði maðurinn,
sem reyndist vera húsvörðurinn.
Þar með viðurkenndi hann að hafa
gleymt að loka áður en hann brá sér
frá. Við gengum út og vorum hin
prúðustu, en húsvörðurinn skellti í
lás af mikilli röggsemi.
Húsið var svo opnað á tilsettum
tíma, ég var með þeim fyrstu sem
náði í miða, snaraðist inn í sal og
valdi mér borð, fór svo og keypti
mér cina fiösku af pilsner til að
tryggja mér borðið cnn betur.
Ekki var ég búinn að sitja ncma
nokkrar mínútur þegar konur á
ýmsum aldri þustu í salinn með
miða sem þær settu á borðin, ég stóð
upp og gáði á nokkra miðana. Á
þeim stóð „frátekið”, sem sagt ekki
skráð á nafn. Ég undi hag mínum
vel þarna við borðið, gestum
fjölgaði mjög ört, salurinn var að
fyllast. Nú veit ég ekki fyrr til en
húsvörður snarast að borðinu til
mín og segir með nokkrum þjósti:
„Hvar er miðinn?” Nú sá ég að
stressvélin í honum var farinn að
erfiða. „Það var aldrei neinn miði á
þessu borði,” svaraði ég. „Jú.víst,”
sagði hann og gaf í skyn að ég hefði
rifið miðann og stolið borðinu.
Nú tók ég eftir ungu pari mjög
myndarlegu, einkum konan. Stóðu
þau álengdar og fylgdust með því
sem okkur fór á milli. Ég sá fram á
það að húsvörður var ákveðinn í að
hrekja mig frá borðinu og hugsaði
með mér - láttu ekki deigan síga
Guðmundur. Þetta endaði auðvitað
með því að ég varð öskureiður, stóð
upp og sagði húsverði að ég myndi
verja borðið, hann gæti reynt að
taka það með valdi, lét þaðog fylgja
með að ég gæti þó nokkuð enn, þó
ég væri farinn að reskjast, svona ef í
þaðfæri og mig munaði ekkert um
þó ein föt afiöguðust eitthvað, enda
hefði ég gott kaup, fengi borgað
bæði yfir og undir borðið oná
lágmarkstaxtann.
Húsvörður fór, ég hélt borðinu,
enda varla í hans verkahring að
koma af stað slagsmálum á
samkomum. Nú sá ég að unga parið
stóð þarna ennþá. „Vantar ykkur
borð?” spurði ég og þau svöruðu
játandi. „Gjörið svo vel að setjast
hérna við borðið mitt, það er mjög
ánægjulegt að fá svona fallega konu
að borðinu.”
Ég er ákveðinn í því að koma
þarna aftur um næstu verslunar-
mannahelgi, jafnvel þó ekki verði
búið að skipta um húsvörð.
Sigfús Steindórsson
Frá norræna bindindisþinginu
Dagana 15. - 19. júní sl. var 29.
norræna bindindisþingið haldið i
Vasa í Finnlandi. Samvinnunefnd
bindindismanna á Islandi, sam-
starfsvettvangur bindindissamtaka
hérlendis, átti nokkra fulltrúa í
þinginu. Norræna bindindisráðið,
sem hefur að baki sér um 2 milljónir
norrænna manna, samþykkti
eftirfarandi ályktanir á fundi sínum
að þinginu loknu:
1) „Bæði félagsmálaráðherra
Finna og viðskiptaráðherra Norð-
manna tóku í ræðum sínum á
þinginu eindregið undir kröfu
bindindishreyfingarinnar á Norður-
löndum um afnám tollf rjálsra i
áfcngissölu. Norræna bindindisráð-
ið krefst þess að ríkisstjórnir
Norðurlanda vindi bráðan bug að
afnámi þessara fríðinda þar eð þau
hafa þveröfug áhrif víð þá stefnu
sem miðar að því að minnka tjón af
völdum áfengisneyslu með því að
draga úr drykkju.”
2) „Á öllum Norðurlöndum
tengjast mestu félagslegu vanda-
málin neyslu áfengis.
Drykkjuskapur gerir erfiðar allar
Eyþórssonar um atvinnuráðgjöf í
Noregi verður rætt um nýjar leiðir
í atvinnumálum. Framsögumenn
eru: Ingjaldur Hannibalsson, for-
stjóri Iðntæknistofnunar íslands,
Eyjólfur K. Jónsson, alþingis-
maður og Torfi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri.
Eftir hádegi verður aðalumræðu-
efni menntunarmál dreifbýlisins
-fjárhagsleg staða og stjórnun.
Framsögumenn verða Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, Valgarður Hilmarsson, odd-
viti og Snbrri Björn Sigurðsson,
sveitarstjóri. Guðmundur Ingi
Leifsson, kynnir rekstur fræðslu-
skrifstofa og Atli Guðlaugsson,
formaður Menningarsamtaka
Norðlendinga ávarpar þingið.
Á föstudagskvöld verður sam-
kvæmi með kynningardagskrá í
boði Vestur-Húnvetninga. Þing-
inu lýkur síðari hluta laugardags
með afgreiðslu mála og kosn-
ingum til fjórðungsráðs og nefnda.
Fyrir þinginu liggja tillögur um:
1. Staðarval stóriðju
2. Fræðslustarfsemi í iðnþróun
3. Iðnþróunarsjóði
4. Almenna atvinnuráðgjöf
5. Iðnfræðslu
6. Stöðu Kröfiuvirkjunar
7. Hagsmunasamstöðu minni
sveitarfélaga
8. Atvinnustöðu sveitanna
9. Skólamál í dreifbýli
10. Ferðamálasamtök
11. Langtímavegaáætlun
12. Flugvallaframkvæmdir
13. Skipulagslög
14. Merkingu bændabýla
15. Samræmingu á gjaldi ríkis-
stofnana
16. Tengsl við Menningarsam-
tökin
17. Norðurlandsleiki æskunnar
18. Endurskoðun útvarpslaga
19. Háskólakennslu á Norður-
landi
20. Tillögur frá Menningarsam-
tökum Norðlendinga
21. Valddreifingu og byggða-
jafnvægi
22. Framtíðarhlutverk lands-
hlutasamtaka
23. Frumvarp til sveitarstjórn-
arlaga
24. Tekjustofna sveitafélaga
Norðlendingar
Aðalfundur SUNN, Samtaka um náttúruvernd á
Norðurlandi verður haldinn að Víðihlíð í Vestur-
Húnavatnssýslu 1. og 2. september. Fundarstörf
hefjast laugardaginn 1. september kl. 13.00 og
um kvöldið verður kvöldvaka í samkomuhúsinu.
Á sunnudag verður farið í ferðalag um
Vesturhóp og Vatnsnes.
Svefnpokapláss og eldunaraðstaða á staðn-
um. Allir velkomnir.
STJÓRNIN
yujjJFEROMt
Þegar bílar mætast er ekki nóg að annar víki vel út á vegarbrún og
hægi ferð. Sá sem á móti kemur verður að gera slíkt hið sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði
þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.
RJÓSTAGJÖF
Á ÍSLANDI
Ráðstefna um brjóstagjöf veröur haldin
dagana 8. og 9. september n.k. í
Varmahlíö í Skagafirði.
FYRIRLESARAR VERÐA: Elísabet Helsing, starfsmaöur WHO.
Maraa Thome dósent viö Háskóla íslands.
SigrTöur Siguröardóttir sagnfræöinemi.
Höröur Bergsteinsson barnalæknir.
Áhugafélag um brjóstagjöf veröur kynnt og
umræöur veröa um starfsemi þess.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku fyrlr 25. ágútt
og fálö nánarl upplýsingar I simum 95-5333 og
95-5396. Þátttökugjald kr. 500. Mögulelki á fæöi
og húsnæöi á staönum.
Ráðstefnan er jafnt ætluð lærðum sem leikum
X. ) J Áhugafélag um brjóstagjöf og Sjúkrahús Skagfirðinga
umbætur á lífskjörum og er bein
ógnun við líkamlegt og andlegt
heilbrigði fólks. Fjárhagstjón
samfélagsins vegna drykkju er og
gífurlegt. Meðal nokkurra nor-
rænna þjóða fer áfengisneysla
minnkandi. Gleðilegar afieiðingar
þess- eru minna tjón af hennar
völduin. Þessa þróun teljum við
stafa af ábyrgri og virkri áfengis-
málastefnu ríkisstjórna og .þjóð-
þinga. Ljóst er að drykkjusiðir
almennings, einkun ákveðinna
hópa unglinga, eru að breytast. Að
okkar áliti er mikilvægt að
fjölmiðlafólk veiti þessari þróun
athygli og styðji hana þegar stefna
er mörkuð.
Sjónvarps - og hljóðvarpsstöðvar
ættu að hafa á sínum snærum
nefndir til ráðgjafar um áfengis-
málastefnu, m.a. til að leggja á ráð
um hvernig fjalla skuli um
áfengismál í dagskrám. Nauðsyn-
legt er að þessar nefndir tengist
bindindis- og verkalýðshreyfing-
unni, svo og kristilegum félögum.”
(Fréttatilkynning.)
OPNAÐU AUGUN
FYRIR NYRRI ÞJÓNUSTU A SAUÐARKRÓKI
Nú býðst þér fullkomin gleraugnaþjónusta
í fyrsta sinn á Sauðárkróki.
Við erum í BÓKABÚÐ BRYNJARS
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
kl. 13 - 15.
Komdu með gömlu gleraugun þín í
viðgerð eða fáðu þér ný, því við höfum
mikið úrval umgjarða við allra hæfi.
Fagmenn með full réttindi.
öPB
GLERAUGNAhJONUSTAN
SKIPAGÖTU 7 601 AKUREYRI S. 96-24646