Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 5
VESTFffiSKA
FRÉTTABLAÐIÐ L
Miðvikudagur 8. mars 1995
Körfuboltinn:
KFI tapaði naumlega
seinni heimaleiknum
við ÍS á laugardag
- ísfirðingar náðu frábærum árangri á fyrsta ári sínu
í fyrstu deild og lentu í þriðja sæti þó ekki kæmust
þeir í úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeildinni
Körfuboltafélag ísafjarðar
hefur á undanförnum tveim
árum náð hreint frábærum
árangri og komið flestum á
óvart sem fylgst hafa með
körfuboltanum. I fyrra sigruðu
þeir í annarri deild á sínu fyrsta
leikári. I ár spiluðu þeir af
miklum krafti í fyrstu deild, en
hrein óheppni varð þess vald-
andi að þrjú sterkustu lið
deildarinnar drógust saman í
riðil, þar sem aðeins tvö gátu
komist áfram í undanúrslit um
sæti í úrvalsdeildinni á næsta
vetri.
KFÍ fékk lið ÍS í heimsókn til
að spila síðustu tvo leiki sína í
deildinni og fyrirfram var vitað
að KFÍ yrði að vinna báða
leikina ef takast ætti að komast
áfram í undanúrslitin um úr-
valsdeildarsætið.
A föstudag mættu bæði liðin
galvösk til leiks í íþróttahúsinu
á Torfnesi við met aðsókn
áhorfenda. Ljóst var að bæði
liðin myndu keyra á fullu til að
reyna að ná fram sigri og gekk
því á ýmsu í leiknum, en heldur
hallaði þó á Isfirðinga. A síð-
ustu sekúndum leiksins jöfn-
uðu Isfirðingar og knúðu
þannig fram framlengingu sem
þeir síðan unnu við gríðarleg
fagnaðarlæti dyggra stuðnings-
manna á áhorfendabekkjum.
Urslitin urðu 80 stig KFI gegn
77 stigum ÍS. Þetta tókst þrátt
fyrir slæm meiðsli þjálfarans
og leikstjórnanda KFI, Sean
Gibson.
Seinni leikur liðanna fór
síðan fram á laugardaginn og
voru síst færri áhorfendur en á
föstudagskvöldið. Nú snerist
dæmið Isfirðingum í hag sem
höfðu undirtökin lengi vel. Rétt
eins og í fyrri leiknum, þá tókst
ÍS að jafna á síðustu sekúndum
venjulegs leiktíma. Var því
framlengt og áfram höfðu KFI
strákarnir undirtökin allt fram
á síðustu sekúndur leiksins,
þegar IS mönnum tókst að
knýja fram sigur og útiloka þar
með KFI frá úrslitakeppninni.
Fór þessi seinni leikur liðanna
81 stig ÍS gegn 78 stigum KFÍ.
Leikur þessara liða var mjög
jafn og gat Guðni Guðjónsson
þjálfari IS þess eftir leikinn að
þarna hefðu tvö bestu lið fyrstu
deildar verið að keppa og það
væri sorglegt að annað liðið
þyrfti að detta út.
KFI er með mjög ungt lið,
meðalaldurinn um 20 ár og
voru þeir þarna að berjast við
lið sem hefur mikla leikreynslu
og menn sem hafa samanlagt að
baki allt að 130 landsleiki.
KFÍ vann alls 15 leiki í
deildinni í vetur og tapaði
aðeins 5 leikjum. Náði liðið 30
stigum, eða sama stigafjölda og
ÍS, annað liðið í A-riðli og
aðeins tveim stigum á eftir
Breiðabliki, efsta liði A-riðils.
Þess má geta að annað liðið
í B-riðli er með 8 leiki unna og
12 tapaða, en kemst samt í
úrslitakeppnina.
I samtali við Guðjón Þor-
steinsson hjá KFÍ, þá ætla leik-
menn síður en svo að leggja
árar í bát og munu hefja æfingar
á fullu aftur í næstu viku og
ætla að fá úrvalsdeildarlið í
heimsókn urn næstu mánaða-
mót. Síðan er ýmislegt á döf-
inni fyrir körfuboltaunnendur
á Isafirði, m.a. landsleikur í
maí, líklega ísland - Holland
og hugsanlega leikur KFI og
Islandsmeistara 1. deildar.
Gat Guðjón þess að hann
hafi sjaldan séð viðlíka
stemmingu og var í íþrótta-
húsinu á Torfnesi nú um helg-
ina. Þama hefði verið svipuð
stemming og hann mundi eftir
í Njarðvík 1978 og ’79. Það
hafi verið hreint frábært að
finna þennan stuðning. - hk.
leikjum helgarinnar.
Ljósmyndir Hörður Kristjánsson.
Frímúrarasalurinn á ísafirði:
Bassasöngvari og píanó-
leikari frá fllandseyjum
Því miður varð að aflýsa á-
skriftartónleikum Tónlistarfé-
lags ísafjarðar um síðustu
helgi. Rússneski píanóleikar-
inn Alexander Makarov veikt-
ist skyndilega og varð að hætta
við íslandsferð sína. Vonandi
á hann eftir að ná góðum bata
og heimsækja okkur þótt síðar
verði.
Næstu tónleikar félagsins
verða annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 9. mars, og hetjast
kl. 20.30 í sal Frímúrara. Tón-
leikarnir eru haldnir í samvinnu
við menningarhátíðina Sólstafí
og Sólrishátíð Framhaldsskóla
Vestfjarða.
A tónleikunum koma fram
tveir Álendingar, Bjöm
Blomqvist bassasöngvari og
Marcus Boman píanóleikari, og
Til víðskiptavína
Bókhlöðunnar og
Sporthlöðunnar
Vegna breytinga á húsnæði verslananna frá 10. mars til 31.
mars getur starfsfólk þeirra ekki veitt sömu þjónustu og jafnan
áður í þessar þrjár vikur. Einnig verða verslanirnar lokaðar í
einhvern tíma.
Sponthlaöan verður lokuO frá laugardeginum 11.
mars til miðvikudagsins 22. mars
Rýmingarsala á sportvörum verður á 2. hæð
Bókhlöðunnar dagana 14. og 17. mars
Bókhlaðan verður opin eins og venjulega en með hægari
afgreiðslu fram til föstudagsins 17. mars. Laugardaginn 18.
mars verður lokað en mánudaginn 20. mars opnað aftur að
Silfurtorgi 1 (þar sem Sporthlaðan er nú) en með minni þjónustu
en venjulega fram til þriðjudagsins 28. mars.
Báðar verslanirnar verða lokaðar frá miðvikudeginum 29.
til föstudagsins 31. mars en opna aftur laugardaginn 1.
apríl í endurnýjuðu húsnæði.
Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á þessari röskun en
vonumst til að geta þjónað þeim enn betur að breytingum
loknum.
BOKHLAÐAN
SPORTHLAÐAN
flytja þeir verk eftir Carl
Loewe, Hugo Wolf, Lars
Karlsson, Emil Sjögren og
Marcus Boman.
Aðgangseyrir að tónleikun-
um er aðeins kr. 500 en einnig
skal bent á, að aðgangur er ó-
keypis fyrir alla nemendur
Framhaldsskóla Vestfjarða og
þá nemendur Tónlistarskólans
sem eru 20 ára og yngri.
Getraunaþjónusta Bl:
Hllikil spenna á toppnum
- Fer Addi Geir einn á Old Trafford eða fara Frank og
Jói Torfa með honum? Svörin fást á Bókasafni
ísafjarðar, bók nr. 10
Eftir leiki helgarinnar dró enn saman með pörunum og sætaskipti urðu á toppnum. Sex pör eiga
raunhæfa möguleika á því að krækja í hin glæsilegu verðlaun sem í boði eru. Fyrir síðustu um-
ferðina er staðan þessi:
1. Arnar Geir Hinriksson - Frank Guðmundsson 77 stig
2. Arnar Geir Hinriksson - Jóhann Torfason 76-
3. Kristinn Kristjánsson - Björn Þór Ingimarsson 75 -
4. Guðmundur Guðjónsson - Leifur Skarphéðinsson 74 -
5.-6. Sigurður Ásgeirsson - Ragnar Reynisson 73 -
5.-6. Trausti Hrafnsson - Jón Arnar Sigurþórsson 73-
7. Ómar Ellertsson - Jón B. 71 -
8.-10. Brynjólfur Bjarnason - Sverrir Halldórsson 70-
8.-10. Hlynur - Grétar Helgason 70 -
8.-10. Ingibjartur Ingvarsson - Gunnar Gray 70-
11.-12. Ebeneser Jónsson - Árni Hrafnsson 69-
11.-12. Kristján Pálsson - Páll Ingvarsson 69 -
13.-15. Vilhjálmur Matthíasson - Friðrik 68 -
13.-15. Jóhann Ævarsson - Svavar Ævarsson 68 -
13.-15. Ármann Karlsson - Friðrik Guðmundsson 68-
16. Sigurður H. Jónasson - Guðmundur Sverrisson 66-
17. Haukur Benediktsson - Snorri Kristjánsson 63-
Ákveðið hefur verið að fara af stað með nýja hópakeppni. Ennfremur verður einstaklingskeppni
þar sem spilaður verður opinn seðill, en ekki er búið að ákveða stærð hans. Nú eiga allir þeir sem
„tippa“ bara endrum og eins að rífa sig upp og taka þátt I skemmtilegu starfi með Boltafélaginu
og láta reyna á spádómsgáfuna.
Við erum alltaf með opið á laugardögum kl. 10.30-12.45. Oftast er heitt á könnunni, að minnsta
kosti heitar umræður.
Boltafélag ísafjarðar, knattspyrnudeild.