Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 6

Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 6
Miðvikudagur 8. mars 1995 VESTFIRSKA 1 FRÉTTABLAÐIÐ Giinnlaiigiir M, Sigmundsson - Hemaðarverktaki sent h ugs ar eins og togaraskipstjóri Hjónin Gunnlaugur M. Sigmundsson og Sigríöur G. Sigur- björnsdóttir. Þau eru bæði prókúruhafar fyrir Kögun hf., fyrirtæki sem rekiö er samkvæmt milliríkjasamningi íslands og Bandaríkjanna og hefur aösetur á íslandi og í Fullerton í Kaliforníu. í Kaliforníu hefur langstærsti hluti bandaríska hergagnaiðnaðarins aðsetur. Ef Vestfirðingar kjósa Gunnlaug Sigmundsson til setu á löggjafarsamkomu Islendinga verður hann fyrsti alþingis- maðurinn sem jafnframt er launþegi Bandaríkjahers. Fyr- irtæki hans, Kögun hf., var stofnað í þeim tilgangi að ann- ast viðhaldsþjónustu á hugbún- aði hins svokallaða Islenska loftvarnarkerfis Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Gunnlaugur M. Sigmunds- son hefur byrjað kosningabar- áttu sína á Vestfjörðum með þeim hætti að athygli hefur vakið. Isfirðingur, hið gamla blað framsóknarmanna á Vest- fjörðum, hefur fengið andlits- lyftingu svo að allt annað er að sjá það en þegar Vestfirðingar voru sjálfir að baksa við að gefa það út. Allt yfirbragð blaðsins ber þess merki að þar hafa reyk- vískir fagmenn staðið að verki. Boðskapurinn er þaulhugsaður: Gunnlaugur M. Sigmundsson hugsar eins og togaraskipstjóri! Þess er vandiega gætt að láta sem minnst fara fyrir öðrum frambjóðendum. Þekktu ekki fyrrum forstjóra Þróunar- félagsins Fyrir örfáum mánuðum vissi varla nokkur maður hér á kjálkanum deili á þessum fyrr- verandi forstjóra Þróunarfélags Islands, framsóknarmenn ekk- ert frekar en aðrir. Sumir segja að þetta hafi verið gagnkvæmt og benda á að Þróunarfélagið hafi nær ekkert fjárfest á Vest- íjörðum. Þegar Gunnlaugur gaf kost á sér í prófkjöri framsóknar- manna á Vestfjörðum kom fram að hann átti ættir að rekja á Strandir og í Reykhólasveit. Menn urðu einnig varir við að hann átti vináttu þeirra Olafs Þ. Þórðarsonar og Steingríms Hermannssonar; jafnvel svo að þeir lögðu það á sig að hringja „eitt eða tvö símtöl“ til stuðn- ings þessum vini sínum. Það kom líka í ljós að hann hafði bæði tíma og fé til að helga sig prófkjörsbaráttunni að fullu þær fimm vikur sem hann hafði til stefnu. Og hann sýndi að hann kann að vinna skipulega að því að ná settu marki. Það var því ekki alveg út í hött að hann skyldi fyrst og fremst þakka sjálfum sér kosn- ingasigurinn. Mörgum var brugðið er Gunnlaugur lýsti því yfir í út- varpsfréttum að hann ætlaði sér alls ekki að hætta að reka fyrir- tæki sitt. Kögun hf., þótt hann settist á Alþingi. Fæstir Vest- firðingar höfðu þó hugmynd um hvers konar fyrirtæki það er sem Gunnlaugur Sigmundsson leiðir En hver er Gunnlaugur M. Sigmundsson og hvaða at- vinnurekstur er það sem hann lætur sér svona annt um? Lætur ekki hugsjónir vefjast fyrir sér „Gunnlaugur hefur aldrei spurt hvað hann geti gert fyrir flokkinn heldur hvað flokkur- inn geti gert fyrir hann,“ segir gamall félagi hans. „Gunn- laugur er athafnamaður sem lætur ekki hugsjónir vefjast fyrir sér og honum hefur tekist sérlega vel að nýta sér flokks- tengslin." Þegar Gunnlaugur kom ung- lingur í Framsóknarflokkinn fóru þeir Olafur Ragnar Gn'msson og Baldur Oskarsson fyrir ungum framsóknarmönn- um. Gekk Gunnlaugur í fyrstu til liðs við þá en þegar þeir Olafur og Baldur risu upp gegn gömlu mönnunum í flokksfor- ystunni sagði Gunnlaugur strax skilið við þá. Gunnlaugur varð fjölskyldu- maður þegar á námsárunum og það kann að hafa átt sinn þátt í að hann hafði lítinn tíma til að taka þátt í uppreisn 68- kynslóðarinnar. Honum var meira í mun að ná vináttu þeirra Kristins Finnbogasonar, Olafs Jóhannessonar og síðast en ekki síst Steingríms Her- mannssonar. Meðan jafnaldrar hans í Há- skólanum ástunduðu sand- kassapólitík og óhollt líferni hóf Gunnlaugur Sigmundsson stud. oecon. störf í fjármála- ráðuneytinu undir yfirstjórn Halldórs E. Sigurðssonar. Síðar lá leið hans í Alþjóðabankann og svo í forstjórastól Fram- kvæmdastofnunar árið 1985. Framkvæmdastofnunin sál- uga heyrði beint undir forsæt- isráðuneytið og svo vildi til að þegar Gunnlaugur varð for- stjóri þessarar stofnunar hét forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson. Steingrímur beitti sér svo fyrir stofnun Þró- unarfélags Islands hf. og varð Gunnlaugur Sigmundsson fyrsti forstjóri þess árið 1986. Þróunarfélagið var stofnað í þeim tilgangi að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi og efla arðsama atvinnustarfsemi. M.ö.o. að leggja ungum full- hugum til áhættufé sem þeir ella hefðu ekki haft aðgang að. I Þróunarfélaginu fékk Gunnlaugur hundruð milljóna sjóð til að miðla úr til hinna aðskiljanlegustu verkefna. En það var strax tekið á málunum af festu. Þannig greinir Morg- unblaðið frá því 12. mars 1987 að 43 erindum af 66 til félags- ins hafi verið hafnað vegna þess að þær uppfylltu ekki til- skildar kröfur. Þróunarfélagið ekkert sjúkrasamlag „Þróunarfélagið er ekki sjúkrasamlag fyrir gjaldþrota fyrirtæki," sagði Olafur Dav- íðsson, stjórnarformaður Þró- unarfélagsins, „það er ekki nýr Byggðasjóður og það á enginn rétt á fé frá félaginu." Þetta skýrir e.t.v. hvers vegna Vest- firðir voru ekki beinlínis inni í myndinni hjá þeim Þróunarfé- Iagsmönnum. Gunnlaugur vann af krafti við rekstur Þróunarfélagsins og öfundarmenn hans halda því fram að hann hafi Ifka verið duglegur við að koma sinni eigin ár fyrir borð. Félagið þróaðist fljótlega í aðra átt en til var stofnað. í stað þess að lána áhættufé var nú lögð æ meiri áhersla á að eignast hlutafé í fyrirtækjum. Árið 1990 var því lýst yfir að félagið hefði endanlega ákveð- ið að hætta lánastarfsemi en snúa sér þess í stað fyrst og fremst að hlutabréfakaupum. Þá þegar var félagið hluthafi í fjórtán fyrirtækjum. Velta þeirra dótturfyrirtækja sem fé- lagið átti 25% eignarhlut í eða meira var tæpur milljarður. Árið 1992 átti Þróunarfélag- ið hlutafé í meira en tuttugu fyrirtækjum. Illgjarnar raddir sögðu að þar með væri félagið sjálft komið í samkeppni við atvinnurekstur sem því var upphaflega ætlað að leggja til fjármagn. Meðal þeirra fyrirtækja sem Þróunarfélagið eignaðist hluta- bréf í má nefna: Tæknigarða, Marel hf„ Hlaðbæ Colas hf., Yleiningu hf., Hampiðjuna, Tölvusamskipti, GKS, Iceland Crown, Gagnalind hf„ Hug hf. og HP á íslandi (Hewlett Pac- kard), Fjölnemar hf„ Geotherm í Ungverjalandi, Saga Food Ingredients A/S og síðast en ekki síst Kögun hf. Að sjálfsögðu starfar jafná- byrgt fyrirtæki og Þróunarfélag Islands samkvæmt ákveðnum siðareglum til að tryggja trún- að. „En Island er land nábýlis- ins“, eins og Gunnlaugur orðar það , - og fámennisins. Það fór enda svo að Gunn- laugur komst ekki hjá því að taka sæti í stjórnum margra þessara fyrirtækja og sumra sem stjórnarformaður. 1 síðast talda fyrirtækinu, Kögun hf., varð hann bæði stjórnarfor- maður og framkvæmdastjóri, samhliða því að veita Þróunar- félaginu forstöðu. Gunnlaugur Sigmundsson hætti síðan störfum hjá Þróun- arfélagi fslands í aprfllok 1993. „Mér barst tilboð um að vinna tímabundið verkefni fyrir stórt alþjóðlegt fyrirtæki og ákvað að slá til,“ sagði hann í viðtali við Morgunblaðið 4. maí þetta ár. Hann vildi ekki gefa upp við blaðið í hverju þetta verkefni hans erlendis væri fólgið. þar sem samkeppni er mikil“ Vestfirðingar virðast fæstir vita hvers konar fyrirtæki Kög- un er. í litbæklingi sem Gunn- laugur gaf út fyrir prófkjörið og lét dreifa inn á hvert vestfirskt heimili segir aðeins að Kögun sé fyrirtæki á sviði hugbúnaðar sem hafi starfsemi bæði á ís- landi og í Bandaríkjunum. Flestir töldu að þetta væri lítið snoturt fjölskyldufyrirtæki. „Við erfiðar aðstæður þar sem samkeppni er mikil, eins og í rekstri hugbúnaðarfyrir- tækja, þurfa menn að sýna snerpu og festu. í fyrirtæki mínu hefur mér tekist það,“ segir Gunnlaugur í áðurnefnd- um bæklingi. Margir misskildu þessi orð og héldu að hann ætti við Kögun en að sjálfsögðu var Gunnlaugur að tala um öll hin fyrirtækin sem hann tengist. Kögun hf. hefur nefnilega ekkert með samkeppni að gera. Það starfar samkvæmt sérstöku einkaleyfi sem íslensk stjórn- völd sömdu um við bandaríska flugherinn. Kögun starfar með öðrum orðum á sama grundvelli og Islenskir aðalverktakar. Mun- urinn er bara sá að Kögun er hreinn og klár hergagnafram- leiðandi á hátæknisviði meðan Aðalverktakar eru gamaldags byggingafyrirtæki. Það varð fljótlega Ijóst eftir að farið var að endurnýja rat- sjárkerfi Bandaríkjahers hér á landi að þetta kerfi átti að tengja saman í einni stjórnstöð með geysifullkomnum hug- búnaði. Einnig var vitað að hér var um mjög kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða. Ekki var því að undra þótt íslenskir hugbúnaðarframleið- endur færu að þreifa fyrir sér um möguleika á verkefnum við þróun og seinna viðhald þessa stjórnbúnaðar íslenska loft- varnakerfisins (Iceland Air Defense System, IADS) eins og það hét á máli Bandaríkjahers. Gekk málið svo langt að það kom til kasta utanríkisráðu- neytis að semja við bandarísk stjómvöld um íslenska þátttöku í gerð hugbúnaðar fyrir Is- lenska loftvarnarkerfið. I skýrslu Steingríms Hermanns- sonar utanríkisráðherra til Al- þingis árið 1988 getur m.a. að lesa eftirfarandi klausu: „Samkomulag hefur tekist um að hugbúnaðarþjónusta við hið nýja ratsjárkerfi verði í höndum Islendinga. Hefur ver- ið ákveðið að byggja sérstaka hugbúnaðarmiðstöð á varnar- svæðinu. Þar verður aðstaða fyrir u.þ.b. 30 kerfisfræðinga, sem munu viðhalda og þróa hugbúnað ratsjárkerfisins. Hugbúnaðarmiðstöðin verður jafnframt varaeftirlitsstöð fyrir ratsjárkerfið.“ í upphafi mun hafa ríkt nokkur bjartsýni meðal hug- búnaðarframleiðenda; þeir töl- uðu um það sín á milli að þeir væru „að stofna Islenska aðal- verktaka númer 2“. Hér átti sem sagt að verða til sameignarfélag helstu hugbúnaðarfyrirtækja landsins. Með þessu fyrirkomulagi vakti það ekki síst fyrir hug- búnaðarmönnum að koma í veg fyrir að einhver einn þeirra yrði fyrirtæki sem kæmist inn í þetta verkefni ætti í framtíðinni vfsar miklar og öruggar tekjur og gæti þannig orðið risi á ís- lenska hugbúnaðarmarkaðn- um. Hugbúnaðaraðilum ýtt út En margt fer öðru vfsi en ætlað er, hvort sem það hefur nú verið fyrir tilstilli Stein- gríms Hermannssonar utanrík- isráðherra eða ekki. I Morgun- blaðinu 18. febrúar þetta ár getur að lesa eftirfarandi: „Þess hefur verið farið á leit við Olaf Davfðsson fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra iðnrekenda og Gunnlaug M. Sigmundsson framkvæmda- stjóra Þróunarfélags Islands að hafa forgöngu um stofnun fyr- irtækis er hefði yfirumsjón með viðhaldi og rekstri á hugbúnaði fyrir ratsjárstöðvarnar ... “ Einn þeirra hugbúnaðaraðila sem upphaflega áttu frum- kvæðið að því að fá verkefnið segir að vamarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins hafi fljótlega séð til þess að gera þá, hina eiginlegu hugbúnaðar- framleiðendur, áhrifalausa í málinu. Það var einfaldlega gert með skírskotun til hemað- arleyndar og öryggis. Kögun hf. var svo stofnað 29. desember 1988. í skýrslu Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra til Alþingis 1989 segir: „Rekstur hugbún- aðarmiðstöðvar sem reist verður á vamarsvæðinu verður í höndum íslenska fyrirtækis- ins Kögunar hf., sem stofnað var í desember 1988 til þess að annast viðhald og þróun hug- búnaðar ratsjárkerfisins sem verktaki hjá Ratsjárstofnun." Jón Baldvin segir ennfremur í ræðu sem hann hélt á Alþingi 24. apríl þetta ár til að kynna skýrslu sína: „Stofnun þessa fyrirtækis, Kögunar hf„ átti sér nokkurn aðdraganda. Leitað var sam- starfs og samvinnu við Félag ísl. iðnrekenda og Þróunarfélag Islands til að laða saman öll þau íslensk fyrirtæki sem að hugbúnaðarmálum vinna til að búa svo um hnúta að sú þekk- ing sem íslenskir sérfræðingar munu öðlast við störf á hug- of stór því að ljóst var að það Guðfeður Kögunar: Steingrímur Hermannnsson og Jón Baldvin Hannibalsson.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.