Feykir


Feykir - 25.02.1987, Page 1

Feykir - 25.02.1987, Page 1
4/1987 ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Nýtt litaafbrigði fundið í íslenskum ref ? —— „Með hækkandi sól ríður gestur í hlað.” SS og Loðskinn í samstarf Loðskinn hf. á Sauðárkróki og Sútunarverksmiðja Slátur- félags Suðurlands í Reykjavík hafa ákveðið að fullvinna allt það hráefni hér innanlands sem þeir hafa yfir að ráða. Er þetta gert í því skyni að fullnýta fjárfestingu verksmiðjanna á sem hagkvæmastan hátt. Telja aðilar að með þessari sam- vinnu náist rekstrarleg hag- kvæmni með tilliti til ytri aðstæðna, sem nú hafa skapast í ýmsum þáttum landbúnaðar og snerta rekstur sútunarverksmiðja. Forráðamenn þessara fyrirtækja hafa ákveðið að láta athuga með hvaða hætti þessi samvinna getur orðið báðum aðilum til hagsbóta til langs tíma. Þá hefur einnig verið ákveðið að skiptast á frekari upplýsingum bæði á sviði tækni- og markaðsmála í þeim tilgangi að ná sem bestum árangri. Leikfélag Hofsóss: „Þið munið hann Jörund” Nú standa sem hæst æfingar hjá Leikfélagi Hofsóss á gaman- leikriti Jónasar Arnasonar; „Þið munið hann Jörund”. Leikstjóri er Hilmir Jóhannes- son á Sauðárkróki en honum til aðstoðar er Anna Steingríms- dóttir. Aætlað er að frumsýna verkið fyrripart marsmánaðar í Höfðaborg. Að sögn Sólveigar Péturs- dóttur sem sæti á í stjórn leikfélagsins munu um 20 manns taka þátt í sýningunni, að meðtöldum söng og hljóðfæra- leikurum. Nokkuð vel gekk að fá fólk í leikritið að þessu sinni, jafnt þaulvana leikara og þá sem nú stíga sín fyrstu spor á fjölunum. Æft er fimm kvöld í viku. Leikritið mun ekki verða sýnt utan Hofsóss. Leikfélag Hofsóss hefur undan- farin ár sett upp nokkrar leiksýningar. í fyrra sýndi félagið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson og þar áður Saklausa svallarann. (öþ) Hofsós: Slökkviliðið í nýtt húsnæði tæki sem þessir aðilar eiga þar sem þetta eru bæði komist í öruggt húsaskjól, dýr og vandmeðfarin tæki. Skagaströnd: Byggðastefiia mynduð Fyrir fáeinum dögum veiddist refur frammi í Blönduhlíð. Þótt það teljist yfirleitt ekki tíðinda- vert að refir veiðist var þó svo í þetta skipti. Eftir að refurinn hafði verið fleginn fóru menn að virða fyrir sér feldinn. Þótti liturinn vera all sérkennilegur og voru menn á því að þetta væri blanda af silfurref og mórauðum villiref. En það stangast á við aldur á þessum ref, því þetta afbrigði hefur einungis verið ræktað hérlendis í eitt ár, en álitið er að þessi refur hafí verið fullorðinn. Það er óhætt að segja að síðastliðinn föstudagur hafi verið annasamur hjá lögreglunni á Sauðárkróki. Alls urðu 8 umferðaóhöpp það fyrst uppúr hádegi og hið síðasta uppúr klukkan fimm. Sem betur fer urðu þó engin slys á fólki. Að sögn Sveinbjöms Ragnars- sonar lögreglumanns var orsökin að þessum slysum aðallega of hraður akstur miðað við aðstæður en á þessum tíma gerði snjóél og myndaðist hálka á svipstundu, Á árunum 1940-1950 voru starfrækt refabú í Skagafirði, þar voru einmitt ræktuð afbrigði af silfurref, þó svo að dýr hafí sloppið út þá eru engar líkur á því að afbrigði með þeim lit sem Blönduhlíðarrefurinn var með, sé til í dag, 40 árum síðar. Nú um síðustu helgi var staddur á Sauðárkróki Páll Hersteinsson veiðistjóri ojg var honum sýnt skinnið. Akvað hann síðan að taka skinnið með sér suður til frekari rannsókna og er niðurstöðu að vænta fljótlega. sem ökumenn gerðu sér ekki grein fyrir. í einu tilvikanna var um að ræða harðan árekstur og er talið að báðir bílarnir sem þar lentu saman séu ónýtir. Aftaná- keyrslur urðu tvær. Fram í Skagafirði lentu tveir bílar út af veginum. Sveinbjörn sagði enn- fremur að þetta væri sá annasamasti dagur sem komið hefur hjá lögreglunni hér á Sauðárkróki en sem betur fer væru svona dagar alger undan- tekning. Hafm er á Hofsósi bygging húss sem ætlað er að hýsa bíla og tæki slökkviliðs staðarins, Björg- unarsveitarinnar Grettis og sjúkrabifreiðina á Hofsósi. Að sögn Björns Níelssonar formanns byggingarnefndar er þarna um að ræða 200 fermetra hús sem byggt verður við núverandi slökkvistöð. Kostnaðar- áætlun byggingarinnar hljóðar uppá 4,3 millj. króna. Fyrirhugað er að húsið verði fokhelt í júní. Það eru þrír aðilar sem standa að þessari framkvæmd, þeir eru Brunavarnafélag Skagafjarðar, Björgunarsveitin Grettir og Hofsóshreppur. Kostnaður mun að öllum líkindum skiptast jafnt milli þessara aðila, en ekki er enn ljóst hvort nágrannasveitar- félög taka einhvern þátt í byggingarkostnaðinum með Hofs- óshreppi. Á Hofsósi eru nú staðsettar tvær slökkvibifreiðar ásamt sjúkrabifreið Rauða krossins. Þá hefur tækjaeign björgunar- sveitarinnar farið vaxandi undan- farin ár en sveitin hefur til þessa nánast verið á götunni með sín tæki. Ljóst er að með tilkomu þessa nýja húss mun batna öll aðstaða slökkviliðs- og björgunarsveitar- manna til mikilla muna. Enda mun ekki af veita að þau Á þorrablóti Skagstrendinga var Þrándur Thoroddsen kvik- myndagerðarmaður með menn rsína og mynduðu þeir í ákafa það sem þar fór fram, en á þorrablóti Skagstrendinga er jafnan mikil gleði og þar flutt góð skemmtiatriði. Raunar hefur Þrándur verið að mynda mikið meira á Skagaströnd að undanförnu og á eftir að koma þar oftar á næstunni. Þegar Þrándur var spurður um þessa myndatöku sagði hann að þarna væri verið að taka hluta í fræðslumynd um atvinnu- uppbyggingu og byggðastefnu, en mynd þessi verður tekin víða um land þó stór hluti hennar verði tekinn á Skagaströnd. „Tilgangurinn er fyrst og fremst að sýna þeim hér á mölinni fyrir sunnan að þeir hafa þörf fyrir landsbyggðina og öfugt” sagði Þrándur í samtali við blaða- mann. Framleiðandi myndarinnarer Myndbær en hún er gerð með stuðningi fjölmargra aðila bæði á Skagaströnd og víðar. Þorsteinn Marelsson gerði drög að handriti myndarinnar, en það er í sífelldri endurskoðun eftir því sem á gerð myndarinnar líður. Myndin er tekin á mynd- segulband og var upphaflega hugsuð um hálfa klst. á lengd. En Þrándur sagði að það gæti vel farið svo að úr þessu yrðu 2-3 myndir því efnið væri viðamikið. Samhliða þessari fræðslumynd um byggðastefnuna gerir Þrándur sérstaka mynd um Skagaströnd og atvinnulíf og mannlíf þar á stað. Sú mynd er gerð fyrir Skagstrendinga. (ntó) Sauðárkrókur: Miklar annir hjá lögreglunni

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.