Feykir


Feykir - 25.02.1987, Page 2

Feykir - 25.02.1987, Page 2
2 FEYKIR 4/1987 Óháð fréttablað « fyrir Norðurland vestra Beykir ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ari Jóhann Sigurðsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95:5757 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón F. Hjartarson, Sigurður Ágústsson, Sæmundur Hermannsson ■ BLAÐAMENN: örn Þórarinsson, Magnús Ólafsson, ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 45 krónur hvert tölublað; í lausasölu 50 kr. ■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 165 krónurhver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUTÍÐNI: Annan hvern mið- vikudag ■ PRENTUN: Dagsprent hf., Akureyri ■ SETNING OG UMBROT: SÁST sf„ Sauðárkróki. ----------------------leiöorí— Vandi ullariðnaðarins Á undanförnum árum hafa bændur átt í erfiðleikum með sölu á kjöt- og mjólkurvörum. Neysluvenjur fólks hafa breyst og hefur sú breyting komið niður á hinum hefðbundnu landbúnaðar- afurðum. Til þess að mæta þessum samdrætti hafa bændur brugðist við á þann veg að fækka bústofni og notað til þess kerfí sem kallað hefur verið kvótakerfi. Sú fækkun sem orðin er hefur að sjálfsögðu komið niður á fleirum en bændum sjálfum. Úrvinnslu- greinarnar hafa þurft að draga saman seglin. Fækkun sauðfjár hefur leitt til að sútunarstöðvar og ullarvinnslustöðvar hafa minna hráefni úr að spila en ella. Nú er komið upp það vandamál að ullarvinnslustöðvarnar eru hættar að taka við ull frá bændum. Ástæðan er einkum sú að til eru í landinu miklar birgðir af hreinsaðri ull sem ekki hefur tekist að vinna úr og selja. Þessar fréttir hafa komið mörgum á óvart því hingað til hefur þetta vandamál verið nærri því óþekkt. Út um hinar dreifðu byggðir landsins hafa sprottið stærri og minni saumastofur sem hafa unnið úr íslensku ullinni. Hingað til hefur ekki verið vandamál fyrir hinar minni saumstofur að losna við framleiðslu sína. En vandi ullariðnaðarins er ekki eingöngu að ekki hefur verið unt að losna við þær birgðir sem til eru. Vinnslukostnaður hefur verið óvenju hár og hefur hann átt sinn þátt í að ekki hefur verið hægt að losna við ullina á heimsmarkaðsverði. Flest allir bændur eru nú farnir að vélrýja fé sitt á veturna en áður fyrr var rúið á vorin eða snemma sumars. Þessi breyting hefur það í för með sér að meira af ull fæst af hverri kind auk þess sem meira af óhreinindum eru í ullinni. Húsvistarskemmdir eru í mörgum tilvikum það miklar að ullin er ónýt en það eru að sjálfsögðu ekki allir bændur sem senda frá sér skemmda ull. Þeir fáu sem það gera skemma hinsvegar mikið fyrir hinum. Til þess að bóndi geti sent frá sér ull sem undantekningalaust fer í úrvals- eða 1. flokk þarf hann mjög góða loftræstingu í fjárhúsunum sem og almenna góða umgengni, en það kallar á aukið fjármagn. Mjög margir hafa einnig bent á að til þess að bóndinn fari vel með þá ull sem hann sendir á markað þurfi hann að fá gott verð fyrir ullina. Það verð sem bóndinn hefur fengið til þessa hefur ekki verið það hátt að hann færi þessvegna að vanda sig betur hvað snertir umhirðu og þrifnað á ullinni. Nú þegar svo er komið þurfa bæði bændur og forsvarsmenn ullariðnaðarins að taka höndum saman og leysa þennan vanda. Lionessuklúbburinn Björk á Sauðárkróki stofnaður Aðalheiður Arnórsdóttir formaður Lionessuklúbbsins Bjarkar Þann 13. nóvember sl. var stofnaður hér á Sauðárkróki Lionessuklúbburinn Björk. Þann 7. febrúar var síðan haldin stofnskrárhátíð þar sem klúbb- félagar voru formlega teknir inn. Af því tilefni var haft samband við Aðalheiði Arnórs- dóttur formann klúbbsins. „Það eru 39 konur hér á Sauðárkróki sem eru stofn- félagar í Lionessuklúbbnum. Við vorum formlega teknar inn í klúbbinn á sérstakri stofnskrár- hátíð sem haldin var af föðurklúbb okkar, það er að segja Lionsklúbbnum á Sauðár- króki sem jafnframt stofnar klúbbinn. Nú við hittumst einu sinni í mánuði og höldum fund, yfirleitt fáum við einhvern fyrirlesara til að halda smá ræðu og annaðhvort eru það þá frammámenn í bæjarfélaginu eða að við fáum menn að. Markmið og tilgangur klúbbs- ins er eins og annara Lions- klúbba að starfa að líknar- og menningarmálum. Ennþá erum við ekki teknar til starfa en von bráðar verður hafist handa. Klúbburinn er alveg óháður öllum pólitískum stefnum og trúmálum. Starfsemi klúbbsins fer þannig fram að við öflum fjár með okkar vinnu sem að sjálfsögðu er sjálfboðavinna og þeim peningum sem koma inn verjum við síðan til þeirra mála sem að okkar mati eiga það skilið. Klúbbfélögum er skipt niður í starfshópa, til dæmis eru nú starfandi fjáröflunarnefnd og fjölskylduráð þar sem unnið er að innra starfi með það fyrir augum að öll fjölskyldan geti verið með. Klúbburinn er opinn öllum þeim konum sem hafa áhuga á að vinna undir merkjum félagsins. Núverandi stjórn er skipuð þeim Aðalheiði Arnórsdóttur, eins og fram hefur komið svo og þeim Áróru H. Sigursteins- dóttur sem er ritari og síðan Kristínu Sveinsdóttur sem gegnir gjaldkerastörfum”. í tilefni af opnun kökuhúss í Skagfirðingabúð föstudaginn 27. febrúar verða brauð og konditori vörur frá okkur seldar með 10% afslætti. Komið og smakkið á gómsætum sælkerasmástykkjunum okkar Verið velkomin í Skagfirðingabúð KRUTT KÖKUHÚS

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.