Feykir - 25.02.1987, Side 3
4/1987 FEYKIR 3
íþróttir—
Köifubolti 1. deilcb
Tindastóll tapaði fyrir
Þór....
Það var svo sannarlega jafnan verið skemmtilegir og
föstudagurinn 13. febr. sl. og fullt mikið skorað. Svo var ekki í þetta
tungl þegar Tindastóll fékk Þór skiptið. Þórsarar unnu átakalítið
frá Akureyri í heimsókn í 1. 72-62 í frekar daufum leik, eftir
deildinni í körfubolta. Þegar þessi að staðan í hálfleik var 35-31, Þór
tvö lið hafa keppt hafa leikirnir í hag.
....og síðan fyrir Grindavík
Sl. föstudagskvöld lék Tinda-
stóll við U.M.F.G. í 1. deild
körfuboltans hér í íþróttahúsi
Sauðárkróks, þeirri miklu ljóna-
gryfju. Fjöldi manns var þarna
saman kominn og bjuggust
margir við hörkuleik, því síðast
þegar þessi lið léku á Sauðár-
króki vann TindastóII með einu
stigi í þrem framlengingum. En í
þetta skipti voru það Grindvíkingar
sem báru sigur úr býtum á mjög
svo slöku liði Tindastóls. Þetta er
án efa þeirra versti heimaleikur í
vetur. Lokatölur leiksins urðu 76-
61 fyrir U.M.F.G.
Sem fyrr byrjuðu Tindastóls-
menn leikinn af miklum móð og
var jafnræði með liðunum fyrstu
mínúturnar. En er liða tók á
hálfleikinn náðu Grindvíkingar
yfirhöndinni og héldu jöfnu
forskoti það sem eftir var
leiksins. Þegar 5 mín. voru til
leikhlés var staðan 27-17,
Grindavík í hag, og í hálfleik var
staðan 32-24. Eins og tölurnar
bera með sér var ekki mikið
skorað, baráttan var þeim mun
meiri.
í síðari háltleik stóð ekki
steinn yfír steini í leik Tindastóls
og réðu Grindvíkingar ferðinni,
jafnt í vörn sem sókn. Hittni
Tindastólsmanna var afspyrnu-
slök og mikið um mistök í
auðveldustu færum.
Það er best að segja sem
minnst um frammistöðu einstakra
leikmanna Tindastóls, þeir vilja
sjálfsagt gleyma þessum leik
sem fyrst.
í liði U.M.F.G. bar einna
mest á leikmanni nr. 7, Hjálmari
Hallgrímssyni, hann aflaði sér
mikilla vinsælda á meðal
áhorfenda fyrir leik sinn, sem
þótti með afbrigðum gróflegur!
Hjálmar gerði þó flest stig
Grindvíkinga, eða 23 alls.
Flest stig Tindastóls; Eyjólfur
19, Björn 11, Karl 10, Sverrir 9.
Dómarar voru þeir Jóhann
Dagur Björnsson og Rafn
Benediktsson og dæmdu þeir
leikinn ágætlega, ekki meir en
svo.
Tindastóll lék við Þór á
Akureyri í gærkveldi, en þar sem
Feykir fór í prentun í gærdag er
ekki hægt að kunngera úrslit
leiksins. Verður það gert í næsta
blaði.
Köifubolti 2. deild:
Síðasti leikur U.S.A.H.
A-Húnvetningar léku sinn
síðasta leik í 2. deild íslands-
mótsins í körfubolta sl. laugar-
dag. Mótherjarnir voru H.S.K.
og var leikið á Selfossi. H.S.K.
sigraði með 93 stigum gegn 57
stigum Húnvetninga.
U.S.A.H. byrjaði leikinn afar
illa og réðu fyrstu mínúturnar
úrslitum hans. Um miðjan fyrri
hálfleikinn var staðan 32-5,
H.S.K. í vil. Þegar blásið var til
leikhlés höfðu heimamenn skorað
55 stig en U.S.A.H. 20
En Húnvetningar voru ekkert
á þeim buxunum að gefast upp
þó staðan væri ljót og mættu
þeir tvíefldir til leiks i síðari
hálfleik. Náðu þeir sínum besta
leikkafla í.vetur og börðust eins
og ljón út um allan völl.
Vítahittni þeirra þótti með
afbrigðum góð. Ef seinni
Til lesenda
Fyrirhugað er að taka aftur upp vísnaþátt hér í blaðinu.
Mun ætlunin að hann verði með nokkru öðru sniði en verið
hefur eða að mönnum verði frjálst að senda inn frumsamið
efni um atburði líðandi stundar. Að vísu verður að gæta þar
hófs því ekki verður hægt að taka til birtingar langa
kviðlinga eða þulur. Eru menn eindregið hvattir til að
senda inn sínar þenkingar í bundnu máli, og er það ósk mín
að vel muni til takast.
Ritstjóri
hálfleikur hefði verið látinn
gilda sem úrslit leiksins, hefðu
H.S.K.-menn sigrað með aðeins
einu stigi, eða 38-37. En svo átti
því miður ekki að fara í þetta
skiptið, því þegar dómarar
leiksins höfðu blásiðtil leiksloka
gátu menn séð á stigatöflunni í
húsinu að H.S.K. hafði sigrað,
93-57.
Með þessum ósigri lentu A-
Húnvetningar í neðsta sæti í
sínum riðli. En eftir því sem
fróðir menn segja, þá má H.S.K.
sýna betri körfuknattleik en í
þessum leik, ef þeir ætla sér
eitthvert erindi í 1. deild.
Stigahæstir Húnvetninga voru
Indriði Jósafatsson með 19,
Hermann Arason 13, Jón
Gíslason 11 og Hjörtur Einars-
son 9 stig.
Htmaþing:
Vaxandi loðdýrarækt
í Vestur-Húnavatnssýslu eru
8 bændur ákveðnir í að hefja
minkarækt á þessu ári. Þá eru 5
Austur-Húnvetningar ákveðnir
að fara út í þessa búgrein og
sömuleiðis einn bóndi í Bæjar-
hreppi í Strandasýslu. Allir
þessir bændur hafa bundist
samtökum um að byggja skála
yfír minkana eftir staðlaðri
teikningu og verða þau eins að
öðru leyti en því að skálarnir
verða mislangir eftir því hve
marga minka menn ætla að hafa
í upphafi. Þá ætla þessir bændur
að leita sameiginlegra tilboða í
efni í húsin og athugaðir verða
möguleikar á sameiginlegum
innkaupum á hreiðurkössum og
öðrum búnaði.
Að sögn Gísla Pálssonar á
Hofi í Vatnsdal munu þessir
bændur byrja með 100-300
minkalæður hver. Skálarnir
verða allir 12,80 m á breidd og
verða þar inni 6 raðir af
minkabúrum. Lengdin verður
síðan frá 260-700 m. Gísli sagði
að nú væri mjög hagstætt að fara
út í minkarækt, og útilokaði
hann alls ekki að fleiri bændur
ættu eftir að bætastí þennan hóp
og verða með í þessum
sameiginlegu útboðum á efni í
skálana, m.a. hafa tveir Skag-
firðingar sýnt málinu áhuga.
Fram að þessu hafa aðeins
tveir bændur í Vestur-Húna-
vatnssýslu verið í loðdýrarækt.
Aðalbjörn Benediktsson ráðu-
nautur á Hvammstanga sagði í
samtali við blaðamann að hann
hefði alltaf litið svo á að ekki
væri unnt að fara út í
loðdýrarækt án þess að fá til þess
einhverja fjármagnsaðstoð. Nú
væri hún fyrir hendi og því væri
hreyfing komin af stað um
verulega aukningu í þessari
atvinnugrein í sýslunni. Hann
sagði að þetta gæti hentað mjög
vel fyrir bænur, sem hefðu lítil
bú og þá oft léleg útihús og
þyrftu nauðsynlega að auka við
sig til þess að geta lifað á sinni
jörð.
Þeir sem byggja yfir loðdýr fá
til þess framlag sem nemur 30%
af áætluðum byggingarkostnaði
samkvæmt jarðræktartillögum.
Þá er þeim endurgreiddur
söluskattur af byggingarefninu.
Auk þessa geta þeir fengið allt
að 500 þúsund kr. styrk frá
Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Hámarksstyrkur miðast við að
byggt sé yfir 75 refalæður, eða
300 minkalæður. Þeir bændur,
sem hafa minni fullvirðisrétt en
300 ærgildi í hefðbundnum
búgreinum sitja að jafnaði fyrir
þessari styrkveitingu, en hún er
óháð því hvort menn draga
saman í hefðbundnum greinum
eða ekki.
Húnvetningarnir, sem nú eru
að hefja minkarækt munu að
líkindum kaupa fóður frá
fóðurstöðinni á Sauðárkróki,
eins og húnvetnskir refabændur
gera nú. Einnig er hugsanlegt að
einhverjir fóðri með þurrfóðri
a.m.k. hluta úr árinu. Tveir
aðilar hérlendis munu á þessu
ári hefja framleiðslu á þurrfóðri
fyrir loðdýr.
Fyrir nokkru síðan voru uppi
hugmyndir um að setja á fót
fóðurstöð fyrir loðdýr í Húna-
þingi, og var talað um
Skagaströnd í því sambandi. Að
sögn Gísla Pálssonar hefur nú
verið horfið frá þeim hug-
myndum a.m.k. um stundarsakir
enda getur stöðin á Sauðárkróki
auðveldlega annað mun meiri
markaði, en hún hefur í dag.
Þeir bændur, sem ákveðnir
eru að hefja minkarækt eru:
Friðrik Bjömsson Gili, Guðsteinn
Kristinsson Skriðulandi, Haukur
Pálsson Röðli, Benedikt Steingríms-
son Snæringsstöðum, Gísli Páls-
son og Jón sonur hans á Hofi,
Ólafur Benediktsson Miðhópi,
Björn Pétursson Stóru-Borg,
Konráð Jónsson Böðvarshólum,
Rúnar Unnsteinsson Neðri-
Þverá, Benjamín Kristinsson
Þorfinnsstöðum, Halldór Sigurðs-
son Efri-Þverá, Hjalti Jósefsson
Urðabaki, Indriði Karlsson
Gröf og Sigfús Guðmundsson
Kolbeinsá í Bæjarhreppi.
Hér má síðan bæta við að
Hjördís Gísladóttir frá Hofi
hefur verið ráðin loðdýraræktar-
ráðunautur i Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu. Hún er
búfræðikandidat að mennt og
hefur í vetur verið erlendis við
frekara nám á sviði loðdýra-
ræktar. Aðsetur hennar verður
að Hjarðarhaga í Blönduhlíð í
Skagafirði, þar sem hún býr með
sambýlismanni sínum Sigurjóni
Pálmasyni.
(mó)
KONUR
ATHUGIÐ
Samvinnuskólinn að Bifröst hefur í samræmi
við samþykkt síðasta aðalfundar Sambandsins
útbúið námskeiðaflokk, sem hefur það að
meginmarkmiði að þjálfa konur til þátttöku í
félagsstörfum.
Fræðslunefnd KS hefur ákveðið að fá slíkt
námskeið hingað í Skagafjörð nú í vetur ef næg
þátttaka fæst.
Upplýsingar um námskeiðin veita formenn
félagsdeilda kaupfélagsins, svo og formaður
fræðslunefndarinnar, Trausti Jóel Helgason.
Kaupfélagið hvetur konur til þess að kynna sér
vandlega það sem hér er í boði, því þetta er
einstakt tækifæri til að fá góða þjálfun hjá úrvals
leiðbeinendum.
Fræðslunefnd Kaupfélags Skagfirðinga
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJOTUM