Feykir - 25.02.1987, Side 8
Öll almenn
prent- og
Ijósritunar-
þjónusta
Verið velkomin
Á SftST?
PRENTÞJÓNUSTA
SÍMI 5711
AÐALGÖTU 2
SAUÐÁRKRÓKI
Siglufförður:
25. febrúar 1987
Feykir
4. tbl. - 7. árg.
Sími Jí™ , FARSÍMI
5821 Sauðarkroki 935
Góð veiði
Ný lösreslustöð ' H6i>i,,u
W V Nú í febrúar hafa bæn
VpirSifólíi oi VíAiHíílcór ctn
Nú hefur verið ákveðið að
hefja byggingu nýrrar lögreglu-
stöðvar á Siglufirði með vorinu,
en núverandi húsakynni lögregl-
unnar eru mjög gömul og í
slæmu ásigkomulagi.
Að sögn Erlings Óskarssonar
bæjarfógeta á Siglufirði eru
teikningar af húsinu tilbúnar og
verður bygging hússins væntan-
lega boðin út mjög fljótlega.
Embættinu hefur verið úthlutað
lóð við Gránugötu 4-6 sem er
skammt frá núverandi lögreglu-
stöð.
Húsið verður á tveimur
hæðum og verður aðsetur
lögreglunnar á neðri hæð. Þar
verður einnig bílageymsla og
fangaklefar. Neðri hæðin verður
um 290 ferm. að stærð. Á efri
hæð sem verður nokkru minni
að flatarmáli verða skrifstofur
bæjarfógetaembættisins á Siglu-
firði en skrifstofa embættisins er
nú í leiguhúsnæði sem Kaup-
félag Eyfirðinga á og rennur
leigusamningurinn út í janúar á
næsta ári og kvað Erlingur óvíst
hvort hann fengistframlengdur.
Fjárveiting á þessu ári til
byggingarinnar eru 7 milljónir
króna og standa vonir til að gera
megi húsið fokhelt fyrir þá
upphæð. Það er svo háð því
Gamla lögreglustöðin á Siglufírði sem löngu er orðin úrelt.
hvort aukafjárveitingar fást
hvað fljótt verður hægt að taka
húsnæðið í notkun en þörfin er
brýn.
Að sögn bæjarfógetans stóð
til að loka allri lögreglustöðinni
vegna slæms ástands á síðasta
hausti, en því hefði verið frestað
þar sem ljóst var að fjárveiting
til nýrrar byggingar fengist.
Hins vegar innsigluðu fulltrúar
Vinnueftirlits ríkisins þrjá af
fjórum fangaklefum stöðvar-
innar. Einn má nota við bestu
aðstæður, eins og bæjarfógetinn
orðaði það.
Sex lögreglumenn starfa á
Siglufirði og annast þeir toll-
gæslu auk löggæslu í bænum.
(öþ)
Byggðaráðstefna á Sauðárkróki
Byggðamálaráðstefna var hald-
in á Hótel Mælifelli sl.
Iaugardag á vegum Sambands
ungra sjálfstæðismanna og félaga
ungra sjálfstæðismanna á
Norðurlandi vestra. Ráðstefnuna
sátu alls um 50 manns víðs
vegar úr kjördæminu.
Eyjólfur Konráð Jónsson
ávarpaði ráðstefnuna í upphafi
en síðan voru flutt erindi um
ýmis efni er varða byggðamái.
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri í
Skinnaverkun
í sveitum
Húnvetnskir loðdýrabændur
settu í haust upp tvær verkunar-
stöðvar fyrir lo&kinn í héraðinu.
Önnur er á Hofi en hin á
Auðkúlu. Bændurnir vinna
síðan sjálfir að verkun skinnanna
og skapa sér með því mikla
atvinnu á þeim tíma sem minnst
er að gera við hirðingu og
umönnun lífdýranna.
Áður var skinnaverkun í eigu
þessara manna á Blönduósi. En
þegar það þurfti að rýma
húsnæðið, sem hún var í þótti
hagkvæmara að flytja þessa
atvinnustarfsemi út í sveitirnar.
(mó)
Stykkishólmi flutti erindi um
skipulag stjórnsýslu á lands-
byggðinni. Sturla lagði megin-
áhersiu á eflingu og samstarf
sveitarfélaga og hafnaði þriðja
stjórnsýslustiginu.
Vilhjálmur Egilsson byggða-
hagfræðingur kynnti byggða-
stefnu unga fólksins sem felur í
sér að atvinnulífið út um
landsbyggðina verði að bjóða
fólki störf er hæfa menntun og
reynslu ungs fólks. Á þann eina
hátt sé hægt að fá ungt fólk til
starfa í sinni heimabyggð.
Atvinnulíf úti á landi verði að
taka þátt í samkeppninni um
unga fólkið með því að sækja inn
í þann markað sem sér um
úrvinnslu afurða, verslun og
þjónustu.
Pálmi Jónsson ræddi um
landbúnað og landsbyggðina og
Omar Hauksson ræddi um
sjávarútveg og landsbyggðina. í
máli þeirra kom fram að í
framtíðinni verði að finna leið
útúr kerfi kvóta og skömmtunar,
bæði í landbúnaði og sjávar-
útvegi kvótaleiðin væri drag-
bítur á framtak einstaklinganna
og svo gæti ekki verið til
langframa.
I almennum umræðum tóku
margir til máls og þótti
ráðstefnan takast hið besta.
Ráðstefnustjórar voru þeir Júlíus
G. Antonsson og Árni Egilsson.
(JGA)
Hvammstangabúar:
Huga að stærri bátum
„Mesta gagnið af þessum
fundi var að þangað komu
talsmenn flestra stærri fyrir-
tækja á Hvammstanga ásamt
fulltrúum frá sveitarstjórn og
sögðu frá því hvernig þeir mætu
ástand og horfur um framtíð-
ina” sagði Þórður Skúlson
sveitarstjóri á Hvammstanga
þegar hann var spurður um
fund, sem nýlega var haldinn á
Hvammstanga og fjallaði um
ástand og horfur í atvinnu-
málum staðarins.
„Grunntónninn hjá mönnum
var nokkuð góður” sagði
Þórður. Það virðast ekki
alvarlegar horfur í atvinnulífinu
hér á næstunni, en menn eru
mest uggandi um þann samdrátt,
sem er að verða í sveitunum og
afleiðingar af honum fyrir
þorpið.
Þórður sagði að menn horfðu
Nú í febrúar hafa bændur í
Veiðifélagi Víðidalsár stundað
veiðar upp um ís í Hópinu.
Hafa þær veiðar gengið vel og
afli verið ágætur. Ekki er
kunnugt um að veiðar hafi
þarna verið stundaðar fyrr, en til
þess að svona veiðar séu
heimilar þarf leyfi hjá ráðuneyti.
Að sögn Björns Magnússonar
á Hólabaki, stjórnarmanns í
Veiðifélagi Víðidalsár var ákveðið
að hver félagsmaður í veiðifélag-
inu gæti fengið leyfi fyrir allt að
10 netum. Þegar er búið að leyfa
rúmlega 100 net og er það á
annan tug bænda, sem stunda
veiðarnar. Leyfilegt er að veiða
til 1. apríl. Litið er á veiðarnar í
vetur sem tilraunaveiði og
verður í sumar reynt að meta
hvort þær hafa einhver áhrif á
sumarveiðina í Hópinu og í
Víðidalsá, en þar er allnokkur
silungsveiði.
Jón í Laufási er einn þeirra
bænda, sem stundar þarna
veiðar. Hann sagðist vera með
10 net og hefði hann fengið allt
að 50 silunga á dag. Hver þeirra
er 2-4 pund. Upp á síðkastið
hefur hins vegar heldur dregið
úr veiðinni og bjóst hann við að
þurfa að færa netin eitthvað úr
stað en það hefur hann ekki gert
til þessa. Hann sagði að
silungurinn virtist vænni djúpt
úti, og eins virtist hann vænni í
vatninu vestanverðu en í
austurhluta þess. Algengt mun
vera að menn fái um 2 kg úr
hverju neti á dag.
Góður markaður er fyrir
silunginn og er hann bæði seldur
í verslunum á Hvammstanga og
Blönduósi og eins er hluti af
honum seldur í Reykjavík.
(mó)
Feykir spyr
á Skagaströnd
Hvað finnst þér skemmtilegast á
vinnuvikunni í skólanum?
Jón Kristberg Magnússon:
„Mér fannst skemmtilegast að
fara í gegnum tunnurnar á
Skólympíuleikunum og líka að
klifra”.
Sigurður Berndsen í 2. bekk:
„Að ganga á stultum. Ég fékk 10
fyrir það og sigraði í mínum
bekk”.
fyrst og fremst til sjávarins með
aukin atvinnutækifæri. Eigendur
báta á Hvammstanga eru sumir
hverjir að huga að stærri bátum
og í haust mun nýr 70 tonna
bátur koma á staðinn. Hugsan-
leg er enn frekari aukning á
útgerð frá Hvammstanga.
Eins og áður hefur komið
fram í blaðinu eru nú góðar
horfur hjá sumastofunni Drífu á
Hvammstanga og samdrætti í
veiðum á innfjarðarrækju hafa
menn þar mætt með auknum
skelfiskveiðum og meiri djúp-
rækjuveiðum.
Þá má nefna að á fundinum
kom m.a. fram sú hugmynd að
fá einhverja aðila t.d. félaga-
samtök til þess að byggja upp
sumarbústaðahverfi í Kirkju-
hvammi, eða á einhverjum
öðrum heppilegum stað í
sýslunni. (mó)
Vilhjálmur Jónsson 7. bekk:
„Mér fannst útvarpið skemmtileg-
ast en þar var ég plötusnúður”.
Ragnheiður Rúnarsdóttir 7. bekk:
„Skemmtilegast að vinna við
útvarpið. Ég tók viðtöl við yngri
krakkana og kynnti lög”.