Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Page 1

Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Page 1
FRETTABLAÐIÐ Miðvikudagur 22. nóvember 1995 • 44. tbl. 21. árg. S 456 4011 • Fax 456 5225 Verð kr. 170 m/vsk. Alvarleg tfðíndí f samgöngu- og öryggismálum lfestfirðlnga: Flugfélagið Ernir flytur frá ísafirði - Enginn gmndvöllur lengur tll að gera út flugvélar frá ísaflrði til póst- eða sjúkraflutninga segir Hörður Guðmundsson sem flytur höfuðstöðvar félagsins til Reykjavíkur um næstu áramét Hörður Guðmundsson við Twin Otterinn sem skreyttur er í tilefni af 25 ára afmæli Flugfélagsins Ernis hf. Ein af vélum flugfélagsins Ernis fyrir framan „gömlu“ höfuðstöðvarnar á ísafjarðarflugvelli. EIGENDUR Fiugfélagsins Ernis hf. á ísafirði hafa tekið ákvörðun um að flytja höfuðstöðvar félagsins frá Isafirði fyrir næstu áramót. Að sögn Harðar Guðmunds- sonar er ekki lengur fyrir hendi rekstrargrundvöllur til að gera út flugvélar til póst- eða sjúkraflugs á Vestfjörðum, ekki síst eftir að félagið hefur misst stærstan hluta þeirra póstflutninga sem félagið hefur haft á undanförnum árum. Því hafa eigendur félagsins afráðið að flytja alla starfsemi þess til Reykjavíkur og mun félagið verða með aðsetur f húsnæði því sem það hefur yfir að ráða á Reyjavíkurflugvelli. Flugfélagið Ernir hf. hefur þjónustað Vestfirðinga í 25 ár og allan tímann sinnt veiga- miklu hlutverki í öryggis- málum fjórðungsins með sjúkra- flugi sínu. Þar hefur skipt höfuð máli að flugvélar hafa verið með bækistöð á ísafirði til að geta sinnt sjúkrafluginu, því þaðan hafa vélar geta farið á loft í náttmyrkri og við erfiðar að- stæður þó ekki væri hægt að lenda þar. Hörður segir að með brott- flutningi höfuðstöðvanna til Reykjavíkur muni þessi þjón- usta leggjast af, enda sé enginn grundvöllur lengur til að gera út vélar og mannskap til slíkrar neyðarþjónustu. Sagði hann að öll þau 25 ár sem félagið hefur sinnt þessari þjónustu, þá hafi þeir ekkert fengi greitt fyrir bakvaktir, þó flugmenn hafi verið tilbúnir til sjúkraflugs nánast fyrirvaralaust allan sól- arhringinn. I haust mlssti félagið stærst- an hluta þess póstflugs sem það hefur haft með höndum undanfarin ár. Þá var póstflug formlega lagt niður á flugleið- inni frá Isafirði til Suðureyrar, Flateyrar og Þingeyrar. I fram- haldi af því var ákveðið að hætta einnig flugi á Patreks- fjörð, en félaginu þess í stað boðið að fljúga á Bíldudal þaðan sem pósti yrði síðan dreift áfram með bílum. Beðið hefur verið eftir svari Ernis varðandi þetta póstflug. Með ákvörðun eigenda félagsins um að hætta starfsemi sinni hér vestra liggur fyrir afdráttar- laus höfnun á slíku boði, enda telja forráðamenn félagsins engan fjárhagsgrundvöll til að sinna því flugi. Hörður telur að hér vestra sé ekki um neina bita lengur að berjast og því sé ekki um neitt að velja ef ekki eigi að éta upp eignir félgsins. Eignastaða Emis er nokkuð sterk og hefur félagið á að skipa þrem flugvélum. Hörður gerir ráð fyrir að í framtíðinni verði aukin áhersla lögð á leiguflug hér innanlands og kannski ekki síst erlendis. Evrópa er nú að opnast fyrir fslendingum og telur Hörður að góð samvinna sem náðist við svissneska aðila á árunum 1988 og 1989 komi til með að styrkjast enn frekar. í gegnum þá aðila var m.a. Twin Otter vél félagsins í fimm ár í flugi í Afríku, sem Hörður segir að hafi í raun gert gæfumuninn varðandi reksturinn þann tíma. Segir Hörður að allt innan- landsflug á fslandi sé nú rekið með tapi og í sumum tilfellum umtalsverðu. Þar treysti flug- félögin á að ná upp tapinu með leiguflugi innanlands og er- lendis á sumrin. Hörður segist ekki sjá neinn rekstraraðila í dag sem komi til með að geta keppt á stærri flugleiðum innanlands við Flugleiðir eftir tæp tvö ár þegar einkaleyfi verður afnumið. Þessi staða muni því óhjákvæmilega leiða til þess að minni aðilar hætti áætlunarflugi á innanlands- leiðum og Flugleiðir stækki að sama skapi á þessum markaði. Varðandi hugsanlegt flug Emis á flugleiðinni ísafjörður -Reykjavík sagði Hörður að slíkt kæmi varla til greina nema með stofnun nýs flugfélags eða meðnýjum flugvélakosti. Hins vegar sagði hann að í slíku dæmi dygði flugleiðin ísa- fjörður - Reykjavík engan ve- ginn ein og sér vegna lélegrar nýtingar flugvélakosts sem til þess þyrfti. Þó félagið flytji nú starf- semina frá ísafirði telur Hörð- ur að höfuðstöðvarnar verði áfram á Islandi, jafnvel þó framtíð í arðvænlegum flug- rekstri liggi helst í flugi úti í Evrópu. Þá mun einnig verða skoðað hvort grundvöllur verði til að starfrækja útbú á ísafírði í framtíðinni. Tengsl eigenda Ernis við félög á meginlandinu eru þegar nokkur auk tengslanna við Svisslendinga, því eins og kunnugt er flýgur Guðmundur sonur Harðar og Jónínu stór- um Júmbóþotum hjáCargolux í Lúxemburg. - hk. Hver eru viðbrögð hér vestra við brottför Flugfélagsíns Ernis úr fjórðungnum? - Sjá baksíðu PÓLLINN HF. S 456 3092 Sala & þjónusta © Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki PÓLLINN HF ÞÚFÆRÐ ÖLL RAFTÆKI, STÓR OG SMÁ, HJÁ OKKUR Athugaðn máliri! FLUCFÉLAGIti H F ERNIR ÍSAFIROI Sími 456-4200 Leiguflug innanlands og utan, fimm til nítján farþega vélar Sjúkra- og neyðarflugsvakt allan sólarhringinn

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.