Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 8
OZON- NEVICA
ÚLPUR OG BUXUR
SPORTHLADAN sími 456 4123
FRÉTTA6LAfi|R
RITSTJÓRN OGAUGLÝSINGAR:
SÍMI 456 4011 • FAX 456 5225
Kiwanis
Á laugardaginn, 18. nóvember, fór fram á ísafirði svokallað
Kiwanismót í sundi. Mót þetta er haldið í samvinnu Kiwanis-
klúbbsins Bása á ísafirði og Sundfélagsins Vestra.
Keppt var í fjölmörgum aldursflokkum pilta og stúlkna. Ki-
wanismenn gáfu öll verðlaun á mótinu. í hléi sýndu krakkar úr
C-liði Vestra listir sfnar og er óhætt að segja að mótið hafi tekist
í alla staði vel.
Fjallað verður frekar um þetta mót á síðum Vestfirska
fréttablaðsins næst.
spttir
asiiii
stri ð vest
fjörðum"
- segir Gísli Olafsson,
bæjarstióri í Vesturbyggð
„Það er mjög slæmt ef Flugfélagið Ernir gerir alvöru úr því
aðhætta rekstri hérfyrirvestan. Félagið hefurhaldið uppi mjög
góðri þjónustu á Vestfjörðum og jafnframt hefur það verið
griðarlega mikið öryggistæki fyrir alla Vestfirðinga, eins og ótal
sinnum hefur sannast og ekki síst hórna hjá okkur", sagði Gísli
Ólafsson bæjarstjóri í Vesturbyggð í samtali við Vestfirska
fréttablaðið. „Ég sé það fyrir mér að það verður mjög erfitt að
fá einhvern viðlíka rekstraraðila í staðinn. Ég sé hreinlega ekki
að slíkt geti gerst á næstunni, ef Hörður Guðmundsson leggur
niður starfsemi sína á Vestfjörðum", sagði Gísli Ólafsson.
® 456 3367
í SJALLANUM
MUNID NÆTURHEIMSINDINGAR
Á HELGUM
Fjölbreyttur og vandaður matseðill
Patreksfiarðarflugvöllur:
Loka flugbraut
sem einungis er
notuð í neyðar-
tilfellum
- má opna hana í neyðartilfellum, segir samgönguráðherra
- alveg fáránlegt, segir Gísli Ólafsson bæjarstióri
Búið er að loka þverbraut
Patreksfjarðarflugvallar (norð-
ur-suður brautinni) sem notuð
hefur verið fyrir sjúkraflug f
neyðartilvikum. Þetta var gert
með því að negia klampa niður
í brautina. Samgönguráðherra
sagði í sjónvarpsfréttum í
fyrrakvöld að fjarlægja mætti
þessar hindranir þegar nota
þyrfti brautina í neyðartilvik-
um. Ekki kom fram í máli ráð-
herrans hver muni mæta fyrir-
varalaust á jarðýtu með ripper
til að rífa þessar hindranir upp
úr beinfrosinni brautinni, þegar
sjúkraflugvél er í þann veginn
að koma inn til lendingar og
enginn tími má fara til spillis.
Reyndar virðist frekar sér-
kennilegt loka þessari braut
upp á það að opna hana svo í
neyðartilvikum, þar sem hún er
einungis notuð í neyðartilvik-
um.
„Þetta er alveg fáránlegt",
sagði Gísli Ólafsson bæjar-
stjóri í Vesturbyggð í samtali
við Vestfirska í gær, og sagði
að málið yrði tekið fyrir á bæj-
Patreksfjarðarflugvöllur. Örin bendir á flugbrautina sem lokað var.
arráðsfundi án tafar. „Bæði
fyrrverandi hreppsnefnd Pat-
rekshrepps og bæjarstjórn
Vesturbyggðar hafa barist fyrir
því að þessari braut verði
haldið opinni sem neyðarbraut.
Það er staðreynd að það getur
oft verið ágætis færi með sjó
hér út á flugvöll þó að það sé
gersamlega ófært yfir fjallveg-
ina tvo sem þarf að fara yfir til
að komast á Bíldudalsflugvöll.
Þetta virðast menn eiga erfítt
með að skilja sitjandi við
skrifborð suður í Reykjavík",
sagði Gísli Ólafsson bæjar-
stjóri.
„Ákaflega sárt“
- segir Þorsteinn lóhannesson yfirlæknir um há ákvörðun Harðar
Guðmundssonar að flytja reksturinn burt frá Vestfjörðum
„Mér finnst þetta ákaflega
sárt. Með sjúkrafiugi sínu hefur
Hörður Guðmundsson verið
okkur hér á Fjórðungssjúkra-
húsinu mikil hjálparhella. An
svona þjónustu getum við ekki
verið. Eg var að vona að til
þessarar ákvörðunar þyrfti ekki
að koma. Þetta mál var tekið
upp hér í sjúkrahússtjóminni
snemma í haust. Við hvöttum
til þess að stofnuð yrði nefnd til
að vinna í málinu og það var
gert. Nefndin hélt fund með
okkur og þar var samþykkt til-
laga þess efnis að Trygginga-
stofnun ríkisins gerði þjón-
ustusamning við Flugfélagið
Erni hf. og jafnframt yrði reynt
að fá Norðurland vestra og
Snæfellsnes með í það sam-
starf. A þann hátt hefði verið
rennt stoðum undir þessa
starfsemi. Þetta er ekki aðeins
mjög slæmt fyrir okkur á
Fjórðungssjúkrahúsinu, heldur
einnig fyrir bæjarfélagið. Það
er skaði að hverjum og einum
sem flyst burt af svæðinu. Eg
tala nú ekki þegar um atvinnu-
starfsemi er að ræða sem í of-
análag er mjög mikil! öryggis-
þáttur fyrir fbúana."
-Sjúkraflugvélar úr Reykja-
vík koma naumast að sama
gagni, eða hvað...
Þorsteinn Jóhannesson yfir-
læknir og form. bæjarráðs.
„Það segir sig sjálft. Hörður
hefur meira að segja verið til-
búinn að snúa sínum flugvél-
um við þegar við höfum kallað
í hann. Ég veit að þeir verða
aldrei eins fljótir til með
sjúkraflug úr Reykjavík.
I fyrsta lagi eru þeir
klukkutíma á leiðinni að
sunnan og í öðru lagi er ég
sannfærður um að þeir verða
aldrei eins fljótir að manna
vélamar og Hörður Guð-
mundsson", sagði Þorsteinn
Jóhannesson, yfiriæknir FSI
og formaður bæjarráðs Isa-
fjarðar.