Feykir


Feykir - 31.05.1989, Blaðsíða 8

Feykir - 31.05.1989, Blaðsíða 8
31. maí 1989, 20. tölublað, 9. árgangur Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum Fatnaður og skór á alla fjölskylduna Nýjar vörur í hverri viku Opið mánudag - föstudag kl. 10-18 og laugardag kl. 10-12 Sparta Fataverslun - Skóbúð Aðalgötu 20 - Sauðárkróki Sími 5635 - 5802 Nýir baðklefar í Varmahlíð Þessa dagana er verið að ljúka við gerð nýrra búnings- og baðklefa við sundlaugina í Varmahlíð, sem staðið hefur yfir síðustu tvö árin. Verða þeir teknir í notkun um miðjan júní og mun þá aðstaða sundlaugargesta gjörbreytast til hins betra. I nýju byggingunni eru búningsaðstaða, sturtuböð og gufubaðklefi. í bygging- una var á sínum tíma ráðist með það í huga að hún myndi einnig nýtast við íþróttahús Varmahlíðarskóla sem fyrir- hugað er að byggja við hliðina. Gömlu búningsklef- arnir við sundlaugina voru orðnir gjörónýtir og er nú verið að mölva þá niður og fjarlægja. Þeir voru byggðir nokkru eftir að sundlaugin í Varmahlíð var tekin í notkun fyrir tæplega hálfri öld. Ug;"r Í ÍÍEx Vii I j 11 i Sauðárkrókur: Stofnun hljóðvers í bígerð Tveir ungir popptónlistarmenn á Sauðárkróki, Eiríkur Hilmis- son og Krístján Baldvinsson, hafa fest kaup á hljóðupptöku- tækjum og hyggjast á næst- unni opna hljóðver. Það yrði þá eina hljóðverið á Norður- landi utan Akureyrar. Þeir félagar hafa verið á hrakhólum með húsnæði og orðið að láta sér lynda kjallarann í Villa Nova til þessa, en eygja annað og betra húsnæði á næstunni. Síðustu vikur hafa þeir notað til að kynnast tækjunum, sem þeir segja af fullkomnustu gerð, og unnið að smærri verkefnum. „Þetta byggist á hugsjón og engu öðru. Sumir hafa áhuga fyrir hestum og kaupa sér hest og það sem honum fylgir, en við lifum og hrærumst í músíkinni og viljum ýmislegt á okkur leggja hennar vegna. Ég á ekki von á að við verðum neinir milljónamæringar á þessu. Við erum hinsvegar hinir bjartsýnustu og teljum okkur eiga ýmsa möguleika á nægum verkefnum. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur á þessum undirbún- ingstíma og ég á ekki von á öðru en full þörf sé á þessari framleiðslu”, sagði Eiríkur Hilmisson í samtali við Feyki. Margir tónlistarmenn hafa átt sér æðstan drauma að eignast hljóðver. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að slík starfsemi hreiðraði um sig á ekki stærri stað en Sauðárkróki, eins og nú stefnir í. Vegaframkvæmdir í kjördæminu í sumar: Aðaláherslan á bundna slitlagið „Framkvæmdir verða heldur minni í ár en undanfarin ár og áætlunin gerði ráð fyrir. Við syndguðum upp á náðina í fyrra og erum að taka það út núna”, sagði Jónas Snæbjöms- Soroptista- félag Sl. laugardag var haldinn í Hótel Áningu á Sauðárkróki stofnfundur Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar, en soroptimistar er alþjóleg samtök kvenna af svipuðum toga og rotarysamtök karla. Helstu markmið eru mannúðar- og líknarmál, auk þess að vinna að auknum réttindum kvenna, friði, vináttu og skilningi manna á meðal. Heiðursgestur hátíðarinnar var sýslumaður Skagfirðinga Hall- dór Þ. Jónsson og fulltrúar frá starfandi félögum kvenna í Skagafirði. Á myndinni sjást stofnfélagar í hinum nýja klúbbi. Þær eru 20 úr ýmsum starfsstéttum í Skagafirði. For- maður var kjörin Ingunn Sigurðardóttir. son umdæmisstjóri vegagerðar- innar. Til stofnæða íkjördæm- inu fara á þessu ári 110 milljónir og 20 til þjóðbrauta. Jónas sagði að ísumaryrði lögð höfuðáhersla á lagningu bundins slitlags á þá vegar- kafla sem undirbyggðir voru á síðasta ári. Þannig munu Hvammstangabúar efiir sumarið aka á „teppi” frá afleggjar- anum og inn í bæ, 5 kílómetra leið. Á Norður- landsvegi í Víðidal verður bundinn sex kílómetra spotti við Víðihlíð. Á Vatnsskarði verður lagt á fjóra kílómetra og verður Vatnsskarðið þá allt orðið bundið. I Skagaftrði verður bundið í Blönduhlíðinni, frá Mið- húsum og fram að Víðivöllum, sex kílómetrar. Einnig verður fimm kílómetra vegarkafli um Hegranes lagður bundnu slitlagi, frá Vesturósi Héraðs- vatna og yfir á Garðssand. Þá verður haldið áfram að undirbyggja veginn í Blöndu- hlíðinni, frá Víðvöllum og fram að Uppsölum, en vegurinn færist á þessum kafla niður að bökkum Héraðsvatna. Á þjóðbraut- um í kjördæminu er eina verkefnið sem eitthvað kveður að á Skagafjarðarvegi fram Lýtingsstaðahrepp, en þar verður fjögurra kólómetra vegarkafli frá Varmalæk að Mælifelli undirbyggður, og er stefnt að lagningu slitlags að ári. Eins og áður sagði verður lokið lagningu bundins slit- lags á Vatnsskarð í sumar og þá aðeins eftir að leggja á Bólstaðarhlíðarbrekkuna, sem samkvæmt áætlun á að leggjast af á næstu árum. Til stendur að breyta veginum þannig að í stað þess að hann beygir í dag inn í Þverárdal- inn, beygi hann til vesturs niður í Svartárdalshlíðina og liggi síðan skáhallt niður hlíðina til norðurs og komi inn á núverandi veg beint fyrir ofan Bólstaðarhlíð. Þetta verður væntanlega ekki á dagskrá fyrr en eftir 4 -5 ár, að sögn Jónasar. feykjur Af óslátruðum Fyrirsögn í Víkurblaðinu á dögunum, tengd verkfallinu, vakti nokkra athygli, en þar sagði að fjós væru að fyllast af óslátruðum kálfum. Þetta þótti kúnstug útlegging á orðinu lifandi. Ritstjóri Víkur- blaðsins segir að það orð hefði reyndar verið enn undarlegra í þessu tilviki, þar sem vandamálið var ekki að kálfarnir væru lifandi, heldur að ekki var hægt að slátra þeim. Þvíyrðistaðiðviðþetta orðalag með óslátruðu kálf- ana og það talið nákvæmt og gott. Jóhannes ritstjóri segir þessa orðnotkun, óslátraður í staðinn fyrir lifandi bjóða upp á ýmsa möguleika. Samanber: Hláturinn lengir ósláturtíðina, eða, þarnaertu óslátraður kominn, nú eða, sjaldan launar kálfur óslátrun, eins og vel eigi við í þessu tilfelli. Krabbastígur Margir kannast eflaust við það að skilaboð geta aðeins skolast til í gegnum símann. Slíkt hefur líklega gerst þegar húseigandi einn á Sauðár- króki fékk fasteignasölu á Akureyri til að selja eignina. í auglýsingu frá fasteigna- sölunni sem birtist í Degi sl. föstudag, stóð nefnilega: Á Sauðárkróki, einbýlishús v/Krabbastíg, 3ja herb. o.s.frv. Fyrir ókunnuga er þessi auglýsing nánast sem gestaþraut, því Króksarar hafa ekki haft slíkt dálæti á kröbbum né öðrum skrið- kvikindum að þeir hafi nefnt göturnar eftir þeim, þó er Drekahlíð til í Hlíðahverfinu. Á mynd með auglýsingunni mátti greinilega sjá að hér átti að standa Kambastígur, og er það auðvitað allt annar handleggur. Fengu enga launauppbót Beiðni sex kennara við Grunnskólann á Sauðárkróki um launauppbót kom til afgreiðslu á síðasta bæjarstjórn- arfundi og var hafnað. Beiðnin var tilkomin vegna þess að kennaramir telja húsaleigu- hlunnindi sem nokkrir sam- kennarar þeirra hafa notið ekkert annað en beina launa- uppbót. Miklar umræður urðu um málið í bæjarstjórn og þar kom fram að bæjarfulltrúar vilja fylgja eftir þeirri samþykkt sem ekki komst til framkvæmda á sínum tíma. Hún kveður á um að frá og með 1. september nk. verði dregið úr húsaleigustyrkjum þannig að fyrsta árið verði greitt 50% af húsaleigu og síðan annað árið 25%. Þess má geta að þeir sem njóta húsaleigustyrks í bænum eru auk kennara, starfsmenn sjúkrahússins og fóstrur. Allt fólk sem komið hefur til starfa í bæinn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.