Feykir


Feykir - 07.02.1990, Page 1

Feykir - 07.02.1990, Page 1
Lögsögumálið: rafsjá Sérverslun með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Ráðuneytið fengið til að ieita sátta Á næstu dögum mun fulltrúi frá félagsmálaráðuneytinu funda með bæjarráði og hreppsnefnd Skarðshrepps og freista þess að ná samkomulagi í lögsögu- málinu. Á bæjarráðsfundi á dögunum var þessi áfangi í málinu samþykktur, en hug- myndin skaut upp kollinum á fundi þingmanna með Skarðs- hreppingum skömmu áður. Á bæjarráðsfundinum vareinnig samþykkt að verði ekki árangur af þessum viðræðum fyrir 15. febrúar nk. sé það ósk ráðsins að frumvarp um breytta lögsögu verði flutt. ,,Við höfum fengið þetta erindi og ákveðið að verða við því. Tímasetning við- ræðnanna hefur ekki verið ákveðin, og við bíðum eiginlega eftir Páli Péturssyni til að fá frekari upplýsingar um málið, en hann hefur verið erlendis síðustu daga. Er þetta komið í einhverja bölvaða stífni?”, sagði Hún- bogi Þorsteinsson í félags- málaráðuneytinu í samtali við Feyki fyrir helgina. Ekki hefur enn orðið af framhaldi viðræðna bæjar- ráðs við Gunnlaug Vilhjálms- son bónda í Ashildarholti, vegna tilboðs hans um kaup á 10 hektara lands næst kaupstaðnum og lögsögu yfir 30 hekturum til viðbótar. Þessir 40 hektarar eru ofan Sauðárkróksbrautar vestur að spennustöð suður að Bæjarlæk. Að sögn Snorra Björns bæjarstjóra hefur ekki unnist tími þil þess að ræða við Gunnlaug, og sá aðili frá Sjávarborg sem sagður var vera tilbúinn að selja land, hafi staðfastlega neitað því er hann var spurður. Bæjarráð telur að kaup á landi Ashildarholts, komi eitt sér ekki til að leysa lögsögumálið. Gunnlaugur í Ashildar- holti bauð 30 hektarana norðan Bæjarlækjar gegnt því að lögsögufrumvarpið yrði ekki lagt fram: ,,Það er alveg ljóst að ef bæjarstjórn rígbindur sig við það að fá þingmannafrum- varp um málið, þá verður ekkert auðvelt að semja við mig né Sigurð bróður minn”, segir Gunnlaugur. Hverfandi atvinnuleysi á Hvammstanga Atvinnuástand á Hvamms- tanga er ólíkt betra það sem af er vetri en síðastliðinn vetur. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Hvammstangahrepps voru skráðir atvinnuleysis- dagar í janúar 563. Jafngildir það 26 mannsallan mánuðinn. Síðasta dag mánaðarins voru 29 á skrá, 20 konur og 9 karlar. Til samanburðar má geta þess að atvinnuleysisdagar í sama mánuði i fyrra voru 1064, er jafngildir 49 störfum og síðasta dag mánaðarins voru 42 á skrá, 20 konur og 22 karlar. Töluverðan hluta atvinnu- leysisins má rekja til verk- efnaskorts hjá Saumastof- unni Drífu h/f, einnig mun gæftaleysi skelveiðibáts hafa haft einhver áhrif síðustu daga mánaðarins. Allt útlit er fyrir að verkefni séu að glæðast hjá Drífu h/f og þá fækkar atvinnulausum veru- lega því 10 konur voru á skrá hjá fyrirtækinu. Þess má að lokum geta að skelbátur Meleyrar, Siggi Sveins kom til Hvammstanga um helgina og fór beint á veiðar. H. með bæinn Kleifar í baksýn. .. Hrútey — náttúruperla þeirra Blönduósinga í vetrarskrúða, Melrakki fær greiðslu- stöðvun til 3ja mánaða ,,Við vonumst til að á þessum tíma takist að endurskipu- leggja rekstur fyrirtækisins á þann veg að viðunandi rekstrargrundvöllur náist. Það er ákaflega mikilvægt fyrir framtíð loðdýraræktar hér á svæðinu að verksmiðjunni verði haldið gangandi. Að öðrum kosti ersambærilegt að lítið sjávarþorp færi í eyði, þetta eru það margir hér seni byggja afkomu sína á greininnf’, segir Árni Guðmundsson stjórnarformaður Melrakka hf, stærstu loðdýrafóðurstöðvar landsins, sem sl. miðvikudag fékk greiðslustöðvun i þrjá mánuði. Beiðni um greiðslustöðvun var ákveðin á stjórnarfundi kvöldið áður. ,,Það sem rak okkur til þessa núna, var fjárnámskrafa frá Búvöru- deild Sambandsins upp á fjórar milljónir króna. Við sáum fram á rekstrarstöðvun innan skamms tíma, þannig að það væri ekki um annað að ræða en stokka spilin. Lausaskuldir fyrirtækisins, í vanskilum, eru hátt í 20 milljónir og að auki nokkuð að stofnlánum. Ekki er hægt að gera sér grein fyrir heildarskuldum, þar sem bókhaldsuppgjör fyrir síðasta ár mun ekki liggja fyrir fyrr en seinna í mánuðinum”, sagði Árni. Rekstur Melrakka hefur alla tíð gengið heldur erfiðlega. Ný fóðurstöð var tekin í notkun fyrir rúmu ári. Kostnaður við bygg- ingu hennar ásamt frysti- geymslum var um 100 milljónir. Hluti vanda fyrir- tækisins eru uppsafnaðar skuldir loðdýrabænda sem ekki hafa getað greitt fóðrið, nema þær á annan tug milljóna í dag. „Samt hefur meginþorri bændanna staðið ágætlega í skilum og við höfum vitanlega skyldum að gegna gagnvart þeim. Það hefur verið fundað með Byggðastofnun og stofnlána- deild undanfarið, og eins er beðið eftir aðgerðum frá stjórnvöldum varðandi skuld- breytingar bænda”, sagði Árni. Á síðasta ári framleiddi Melrakki hf tæplega 4000 tonn af loðdýrafóðri, að verðmæti 38 milljóna. Nær það magn varla þriðjungi afkastagetu verksmiðjunnar. Vegna samdráttar í loðdýra- búskap er gert ráð fyrir 40% minni fóðursölu í ár en í fyrra. Til að vega upp á móti því er fyrirhuguð framleiðsla á laxeldisfóðri til Miklalax í Fljótum og Fornóss á Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir sölu á laxeldisfóðri f'yrir 50 milljónir á ári. Nýlega var bætt í vélasamstæðuna, tæki það sem á vantaði til þessarar framleiðslu, svokölluðum bland- ara og er hann í eigu Byggðasjóðs. Um áramót tóku gildi uppsagnir þær sem gripið var til í Melrakka á síðasta hausti. Starfa nú einungis tveir menn í verksmiðjunni í stað fimm áður. Meðal þeirra þriggja er hættu var fram- kvæmdastjórinn, Þorsteinn Birgisson, og hefur stjórnin nú umsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.