Feykir - 07.03.1990, Síða 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Sauðárkrókur:
Haldið áfram
að malbika
í sumar
í fjárhagsáætlun Sauðárkróks-
bæjar sem lögð var fram til
fyrri umræðu á fundi bæjar-
stjórnar í síðustu viku, er gert
ráð fyrir að götur íTúnahverfi
verði maibikaðar í sumar.
Þetta vegur þyngst í þeirri 10
milljón króna aukningu skulda
bæjarins, sem gert er ráð fyrir
að verði á þessu ári.
„Okkur finnst ekki stætt á
öðru en halda áfram með
malbikun gatna í bænum.
Fyrst að þeir í syðra hverfinu
fengu malbikiðsíðastasumar
er röðin komin að Túnhverf-
ingum í ár”, segir Snorri
Björn bæjarstjóri. Lauslegar
áætlanir gera ráð fyrir að
malbikun gatna í Túnahverf-
inu kosti um 20 milljónir.
Það er víða sem það tíðkast á öskudegi að slá köttinn úr tunnunni. Krakkarnir í Akraskóla gerðu
það með atgangi miklum, en þrátt fyrir það stóð síldartunnan sem brúkuð var lengi fyrir þeim.
Fimm manna leiðangur frá Lundi í Svíþjóð:
Rannsaka vatnaset með
töku borkjarna á Skaga
Jeppi leiðangursmanna fastur í ófærðinni á Skaganum.
Strandgatan gerð
að aðalbraut
Á Sauðárkróki hefur um
skeið verið stefnt að því að
beina umferð vöruflutninga-
bíla af aðalumferðagötum
bæjarins, framhjá miðbænum.
í þessu augnamiði samþykkti
bæjarstjórn nýlega tillögu
umferðanefndar, að Strand-
gatan njóti aðalbrautaréttar.
Þessi breyting kallar á
biðskyldumerki við hesthúsa-
afleggjarann norðan Tjarna-
tjarnar og við norðurenda
Freyjugötu og Aðalgötu, þar
sem EyrargataogStrandgata
mætast. Þá var rætt um
nauðsyn þess að koma upp
hraðahindrun norðast á
Aðalgötu. — Ekki veitir
sjálfsagt af því, þarsem búast
má við að það taki þá sem
aka norður Aðalgötu nokkurn
tíma að átta sig á því að þeir
verða að stansa á beinni
brautinni fyrir umferðinni af
Strandgötu, sem búast má
við að geti á stundum orðið
nokkuð hröð og „þung”.
Á Skaga er nú staddur fimm
manna leiðangur frá Háskólanum
í Lundi í Svíþjóð í þeim
tilgangi taka borkjarna af
vatnaseti í vötnum á Skaganum.
Leiðangurinn, sem er fyrstur
sinnar tegundar hér á landi,
mun standa í 10 daga. Er
vonast til að úr kjörnunum
megi lesa upplýsingar um
fornt veður- og gróðurfar og
sjávarstöðubrevtingar, að minnsta
kosti siðustu tíu þúsund ára og
jafnvel allt til síðasta jökul-
skeiðs.
Leiðangursmenn ætluðu
að taka fyrstu kjarnana úr
vötnunum við Tjörn á
föstudaginn, en vegna ófærðar
komust þeir aidrei þangað út
eftir, frá Skagaströnd þar
sem þeir halda til. Festu
þeir bílinn hjá Hofi og lentu í
miklu basli. Guðjón á Hofi
var síðan svo vænn að draga
þá upp úr festunni.
„Við verðum hérna í 10
daga og þó svo að hann haldi
svona áfram með grimmdar-
vetri og ófærð vonumst viðtil
að ná gögnunum. Ef svo illa
færi að ferð okkar yrði til
einskis erum við ákveðnir að
koma aftur síðar, því
gögnunum ætlum við að ná”,
sagði dr. Ólafur Ingólfsson
leiðangursstjóri, Reykvíkingur
sem starfar við Háskólann í
Lundi með heimskautasvæði
sem rannsóknarsvið. Annar
Islendingur er einnig í
leiðangrinum, Þorsteinn Sæ-
mundsson, hinir þrír eru
Svíar.
Kjarnarnir verða aðallega
teknir af tveim svæðum á
Skaganum, úr vötnunum við
Tjörn og síðan norður og
austur um að Hrauni. Að
sögn Ólafs er Skaginn alveg
einstakt svæði til þessara
rannsókna. „Jöklar gengu
ekki yfir norðurhluta Skagans
Blönduós:
Átta íbúðir
munu rísa
fyrir aldraða
Ákveðið er að í vor heljist
framkvæmdir við byggingu
átta íbúða fyrir aldraða á
Blönduósi. Það er Félag
aldraða í Húnaþingi, er
stofnað var á síðasta hausti,
sem unnið hefur að fram-
gangi þessa máls, með
héraðsnefnd Austur-Húnavatns-
sýslu sem bakhjarl.
íbúðirnar verða byggðar
skammt frá Héraðshælinu,
rétt austan við Hnitbjörg
dvalarheimili aldraða. Þegar
auglýst var eftir umsækjendum
um íbúðir fyrir skömmu
gáfu 14 aðilar sig fram,
mestmegnis einstaklingar.
Ekki hefur verið ákveðið
hve margar íbúðanna átta
verði hjónaíbúðir.
Að sögn Torfa Jónssonar
á Torfalæk hefur Húsnæðis-
stofnun ekki enn afgreitt
lánsheimild til íbúðabygg-
inganna, en fregnast hefurað
afgreiðslan verði jákvæð
þegar þar að kemur.
í lok síðasta jökulssviðs.
Þarna eru mörg vötn á litlu
svæði, í mjög mismunandi
hæð yfir sjó. Þetta teljum við
að muni gefa okkur margar
mikilvægar vísbendingar við
rannsóknirnar, sem fram
fara í Lundi og á Islandi ef til
þess fæst íjármagn”, sagði
Ólafur.
Leiðangursmenn að störfum
skammt frá Tjörn.