Feykir - 07.03.1990, Blaðsíða 8
7. mars 1990, 9. tölublað, 10. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
Kastro frestaði jólunum fram í mars á sínum tíma. Nú hefur
Halldóra húsvörður farið að dæmi hans og frestað „Sælunni”
fram á sumar.
„Sumarsæla”
í þetta sinn
Ákveðið liefur verið að fresta Sæluviku Skagfirðinga, sem
heijast átti 25. mars nk„ um einn mánuð og mun hún því ekki
hefjast fyrr en í sumarbyrjun, 22. apríl, koma í beinu
framhaldi af Húnavökunni seni lýkur daginn áður.
Frumorsök frestunar Sæluvikunnar er sú hve Leikfélagi
Sauðárkróks gekk erfiðlega að fá leikara til starfa, þegar
loksins hafði tekist að útvega leikstjóra. Meiraprófsnám-
skeið forfallaði tvo leikara og annað eftir því.
Leiksýningar Leikfélagsins hafa ætíð verið fastur kjarni í
Sæluvikunni, sem félagsheimilið Bifröst hefur staðið fyrir
um áraraðir. Húsvörðurinn Halldóra Helgadóttir gat ekki
hugsað sér Sæluvikuna án leikfélagsins og fékk því
samþykki annarra aðila sem þátt eiga að Sæluvikunni nú
að slá henni á frest.
Það verður því „Sumarsæla” að þessu sinni, en eins og
menn muna voru fyrir nokkrum árum einmitt gerðar
tilraunir með að halda „auka” Sæluviku yfir
sumartímann. Það tiltæki þótti ekki gefast nógu vel í að
laða ferðamenn til bæjarins og lognaðist því útaf.
Nýjar vörur!
M.a. peysur, skyrtur,
gallabuxur, svartar og bláar, skór
Fermingarfatnaðurinn kominn!
SPARTA fataverslun - skóbúð
Aðalgötu 20 - Símar 35802, 35635
Aukadómþing Skagafjarðarsýslu:
Fellst ekki á ógildingu í
Flatatungumálinu
Á aukadómþingi Skagafjarðar-
sýslu var sl. fimmtudag
kveðinn upp dómur í stefnu-
máli Gunnars Oddssonar
bónda i Flatatungu á hendur
landbúnaðarráðherra og sauð-
Ijársjúkdómanefnd til ógildingar
ákvörðunar ráðherra uni
niðurskurð hjarðarinnar í
Flatatungu. I dómnuni er
ógildingunni hafnað á grund-
velli fræðilegrar úttektar á
riðusjúkdómnum og reglugerð
frá 1982 um varnir gegn
útbreiðslu riðuveiki. Þá er í
dómnum ekki fallist á rök
stefnanda um ógildingu vegna
ónægrar birtingar, né að
ákvörðun hafi verið byggð á
ónógum rökstuðningi af hálfu
sauðfjársjúkdómanefndar.
Dómendur í málinu voru
þrír og stóðu þeir allir að
dómnum. Sigríður Friðjóns-
dóttir dómarafulltrúi, Stein-
grímur Gautur Kristjánsson
borgardómari og Arthur Löve
læknir og doktor í veiru-
fræðum.
í 6. grein reglugerðar nr.
556 frá 1982 sem dómurinn
byggir á segir: „Ef riðuveiki
verður vart í héraði þar sem
hún hefur ekki verið kunn
áður, eða veldur verulegu
tjóni á einstökum bæjum,
getur ráðherra að fengnum
tillögum sauðfjársjúkdóma-
nefndar fyrirskipað niðurskurð
alls sauðfjár þar og tíma-'
bundið fjárleysi í þeim
tilgangi að hefta útbreiðslu
veikinnar”.
Dómurinn kemst að þeirri
niðurstöðu að hverfandi
líkur séu á að hjörðin sé
riðulaus, heldur yfirgnæf-
andi líkur á að riðusmit sé
þar að finna og veikin geti
komið fram hvenær sem er á
næstu árum. Því sé orðið
verulegt tjón á búi stefnanda.
Stefnandi hefur þrjá mánuði
til áfríunar. Málskostnaður
var felldur niður í dómnum
og skiptist því milli aðila. Að
lokum má geta þess að riða
var greind í Flatatungu
haustið 1987. Hafa þrjár
kindur í hjörð Gunnars verið
skornar og 21 til viðbótar
vegna smithættu.
Snjóþyngsli í Fljótum:
Fréttirnar líka undir snjó
„Það er varla von til þess að
neitt sé að frétta úr
Fljótunum, þær eru allar undir
snjó”, sagði Fljótamaður einn
er hann var spurður frétta á
dögununt. Gífurlegt fannkyngi
er nú í Fljótum og mál manna
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki um snjómokstur
„Götur hvergi jafn greiðfærar”
„Ég fullyrði að hvergi í bæ á
Norðurlandi eru götur jafnt
greiðfærar og hér. Fólk verður
að athuga að það býr hér
norður við heimskautsbaug og
það er varla hægt að ætlast til
þess að göturnar séu hreins-
aðar alveg niður í malbik. Það
mundi kosta óhemjupeninga
að hrcinsa snjóinn reglulega
úr bænum, því sannleikurinn
er sá að eftir að bærinn
byggðist þéttar og opnum
svæðum fækkaði, er erfiðara
og dýrara að koma snjónum í
burtu”.
Þetta hafði Snorri Björn
Sigurðsson bæjarstjóri að
segja um snjómoksturinn í
bænum. „Jú jú það hefur
ábyggilega verið rakinn klaufa-
skapur hjá þér”, sagði hann
um það þegar blaðamanni
Feykis tókst ekki á dögunum
að beygja upp úr hjólför-
unum á Skagfirðingabraut-
inni á leið heim til sín. Slíkt
hefur raunar gerst nokkrum
sinnum í vetur.
Snorri sagði að einn
daginn hefðu verið níu tæki
að störfum við snjómokstur-
inn, sá dagur hefði líklega
kostað hátt í hálfa milljón.
„Auðvitað væri mjög æskilegt
að geta hreinsað gangstéttir,
til að auðvelda gangandi
fólki að komast um bæinn.
Því fylgdi bara svo gífurlegur
kostnaður. Peningaaustur í
snjómokstur mundi bitna
freklega á framkvæmdagetu
bæjarsjóðs, sem má síst við
að minnka. Enda get ég varla
meint annað en snjómoksturs-
mál hér séu viðunandi”,
sagði Snorri Björn.
að snjómagnið sé orðið eins
mikið og það var þegar mest
var í fvrra. Þar sem lengi vel
kyngdi niður snjó í blota og
hvössu er „massinn” orðinn
feikimikill.
„Veðrið er búið að vera
þokkalegt í dag, en mér
sýnist hann vera að dimma
að aftur. Maður er orðinn
ansi leiður á þessum sífellda
ófrið í veðrinu. Það hafa
verið stórhríðar hér og
illskuviðri ogalltafgertófært
jafnóðum og mokað er.
Seinast í gær þurfti að koma
fólki hér fram í dalinn á
snjósleða”, sagði Sigmundur
Jónsson bóndi á Vestara-
Hóli á sunnudag.
„Það hefur gerst núna
þrjár vikur i röð að
krakkarnir hafa ekki komist
í skólann fyrr en á miðviku-
dögum eftir helgarfríin. Ég á
allt eins von á því að þeim
verði komið fyrir í heimavist,
a.m.k. þeim elstu. Annars
reynir fólk að hafa það
notalegt þrátt fyrir þessa
Vænn skafl við Ketilás á
síðasta vori.
einangrun sem veðurfarið
skapar. Maður spennir á sig
skíðin og lítur á næstu bæi
þegar uppstyttur gerir”,
sagði Sigurbjörg Bjamadóttir
húsfreyja á Bjarnagili.
Erfiðlega hefur gengið
fyrir Fljótamenn að halda
uppi bridsæfingum í vetur,
en þaðan fór fyrir skemmstu
kvennasveit til keppni á
íslandsmóti. Þær stóðu sig
ágætlega konurnar, lentu í 5.
sæti.
gæoaframkollun
GÆÐAFRAMKOLLUN
BÓKABÚÐ
BKmiARS