Feykir - 07.03.1990, Side 4
4 FEYKIR 9/1990
Helgi Jóhannesson lilbúinn í karate-slaginn.
Iþróttamaður Kópavogs:
Karatemeistari og sonar-
sonur Rannveigar Þorvalds.
Feykir fregnaði það á dögunum
að núverandi Iþróttamaður
Kópavogs ætti rætur sína að
rekja til Sauðárkróks. Hann
heitir Helgi og er sonur
Jóhannesar Gunnarssonar, sonar-
sonur Rannveigar Þonaldsdóttur
sem fyrir stuttu lét af
áralöngu starfi tryggingar-
fulltrúa.
F'jölskylda Helga flutti frá
Sauðárkróki til Reykjavíkur
og síðan til Kópavogs er
Helgi var á fjórða ári. ,,Mér
finnst við eiga þónokkuð í
Helga. Hann fékk að dvelja
hjá mér í nokkur sumur eftir
að hann flutti suður. Eg hygg
að hann hafi stigið sín fyrstu
skref á íþróttabrautinni með
börnunum á Sauðárkróki.
Eg fékk inni fyrir hann á
leikjanámskeiðum sem ung-
mennafélagið stóð fyrir og
var ég ákaflega þakklát fyrir
það”, sagði Rannveig amma
Helga í samtali við blaðið.
Helgi er karetemaður í
Breiðabliki og hlaut sæmdar-
heitið íþróttamður Kópavogs
á íþróttahátíð í bænum 21.
desember sl. I viðurkennn-
ingarskyni l'ékk hann farand-
bikar, eignarbikar og.fjár-
styrk frá Kópavogskaupstað.
Hann er landsliðsmaður í
íþrótt sinni og varð íslands-
meistari 1989 í kumite- undir
80 kílóa flokki. Auk þess
náði hann silfurverðlaunum
á Norðurlandamótinu í karate
1989.
Helgi, sem er mjöghógvær
piltur, byrjaði að æfa íþrótt
sína í septembermánuði
1981. Hann segir svo í viðtali
í afmælisblaði Breiðabliks
sem út kom fyrir stuttu. ,,Eg
gat nú ekkert að ráði fyrstu
árin, ekki fyrr en ég fór að
taka þetta svoítið alvarlega
fyrir tveimur til þremur
árum. Þá fór mér mjög
fljótlega að ganga vel”.
Helgi gerir ekki mikið úr
árangri sínum á Norður-
landamótinu: „Mótherji minn
í undánúrslitunum forfallað-
ist og mætti ekki lil leiks
þannig að ég lenti nánast
beint í úrslitum og gat því
ekki fengið minna en silfrið.
En íslandsmeistaratitillinn
var enginn heppni. Eg lít á
þann titil sem minn besta
árangur. Þá þurfti ég að
keppa í tveimur mjög
erfiðum bardögum í undan-
úrslitum og úrslitum, sem
báðir unnust eftir framleng-
ingu. Ég þurfti því virkilega
að hafa fyrir því aðvinna það
mót”.
En vilja ekki margir reyna
sig í slagsmálum við karate-
menn?
,,Ég er nú ekki beint að
auglýsa það að ég sé
karatemaður. Og sannur
karatemaður slæst ekki utan
við keppnishringinn. Hann
kann þá kúnst að labba í
burtu fremur en að lenda í
slagsmálum. Ég hef sjálfur
Skólamót UMSS í frjálsum
íþróttum var haldið í Miðgarði
14. febrúarsl. Þátttakendur voru
um 115 frá 7 skólum. Besta afrek
mótsins vann Finnborg Guðbjörns-
dóttir Steinsstaðadtóla í langstökki,
stökk 2,35 metra. Gerði hún sér
litið fyrir og skaut strákununi i
sínunt aldursflokki ref fvrir rass.
Verðlaunapeningar voru veittir
fyrir þrjú efstu sætin, gefin af
ungmennasambandinu. Aðauki
voru farandgripirnir þrírafhentiri
þriðja sinn. Helstu úrslit í
mótinu urðu þessi:
10 ára og yngri:
Hástökk
1. Isak Einarsson Skr. 1,15
2. Stefán Stefánss. Sts. 1,10
3. Sverrir K. Karlss. Hof. 1.05
1. Una Bjarnadóttir Akr. 0.95
2. Margrét Sigurðard. Skr. 0,95
5. María Káradóttir Akr. 0,95
Langstökk
1. Hrafnkell Ingólfss. Skr. 2.06
2. Heiðar 1.. Jónsson Mel. 1.91
3. Árni F Ólafsson Skr. 1,90
1. María Káradóttir Akr. 1.89
2. Una Bjarnadóttir Akr. 1,78
3. Sólrún Þórarinsd. Skr. 1,76
11-12 ára:
Hástökk
1. Sveinn Margeirsson Sts. 1.25
2. Hákon Sveinbjörnss. Skr.
1,25
3. Stefán Jónsson Akr. 1,20
1. Fjóla Einarsdóttir Hól. 1.20
2. Ágústa Skúladóttir Skr. 1,20
3. Finnborg Guðbjörnsd. Sts.
1.20
Langstökk
1. Davíð Rúnarsson Skr. 2,16
2. Indriði Einarsson Skr. 1.94
3. Sveinn Margeirsson Sts. 1.94
1. Finnborg Guðbjörnsd. Sts.
2,35
2. Elsa D. Halldórsd. Skr. 1.98
3. Fjóla Einarsdóttir Hól. 1,96
aldrei þurft að nota kunnáttu
mína nema í íþróttinni
sjálfri”, segir Helgi. Hann er
22 ára og nemur viðskipta-
fræði í Háskóla íslands.
13-14 ára:
Hástökk
1. Thcodór Karlsson Vhl. 1.50
2. Hörður Hafsteinss. Vhl. 1,50
3. Víðir Sigurðsson Vhl. 1,40
1. Birna Valgarðsdóttir Skr. 1.40
2. Anna R. Pálsdóttir Skr. 1.35
3. Sigurlína Guðjónsd. Hof. 1.25
Langstökk
1. Birkir Árnason Vhl. 2,40
2. Marteinn Jónsson Skr. 2.35
3. Friðrik Ólafsson Skr. 2.34
1. Steinunn Lárusdóttir Hof.
2,33
2. Birna Valgarðsdóttir Skr. 2,27
3. Sigurlína Guðjónsd. Hof. 2,19
Þrístökk
1. Marteinn Jónsson Skr. 7.10
2. Birkir Árnason Vhl. 6,86
3. Víðir Sigurðsson Vhl. 6,43
1. Birna Valgarðsdóttir Skr. 6,74
2. Sigurlína Guðjónsd. Hof. 6,50
3. Jórunn Sigurðard. Skr. 6,28
15-16 ára:
Hástökk
1. Atli Guðntundsson Vhl. 1.65
2. Róbert Runólfsson Hof. 1.55
3. Sæmundur Sæmundss. Akr.
1,55
1. Sigurlaug Gunnarsd. Skr.
1,45
2. Sigríður Hjálmarsd. Skr. 1,35
3. Sigfríður Halldórsd. Vhl. 1.30
Langstökk
1. Atli Guðmundsson Vhl. 2.68
2. Þórhallur Barðason Vhl. 2,62
3. Rúnar B. Gíslason Vhl. 2,61
1. Sonja S. Jóhannsd. Hof. 2.34
2. Sigurlaug Gunnarsd. Skr.
2,32
3. Sigfríður Halldórsd. Vhl. 2,31
Þrístökk
1. Atli Guðmundsson Vhl. 7.98
2. Bergur Revnisson Vhl. 7.48
3. Þórhallur Barðason Vhl. 7.36
l.Sigfríður Halldórsd. Vhl.6,99
2. Sigurlaug Gunnarsd. Skr.
6,80
3. Sigríður Hjálmarsd. Skr. 6.69
„Góð og kraftmikil sýning”
Það voru áreiðanlega margar
konumar á áhorfendahekkjunum
sem sáu sjálfa sig í hlutverki
Önnu í 19. júní leikriti þeirra
Iðunnar og Kristínar Steins-
dætra á frumsýningu hjá
Leikflokknum á Hvammstanga.
Anna hafði jú hugsað sér að
eyða kvennadeginum fyrir
sjálfa sig en skyldurnar voru
óteljandi, börnin, tengda-
mamma, gestir úr sveitinni,
barnapössun fyrir vinkonu
eldri dótturinnar að ógleymdum
eiginmanninum.
Einhvern veginn reiknuðu
allir með Önnu á sínum stað
heima og hún lét þann
útreikning standast gegn
vilja sínum. Leikflokkurinn
skilaði sínu með ágætum,
persónusköpun var trúverð-
ug og margskonar hliðar
mannlífsins komu skýrt
fram.
Bjarney Valdimarsdóttir
túlkaði Önnu vel, konu sem
vinnur úti, er á kafi í
félagsmálum, stundar líkams-
rækt og vill líta vel út, á
yfirborðinu sjálfstæð kona
sem veit hvað hún vill, en
þegar heim er komið þá er
hún í raun býsna undirgefin
og vill halda frið við allt og
alla á kostnað sjálfrar sín.
Höfundunum var boðið á
frumsýninguna en Iðunn sá
sér ekki fært að koma.
Kristín kom og dóttir hennar
Sigríður Víðisdóttir 10 ára
gömul mætti fyrir hönd
frænku sinnar. Kristín var í
sýningarlok spurð hvernig
henni hefði líkað. „Þetta var
góð og kraftmikil sýning og
söngurinn góður. Við um-
skrifuðum leikritið dálítið
eftir sýningun á Höfn og mér
finnst það betra núna.
Sennilega eigum við eftir að
umskrifa það enn frekar,
þjóðfélagið breytist svo hratt.
Konur eru alltaf að keppa
við tímann, i raun erum við
orðnar að þrælum tímans.
Það er í raun alveg
aðdáunarvert að konur skuli
bara ekki detta niður á
miðjum aldri, kannski gera
þær það”.
Hvað hafið þið systur skrifað
mörg leikrit?
„Það er ekki svo mikið”
segir Kristín, brosir og telur á
fingrum sér, ,,þau eru sjö.
Síldin hefur verið sett upp á
sex stöðum og nú stendur til
að setja hana upp í Noregi á
næsta ári, hún er mest sýnda
leikritið okkar”.
Sigríður var að sjá leikrit
móður sinnar í fyrsta skipti
og fannst það skemmtilegt.
Oktavía Stefánsdóttir leik-
stjóri var líka ánægð.
Bjarney Valdimarsdóttir í
hlutverki sínu í 19. júní.
„Leikhópurinn hér stendur
sig vel, góður andi og mikil
samstaða. Það er gaman að
fást við leikrit þeirra systra,
þau höfða til allra. 19. júní er
fyndið leikrit á yfirborðinu
en djúp alvara ligguraðbaki,
Dýptin kemur alltaf betur og
betur í ljós”.
H.
Skólamót í frjálsum