Feykir - 20.06.1990, Qupperneq 6
6 FEYKIR 23/1990
Orðtak opnar formlega
Fjarvinnslustofur stofna landssamtök
Landssamlök Ijarvinnslustofa
^oru stofnuð í tcngslum við
opnun Ijarvinnslustofu Orðtaks
hl'. á Hvammstanga 6. júni sl.
Stofnendur eru Orðtak I Ivamms-
tanga, Landkostir Selfossi,
Vist sf. Vík og fjarvinnslustofa
á Sevðisllrði sem félagsskapur
Frú Láru stendur að.
Auk fulltrúa frá áður
greindum fyrirtækjum mætti
á fundinn Guðjón Ingvi
Stefánsson framkvæmdastjóri
sveitarfélaga á Vesturlandi,
en hann á sæti í stjórn
Norðurlandasamtaka fjar-
vinnslustofa fyrir Islands
hönd. Við opnun Ijarvinnslu-
stofu Orðtaks hf. vargestum
boðið að skoða húsnæði og
búnað fyrirtækisins og þiggja
veitingar.
Tækjakostur fyrirtækisins
er þegar allnokkur, llmm
tölvur auk annars búnaðar.
Nokkur tæki eru þegar í eigu
fyrirtækisins og svo hafa
Sparisjóður V.-Hún.. Kaup-
félag V.-Hún. og Hvamms-
tangahreppur keypt tæki sem
lánuð verða endurgjaldslaust
i ákveðinn tíma. Almennur
opnunartími verður fyrst um
sinn kl. 13-17alla virka daga.
Steingrímur Steinþórsson hefur
verið ráðinn framkværhda-
stjóri.
Fvrsta stóra verkcfnið
verður innsláttur á Hluta-
félagaskra lslands og ætti
það að veita nokkrum störf
frarn á næsta ár. Fyrirtækið
hefur þegar annast nokkur
minni verk og ýmislegt er á
döfinni.
í kynningarbæklingi Orð-
taks er boðið upp á
Ijölbreytta þjónustu s.s.
setningu, prófarkalcstur og
umbrot. textagerð. þýðingar
úr ensku og norðurlanda-
málunum, málfarsráðgjöf og
yfirlestur handrita. innslátt
hvers kvns tölvutæks efnis
o.H.
H.
Steingrímur Steinþórsson franikvæmdastjóri Orðtaks.
■■mHi
Hvammstangi:
Óvissa í læknamálum
Boltinn nýfarinn af tám
Guðhrandar á leið í marknet
Keflvíkinga, án þess varnar-
maðurinn fái rönd við reist.
íhúar Hvammstangalæknis-
héraðs sjá nú fram á nokkra
óvissu i læknamálum. AII
mörg undanfarin ár hafa tveir
læknar sinnt héraðinu. Lækna-
skipti hafa verið fremur fátíð
miðað við ýmis önnur liéruð.
Haraldur Tómasson kom
til starfa í héraðinu snemma
árs 1976. Er hann á förum
næsta haust. Um síðustu
mánaðamót hætti Finnbogi
Karlsson störfum og ekki er
von á lækni í hans stað fyrr en
um mánaðamótin júlí-ágúst.
Hefur sá ráðið sig til 1.
desember nk. Vonir standa.
þó til ao iiann verði til vors.
Ekki hefur tekist að ráða
annan lækni enn sem komið
er.
Það er mikið álag fyrir einn
mann að sinna stóru læknis-
héraði og ekki má gleyma að
þjóðvegurinn liggur hér í
gegn. Þar getur þörfln fyrir
lækni orðið mjög krefjandi
og brýn hvenær sem er.
H.
Keflvíkingar lagðir að velli
Athugasemd:
Vegna ummæla um
siglingu á sjómannadag
Tindastóll hafði heppnina með
sér þegar Keflvíkingar komu í
heimsókn á föstudagskvöldið.
Leikurinn fór mestmegnis
fram á vellarhelmingi heima-
manna, en þrátt yfir það hirtu
þeir öll þrjú stigin sem í hoði
voru. Eftir fjórar umferðir er
Tindastóll í 3. sæti í deildinni
með 7 stig.
En kannski var kominn
tími til að heilladísirnar yrðu
Stólunum hliðhollar. Þaðvar
einungis á fyrstu mínútunum,
sem einhver broddur var í
sóknaraðgerðum Tindastóls-
manna, og á fimmtu mínútu
kom markið sem reyndist
sigurmark leiksins. Einn
varnarmanna Kefivíkinga var
að einleika inni í teignum,
boltinn barst til Guðbrandar
sem þakkaði gott boð. og
renndi knettinum undir
markvörðinn í markið.
Eftir markið tóku gestirnir
leikinn í sínar hendur og
pressuðu stíft. Líklega umof,
því vart er hægt að tala um
nema 2-3 skipti sem einhver
veruleg hætta skapaðist upp
við mark Tindastóls.
Vegna ummæla yflrlögreglu-
þjónsins á Sauðárkróki í
síðasta tölublaði Feykis um
skemmtisiglingu á Skagafirði
og sjómannamessu um borð í
Skagfirðingi SK 4, 10. júní
sl. teljum við okkur skylt að
skýra frá eftirfarandi:
Samband var haft við
siglingamálastjóra áður en
l'erðin var farin og honum
skýrt frá öryggis- og varúðar-
ráðstöfunum þeim er gerðar
höfðu verið. Sá hann ekki
ástæðu til afskipta af fyrir-
hugaðri siglingu.
Samkvæmt upplýsingum
sýslumannsins á Sauðárkróki
var sigling þessi alls óvið-
komandi embætti hans og
starfsmönnum þess. Auk
áhafnarmeðlima voru félagar
úr björgunarsveit Slysavarnar-
félags íslands um borð og
einnig fylgdu þeir skipinu á
björgunarbátum félagsins.
Löng hefð er fyrir því í
þorpum og bæjum við
sjávarsíðuna að bjóða fólki í
stutta siglingu á sjómanna-
daginn. Sums staðar einnig
þegar ný skip koma fyrst til
heimahafnar. Slys eru afar
fátíð enda reynt að gæta
fyllsta öryggis og aðgæslu við
þessar siglingar.
Um leið og við þökkum
fólki þátttöku í siglingu og
guðsþjónustu sjómannadagsins
á Sauðárkróki vonum við að
það hafi átt ánægjulega stund
um borð.
Kristján Helgason skipstjóri
Skagfirðings,
Magnús Sigfússon formaður
bjögunarsveitar.
Hjálmar Jónsson sóknar-
prestur.
Síst má ætla að ■ ■ ■ ■
Kjarna ikari...
Skagaströnd 10. júní 1990. Setja góðan bát í bann.
' binda endi á gróða.
Þegar ég las síðasta Feyki þótti mér athyglisverð greinin um Drangeyjarjarlinn. Eftir að hafa lesið hana orti ég þessar vísur sem hér koma á eftir. Hart er þegar þannig fer. þvi er staðan erfið. Margir fá á móti sér meinlegt ríkiskerfið.
En síst má ætla að kjarnakarl
Fimmta herdeild falin sjón frá klárum rétti víki.
fer um dökka ála. sem að auki er orðinn jarl
sigar hún á jarlinn Jón yfir Grettis ríki.
jálkum kerfismála. Með bestu kveðjum
Nú á víst að negla hann, nið og lygi bjóða. Rúnar Kristjánsson.
Það voru þeir Sefán
markvörður Arnarsson og
Olafur Adolfsson sem báru
ægishjálm yfir aðra Tinda-
stólsmenn í leiknum. Næsti
leikur Tindastóls verður
gegn KS úti á Siglufirði nk.
föstudagskvöld. Það verður
örugglega hart barist við
Túngötuna og ætla Siglfirð-
ingar sjálfsagt að rétta sinn
hlut frá síðasta leik í
deildinni, en þá máttu þeir
þola stórt tap gegn Fvlki
syðra, 6:1.
Ókeypis smáar
Hryssueigendur
athugiö!
Stóðhesturinn Sokki frá Sól-
heimum verður til afnota á
Hólum í Hjaltadal eftir lands-
mót i sumar. Pantanir í sima
95-38187.
Reiðhjól óskast
Óska eftir notuðu kvenreið-
hjóli.vel meðförnu og ágóðu
verði. Upplýsingar i sima
35855.
Til sölu
Volvo 740 station '87, ekinn
32 þús. km. Verð kr. 1350
þúsund. Endurbyggður Bronco
73, ekinn 98 þús. km. Verð kr.
450 þúsund. Polaris trail vél-
sleði ekinn 2400 mílur, verð
kr. 350 þúsund. Upplýsingari
sima 96-43167.