Feykir


Feykir - 18.07.1990, Blaðsíða 2

Feykir - 18.07.1990, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 27/1990 Fordæmi þess opinbera ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf ■ SKRIFSTOFA: Aöalgotu 2. Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Posthólf 4. 550 Sauöarkroki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jon F Hjartarson, Sr Hjálmar Jónsson. Sæmundur Hermannsson. Siguröur Águstsson og Stefán Árnason ■ BLAÐAMENN: Magnús Ólafsson A-Hun . Hólmfriöur Bjarnadottir V-Hun ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Sólmundur Friðriksson ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 90 krónur hvert tolublaö: i lausasolu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miövikudagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf Sauðárkróki ■ Feykir á aðild aö Samtökum bæja- og héraösfréttablaða. Verslið í heimabyggð Þensla í efnahags- og atvinnulífi er ve! þekkt fyrirbrigði í íslenska hagkerfinu. Um nokkurt skeið hafa stjórnvöld glímt við að stjórna þessum þáttum, í þeirri viðleitni sinni að halda verðbólgu niðri. Margir hafa orðið til að gagnrýna hvernig til hefur tekist og vissulega hefur engri ríkisstjórn tekist að ná sér í hrós í hnappagatið fyrir frábæra stjónun á þessu rnjög svo mikilvæga sviði stjórnkerfisins. En hversu mikið fordæmi sýnir það opinbera sjálft í því að koma í veg fyrir hinar víðfrægu sveiflur sem gjarnan einkenna íslenskt atvinnulíf. Undirritaður er vel kunnugur einum þessara þátta. Hvernig útboðum á byggingaframkvæmd- um á vegum ríkisins er háttað, hefur fylgst með því i mörg ár. Þar eru vinnubrögð viðhöfð, sem síður en svo er ástæða til að hrópa húrra fyrir. Allir byggingamenn eru sammála um að heppilegast sé að vinna útiverkin að sumrinu, en inniverkin að vetrinum. Astæðan er jú vitaskuld veðurfarið sem við íslendingar búum við. En þessi þekking virðist ekki ná inn fyrir veggi stofnana sem fara með byggingamál ríkisins. Algengast er að þessu sé algjörlega snúið við, útiverkin boðin út að sumrinu, með þeirri kvöð að framkvæmdir hefjist að haustinu og verkin séu unnin að vetrinum. Og síðan eru inniverkin boðin út að vetrinum og ætlast til þess að þau séu unnin að sumrinu. Það þarf ekki að orðlengja, hvað þessi vinnubrögð eru dýr fyrir alla aðila. Hversu mikla fjármuni mætti spara ef tímasetning verkanna væri rétt. Það hlýtur t.d. alveg að liggja í augum uppi, hversu fáránlegt það er að einmitt á háannatíma ársins, yfir sumarið, sé dengt inn inniverkefnum. Hvað leiðir það af sér?. Jú, það er varla hægt að búast við byggingaverktakar bjóði lágverð í verkið, þegar næg verkefni liggja fyrir. Það væri annað ef verkið ætti að vinna veturinn eftir, þá mundu verktakar örugglega sækjast eftir því, veturinn er jú alltaf erfiðasti hjallinn að brúa hvað verkefni snertir. Nú er ekki svo gott fyrir menn að afsaka sig með að fjárveitingar hafi komið svo seint. eða svo brýn þörf hafi verið fyrir að verkinu væri hraðað. Það þarf enginn að segja að þegar um framkvæmdir til framtíðar ræðir, skipti eitt misseri þar til eða frá einhverju höfuðmáli. Allur akstur bannaður ||UMFERÐAR Málverkasýning! Magnús Einarsson sýnir olíumálverk og vatnslitamyndir í Safnahúsinu dagana 19. 7. til 22. 7. Opið frá kl. 17.00 til 22.30 Allir velkomnir Fjölskylduvika AFS Fyrir skömmmu var ég staddur erlendis í bifreið ásamt nokrum öðrum Islendingum. Veðrið var vægast sagt erfitt. Úrhellisrigning og allar ár flæddu yfir bakka sína, vegir sundurskornir og mannvirki í rúst. Við vorum á heimleið um kvöld eftirfáförnum sveitarvegi. Allt í einu er allt stopp. Yfir þveran veginn var strengt band og stórt skilti með blikkandi ljósum sagði okkur að vegurinn væri lokaður. Ég setti þegar bifreiðina í afturábak gír og hugðist snúa við. Sagði þá einn samferða- manna minna að góðum íslenskum bjartsýnissið. ,,Þetta getur ekki verið, eigum við ekki að reyna samt”. Ég lellst á það og viðkomandi fór út og færði skiltið. Að því loknu ókum við 200 metra leið og komum þá að brúarsporði.en brúin sjálf lá hrunin i vatnselgn- um. Ég leit ósköp rólegur á bjartsýnismanninn og snéri svo bílnum við. „Skrýtið”, sagði farþeginn. Já, skrýtið, sagði ég. Þetta litla dæmi mætti staðfæra inn í íslenskt atvinnulíf. Við ökum veg. seni heitir atvinnusköpun fyrir þjóðina og leitum jafnan Ieiða til þess að bæta okkar kjör. Fordæmi að nýjum atvinnutækifærum eru mýmörg utan íslands og má með lagni og skilningi skapa mörgum ný atvinnutækifæri á Islandi. Ekki sýnist mér vera vanþörf á slíku í dag I atvinnuleysi unga fólksins. Stærsti atvinnuvegur í heimi og sá sem veltir mestum fjármunum, er ferðamannaiðn- aðurinn. Það stendur á skiltinu að svo sé, ferðamannaiðnaður- inn er viðurkenndur atvinnu- vegur. En við Islendingar vitum betur, förum út og færum skilitð og áfram er ekið loðdýraveginn og laxeldisbrautina uns komið er að brúarsporðinum sem liggur hruninn í milljarðaflóðinu, spamaði þjóðarinnar, peningun- um þínum, leikfangi stjórnmála- manna. Við snúum ábygðarlaus við á rústum heimilinna, litum á hrunið ogsegjum. „Skrýtið”. Já, skrýtið, segi ég. Friðrik Asmundsson Brekkan. Til sölu Til sölu Chevrolet Van '82, með háum toppi og ein- angruðum. Tilvalinn sem húsbill eða sendibíll. Ekinn 42 þúsund. Upplýsingar á daginn í síma 36670 og á kvöldin í síma 35571, Hilmar. AFS á íslandi heldur fjölskylduöflunarviku 14.- 21. júlí n.k. AFS eru alþjóðleg menningar- og fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 löndum og er helsta viðfangsefni samtakanna nem- endaskipti. AFS á Islandi varstofnað árið 1957, félagsmenn eru nú 1300 og starfa þeir í 17 deildum um land allt. AFS á Islandi á von á 43 nemum til ársdvalar í ágúst og er þetta langstærsti hópurinn sem komið hefurtil landsins á vegum félagsins. Nemarnir búa hjá íslenskum fjölskyldum yfir árið og ganga i framhaldsskóla. Enn vantar fjölskyldur fyrir hluta nemanna og vill AFS á íslandi leita til fjölmiðla til að ná til fólks. Nemarnir koma frá 5 heimsálfum. Það er trú AFS að með því að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks af óiíkum uppruna víkkum við sjóndeildarhring þess, eyðum fordómum og stuðlum að friði. Fulltrúi AFS á Sauðár- króki er Eva H. Olafsdóttir í síma 95-35391. Skrifstofu- starf Óskum að ráða starfsmann í heilt starf sem fyrst. Starfið felst í merkingu og skráningu á bókhaldi, auk annarra verkefna. Góð bókhaldskunnátta æskileg. Upplýsingar í síma 35752 og 35600 (Margeir). STIBLll sí Skagfiröingabraut 6 - Simi 95-36676-550 Sauftárkrókur

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.