Feykir - 05.12.1990, Síða 3
43/1990 FEYKIR 3
Hofsósingar iáta ekki deigan síga:
„Fólk furðanlega bjartsýnt”
segir María útibússtjórí kaupfélagsins
SAMVINNUBÓKIN
Raunávöxtun Samvinnubókarinnar árið 1989 var 5.01 %
Nafnvextir Samvinnubókarinnar eru nú 10.75%
Ársávöxtun er því 11.04%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA
María Runólfsdóttir á kaupfclagskontórnum.
Brauð handa
hungruðum heimi
í byrjun jólaföstu fá flest
heimili á landinu heimsenda
söfnunarpakka ásamt áskorun
um að vera svo vinsamleg að
hjálpa Hjálparstofnun kirkjunn-
ar til að hjálpa í hungruðum
heimi. Oftast nær bregðumst
við íslendingar vel við þegar
bágstaddir eiga í hlut,
minnugir hálmsins í jötu
barnsins í Betlehem er:
Fátæk móðir varði hinn blíða
helgri í sælu að hjarta sér.
250 þúsund.
Ymiss önnur verkefni eru
fyrirhuguð, sem kosta rúm-
lega 1,5 millj. króna. Heildar-
kostnðaur mun nema um 13
millj. króna.
Talið er að um 40 þúsund
börn deyi dag hvern í
heiminum vegna vannæringar,
stríðs og sjúkdóma, svo að
þörfin er mikil.
Hjálpum til við að bæta,
græða og lækna. I guðs friði.
Sigurpáll Óskarsson.
Svo fara pakkar þessir að
berast fólki ogtil þess aðsem
flestir geti betur áttað sig á
því hvernig söfnunarfénu er
varið, fylgir hér stutt greinar-
gerð þar að lútandi,
Á Indlandi rekur Lútherska
kirkjan þar heimili fvrir
munaðarlaus börn, skóla og
margs konar aðra starfsemi.
Fyrirhugað er að senda
þangað þrjár milljónir króna,
sem verja áí heilsugæslustöð.
Hjá sama aðila á að aðstoða
100 munaðarlaus börn en
framfærsla þeirra kostar um
eina milljón króna á ári.
í Voita-dal í Suður-
Eþíópíu er verið að byggja
sjúkraskvli, vatnsgeyma og
íbúðarhús fyrir sjúkralið.
Þangað fara 3,5 milljónir
króna.
í Tamil Nadu-héraði á
Indlandi verður varið kr.
300.000 til hjálpar vangefnum
börnum.
Vistheimilinu að Sólheimum
í Grímsnesi var úthlutað 3
millj. króna á árinu.
Piltur frá Senegal er
styrktur til náms við Bænda-
skólann á Hvanneyri. Svo og
stúlka frá Kenýa, sem lærir
saumaskap við Iðnskólann í
Reykjavík. Kostnaður kr.
„Ég hef ekki orðið var við að
kvíði fólks hafi aukist ncitt að
ráði eftir gjaldþrot frvstihúss-
ins. Það er eins og flestir
reikni með því að Fiskiðjan
reki húsið áfram. Það er
auðvitað einn og einn seni er
talsvert svartsýnn, en yfirleitt
er fólk furðanlega hjartsýnt
hérna”.
Sú menneskja sem hvað
mest snertir slagæð mannlífs-
ins á Hofsósi er vitaskuld
útibússtjóri kaupfélagsins
María Runólfsdóttir. Hún
segir verslunina upp á
síðkastið ekki minni en á
sama tíma í fyrra, heldur
meiri ef eitthvað er. Orsökin
gæti hugsanlega verið sú að
atvinna nú í haust hefur verið
heldur betri en á sama tíma í
fyrra.
Erfiðlega hefur gengið að
reka útibú kaupfélagsins
réttu megin við núllið.
Húsnæðið er alltof stórt og
óhagkvæmt, en í vor var
verslunarrýmið endurskipu-
lagt og það minnkað um leið.
„Þetta er miklu þægilegra
svona bæði fyrir viðskipta-
vinina og starfsfólkið, sem
þarf nú ekki lengur að vera á
þeytingi langar leiðir á milli
horna í búðinni”, sagði
María. Hún er samt ekki
bjartsýn á að takist að reka
útibúið með hagnaði í ár eða
næsta ár, en úr því gæti þetta
farið að batna. „Annars
getur engin sagt til um þetta
nema spákona sem sér í
gegnum fjöll og hvað eina”.
Starfsfólk útibúsins var á
fullu aðsetja uppjólamarkað
þegar Feykir var á ferðinni
fyrir helgina. Þar verða til
sölu leikföng, bækur og
gjafavörurogstóðtil aðopna
markaðinn eftir helgina.
Sauðárkrókur:
ITC deildin
ÍFA stofnuð
ITC deildin ífa var stofnuð í
safnaðarhcimilinu á Sauðár-
króki nýlega. Deildin starfar
innan 2. ráðs landssamtaka
ITC á íslandi. Stofnfélagar
deildarinnar eru 28, þar af eru
fimm í stjórn. Forseti Ifa er
Ágústa Eiríksdóttir. Aðrir í
stjórn eru Oddný Finnboga-
dóttir varaforseti, Birgitta
Pálsdóttir ritari, Linda Haralds-
dóttir gjaldkeri, Kristín Guð-
mundsdóttir ráðsfulltrúi og
Elín H. Sæmundsdóttirþing-
skapaleiðari.
Fundir eru haldnir í
Dalakofanum 1. og 3.
þriðjudag hvers mánaðar kl.
20,15. ITC eru alþjóðleg
samtök sem vinna að þjálfun
í mannlegum samskiptum,
og er Ifa 23. deildin sem er
stofnuð hér á Islandi.
Enn ríða
Allt fé á bænum Kornsá í
Vatnsdal var nýlega skorið
vegna þess að þar fannst riða í
einni kind. Þá hafa aðcins
fjórir bæir í Vatnsdal vestan-
verðum sloppið við að fá riðu.
Fyrr í haust var fé á
tveimur bæjum á Skaga
skorið niður vegna riðu. Allt
þetta fé hefur verið flutt að
Litlu-Giljá í Sveinsstaðahreppi
og dysjað þar.
Eldur í reykkofa
Eldur kom upp í reykkofa og
fjárhúsum á bænum Ytra-
Bjargi í Miðfirði aðfaranótt
föstudags. Reykkofinn skemmd-
ist mikið og hluti fjárhúsanna,
en þau eru gömul og ekki
lengur í notkun.
Slökkviliðinu á Hvamms-
tanga gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Talsvert
eyðilagðist af mat sem var í
reykingu.