Feykir - 05.12.1990, Page 4
4 FEYKIR 43/1990
Að byrja smátt en hugsa stórt
spjallað við Karl Sigurgeirsson hjá ÁTVH
Á síðustu árum liefur víða
verið hrujíðið á það ráð, á
stöðum þar sem atvinnuleysi
hefur herjað að gera
sérstakt átak í atvinnumálum
til að hleypa nýju lífi í
atvinnumál í ákveðnum kaup-
stað eða héraði. Hefur þá víða
skapast uniræða um þessi mál
en yfirleitt virðist lítið hafa
orðið úr framkvæmdum. Eitt
slíkt atvinnumálaátak liefur
þó vakið sérstaka athygli en
það er átaksverkefni í
atvinnumáluni í V-Hún. Þar
hefur ekki verið látið sitja við
orðin tóm og ýmis smærri
fvrirtæki og tímabundin verk-
efni hafa litið dagsins Ijós.
Feykir ákvað að fræðast
frekar uni þetta merkilega
framtak og ræddi við Karl
Sigurgeirsson verkefnisstjóra
átaksverkefnisins.
Hvert var upphafið að
þessu verkefni?
„I byrjun árs ‘89 var
atvinnuástand mjög slæmt í
héraðinu og menn uggandi
um framhaldið. Þá gengu
verkalýðsfélagið og Hvamms-
tangahreppur í að gera
könnun rneðal heimamanna
á áhuga fyrir einhverskonar
aðgerðum til úrbóta. Ahugi
reyndist fyrir hendi þannig
að ákveðið var að hefja
átaksverkefni á almennri
kynningarráðstefnu sem haldin
var í júní‘89ogá hana mættu
um 60 héraðsbúar. Aður
hafði átt sér stað mikil
undirbúningsvinna sem unnin
var af heimamönnum í
sjálfboðavinnu. A miðju
sumri ’89 tók verkefnið svo
til starfa og var einn
starfsmaður ráðinn til að
annast framkvæmdir”.
Hvernig starfar átaks-
verkefnið?
„Átaksverkefnið er fjár-
magnað af Héraðssjóði V-
Hún., atvinnurekendum. verka-
lýðsfélagi, sparisjóðnum, Iðn-
þróunarfélagi Norðurlands
vestra og Byggðastofnun.
ÁTVH starfar í nánum
tengslum við Byggðastofnun
og einnig ýmis félagasamtök
innan héraðsins.
Verkefninu er ætlað að
hafa jákvæð áhrif á atvinnu-
líf svo og mannlíf í héraðinu
og starfar það sem nokkurs-
konar stuðningsaðili við þá
sem hafa áhuga á að hrinda í
framkæmd eða kanna ein-
hverjar hugmyndir. ÁTVH
hefur stofnað til fjölda
vinnuhópa til að vinna að
ákveðnum markmiðum og í
mörgum tilfellum hafa orðið
til í kjölfarið ný fyrirtæki eða
tímabundin verkefni, bæði á
Hvammstanga ogekki síður í
sveitunum. Má þar nefna
Orðtak hf, búvélamiðlunina
Græna hjólið, Vatnafang hf,
búkonur hafa staðið að
söfnun og sölu broddmjólkur
o.fl. Einnig hefur verkefnið
haft afskipti af menningar-
málum svo sem aðstoð við
kóramót og aðstoð við
fjáraflanir til Tónlistarskól-
ans. Einnig má nefna að
ÁTVH stóð fyrir stofnun
sáttanefndar vegna deilna
um laxveiðar í sjó. Megin-
áhersla hefur verið lögð á að
nýta það sem fyrir er heima í
héraði, bæði þekkingu og
hráefni”.
Nú er þetta tímabundið
verkefni, tekur eitthvað við
að því loknu?
„ÁTVH er ætlað að starfa
þar til á miðju ári ‘91 en
áhugi er fyrir að fá það
framlengt til ársloka ‘92.
Einnig hefur verið rætt um að
verkefni sem þetta þyrfti
alltaf að vera í gangi en ekki
hefur verið rætt um hvernig
það skvldi fjármagnað. Áætlað
er að ÁTVH kosti árið 1990
3.4 millj. þannig að það væri
nokkuð stór biti til langs
tíma”.
Hefur almenningur í hérað-
inu verið virkur í tengslum
við verkefnið?
„Áhugi virðist vera mjög
almennur og margir hafa
verið tilbúnir til að skoða
ýmsa hluti og vinna að
ákveðnum markmiðum. Hafa
menn í mörgum tilfellum lagt
mikið á sig í sjálboðavinnu til
að hrinda hugmyndum í
framkvæmd”.
Nú hefur síðustu 2-3 árin
gengið yfir landið holskefla
af gjaldþrotum og jafnvel
fyrirtæki sem talin hafa verið
á traustum grunni þurft að
leggja upp laupana. Hefur
það ekki fælt menn frá því að
leggja út í rekstur nýrra
fyrirtækja?
„Það hefur ekki borið á því
enda hefur verið lögð á það
megin áhersla að hafa
eiginfjárhlutfallið sem hæst
VERSLIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI • SAMTÖK SÉRVERSLANA Á SAUÐÁRKRÓKI
og allt í mjúka pakkann
Gefið börnunum
nytsama jólagjöf
ÞÚ FÆRÐ JÓLAGJÖFINA
HJA OKKUR
ÞÚ ÞARFT BOKABUÐ
VARLA ANNAÐ
BRYNcJARS
/ffft tif SCLWCL /
(/ftcMLffiatcdt/nu&/ncL of afft íJóda/atnafiinn
(/(tníofi/cff'ir tcw(aýcocd(inwc. C ^
fa&ttOfjéM* saumakistanl
MUNIÐ VINSÆLU TOMMA
hamborgarana okkar í jólaannríkinu
blafell Konfekt í jólapakkann
saudárkróki .»-\ i • *1 • •
og til heimilisins
Gott úrval á hagstæðu verði
Sauöárkróksbúar
Komiö og bragðið bœjarins bestu Pizzur eða
takið þœr með ykkur beim
Jólaglögg ogpiparkökur
Kakó og vöjjlur með rjóma
Leyfiö braglaukunum
aö njóta sín og komiö á HÓtel Mcelifell
JOLAFOTIN OG GJAFIRNAR
Jyrir dömur og herra
Fullt afnýjum vörum
Gleðileg jól
TÍSKUVERSLUN
SKAGFIRÐINGABRAUT 9
SÍMI 95-35899