Feykir - 05.12.1990, Side 10
F! EYKI iáð fréttablað á Norðuria ndi vestra
5. desember 1990, 43. tölublað 10. árgangur Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum
JÓLATILBOÐ í SPÖRTU
10% staðgreiðsluafsláttur.
Ath. Nýtt greiðslukortatímabil hefst hjá okkur
fimmtudaginn 6. desember.
SPARTAfataverslun • skóbúð
Elsti hestur landsins?
Það hefur verið sagt utn
Skagfirðinga að þeir geti
orðið allra kerlinga og karla
elstir, en ekki nóg með það;
heldur virðist skaglirski hestur-
inn líka geta orðiðansi gamall
og bera aldurinn vel. Að
minnsta kosti erekki annaðað
sjá á honum Háfeta, 38 vetra
reiðhesti í eigu Eggerts
Jóhannssonar hónda í Felli í
Sléttuhlíð. Ekki er ólíklegt að
Háfeti sé elstur núlifandi
íslenskra hesta.
Eggert segir að það liafi
lengi staðið til að farga
Háfeta, en hann hafi ekki
tímt því hingað til, því
hesturinn sé við hestaheilsu
enn. Hófarnir í fínu lagi,
þrekið og holdafarið ágætt,
það séu einungis tennurnar
sem séu byrjaðar að gefa sig
aðeins. ,,Það stóð nú til að
hann félli núna í haust.
Maður varþáaðhugsaum að
það væri óþarfi að gera
honum það áð lifa annan eins
vetur og þeir tveir síðustu
hafa verið. En fyrst að
Sigurlaug á Kárastöðum
spáir svona vel, þá má vera
að þetta dragist eitthvað”,
sagði Eggert.
Eggert í Felli ásamt hinum aldna Háfeta sínum
Háfeti ber reyndar nafnið
varla með rentu, því hann er
fremur stuttfættur. Það stóð
til að nota hann í drætti á
sínum tíma, en klárinn tók
það ekki í mál svo að ekkert
varð úr. Hann var seint
taminn, lengi graður. og
Eggert sagði að hann gæti
verið svolítið stúrinn í skapi
stundum. Þó var ekki að sjá
annað þegar Eggert brá sérá
bak. en geðslagið væri 1
þokkalegasta lagi. í það
minnsta er langt í frá að Háfeti
teljist „forn” í skapi, þrátt
fyrir aldurinn.
Svíndælingar geta andað léttar:
Heymetisturninn á Grund rifinn
— hefur vakið athygli byggingafulltrúa á Norðurlöndum
Heymetisturninn á Grund í
Svínadal var rifinn í síðustu
viku. Var það gert að kröfu
byggingarfulltrúa þar sem
talið var að hann gæti hvenær
sem væri fokið og valdið tjóni
á mönnunt og mannvirkjum.
Stærðar gat var komið á hann
ofarlega og þar blöktu
járnplötur. Næstu nágrannar
og skólabílstjórar skrifuðu
almannavörnum héraðsins bréf
út af málinu og í framhaldi af
því var ákvörðun tekin um að
Ijarlægja efri hluta turnsins.
Þessi turn var 25 m hárog
reistur fyrir nokkrum árum
síðan. Fljótlega fór að bera á
því að hann væri ekki þéttur
og verkaðist hey ekki í
honurn. Hefur hann því
staðið tómur nokkur ár.
Síðar fór að myndast dæld
þar sem nú var komið
stærðar gat. Þá fóm gárungar
að tala um að turninn væri í
keng, sem maður nteð
magapínu. Bændur á Grund
vildu að innflytjandi og
framleiðandi fjarlægðu turn-
inn, en þeir telja sig ekki bera
ábyrgð m.a. vegna þess hve
slæm veður koma oft í
Svínadal. Málaferli hafa nú
sprottið af þessu og er dóms
að vænta í vetur eða vor.
Saga þessa turns hefur
vakið athygli byggingarfull-
trúa á Norðurlöndum en þar
eru víða svipaðar byggingar í
notkun. Myndband sem
hefur verið tekið af turninum
eftir því sem meir hefur séð á
honum hefur verið sýnt á
fundum byggingarfulltrúanna.
MÓ.
Skarphéðinsmenn í samkeppni
við Johnson & Johnson:
Snyrtipinnaverksmiðja
keypt á Krókinn
Lítið fyrirtæki sem framleiðir
snyrtipinna og bómullarskífur
hefur verið keypt til Sauðár-
króks. Fyrirtækið, sem er það
eina sinnar tegundar hér á
landi, var áður starfrækt í
Hafnarfirði. Það eru bræðumir
Ásbjörn og Steinar Skarp-
héðinssynir sem keyptu verk-
smiðjuna ásamt vörumerkinu
JOFO og viðskiptasambönd-
um.
Um helgina var stofnað
hlutafélag um reksturinn
Skarp hf, og verður hann til
húsa í Skarphéðinshúsinu að
Borgarflöt 5. Þeir bræður
yfirtaka reksturinn um ára-
mótin, en vélarnar koma um
miðjan mánuðinn.
„Þetta verða hlutastörf
fyrir konurnar okkar til að
byrja með, þar sem vélarnar
eru svo afkastamiklar og
markaðshlutdeild JOFO merk-
ins ennþá ekki mjög mikil.
En það er ómögulegt að segja
nema okkur takist að auka
markaðshlutdeildina og þá
vindur þetta upp á sig”, sagði
Steinar Skarp.
Fiskiríið að lagast
Ýmislegt gert til að halda
uppi fullri atvinnu
Togarafiskirí hefur lagast
síðustu dagana, og von er á
Skafta til hafnar á morgun
með þokkalegan afla. I
morgun (miðvikudag) landaði
Haffari togskip frá Súðavík
rúmum 40 tonnum til vinnslu í
Fiskiðjunni. Ólafur Þorsteinsson
hefur farið vel af stað á
línunni. Landaði átta tonnum
á sunnudag og fékk níu í
túrnum á undan.
Þrátt fyrir að togararnir
hafi skaffað lítið undanfarið,
og verið að korna inn með
eindæma lítinn afla, hefur
tekist að halda uppi vinnu í
frystihúsunum. Línubátarnir
hafa bjargað þar mestu, en
einnig hafa Fiskiðjumenn
verið að reyna ýmislegt til að
fylla í eyðurnar. Þannig er
þar hafin tilraun meðað þýða
upp heilfrysta grálúðu og
fletja. Þetta er gert í
samvinnu við þróunarsetur
sambandsins, en hugmyndin
er runnin undan rifjum
Einars Svanssonar fram-
kvæmdastjóra Fiskiðjunnar.
Of snemmt er að segja til um
hvort hér er um framtíðar-
vinnslugrein að ræða.
Kröfulýsingar
í Melrakka:
Stofnlána-
deildin með
80 milljónir
Kröfulýsingar í þrotabú Mel-
rakka hf eru samtals 140
milljónir, þar af er Stofnlána-
deild landbúnaðarins með 80
milljónir, Byggðastofnun 23,5
og Búnaðarbankinn með 13.
Kröfulýsingafrestur í þrota-
bú Melrakka rann út í
síðustu viku. Fyrsti skipta-
fundur í búinu verður 13.
desember. í dag er allt á
huldu með það hvort fóður-
stöðin verður rekin áfram
eftir áramótin, en Kaupfélag
Skagfirðinga hefur rekstur-
inn á leigu frarn að þeim
tíma.
BÓKABÚÐ
BRYNJARS