Feykir - 30.01.1991, Qupperneq 2
2 FEYKIR 4/1991
Sjálfsbjargarviðleitni
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAOUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; ílausasölu
100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■
SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST
sf-, Sauðárkróki. ■ Feykir a aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða
Eyöiö ekki
eldsneytinu
að óþörfu
Talsverð breyting hefur átt sér stað í
atvinnuháttum þjóðarinnar á síðari árum.
Hefðbundnar atvinnugreinar. s.s. landbúnaður,
sjávarútvegur. iðnaður og verslun eiga
undir liögg að sækja í mörgum byggðar-
lögum. Sem betur fer hafa menn reynt að
bregðast við þessum vanda. og erskemmst
að minnast velheppnaðs atvinnuátaks
Vestur-Húnvetninga. þegar illa stefndi i
atvinnulífi Hvammstanga fyrir nokkrum
misserum.
Og þetta framtak Vestur-Húnvetninga
hefur ekki aðeins komið þeim sjálfum til
góða, því óyggjandi er að árangurinn hefur
orðið fólki í öðrum bvggðarlögum hvatning.
Austur-Húnvetningar eru að fara af stað,
Hjaltdælingar einnig, og Sauðkrækingar
hafa nú nýverið stofnað félag, sem ætlað er
að stuðla að nýsköpun í atvinnumálum.
Reyndar má segja að tilgangur slíkra
atvinnuskapandi verkefna sé að öðrum
þræði einnig að auka fjölbreytni atvinnu-
lífsins. En kröfur tímans eru einmitt að fólk
geti valið um atvinnu. Það þykirekki gott í
dag að hafa aðeins um það að velja að vinna
í fiski eða afgreiða í verslun.
Stofnun Átaks hf, félags Sauðkrækinga
hefur vakið athygli. Það er óneitanlega
lofsvert framtak hjá fyrirtækjunum í
bænum að standa sameiginlega að atvinnu-
sköpun í þágu bæjarfélagsins og greiða
kostnaðinn sem af því hlýst úr eigin vasa.
Vitaskuld standa Sauðkrækingar vegna
stærðar bæjarins. betur en mörg önnur
svcitarfélög. — Og þarna gerðist það sem
mörgum finnst hafa á vantað á Króknum,
að einkareksturinn og kaupfélagið tóku
höndum saman. Það þarf ekki annað en
horfa á skipan stjórnar félagsins til að sjá
það.
En þegar þróun atvinnumála í kjördæm-
inu undanfarið er skoðuð. virðast þó tveir
staðir hafa meiri þörf fyrir átak í
atvinnumálum en aðrir. Það eru Siglu-
fjörður og Hofsós. Eitthvað hefur heyrst
um að Siglfirðingar hugsi sér til hreyfings í
þessum efnum, en engin slík umræða verið í
gangi í Hofsósi eftir því að best er vitað.
Hofsósingar ættu þó að eiga sína mögu-
leika eins og aðrir. Má þarsem dæmi nefna
ferðamannatímann yfir sumarið, og í því
sambandi benda á Málmey skammt undan
landi og hið merka norska bjálkahús á
kambinum. Þessa og ýmsa aðra hluti gætu
Hofsósingar e.t.v. nýtt sér. Og dæmin
sanna að á Hofsósi hafa fæðst hugmynda-
ríkir menn.
ÞÁ.
BÆNDUR ATHUGIÐ
Námskeið á Hvanneyri
11.-12. febr. Skattskil
13.-15. febr. Sauðfjárrækt - rúningur
18.-20. febr. Málmsuða
20.-22. febr. Tölvunotkun I - grunnnámskeið
27.-28. febr. Búreikningar I
4.- 6. mars Kanínurækt - úrvinnsla á kanínufiðu
7.- 9. mars Málmsuða II
11.-12. mars Tölvunotkun II
14.-15. mars Rafgirðingar
20. mars Framleiðslustjórn á kúabúi
21.-22. mars Vatnanýting
3,- 5. apríl Verkun votheys í rúlluböggum
8.-10. apríl Tölvunotkun I - grunnnámskeið
11.-12. apríl Hrossarækt - fóðrun og hirðing
15.-17. apríl Æðarrækt - byrjendanámskeið
18.-19. apríl Bleikjueldi
22.-24. apríl Ferðaþjónusta í sveitum
2,- 4. maí Skógrækt
7. mai Matjurtarækt II
6.- 7. júní Skjólbelti Þurrheysgerð - súgþurrkun (2-3 dagar)
13. júní Matjurtarækt I
Námskeiðin eru skipulögð af Bændaskólanum á
Hvanneyri í samstarfi við aðrar stofnanir.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins tekur Þátt í kostn-
aði vegna námskeiðanna. Skráning á námskeiðin er á
skrifstofu skólans í síma 93-70000 alla virka daga og eru
þar jafnframt gefnar nánari upplýsingar.
Skólastjóri.
Ókeypis smáar
Til sölu
Til sölu nýtt dráttarbeisli á
Subaru Legacy. Upplýsingar
i sima 95-35890.
Til sölu Commandore 64 meö
kasettudrifi og stýripinna.
Til sölu BBC Compact meö
leikjum og ritvinnslu. Selst
allt saman á kr. 12.000.
Upplýsingar í síma 35452 en
ekki 35450.
Munda og Harpa.
Til sölu frystikista i stærra
lagi, verö kr. 7.500. Upplýs-
ingar í síma, v.s. 35452,
h.s. 36653.
Helga.
Suzuki TS 50 cc, árgerð’89til
sölu. Lítur mjög vel út. Ekið
4000 km. Topp hjól. Skipti
möguleg á Kawasaki Mojave
250 cc fjórhjóli. Upplýsingar
í síma 96-24864.
Skíðaklossa vantar
Óska eftir aö kaupa skíöa-
klossa nr. 42-43. Upplýsingar
í sima 35914.
Hestaflutningar!
Fer noröur föstudag 1. febrúar.
Upplýsingar í síma 985-29191
og 91-675572 eftir kl. 18.
Hænuungar!
fslenskir hænuungar til sölu,
10 vikna. Upplýsingar í síma
37341.
Hæ, hæ!
Sá sem tók í misgripum gráa
iþróttaskó með gulum röndum
síðastliðið haust, vinsam-
lega skilið þeim á sama stað,
Víðimýri 6.
Helga.
Vinnuvélar
Óska eftir að kauþa Zetor
2511. Má vera ógangfær.
Upplýsingar í sima 95-27164
eftir kl. 20.00.
BBC Masters tölva, með lita-
skjá, ásamt nokkrum góðum
forritum til sölu fyrir gott
verð. Upplýsingar í síma
35147 á vinnutíma.
Sincler Spectrum tölva ásamt
prentara og mörgum frábær-
um forritum til sölu. Upplýs-
ingar í síma 35147 á venju-
legum vinnutíma.
Skrautritunl
Fyrirhugad er námskeið í skrautritun ef jiœg
þátttaka fæst. Námskeiðið verðurhaldið
á Löngumýri og hyrjar
um miðjan febrúar. Þeir se??i skráðu sig í
Kvennasmiðjunni gjöri svo vel og staðfesti
skrájiinguna. Uppl. ísíma 36738 e. kl. 17.
Þuríður H. Sigurðardóttir.
Þjófstartað
á þorrann
Fundur alniannavarnarnefnd-
ar í rafmagnsleysinu var eitt
vel lieppnaðra skemnitiatriða
á þorrablóti kvenfélagskvenna
á Hlönduósi seiu þær liéldu
viku fvrir þorrabvrjun.
Á Skagaströnd blóta menn
þorra laugardaginn 9. febrúar.
Þar annast kvenfélagskonur
matseld, en félagar í Leik-
klúbbnum eru þessa dagana
að semja og æfa dagskrá.sem
samkvæmt venju gæti orðið
um klukkustundar löng. Þar
eru margir nefndir til sögu og
fáu sleppt, sem unnt er að
hlæja að. Sama kvöld verður
svokallað hreppablót á Blöndu-
ósi, en það er þorrablót fyrir
Ás-, Sveinsstaða-. Torfalækjar-
og Engihlíðarhrepp. Þorra-
blótsnefndin er skipuð átta
manns. einum hjónum úr
hverjum þessara hreppa.
Venjan er sú að á hreppablóti
er félagsheimilið troðfullt af
fólki.
MÓ.
Nýkomiö mikib úrval af
ungbarnafatnaöi, einnig ný toppsett
frá Sanetta nr. 128 - 152.
Verö kr. 1120
Verslunin
Aðalgötu 21 - Slmi 36636