Feykir - 30.01.1991, Blaðsíða 5
4/1991 FEYKIR 5
Úlfar Svcinsson oddviti Skarðshrcpps licfurstaðið framarlega í
ýmsum málum í héraði. Hér sést hann á sínum tíma undirrita
aðild að Fjölhrautaskólanum. Úlfari á hægri hönd cru Jón
Ásbergsson, Hjálmar Jónsson, Þorsteinn Ásgrímsson, Þórður
Þórðarson og .lón F. Hjartarson.
menn í broddi fylkingar.
Árni tilgreinir ekki menn. en
á líklega við menn eins og
Árna Daníelsson kaupmann
frá Sjávarborg og Skarphéð-
inn Pálsson frá Gili. og e.t.v.
afkomendur þeirra suma.
I greininni eru gerð ítarleg
skil ásamneyti Borgarsveitar
og Sauðárkróks, og þau
vafalítið talin hafa eflst við
það að tvær til þrjár
kynslóðir Borgsveitunga hafa
gengið í skóla á Sauðárkróki.
Það hefur einmitt verið
algengt í Borgarsveit að
uppvaxin börn reisi íbúðar-
hús í landi feðra sinna. og
stundi vinnu á Sauðárkróki.
og höndli með því bæði kosti
dreifbýlis og þéttbýlis. rými,
ró, nábýlið við náttúruna og
lægra útsvar í dreifbýlinu. og
þjónustu stofnana og fyrir-
tækja, lelagslíf og starfstæki-
færi í þóttbvlinu.
Vandi
landbúanaðarins
Reyndar er þessi síðasta
úttekt gerð eftir að Ámi
hefur gert grein fyrir aðild
Skarðshreppinga, einkum
Borgarsveitunga, að ýmsu
félagsstarfi og þjónustu á
Sauðárkróki. Og Árni sér
jákvæða þróun. eins og
eftirfarandi kalli bermeðsér:
Vandræði landbúnaðarfram-
leiðslunnar eru mikið rædd
og umdeild um þessar
mundir. Stofnanir ríkis og
bænda vinna að því aðdregið
sé úr búvöruframleiðslu, og
jafnframt er rætt um iðnað í
sveitum o.n. til að bæta upp
tekjumissinn. Iðnaðurísveitum
virðist einkum eiga rétt á sér
langt frá þéttbýli. í Borgar-
sveit hafa fjölskyldur ráðið
fram úr þessu upp á eigin
spýtur. Fjölskyldur ,hafa
aðlagað landbúnaðarstörf að
störfum á Sau,ðárkróki. sem
augljóslega byggist á nálægð-
inni \ið Sauðárkrók. Þetta
fyrirkomulag er fyllilega
athygli vert. og það má
eflaust bæta og gera aðgengi-
legra fyrir fleiri Skarðshrepp-
inga. Virðist það raunhæfara
en dreifa fyrirtækjum um
sveitir.
Viðgangur
Sauðárkróks
Vöxtur Sauðárkróks hefur
verið nokkuðjafn ogstöðugur.
og honum hafa fylgt sam-
göngubætur. bæði á vegum.
höfn og flugvelli, sem
augljóslega nýtist líka öllu
þjónustusvæði Sauðárkróks.
Gera má ráð fyrir, að viðgang
Sauðárkróks megi að miklu
leyti rekja til hitaveitunnar,
sem er orðin gamalgróin og
ein ódýrasta þéttbýlis hita-
veita á landinu. Sauðkræk-
ingar fundu heitt vatn í
Áshildarholtsvatni í landi
Sjávarborgar. og verk- og
hugvitsmenn á Sauðárkróki
gerðu þessa auðlind nýtan-
lega til húshitunar í bænum. I
landleigu fékk Sjávarborg
einnig hitaveitu, og þar nú
allþéttbýlt orðið. Síðan hefur
Sauðárkrókur keypt land af
Sjávarborg í Borgarmýrum
allt austur að Héraðsvötnum.
Á þessu landsvæði eru nú
borholur og dælustöð liita-
veitu. hesthús Sauðkrækinga.
Tjarnartjörn og hinn nýi
flugvöllur, sem talinn er einn
sá fullkomnasti á landinu.
Við flugvöllinn hefur Flug-
félag Sauðárkróks komið
þaki yfir starfsemi sína og
hefur hug á áframhaldandi
framkvæmdum.
Mjög víðtækt
samstarf
Vatnsveita Sauðárkróks
fær nú mikið og gott vatn úr
lindum í Skarðshreppi. vesturí
Veðramótslandi. uppi i Mold-
uxaskarði og Sandskarði. og
sorphaugar bæjarins eru í
landi Skarðs. sem leigt er
Þéttbýlið við Sjávarborg. Býli í Borgarsveit cru hclmingi fleiri í dag en þau voru 1907.
undir þá. Skarðshreppingar
nýta sorphaugana líka. en
Sauðárkrókur kostar umsjón
tækja og mannafla.
í landi Skarðs hafði
Golfklúbbur Sauðárkróks
golfvöll sinn í nokkur ár,
þangað til nýr var gerður
innan lögsögu Sauðárkróks.
Ungmennafélagið Tindastóll
hcfur byggt upp aðstöðu til
skíðaiðkana í landi, sem leigt
er af Heiði í Gönguskörðum,
og Borgarsandur, frá byggð á
Sauðárkróki austurað Héraðs-
vatnabrú, og umhverfi Áshildar-
holtsvatns eru vinsæl úti-
vistarsvæði og mikið sótt af
Sauðkrækingum sumar og
vetur.
Eins og hér hefur verið
reynt að sýna fram á, hefur sam-
starf íbúanna í Skarðshreppi og á
Sauðárkróki verið mjög
víðtækt. E.t.v. ætti frekar að
tala um náin og víðtæk
samskipti. því allt hefurverið
fremur óformlegt, líka sam-
skipti sveitarstjórna. Með
sæmilega góðum vilja virðist
mega greina þá einu megin-
reglu í samskiptunum. að
aðgerðir. sem ákveðnarværu
einhliða. skyldu engan skaða.
Eins og dæmin sanna. er
þetta engin góð regla, ogslíkt
einhliða mat á hugsanlegum
skaða annars bíður heim
misklíð. Dæmin eru þekktog
óþarfi að tína þau til, þeim
mun nieiri ástæða til þess að
einbeita sér að því að finna
fyrirkomulag, sem hentar
þeim aðstæðum. sem reynt
hefur verið að lýsa hér að
framan og leyst gætu það
gamla af hólmi.
Leiðir til
breytinga
Sýnt þykir og rökstutt, að
eftirtaldar leiðir til breytinga
beri að kanna og ræða af
sveitarstjómarmönnum sam-
eiginlega:
1. Sameining Skarðshrepps
og Sauðárkróks.
Samstarfsnefnd sveitarstjóm-
anna legði niðurstöður sínar
fyrir sveitarstjómirnar. Síðan
mætti halda almenna borgara-
fundi, gera áætlun um
umferð almenningsvagna til
þess að styrkja búsetu á
Reykjaströnd og í Göngu-
skörðum, gera áætlun um
landnýtingu á öllu hinu
nýja sveitarfélagi. þ.m.t.
afréttarland, gera tillögu um
samræmingu á álagningar-
hlutfalli útsvarsins, t.d. yfir
ákveðið árabil o.fl.
2. Sameining Borgarsveitar
og Sauðárkróks.
Kosin samstarfsnefnd, setn
kannaði og legði tillögur fyrir
sveitarstjórnirnar, samanber
fyrsta lið.
Þessari breytingu þyrftijafn-
framt að fylgja breyting við
sorphauga austan Reykja-
strandarvegar.
3. Lagfæringar á hreppa-
mörkum miðað við 20 ára
áætlaða landþörf.
Sorphaugar og Skarðsland
austan Reykjastrandarvegtir
færi undir lögsögu Sauðár-
króks að norðan, Sjávar-
borgar- og Áshildarholts-
land að sunnan, ásamt
Borgarsandi að austan.
Kjósa mætti nefnd til þess að
draga nánar mörk sveitar-
félaganna. Þessi nefnd gæti
að auki gert tillögur að mun
nánara og formlegra samstarfi.
t.d. í skipulagsmálum, dag-
vistarmálum, skólamálum
auk bókhalds, ferðum almenn-
ingsvagna, bókasafnsmála
og annarra félagsmála.
Sjómenn-smábátaeigendur
Siglingamálastofnun vill vekja athygli á að
samkvæmt lögum nr. 112 1984 um atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, er krafist
skipstjórnarréttinda til að mega stjórna skipi sem er 6
metra langt eða lengra og skráð er í skipaskrár.
Varðandi kröfur um vélstjórnarréttindi, sbr. lög nr.
113 1984, þá þarf vélavörð/vélstjóra á vél sem er 101
hestöfl (75 kgw) eða stærri.
Siglingamálastofnun