Feykir - 20.02.1991, Síða 8
FEYKIR
Óháö frettablaö á Noröurlandi vestra
20. febrúar 1991, 7. tölublað 11. árgansur
Auglvsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
BILALEIGA SAUÐARKROKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TÖYOTA Hl - LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
SÍMAR 36050 - 35011 H.S ( Stefán )
Olíublaut æðarkolla
Þessi olíuhkiuta æðarkolla var gjörsamlega bjargarlaus við
Ilressingarhúsið á Eyrinni nú fvrir helgina. Starfsmenn
Hressingarhússins og verkamenn við höfnina segja oft mikið
um oliu í höfninni og fullyrða að kæruleysi viðgangist þegar
olía er sett á skipin.
Leikfélag Blönduóss:
Æfingar á Gísl
að hefjast
Brátt munu hefjast hjá
Leikfélagi Blönduóss æfingar
á Gísl eftir Brendan Behan.
Inga Bjarnason mun leikstýra
verkinu. Vel hefur gengið að
fá fólk til að leika og taka
þátt í sýningunni, en reiknað
er með að um 30 manns komi
nálægt henni á einn eða annan
hátt.
Að sögn Jóns Inga
Einarssonar formanns leik-
Maður og kona á Hvammstanga
Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga er nú að hefja æfingar á
leikritinu Maður og kona eftir
Jón Thoroddsen. Leikendur
eru 15 talsins og er að mestu
húið að raða niður hlutvcrkum.
Ráðgert er að frumsýna
lcikritið snemma í april.
Þröstur Guðbjartsson hefur
verið ráðinn leikstjóri. Er
h a n n Hvammstangabúum
að góðu kunnur því hann
hefur fimm sinnum áður
leikstýrt verkum fyrir Leik-
flokkinn við góðan orðstí.
Núverandi formaður Leik-
flokksins er Kristín Magnús-
dóttir og sagði hún vel hafa
gengið að fá fólk til starfa við
leikritið, en þó vantaði
dálítið upp á að fullmanna
það. enda þyrfti 25-30 manns
að leikurunum meðtöldum
til að standa að þessu verki.
EA.
félagsins er gróska í félaginu
urn þessar mundir og menn
bjartsýnir. Gísl er klassískt
verk sem nokkrum sinnum
hel'ur verið fært upp hér á
landi. Mikil tónlist er í
leiknum og búa leikfélags-
menn á Blönduósi vel að
heimamönnum, þar sem nú
er mikið af vel menntuðum
tónlistarmönnum aðstörfum
við tónlistarskólana í Austur-
Húnavatnssýslu.
Gísl verður frumsýndur á
Húnavöku rétt fyrir sumar-
mál. Þá er ætlunin að sýna
verkið í tengslum við aðalfund
Bandalags íslenskra leikfélaga,
sem haldinn verður á
Blönduósi 25. og 26. maí í
vor.
Kvennalistinn Nv.:
Guðrún L.
í fyrsta sæti
Verulegar hrevtingar eru á
framboðslista Kvennalistans á
Norðurlandi vestra frá síðustu
kosingum, en listinn tarákveðinn
í síðustu viku. Það er Guðrún L.
Asgeirsdóttir prestsfrú á Prests-
bakka við Hrútafjörð sem
skipar efsta sæti listans.
Sigriður Friðjónsdóttir lög-
fræðingur Sauðárkróki er í
öðru sæti, þá Anna Hlín
Bjarnadóttir þroskaþjálfi
Egilsá Skag.. Kristín Líndal
húsmóðir Holtastöðum Langa-
dal, Steinunn Erla Friðjóns-
dóttir húsmóðir Sauðárkróki
Inga Jóna Stefánsdóttir
húsmóðir Molastöðum Fljót
um, Agústa Eiríksdóttir
hjúkrunarfræðingur Sauðár-
króki og Anna Dóra Antons-
dóttir kennari Frostastöðum.
Stóðhestur frá Kimbastöðum fyrir bíl:
Nuddaðist úr hliði
„Þetta var einstakt ólán. Það
gekk maður þarna um rétt
áður og þá voru hrossin á
sínum stað. Greinilegt er að
þau liafa nuddað úr hliði.
Trégrindurnar í því verða
hálar í hélu og raka og því
auðveldara að ýta lokunni upp
af. En sem betur fer urðu ekki
slys á fólki”, sagði Jón
Hjörleifsson bóndi á Kimba-
stöðum eftir að stóðhestur og
folald urðu fvrir bíl og drápust
á þjóðveginum við bæinn sl.
föstudagskvöld.
„Maður er alveg með lífið í
lúkununt gagnvart skepnun-
unt og umferðinni. Það
voru líka sérstakar aðstæður
þegar þetta gerðist. skyggni
nánast ekkert vegna þoku”,
bætti Jón við.
Þeir bræður á Kimbastöð-
um, Jón og Hjörleifur, eru
orðlagðir fyrir hvað þeir
hugsa vel um skepnur og
þykir hirðusemin í hávegum
höfð á bæ þeim. Stóðhesturinn
sem lét Íífið hefur verið í
talsverðri notkun. og er þess
vegna á skrá hjá búnaðar-
sambandinu. Hann var undan
Hervari og ættbókarfærðri
hryssu í eigu þeirra Kimba-
staðabræðra. Þess rná getaað
lausaganga búsmala í Skarðs-
hreppi er stranglega bönnuð.
Er það eini hreppurinn í
Skagafirði sem sett hefur slík
ákvæði.
Þess má geta að vegna
tíðra slysa af völdum lausa-
göngu hrossa í héraðinu í
vetur, hefur Bjöm Mikaelsson
yfirlögregluþjónn ákveðið að
boða til fundar með hags-
munaaðilum bráðlega.
feykjur
„Lóðarí”
Nákvæmar
óveðursfregnir
Eftir að hafa rekist á
gamalt Feykisblað á dögun-
um og lesið þar fregn af
hvassviðri sem reið yfir
landið 14. janúar 1982, er
hægt að efast stórlega um
staðhæfingar þess efnis að
rok það sent geysaði á
dögunum sé það mesta í
manna minnum. Minni manna
hlýtur að hafa förlast
talsvert.
I gamla Feykirsegir frá því
að hvassviðrið mikla aðfara-
nótt fimmtudagsins hafi ekki
farið fram hjá F1 jótamönnum,
þó að fjölmiðlar hafi þagað
dyggilega yfir því. ..Það var
kolbrjálað veður á hverjum
bæ. Það svaf enginn rótt
nenta við hjónin”. sagði kona
ein í Fljótum. Rokið kom
eins og byssuskot yfir
Barðshyrnuna. en allt var
kyrrt á milli. Menn fluttu sig
milli herbergja í húsum
sínum og reyndu að vera þar
sent skjólið var öruggast.
A Molastöðum fauk skóla-
bíllinn og fór 13 1/2 veltu
undan storminum. Gamall
Volvobíll sent var hálfur á
kafi í skafli var þrifinn upp.
fauk yfir allháan timbur-
stafla og staðnæmdist eftir
100 m ferðalag. Þar fuku
einnig þakplötur af fjárhúsum
og rúður brotnuðu.
Lúsin hræðilega
I vetrarbyrjun 1985 kom
upp lúsafaraldur í skólanum
á Sauðárkróki. Ekki varð
hann þó útbreiddur. því
tljótlega tókst að ráða
niðurlögum lúsarinnar. Ekki
munu öll börn hafa gert sér
fyllilega grein fyrir hvers
konar fyrirbæri þessi lús
væri, en það mátti þó ljóst
vera að þetta væri hin mesta
ókind. Því var það einn átta
ára snáði. sem fékk þessi
æsilegu tíðindi úti á götu og
varð heldur skelkaður. Hanh
skundaði inn og hringdi
þegar í mömmu sína út í
frystihús og sagði: „Mamma.
það er kontin lús í bæinn. og
ég er aleinn heima”.
Umræðan um lokun leik-
skólanna í bæjarstjóm Sauðár-
króks í síðustu viku var á
margan 'nátt skemmtileg, og
fræðandi að auki. Þar kom
t.d. fram að líklega taka
Bílddælingar lítiðsem ekkert
sumarfrí, því leikskólinn þar
er opinn lengst allra leik-
skóla á landinu. En það er
vitaskuld ekkert skemmtilegt
fyrir Bílddælinga að verða af
sumarfríinu ár eftir ár, og
óskandi að þeir fari í fríið
senn hvað líður.
Ein afástæðunum fyrirþví
að heppilegt þykir að loka
leikskólunum yfir sumar-
leyfistímann, er vegna viðhalds,
t.d. útivistarsvæða. Það sé
alveg vita vonlaust að vera
með þungavinnuvélar að
störfum á leikvellinum innan
um börnin að leik. Einn
bæjarfulltrúanna Hilrnir Jó-
hannesson tók alveg heils-
hugar undir þetta vandamál
með að halda lóðinni við.
Leikskólarnir fara í frí,
það flestir lítið þakka.
En vont er líka að lenda í
lóðaríi með krakka.
GÆÐAFRAMKÖLLUN
BÓKABLE)
BBYNcIARS