Feykir - 03.04.1991, Qupperneq 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Fjárhagsáætlun Skr. gerir ráð fyrir að
Skuldir bæjarsjóðs
lækki á þessu ári
Bæjarstjóri Sauðárkróks og
bæjarstjórnarmeirililutinn full-
yrðir að nýafgreidd fjárhags-
áætlun feli í sér lækkun skulda
bæjarsjóðs á árinu. Sem dæmi
um aðhaldið má nefna að
afgangur er á rekstrar- og
framkvæmdayfirliti upp á
tæpar tvær milljónir, og hefur
það ekki gerst í mörg ár að
tekjuafgangur sé á þessum lið
í ijármagnsyfirliti.
Þrátt fyrir er gert ráð fyrir
nýjum lántökum upp á 23
milljónir króna, sem að
miklu leyti fara til greiðslu
afborgana eldri lána. Lán-
tökuliðurinn gæti þó liækkað.
at' reynslu fyrri ára að dæma,
en ekki hefur liðið það ár að
undanförnu sem bæjarsjóður
hefur ekki þurft að koma til
móts við atvinnulífið í
bænum, oft með mjög
skömmum fyrirvara: með
kaupum á hlutafé í fyrir-
tækjum. A síðasta ári t.d. í
Loðskinni og þar áður í
Skagfirðingi og Steinullar-
verksmiðjunni. Sagðist Snorri
Björn Sigurðsson bæjarstjóri
svo sannarlega vona að þessi
saga endurtæki sig ekki á
þessu ári.
I máli Snorra kom fram að
fjárhagsáætlunin gerði ráð
fyrir að rafveitan yrði
skuldlaus um næstu áramót.
Hitaveitan skuldaði 3-4 mill-
jónir, en staðan væri aðeins
öðruvísi hjá bæjarsjóði. Fram-
lag veitnanna til bæjarsjóðs á
þessu ári er um 17.5
milljónir.
Kaupfélögin hagnast
57 milljónir hjá KS á síðasta ári
Verulegur hagnaður varð á
rekstri Kaupfélags Skagfirð-
inga á síðasta ári, um 57
milljónir króna. Flestar deildir
skiluðu hagnaði, Skagfirðinga-
búð í fyrsta skipti frá því
verslunin var opnuð á árinu
1983.
Eigið fé kaupfélagsins
jókst einnig verulega á árinu.
um 30%; er nú 815 milljónir
og komið í 41% eiginfjárhlut-
fall.
Meðal deilda sem hagnaði
skiluðu má nefna fóður-
vinnslu, bílabúð og útibúið í
Varmahlíð. Tap varð á
verslunni á Ketilási og á
Hofsósi.
Að mati kaupfélagsstjóra
er ástæða góðrar afkomu
félagsins, lág verðbólga og
hagstæð rekstrarskilyrði. auk
hagræðingar í rekstri.
20 milljónir I A-Hún.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri var afkoma samvinnu-
félaganna í A,- Hún. mun
betri á síðasta ári en árið á
undan. Rúmlega 20 milljóna
hagnaður í stað 13 milljóna
taps.
Guðsteinn Einarsson kaup-
félagsstjóri segir ástæðuna
fyrir bættri afkomu kaup-
félagsins og sölufélagsins,
fyrst og fremst bætt ytri
skilyrði, einnig hafi hag-
ræðing í rekstrinum skilað
sér.
Æfingar standa nú sem hæst á Tímamótaverki Sæluvikuleikriti Leikfélags Sauðárkróks, sem
frumsýnt verður nk. sunnudag. Meira um það á baksíðu blaðsins.
Stórfelld kvótasala frá Hvammstanga
verði Sigurður Pálma seldur fara 800tonn til viðbótar
Á síðasta ári hafa þrjú skip
með verulegan kvóta verið
seld frá Hvammstanga. Það
eru Geisli með 400 tonn,
Glaður með 600 tonn og Rósa
500 tonn eða alls um 1500
tonn. Heyrst hefur að til
standi að selja Sigurð Pálma-
son og færu þar um 800 tonn
til viðbótar.
Að sögn Friðriks Friðriks-
sonar er þarna um að ræða
kvóta fyrir meðaltogara, sem
gæti borið uppi atvinnu á
ekki stærri stað en Hvamms-
tangi er. Þetta væri í rauninni
lífæð staðarins og enginn
vissi hvað átt hefði fyrr en
misst hefði. Aflaverðmæti
fyrir þann kvóta sem er
seldur, gæti numið um 135
milljónum króna á ári og ef
Sigurður yrði seldur bættust
þar 72 milljónir við, svo alls
gæti þetta orðið um 207
milljónir króna.
Er því ekki óeðlilegt að
menn íhugi hvað hefði verið
mögulegt aðgera til að halda
þessum verðmætum á staðnum
og tryggja þannig atvinnu-
öryggið. Sá afli sem berst að
„Við höfum ekki enn fengið
tilskilin leyfi fyrir kaupunum,
en erum að ganga frá gögnum
fvrir ráðuneyti, fiskveiðisjóð,
viðskiptabanka og aðra aðila
er málinu tengjast. Smíðin
getur hafist strax og heimildir
liggja fyrir”, segir Sveinn
Ingólfsson framkvæmdastjóri
Skagstrendings.
Skagstrendingur hefur gert
bráðabirgðasamkomulag við
norska skipasmíðastöð um
smíði á rúmlega 1000
landi nú er keyptur af
aðkomubátum og sumt jafn-
vel alla leið frá Noregi.
brúttólesta skipi, um 60
metra að lengd. Gert er ráð
fyrir að það kosti fullbúiðum
900 milljónir. Forráðamenn
Skagstrendings hafa'fullan
hug á þessum kaupum, og
munu þá úrelda togarann
Hjörleif og annaðhvort Örvar
eða Arnar, og llytja veiði-
heimildirnar yfir á nýja
skipið. Ekkert varð af
kaupum á færeyska rækju-
togaranum seni Skagstrend-
ingur gerði tilboð í fyrir
nokkru.
EA.
Skagstrendingur hf.:
Með bráðabirgðasamning
við norska skipasmíðastöð
Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
^ tCKI
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
Véla- og verkfæraþjónusta
_/Toun!ll --- Sími: 95-35519
Bílasími: 985-31419
Aðalgötu 26 Sauðárkróki Fax: 95-36019