Feykir - 03.04.1991, Síða 6
6 FEYKIR 12/1991
Saga af litlum hvolpi
Hjörleifur á Gilsbakka í góðum félagsskap.
Það var nokkru fyrir
síðustu aldamót að lítill
hvolpur hvarf frá bænunt
Gilsbakka í Austurdal. Talið
var víst að hvolpurinn hefði
lagt af stað á eftir fólki sent
fór frant á Sel þennan sama
dag. Stigasel heitir það fullu
nafni, áður sérstakt býli, en
síðan nytjað sem beitarhús
frá Gilsbakka.
Milli Gilsbakka og Stiga-
sels fellur Strangilækur,
straumharður eins og nafnið
bendir til, og vatnsmikill al'
læk að vera. Lítið var leitað að
hvolpinum, enda talið víst að
hann hefði farið sér að voða í
Strangalæk, sem var í flóði
þennan dag.
Gestur Jónsson, sem lengi
bjó á Keldulandi, átti enn
heima á Gilsbakka þegar
saga þessi gerðist. Hann var
sonur Jóns Jónssonar bónda
á Gilsbakka og fyrri konu
hans Vaigerðar Guðmunds-
dóttur frá Abæ. Þess ntá geta
að Gilsbakka-Jón var ekki
einungis frægur fyrir hag-
mælsku sína, heldur var
hann líka maður rammskyggn.
Báðir þessir eiginleikar komu
fram í Gesti syni hans, þótt í
ntinna mæli væri.
Nú er það skömmu eftir að
hvolpurinn hvarf að Gestur
er staddur fram á Seli. Sækir
hann þá mjög svefn, þótt unt
hádaginn sé. og bregður á
það ráð að leggja sig í
garðann í ytra húsinu og er
þegar sofnaður. Þegar hann
vaknar og rís upp við dogg
þarna í garðanum, verður
honunt litið inn í króarhontið
að norðan. Sér ltann þá hvar
Skotta stendur með ltinn
týnda hvolp á handleggnum.
Gælir hún mjög við hvolpinn
sem virðist una sér hið besta.
Ekki gast Gesti að þessum
félagsskap. Þar við bættist að
ltann taldi augljóst að Skotta
væri völd að hvarfi hvolpsins.
Gestur var maður fremur
orðljótur. Sendir hann nú
'Skottu tóninn og segir henni
að fara í logandi helvíti.
Verða þá miklar eldglæringar
þarna í króarhorninu, en
strax og þeint linnir er Skotta
horfinn og hvolpurinn auð-
vitað líka.
Eg veit ekki til að vart hafi
orðið við Skottu í Stigaseli
síðan. Hús þessi voru í
notkun frant um 1960. Var
norðvesturhornið á ytri hús-
unum jafnan kallað Skottu-
horn. Þar haggaðist aldrei
steinn í hleðslu öll þessi ár.
enda þótt aðrir hlutar
húsanna þyrftu sitt eðlilega
viðhald.
Skrifað á Gilsbakka í ntars
1991.
Hjörleifur Kristinsson.
Hörður leiðir
líklega Heima-
stjórnarmenn
Heimastjómarsamtökin stefna
að framboði í Norðurlandi
vestra, og stefnir því í að sjö
listar verði í kjöri hér í
kjördæminu. Að sögn Harðar
Ingimarssonar efsta manns
listans hefur hann verið
mannaður, en einungis er húið
að raða í þrjú efstu sætin.
Hörður Ingimarsson versl-
unarmaður Sauðárkróki er í
efsta sæti, þá Níels Ivarsson
bóndi Fremri-Fitjum V,-
Hún. og Sigríður Svavars-
dóttir ráðskona Öxl A.-Hún.
er í þriðja sæti. Framboðs-
frestur rennur út um hádegi
nk. föstudag, 5. apríl.
FEYKIR
10 ára
Næsta blað
- afmælisblað
Silfurskip í
Safnahúsi
Á Sæluviku verður að venju
efnt til sýningar í Safnahúsi
Skagfirðinga. Þar verða sýnd
rúmlega 30 verk eftir gamlan
Króksara af þingeyskum
uppruna, Sigurð H. Þórólfs-
son. Allt eru það skipslíkön,
sum mjög raunsæisleg en
önnur stílfærð. Efniviðurinn
er af margvíslegu tagi; allt frá
hlágrýti yfir í góðmálma,
cðalsteina og jafnvel manns-
hár.
Á meðal skipa Sigurðar
eru sjö sem teljast ntega hrein
dvegasmíð. gerð úr gulli og
silfri. Þau vöktu m.a. athygli
á sýningu úti í London fyrir
nokkrum árum enda munu
þau ekki eiga ntarga sína líka
í veröldinni.
Sigurður hefur nokkrum
sinnum sýnt verk sín áður og
jafnan við góða aðsókn.
Allntörg verkanna á þessari
sýningu hafa þó ekki verið
sýnd fyrr. Hluti þeirra er til
sölu. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 15-19 en kl.
15-22 á fimmtudaginn.
Aðgangur er ókeypis.
undir borginni
Steindór Haraldsson einn ungra og upprennandi stjórnmála-
manna á Skagaströnd.
Að loknum hinum drama-
tíska landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins snéru aftur heim til
Skagastrandar þeir ágætu
fulltrúar sem íhaldinu á
staðnum þóknaðist að senda
í þessa makalausu fjölmiðla-
veislu. Allir voru þeir hressir
og glaðir yfir því að hafa
fengið að vera viðstaddir þá
sögulegu stund þegar marg-
lofaður Davíð Oddsson var
kosinn formaður flokksins.
Slíkur heiður veitist heldur
ekki óverðugum skyldi maður
halda.
Undirritaður hefur átt í
nokkrum erfiðleikum meðað
skilja það hvernig Davíð gat
orðið formaður án þess að
fella Þorstein, en það er
sennilega aðeins á færi
sjálfstæðismanna að skilja
það, svo að aðrir ættu trúlega
ekki að vera að grufla út í
það. Hver landsfundarfulltrú-
inn af öðrunt hefur rækilega
undirstrikað það í Ijölmiðlum
að Þorsteinn hafi ekki fallið.
heldur hafi Davíð bara
unnið. Raunar hafi báðir
unnið sigur með tilliti til þess
hvað fylgið skiptist jafnt á
ntilli þeirra. Það væri heldur
ekki venja í Sjálfstæðisllokknum
að fella sitjandi formann.
Þorsteinn hafi í raun fengið
góða trausts-yfirlýsingu, sent
missti alls ekki gildi sitt þó
Davíð hafi fengið enn betri
trausts-yfirlýsingu.
Þessi sjónarmið eru auð-
vitað allrar athygli verð og
landsfundar-fulltrúar frá Skaga-
strönd em sjálfsagt sann-
færðir um það að þau séu rétt
í alla staði. Þaðgeti ekki verið
rangt sem meirhluti lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins
sameinist um. Þeirsem hafa
verið að gleðjast yfir því að
Þorsteinn væri fallinn, verða
því að bíta í það súra epli að
hann sé alls ekki fallinn,
hann sé bara hættur að vera
formaður Sjálfstæðisflokksins
og það sé auðvitað allt annað
ntál.
Sá Davíð sem nú er leiddur
til öndvegis hjá stærsta
stjómmálaflokki þjóðarinnar á
íjölda ættingja á Skagaströnd.
Móðurfaðir hans Lúðvík
Nordal læknir var sonur
Davíðs Jónatanssonar í
Eyjarkoti og bróðir Stein-
gríms skólastjóra á Blöndu-
ósi. Bróðir Davíðs í Eyjarkoti
var Steingrímur á Njálsstöðum
faðir Páls ritstjóra Vísis,
l'öður Hersteins ritstjóra.
Annar sonur Steingríms á
Njálsstöðum var Magnús
faðir þeirra Vindhælisbræðra
og þeirra systkina. Faðir
Steingríms á Njálsstöðum og
Davíðs í Eyjarkoti var
Jónatan Davíðsson á Marðar-
núpi, sem var sonarsonur
Davíðs Guðmundssonar hrepp-
stjóra á Spákonufelli á
Skagaströnd. Kona Jónatans
var Sigurrós Hjálmarsdóttir
systir Björns Hjálntarssonar
á Akri í Þingi, föður
Þórunnar húsfreyju í Kurfi á
Skagaströnd móður Hjartar
l’öður Hallbjarnar kántrý-
söngvara.
Skemmtikraftaeðlið er því
víða til í ættinni. Bæði Davíð
Stefánsson skáld og Davíð
Oddsson bera nafn frá Davíð
garnla hreppstjóra í Spá-
konufelli. Það á margt rætur
sínar undir Borginni. Það má
benda á það að Jakop Möller
fæddist hér í þorpinu og
Valtýr Guðmundsson var
fæddur á Árbakka rétt fyrir
ofan kauptúnið. Hlutfalls-
lega hefur Skagaströnd því
lagt mikið að mörkum til
stjómmálalegrar fomstu meðal
þjóðarinnar fram til þessa.
Aðrir staðir hafa ekki lagt
þar meira til hlutfallslega
nema þá Reykjavík. Vaxandi
umsvif ungra manna í pólitík
svo sem Steindórs Haralds-
sonar og Þorvaldar Skafta-
sonar benda til þess að
Skagaströnd muni áfram
italda hlutfallslega styrk
sínum á þessu sviði og ber því
vissulega að fagna.
Rúnar Kristjánsson.