Feykir - 03.04.1991, Page 8
FEYKIR
>.BL. Óháö frettabiaö á Noröurlandi vestra
BILALEIGA SAUÐARKROKS
FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR
TOYOTA Hl - LUX DOUBLE CAB 1991
LEYSIR FLUTNINGSVANDAMÁLIN
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐUM KJÖRUM
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
SÍMAR 36050 - 35011 H.S ( Stefán )
Kolbrún Sif og Sonja Karen Marinósdóttir syngja sigurlagið í
söngvakeppninni.
Glæsileg árshátíð
Byrjað að lagfæra
Kirkjustíginn í sumar
Árshátíð Laugabakkaskóla
var haldin föstudagskvöldið
22. mars sl. Var þar fjöldi
manns saman kominn enda
veður eins og best verður á
kosið. Árshátíðin var öll hin
glæsilegasta og greinilegt að
víða er að finna hæfileikafólk
á meðal nemenda skólans.
Meðal efnis var söngur 1.
bekkjar nemenda; Kiddi á
Osi. Litæöngur sem nemendur
2. bekkjar sungu. 9. og 10.
bekkur sýndi Þyrnirós, nem-
endur 7. bekkjar leikritið
Glettur; fjallaði það um
hrekkjabrögð stráka á stelp-
um og hvernig þeir fengu að
gjalda þeirra. Nemendur 4.
og 5. bekkjar sýndu frum-
samið leikrit sem nefnist
Skólastofan og var það
sýnishorn af kennslustund.
Sjöundu bekkingar fluttu
leikþátt sem nefndist Afmæli
pabba og 10. bekkingar
sýndu þátt sem þeir nefndu
Bergmál. Að lokum lék
hljómsveit 8. bekkjar. Var
þíir á ferðinni kitbragðsleikur.
hljómlistin leikin af segulbandi
og myndband sýnt með
skýringartexta.
Hápunktur hátíðarinnar
var svo söngvakeppni sem
fram fór á dansleiknum að
loknum skemmtiatriðunum.
Alls komu fram 29 söngvarar
í 19 söngvum. Erfitt var fyrir
dómnefnd að geraupp á rnilli
þeirra sem skipa skyldu
fyrstu þrjú sætin. Urslitin
urðu þau að fyrsta sætið
hrepptu systurnar Kolbrún'
Sif og Sonja Karen Marinós-
dætur. Ellen Dröfn Björns-
dóttir varð önnur og Þorvaldur
Hjaltason þriðji.
Ekki er ólíklegt að meira
eigi eftir að heyrast frá
þessum upprennandi söngvur-
um í framtíðinni því hæfi-
leikarnir eru greinilega fyrir
hendi hjá þeim. EA.
Hólmfríður efst
hjá Þjóðarflokki
Þjóðarflokkurinn hefur ákveðið
framboðslista sinn á Norður-
landi vestra. Verulegar breyt-
ingar eru á listanum frá
síðustu kosningum. Hóhtifríður
Bjarnadóttir á Hvammstanga
mun leiða baráttuna hér í
kjördæminu, en hún er í efsta
sæti listans.
Guðríður B. Helgadóttir
Austurhlíð A.-Hún. er í öðru
sæti. Magnús Traustason
Siglufirði í því þriðja, 4. Skúli
Pálsson Syðri-Völlum V,-
Hún., 5. Björn Sigurvalda-
son Litlu-Asgeirsá V.-Hún.,
6. Friðgeir Jónasson Blöndu-
dalshólum A.-Hún.,7. Einar
Karlsson Siglufirði. 8. Þórey
Helgadóttir Tungultálsi Skaga-
firði. 9. Jónína Hjaltadóttir
Hólum, 10. Bjarni Marons-
son Asgeirsbrekku Skagafirði.
Meðal verklegra framkvæmda
á dagskrá Sauðárkróksbæjar í
sumar er, að hafist verður
handa við lagfæringar Kirkju-
stígsins, en þetta merka
samgönguniannvirki hefur látið
nokkuð á sjá seinni ár. Hefur
hópur manna haft uppi kröfur
um að stígurinn verði endur-
bættur og komið upp sú
hugmynd að hann verði
upplýstur í framtiðinni. Er
hugmyndin eignuð K-lista-
mönnum.
Reyndar hlýtur það að
teljast sjálfsagt mál að
Kirkjustígnum verði sýnd
Félagar í Leikfélagi Sauðár-
króks hafa undanfarnar vikur
lagt hart að sér við æfingar á
Sæluvikuleikritinu, sem að
þessu sinni er nýtt íslenskt
verk. Og þeir leikfélagsmenn
viðhlítandi virðing, þar sem
um langt skeið lá þar leið
fyjgdarmanna þeirra er jarðaðir
vom í Sauðárkrókskirkjugarði.
Þó sporin fjölmörgu upp
Kirkjustíginn hafi mörghver
verið æði þung lifa þau í
minningunni.
Ekki er þó að vænta
neinna stórkostlegra fram-
kvæmda við Kirkjustíginn í
sumar. Að sögn bæjarstjóra
verður mestmegnis kannað
hvernig endurbætur stígsins
verði best úrgarði gerðar. Þá
verður einnig hafist handa
við gangstígagerð í norður-
hluta Hlíðahverfls í sumar.
sækja ekki vatnið yfir lækinn,
fengu til liðs við sig eitt
magnaðsta lcikrit askáld bæjar-
ins ef ekki landsins, Hilnii
Jóhannesson.
Elsti innfæddi
Króksarinn
95 ára
Elsti innfæddi Sauðkrækingur-
inn Emilía Lárusdóttir, Emnta í
Árbæ, varð 95 ára þriðjudag-
inn 26. niars sl. Hélt hún upp á
afniælið með börnum sínum
og fjölda vina og vandamanna
í Árbæ þann sama dag.
Þrátt fyrir aldurinn er
Emma enn hin hressasta og
leikur við hvern sinn fingur
dag hvern. Geðslagið er
einstakt, eins og reyndar var
hjá Olafi bróður hennar
fyrrum hreppstjóra í Skarði
og fleirum þeim Skarðssystk-
inum. Ennþá les Emma og
stundar sína handavinnu;
heklar og prjónar. gleraugna-
laust.
skotviss
Verkið sem hlotið hefur
titillinn Tímamótaverk, er
einkum samið með það í
huga að á þessu ári eru 50 ár
liðin frá stofnun L.eikfélags
Sauðárkróks. Fjallar það
einmitt um að stórafmæli er í
nánd hjá áhugamannaleik-
félagi úti á landi. Hérersamt
ekki um staðfært verk að
ræða, enda mun ætlun
leikfélagsins að fara I leikför
eftir að sýningum í Bifröst
lýkur.
Eftir að hafa fylgst með
æfingu á Tímamótaverki 'ér
ekki að sjá annað en
skotfimin sé í lagi hjá Hilmi.
Hann tekur þarna á hnit-
miðaðan og hnittilegan hátt á
ýmsu því sem áhugamanna-
leikfélag, eins ogmörg önnur
félagsstarfsemi. þarf við að
glíma í dag. Og það er enginn
hætta á að þeir sem sjá
Tímamótaverk fari af sýningu
með hláturtaugarnar óreyndar.
Leikurinn verður frum-
sýndur nk.sunnudag. Þaðer
einn af reyndustu leikurum
Leikfélags Sauðárkróks, Elsa
Jónsdóttir, sem leikstýrir.
Leikendur eru átta talsins.
Talsvert er af söngvum í
verkinu. Um tónlistarhliðina
sér Friðrik Halldórsson.
Höfundurinn Hilmir Jóhannesson er í einu hlutverkanna. Hér
veitir hann „upplyftingu” mikla Ágústu Ingólfsdóttur, sem
greinilega líst ekkert á blikuna.
Tímamótaverk frumsýnt á sunnudag:
Hilmir enn býsna
GÆÐAFRAMKOLLUN
BÓKABÚÐ
BKYNJARS