Feykir - 29.05.1991, Side 3
20/1991 FEYKIR 3
Nú höiim við hækkað vexti á Samvinnubókinni.
Þeir eru nú 14% Ársávöxtun er því 14.49%
HAGSTÆÐ ÁVÖXTUN í HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA
Eitthundrað Heimismenn og konur:
I söngför til Norðurlanda
Tæplega eitt hundrað manna
hópur söngmanna og maka í
Karlakórnum Heimi leggur
næstkomandi miðvikudag upp
í hálfsmánaðar söngför til
Norðurlanda: Noregs, Dan-
merkur og Svíþjóðar. í
ferðinni mun kórinn m.a.
syngja á hátíðarskemmtun
Islendingafélagsins í Danmörku
vegna jóðhátíðardagsins 17.
júní og halda söngskemmtanir
í vinabæjum Sauðárkróks í
löndunum þrem, en við
undirbúning ferðarinnar hefur
kórinn notið góðs af vina-
bæjarsamböndum Sauðárkróks.
Flogið verður til Bergen og
þaðan farið með rútu til
Stryn, þar sem kórinn syngur
á söngmóti dagana 8.-9. júní
og heldur einnig konserta í
nágrenninu. 12. júní verður
síðan Kongsberg, vinabær
Sauðárkróks í Noregi, heim-
sóttur og haldin söngskemmtun
þar. Síðan verður farið til
Svíþjóðar og sungið í öðrum
vinabæ Sauðárkróks, Kristians-
stad, þann 14. Stansinn í
Svíþjóð verður ekki mikill
því stutt er í þjóðhátíðardág-
inn og þá verður haldinn
söngskemmtun í Köge, enn
einum vinabænum. Heim
verður síðan haldið frá
Danmörku 19. júní ogverður
ferðaþreytan þá væntanlega
farin að segja til sín.
Fararstjóri ogskipuleggjandi
dvalar hópsins í Noregi er
Sven Arne Korshamn fyrr-
verandi stjórnandi Heimis,
en hann átti veg og vanda af
velheppnaðri kórferð Heimis
til Noregs 1981.
Skipulagningu Svíþjóðar-
og Danmerkurþáttar ferðar-
innar hefur Matthías Viktors-
son félagsmálastjóri Sauðár-
króks annast og segir
Þorvaldur Óskarsson for-
maður kórstjórnar Matthías
hafa unnið frábært starf fyrir
kórinn.
En Heimismenn eiga eftir
að syngja hér heima áður en
hleypt verður heúndraganum.
Kórinn verður með söng-
skemmtun í Miðgarði næst-
komandi föstudagskvöld kl.
21. Sérstaklega eru boðnir
velkomnir á skemmtunina
ellilífeyris- og örorkuþegar,
en þeir fá frían aðgang.
Blönduós:
Atvinnuleysi hjá
rosknum konum
,T>að virðist vera um varanlegt
atvinnuleysi að ræða hjá 6-8
rosknum konum. Við erum
enn að glíma við vandann
síðan Pólarprjón fór á hausinn
og sumastofurnar á Sveins-
stöðum og Húnavöllum lögðust
af. Að öðru leyti er atvinnu-
ástand hér gott, en við höfum
verulegar áhvggjur af haustinu
vegna verkloka við Blöndu”,
segir Valdimar Guðmannsson
formaður Verkalýðsfélags Austur-
Húnvetninga.
Valdimar segir að tölurnar
á atvinnuleysisskránni plati
svolítið, þar sem um marga
sé að ræða á hálfum bótum.
Fólk sem hafi misst vinnu og
síðan ekki komist í nema
hlutastörf.
„En það er þónokkuð af
þessu fólki sem hefur verið á
skrá að fara út núna, svo það
verða mun færri eftirþennan
mánuð en þann síðasta.
Síðan er auðvitað eins og
vanalega ákveðin vandamál
með vinnu fyrir unglinga,
sem ég hef trú á að bjargist
eins og vanalega í gegnum
bæjarvinnuna og svo erum
við með 12 störf fyrir
unglinga uppi í Blönduvirkjun”,
sagði Valdimar.
„Ég fæ auðvitað að halda á bankabókinni fyrst ég er fátækari
maður”, segir Stefán Þorkáksson. Guðbrandur Þór Jónsson
höndlar sveinsbréfið.
Starfsmenn vegageröar furöa sig á hirðuleysi fólks:
Finna ýmislegt í vegköntunum
Samkvæmt frásögn tveggja
starfsmanna vegagerðarinnar
á Sauðárkróki, sem hafa þann
starfa m.a. að týna upp rusl í
vegköntunum, virðist hirðu-
semi fólks vera svona upp og
ofan. Þeir Stefán frá Gaut-
landi og Þór frá Saurbæ
hafa nefnilega fundið hina
óvæntustu hluti í vegkantinum.
Má þar nefna næturgagn
nokkurt, sveinsbréf í vélsmíði
og sparisjóðsbók.
Þeir Stefán og Þór hafa
þann starfa að þurrka af
glitmerkjum vegstikanna, eða
„skeina” þær eins og þeir
kalla, skipta um brotnar
stikur og síðan hreinsa þeir
ruslið úr vegköntunum.
Álitamál er hvort ruslahreins-
unin tilheyri umhverfis- eða
samgönguráðuneyti.
Fúskararnir svokölluðu
vilja margir efast um gildi
„bréfanna”. Það er engu
líkara en ungur vélsmiður frá
Siglufirði hafi verðið svipaðrar
skoðunar, eins pössunarsamur
og hann er um sveinsbréfið
sitt. Koppinn fundu þeir
félagar í Óslandshlíðinni og
kannski hafa þeir haft
einhvern grun um að lögum
samkvæmt mætti ekki flytja
næturgagn yfir hreppamörk.
í það minnsta voru þeir svo
rausnarlegir að gefa það
húsmóður einni í Hlíðinni.
Orugglega hefur Stefán séð
hærri innistæðu í bpnkabók
en þessari, sem er um 1500
krónur. Aðspurðir um hvað
fleira þeir fyndu í vegkönt-
unum sagði Þór. „Það er allt
mögulegt, eiginlega allt þarna
á milli. T.d. klámblöð og
kosningapésa, en við höfum
nú ekkert verið að lesa það”.
Vegagerðarmenn sögðu mikið
rusl meðfram vegum eftir
veturinn, sérstaklega í Hólm-
inum þar sem þetta væri eins
og eftir brimgarð. Líklega
væri þar hvassviðrinu í
febrúarbyrjun um að kenna.
SAMVINNUBOKIN
Einbýlishús til sölu
Til sölu er einbýlishúsið að
Barmahlíð 7. Húsið er 5
herbergja ásamt tvöföldum
bilskúr. Einnig eru til sölu
mjög góðar einingar í 45 m2
sumarhús með lausum fögum
og gleri. Nánari upplýsingar
gefur undirritaður í síma
35670 og 35470.
Þorbjöm Ámason, lögfræðingur.