Feykir - 17.07.1991, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Þyrluæfing við Varmahiíð
Sameiginleg björgunaræfing
flugbjörgunarsveita á Norður-
landi fór fram í Varmahlíð um
helgina. Um þyrluæfingu var
að ræða og tóku varnarliðs-
menn af Keflavíkurflugvelli
þátt í henni, en björgunarþyrla
varnarliðsins var einmitt
miðpunktur æfinganna.
Um 30 björgunarsveitar-
menn voru samankomnir á
sléttunum norðan Lauftúns í
Hólminum, félagar í flug-
björgunarsveitunum í Varma-
hlíð, á Akureyri og í Vestur-
Húnavatnssýslu.
Að sögn Guðmundar
Máoissonar, fomianns Varma-
hlíðarsveitarinnar, var koma
varnarliðsþyrlunnar ekki til-
komin vegna óhappsins á
jöklinum um daginn, heldur
var þetta löngu ákveðið.
Guðmundur sagði æfinguna,
sem stóð bæði laugardag og
sunnudag, hafa tekist vel,
þrátt fyrir að flugveður væri
ekki alveg nógu hagstætt
seinni daginn. Vegna þoku
var þyrlan og 10 manna
áhöfn hennar veðurteppt
fram á mánudag.
Áhorfendur á íslandsmótinu í hestaíþróttum sem fram fór í Húnaveri um og fyrir helgina, létu
fara vel um sig í brekkunni. Og auðvitað voru þeir mættir húnvetnsku bændahöfðingjarnir til
að fylgjast með keppninni. Fyrir miðri mynd í neðri röð má sjá Guðmund Sigfússon
fyrrverandi bónda á Eiríksstöðum, þá Friðrik Bjömsson á Gili, Kristján Sigfússon
Húnsstöðum og Ragnar Þórarinsson á Blönduósi yst til hægri.
Fréttir af saumastofum:
Næg verkefni hjá Drífu
á Hvammstanga
Ullarsaumur við Sveinsstaði að nýju
Starfsemi sumastofunnar Drífu
á Hvammstanga hefur gengið
vel síðasta árið, vinna verið
jöfn og stöðug og ekki komið
til uppihalds eins og gerðist
tíma og tíma 3-4 árin þar á
undan. Starfsfólk Drífu er 22,
voð er prjónuð á vöktum í
Fimm vélum allan sólarhring-
inn, og í vor byrjaði
prjónastofan við Sveinsstaði
að sauma úr ull að nýju. Þar
starfa fimm manns.
Að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar verkstjóra í Drífu er
ekki útlit fyrir annað en næg
verkefni verði hjá sauma-
stofunni á næstunni, en hún
framleiðir vörur fyrir útflutn-
ingsfyrirtækið Árblik, aðal-
lega peysur á Evrópu- og
Ameríkumai'kað. Aðrar sauma-
stofur í sýslunni framleiða
einnig fyrir Drífu og Árblik.
Saumastofan í Borg í Víðidal
hefur gert það undanfarið
samhliða sínum markaði.
Að sögn Elínar Líndal í
Borg starfa nú sex manns á
saumastofunni. Mikill sam-
dráttur hefur átt sér stað hjá
þeim eins og mörgum öðrum
saumastofum á seinni árum.
Borg var sett á stofn 1977 og
yfirleitt unnu þar um 13
manns.
Ellert Pálmason í sauma-
stofunni við Sveinsstaði segir
að þar hafi ekki verið saumað
úr ull síðan 1989, lítilsháttar
vinna verið við framleiðslu
íþróttafatnaðar síðan.
I saumastofunni Vöku á
Sauðárkróki er allt í sömu
skorðum og verið hefur
undanfarin ár. Þar starfa nú
tæplega 20 manns.
Forráðamenn allra þessara
saumastofa eiga sammerkt,
að þeir vona að starfsemi sú
sem Álafoss hefur með
höndum haldi áfram, svo
fyrirtækin fái band til að
vinna úr.
—ICTew^ifl fip—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519* BlLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Skarðið farið að nýju
Nýlokið er við að lagfæra
gamla Skarðsveginn þannig
að hann er orðinn greiðfær
jeppum og velbúnum fólksbíl-
um, eins og segir í tilkynningu
vegagerðarinnar. Þetta er
gert vegna lagfæringa á
Strákagöngum sem hófust um
síðustu helgi og munu standa i
nokkrar vikur.
Þeir sem fóru um Skarðs-
veginn á sínum tíma, muna
eflaust að vegarstæðið er
mjög skemmtilegt á köflum,
og í björtu og fallegu veðri er
ákaflega skemmtilegt að fara
um Skarðið. Það þótti
tignarleg sjón á sínum tíma
af háskarðinu niður í Siglu-
fjörð og víðar um. Ekki er að
efa að margir hyggjast nú í
sumar riíja upp gamlar
minningar af ferðum yfir
Skarðið, hvort sem þær voru
farnar gangandi, ríðandi eða
akandi. Og trúlega mun
lagfæring Strákaganganna
óbeint beina ferðamönnum
til Siglufjarðar.
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
TMl
1 11
w 1 1 SAUOAHlJDKI - -a 0l7f ] 102
SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141