Feykir


Feykir - 25.03.1992, Blaðsíða 8

Feykir - 25.03.1992, Blaðsíða 8
Oháð fréttablaö á Noröurlandi vestra 25. mars 1992, 12. tölublað 12. árgangur STERKUR AUGLYSINGAMIÐILL! Björn Sveinsson á Varmalæk tók Hrímni til kostanna á Norðlenskum hestadögum. Hestadagar tókust vel Norðlenskir hestadagar í reiðhöllinni í Víðidal um síðustu helgi þóttu heppnast ákaflega vel. Fjölmenni sótti sýningarkvöldin þrjú, húsfyllir var á hverri sýningu, einkum á laugardagskvöld en þá varð Halldór skipaður héraðs- dómari Halldór Halldórsson dómara- fulltrúi hefur verið skipaður héraðsdómari á Norðurlandi vestra frá 1. júlí nk. að telja. Aðsetur héraðsdómara verður á Sauðárkróki. Halldór er Skagfirðingum að góðu kunnur. Hann gengdi starfi fulltrúa sýslumanns um árabil fyrir nokkrum árum. fjöldi fólks frá að hverfa. Vonir forráðamanna um að fjöldi sýningargesta næði 2000 rættust því fullkomlega. Sýningaratriðin þóttu hnit- miðuð, fjölbreytt og athyglis- verð, enda sum hver nýlunda í sýningahaldi hér á landi. Reiðmennska og fimi Hóla- nema í meðferð hrossa sinna vakti óskipta athygli og þótti setja á mikinn svip. Atriði rammnorðlenskrar þjóðsagna- stemmningar heppnuðust ákaf- lega vel. En þar voru sviðsett hvarf séra Odds á Miklabæ og draugasagan um djákn- ann á Myrká. Svokölluð eltiljós voru brúkuð í samspili hesta og birtusveiflna í þessum dagskráratriðum. Vestlendingar, sem eru að undirbúa sýningu er verður í reiðhöllinni í vor, fylgdust vel með framgöngu Norð- lendinga og fannst þeim sem öðrum gestum ekkert vera til sýningarinnar sparað. Landsbankinn á Sauðárkróki Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00 Cími oeoeo / M Landsbanki wlnftl vdwdy Á Wi Islands Banki allra landsmanna Úrelding Rastar og kvótamál skipsins: Bæjarráð ræður lögfræðing til að kanna réttarstöðu sína Bæjarráð Sauðárkróks hefur ákveðið að kanna réttarstöðu bæjarins gangvart úreldingu Rastar og sölu þeirra afla- heimilda sem til stendur að gera og hugsanlega hafa þegar farið fram. Þá hefur verið ákveðið að endurskoða vinnureglur í sambandi við undirskrift samninga er þurfa samþykki embættísmanna bagar- ins. Tilefni jDessarar samþykktar bæjarráðs er að bæjarstjóri eða bæjarritari hafa ásamt starfsmanni verkalýðsfélags- ins ætíð skrifað undir leigusamning á þorskkvóta Dögunar, alveg síðan Röstin var keypt fyrir nokkrum árum, en ákvæði í kaup- samningi sögðu til um að helmingur þorskkvóta skips- ins yrði leigður áveðnum aðila í skiptum fyrir rækju næstu fimm ár. Þegar leigusamningur Dögunar og Granda á þorskkvótanum var undirritaður á dögnum voru undirskriftirnar inntar af hendi eins og um sjálfsafgreiðslukerfi væri að ræða, enda búið að gera slíkt nokkrum sinnum áður. Omar Þór Gunnarsson segir að ekki hafi veriðgengið frá neinu í sambandi við sölu á 462 tonna þorskkvóta Rastar, en það mundi styrkja stöðu fyrirtækisins verulega ef afsölunni yrði. Omar sagði að verið væri að kanna kaup á skipi, heldur minna en Röstinni. Tími sé skammur til að ganga frá kvótamálum, eftir að menn séu búnir að gera samninga um kaup á nýju skipi. iþróttafélag fatlaðra í Skagafirði stofnað á alþjóðadeginum Sl. sunnudag, á alþjóðlegum degi fatlaðra, var stofnað íþróttafélag fyrir fatlaða í Skagafirði. Um 25 manns rituðu sig stofnfélaga á fundinum, en ákveðið var að taka á móti stofnfélögumtil 1. maí nk. Stjórn var falið að velja nafn á nýja félagið, en ákveðið er að í því verði einnig bocciadeild fyrir aldraða. Þrátt fyrir að ýmislegt væri um að vera á sunnudaginn var fundarsókn góð. Góðir gestir komu á fundinn, Camilla Hallgrímsson vara- formaður íþróttasambands fatlaðra og þrír stjórnar- menn íþróttafélagsins Snerpu á Siglufirði: Guðrún Amadóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Magna Sigbjörnsdóttir. Þær Blönduósingar: Ætla að stofna hluta- félag um byggingu og rekstur sumarhúsa „Það var eiginlega ákveðið á síðasta sumri áðuren Stígandi fór að reisa húsin á sýslumannstúninu og stofna félag um rekstur sumarhúsanna. Við erum að ýta því máli áleiðis núna”, sagði Ofeigur Gestsson bæjarstjóri á BIönduósL Akveðið hefúr verið að byggja 10 sumarhús á sýslumanns- túninu, svæði því þarsem nú eru tjaldstæði. Blönduósingar áforma stofnun hlutafélags um byggingu húsanna og rekstur ferðaþjónustu hvers- konar þeim tengdum. Starfsmanni Framtaks, Baldri Valgarðssyni, hefur verið falið að vinna úr þeim hugmyndum og gögnum sem aflað hefir verið og vinna að stofnun hlutafélags. A fundi hagsmunaaðila á Blönduósi nýlega voru ýmsar hugmyndir viðraðar varðandi ferðamanna- umferð um héraðið, t.d. hugsanlega samnýtingu sumar- húsanna og hótelsins. Snerpu-konur færðu félaginu að gjöf gestabók skrautritaða og Camilla afhenti frá lþróttasambandi fatlaðra, svokallaðan Hvatabikar. Þakkir voru færðar gefendum í anda Njálu, þegar Gunnar á Hlíðarenda veitti gjöfum frá Bergþórshvoli viðtöku með þessum orðum. „Góðar eru gjafir þínar Njáll en enn betri þykir mér vinátta þín og sona þinna”. Fram kom á fundinum að þeir sem unnu að undirbún- ingi stofnunar félagsins hafa mætt miklum velvilja og hefur hún greinilega mikinn meðbyr í bænum og héraðinu. Til að mynda sýndi bæjar- stjórn Sauðárkróks þann rausnarskap að veita félag- inu 100 þúsund króna styrk til starfseminnar á þessu ári. Ákveðið er að stefna að kröftugu starfi og til stendur að fara á íslandsmót fatlaðra sem fram fer 10.-12. apríl nk. Sólveig Jónasdóttir var kosin formaður félagsins og meðstjórnendur: Karólína Gunnarsdóttir, Kári Steins- son, Ingibjörg Stefánsdóttir og Þórhallur Ásmundsson. Varamenn Fanney Karls- dóttir og Anna Hjaltadóttir. CÆOAFRAMKOLLUN GÆDAFRAMKÖLLUN BÓKAEIJÐ BRYMJARS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.