Feykir - 20.05.1992, Side 1
20. maí 1992, 19. tölublað 12. árgangur
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Stjórnarformaður Skjaldar:
Kaupum flæðilínu
ef með þarf
„Við ætlum að athuga vel alla
vinnsluna í Skildi og gera
hana eins hagkvæma og
mögulegt er. Ef að kemur á
Sauðárhróhur:
Eftirlítskerfi
við sundlaugina
Eftir spjöll sem unnin voru í
Sundlaug Sauðárkróks um
helgina, verður komið upp
eftirlitskerfi við sundlaugina,
að sögn Guðmundar Jens-
sonar sundlaugarvarðar. Mikið
var um glerbrot á öllum
bökkum laugarinnar og í
heitum pottum þegar starfs-
menn komu til vinnu á
laugardagsmorgun. Þurfti að
loka sundlauginni álaugardag
af þessum sökum, þar sem
hleypa þurfti vatni úr lauginhi
við hreinsun.
„Þetta hafa verið vandræði
núna undanfarið. Um fyrri
helgi var t.d. öllu lauslegu
hent út í iaugina. Það er
hvimleitt þegar stolist er í
laugina og pottana að
næturlagi, en keyrir um
þverbak þegar menn eru
farnir að valda skemmdum
og skilja eftir glerbrot og
jafnvel saur á bökkunum”,
sagði Guðmundur sundlaugar-
vörður.
Mikill drykkjuskapur var í
bænum sl. föstudagskvöld og
talsverð ólæti. T.d. var brotin
rúða í Matvörubúðinni, farið
upp á þak bakarísins og
sitthvað tleira sem lögreglan
þurfti að eltast við. Lögreglan
hefur reynt að vakta sund-
laugina eftir megni, en í mörg
horn var að líta á föstudags-
kvöldið.
daginn að hagkvæmt reynist
að fá flæðilínukerfi í húsið þá
verður það gert”, segir Róbert
Guðfinnsson framkvæmda-
stjóri Þormóðs ramma.
Hvort til greina kæmi að
vaktavinnu yrði komið á í
Skildi sagði Róbert að þeir
fylgdust vel með því sem væri
að gerast og spáðu í hlutina.
Skjöldur hentaði mjög vel til
vaktavinnu að því leyti að
þetta væri lítil rekstrareining
og því sveigjanlegri. „Það
þýðir ekkert að fara út í
vaktavinnu nema hafa tryggt
hráefni, t.d. vegna upp-
sagnarákvæða í rammasamn-
ingi. Það er því minni
rekstrarleg áhætta fólgin í
vaktavinnu í minni húsunum
en þeim stærri og að því leyti
er frystihús Skjaldar hag-
kvæmt ”,
Drangey hélt til veiða
síðdegis í gær eftir að hafa
verið frá veiðum í tæpan
mánuð. Þrátt fyrir það tókst
að halda uppi fullri vinnslu
hjá Skildi, fyrir fulltingi
Þormóðs ramma. Vinnsla
féll alls niður í um 30 daga
hjá Skildi á síðasta ári, en
með aflamiðluninni er þess
vænst að nægt hráefni verði í ár.
Starfsstúlkur Loðskinns snyrta mokkaskinn.
Framleiðslan selst jafnóðum
Loðskinn hefur selt fyrir 80 milljónir á árinu
Mjög vel gengur í sölu- og
markaðsmálum sútunarverk-
smiðjunnar Loðskinns um
þessar mundir. Allt sem fram-
leitt hefur verið í ár er selt
að verðmæti liðlega 80 milljóna
og að sögn Birgis Bjarnasonar
framkvæmdastjóra hefði verið
hægt að selja meira. Gott útlit
er fyrir að öll framleiðsla
þessa árs seljist beint, en hún
gerir rúmar 200 milljónir.
Svipaður fjöldi starfar í
Loðskinni nú og vanalega, um
50 manns.
Mokkaskinn eru mjög
eftirsótt um þessar mundir,
en Loðskinn hefur sérhæft
sig í framleiðslu þeirra. Birgir
segir mikla breytingu hafa
orðið á framleiðslu og
mörkuðum verksmiðjunnar
síðan endurskipulagning rekst-
ursins hófst á árinu 1990.
„Varan þótti ekki nógu góð
og fyrirtækið hafði misst öll
sín viðskiptasambönd, þannig
að byggja varð upp markað-
inn að nýju. Við höfum náð
þessum mörkuðum aftur og
erum að ná nýjum inn.
Aðallega er selt á ítalu,
Bretland og svolítið á
Skandinavíu. Það er jafnvel
útlit fyrir að Bandaríkin fari
að koma inn”, sagði Birgir.
Loðskinn fékk á síðasta
hausti 100 þúsund gærur.
Segir Birgir að það eigi að
duga fyrirtækinu rniðað við
þann starfsmannafjölda sem
er í dag og 8-10 stunda
vinnudag. Þess má geta að
Birgir er nýkominn af árlegu
námskeiði _ Útflutningsráðs
Islands: „Útflutningsaukning
og hagvöxtur”. Loðskinn var
eina fyrirtækið af Norður-
landi sem sendi þátttakanda
á þetta námskeið.
Fiskmarkaður á Skagaströnd innan skamms
Nýlega var stofnað á Skaga-
strönd hlutafélag um fisk-
markað. Áætlað er að mark-
aðurinn verði opnaður í byrjun
næsta mánaðar, en hann
verður með aðstöðu í frysti-
húsi Hólaness. Fiskniarkaður
þessi verður sá fyrsti á
Norðvesturlandi.
Stofnendur og eignaraðilar
fiskmarkaðarins eru Skag-
strendingur hf., Hólanes hf.,
Höfðahreppur og nokkrir
aðrir hagsmunaaðilar og
áhugamenn. Oskar Þórðar-
son stjórnarformaður félags-
ins er bjartsýnn á reksturinn
og telur engan vafa á því að
fiskmarkað vanti í kjördæmið.
Aðstaða sé fyrir hendi í
Hólanesi til að hafa fisk á
gólfi og tæknin gefi mögu-
leika á að selja fisk með
fjarskiptum. Fjárfesting sé
engin í þessu sambandi og
því allt að vinna.
Hugmyndin er einnig að
selja rækju á markaðnum,
enda liggur Skagaströnd vel
við rækjumiðunum. Yrði það
í fyrsta skipi sem rækja yæri
seld á mörkuðum hérá landi.
Stofnhlutafé fiskmarkaðar-
ins er ein milljón, en heimilt
að tvöfalda hlutaféð án þess
að hluthafar eigi forkaups-
rétt. Kannað verður hvort
aðrir aðilar í kjördæminu
hafa áhuga á að eignast
hlut í markaðnum.
—KTengif! Iip—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BlLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141