Feykir


Feykir - 20.05.1992, Side 4

Feykir - 20.05.1992, Side 4
4 FEYKIR 19/1992 „IVIeiðyrðamálin miklu" Upphaf linnulausra pólitískra ofsókna í kauptúninu Eins og vikið var allnokkuð að í síðasta Feyki hafa enn á ný sprottið upp deilur á milli kaupfélagssinna og frjálsa framtaksins í bænum. Þessi togstreyta er svo sem ekki ný af nálinni, og hreinn barnaleikur nú miðað við það sem hún var fyrr á öldinni, eins og sést af því sem Kristmundur hefur skráð í Sögu Sauðárkróks. Þar segir meðal annars að grunnt hafi verið á því góða milli kaupmannastéttarinnar á Króknum og kaupfélagsins upp úr 1920. Fræg urðu t.d. „meiðyrðamálin miklu” sem hófust árið 1925, en allt það þjark dró langan og illan slóða á eftir sér, sem varð upphaf að linnulausum pólitískum ofsóknum í kauptúninu og létti þeim ekki fyrr en um 1940. Haldið var á lofti hverskonar óhróðri um andstæðingana og þótt svo ætti að heita að deilt væri um málefni, var persónulegur óhróður tíður. Fæst af þeim skrifum náði þó eyrum almennings, því málgögnin voru einkum fjölrituð blöð sem gefin voru út á staðnum. Upphaf meiðyrðamálanna var rakið til málfundar í Sýslufundarviku, þar sem Sigurgeir Daníelsson kaup- maður gagnrýndi harðlega skrif í Degi, sem hann taldi draga taum kaupfélagsins. Sagði Sigurgeir Jónas Þor- bergsson ritstjóra eigagnægð prenstsvertu og gerði sér létt fyrir um notkun hennar, því hann ysi henni úr lófum sér. Jónas frétti af ræðu Sigurgeirs og brást þannig við að rita í blaðið svæsna grein um Sigurgeir, verslun hans og hvers konar menn- ingarspjöll sem hann stæði að. Á efni greinarinnar var ekkert að græða um feril Sigurgeirs sökum stóryrða. Og ekki stóð á svari við grein Jónasar, það birtist í Islendingi skömmu síðar. Yfirlýsing og andmæli var titill greinarinnar sem að stóðu beint eða óbeint 80-90 Sauðkrækingar og 35 rituðu nöfn sín undir. Að orðbragði gaf svargreinin ekkert eftir greinarkorni Jónasar. Jónasi fannst höggvið ansi nærri mannorði sínu og kærði alla þá sem fremstir voru í flokki fyrir meiðyrði og krafðist þyngstu refsingar. Ekki jafnljúft að atast í saurnum Meðal annars kærði Jónas eftirfarandi ádrepu í grein 35-menninganna: „Greinin er öll í stuttu máli sagt sannleikanum mjög ónákvæm. Hún er eftir allri vorri reynd og þekkingu eitt fruntalegt og sví vi rðilegt saurkast, rógur einn og lygi af lakasta tagi og óskammfeilin árás á Boltinn farinn að rúlla Alltaf fylgir því jafnmikil eftirvænting þegar boltinn fer að rúlla á vorin. Bæði hjá leikmonnum liðanna og áhorfendum sem ábyggilega eru fyrir löngu farnir að spá í spilin og reikna út möguleika sinna liða í sumar. Það má segja, að í hugum bolta- áluganranna sé staðfesting sumar- komunnar þegar dómarinn blæs til leiks í fyrsta kapplcik stóru mótanna, íslandsmóti eða hikar- keppni. í kvöld verður einmitt leikin fyrsta umferðin í Bikar- keppninni og er einn leikur á dagskrá á Norðvesturlandi. Tinda- stóll mætir Hvöt á grasvellinum á Króknum. Tindastólsliðið er óneitanlega sigurstranglegra í þessum leik. Liðið leikur í deild ofar en Hvatarmenn og hefur að auki staðið sig mjög vel í æfinga- leikjum í vor, hefur t.d. í tvígang borið sigurorð af 1. deildarliði Þórs og það í bæði skiptin á Akureyri. Seinni sigur Tinda- stóls á Þór var staðreynd sl. laugardag. Tindastólsmenn skoruðu tvö mörk undan sunnavindinum í fyrri hálfleiknum og náðu síðan að halda hreinu í þeim seinni. Þórður Gíslason skoraði fyrra markið en það seinna var sjálfsmark. Tindastólsliðið hefur styrkst gífurlega frá síðasta ári. Nýir leikmenn eru: Pétur Pétursson, Guðbjörn Tryggvason, Bjarki Pétursson, Tryggvi Tryggvason, Lýður Skarphéðinsson, Bergur Stefánsson og Finnur Kristins- son. Aðeins Sigurður Ágústsson er horfinn á braut og einmitt til Hvatar. Hvatarmenn hafa einnig styrkt lið sitt nokkuð frá síðasta ári. Hafa fengið auk Sigurðar gamla KR-inginn Jóstein Einarsson sem þjálfar liðið, markvörðinn Þorstein Þorsteinsson úr Þrótti svo og Ásmund Vilhelmsson, Gísli Torfi er kominn heim frá Völsungi, Þorsteinn Sveinsson kemur úr Breiðabliki og Hall- steinn Gíslason úr IK. Þá hafa þeir Sigurður Davíðsson og Vilhjálmur Stefánsson tekið fram skóna að nýju. Gísli Sigurðsson fyrirliði Tindastóls segir að leikurinn í kvöld verði erfiður eins og allir leikirnir í sumar. Þrátt fyrir að Tindastóll sé með sterkt lið á pappírunum verði að sýna það á vellinum, og það sé alveg gefið mál að öll lið leggi metnað sinn í að vinna Tindastól, áreiðanlega ekki síst nágrannamir á Blönduósi. Það hlakkar sjálfsagt enginn eins; mikið til leiksins í kvöld og Sigurður Ágústsson. Hann segir að Hvatarmenn mæti á Krókinn til að vinna. Tindastóll sé að vísu sigurstranglega liðið, en enginn leikur sé unninn fyrirfram. ,,Það er alveg möguleiki að við vinnum óvænt”, sagði Sigurður. Að sögn vallarvarða er grasvöllurinn með besta móti miðað við árstíma, þrátt fyrir fremur kalt vor. Völlurinn var í mjög góðu ásigkomulagi siðasta Gísli Sigurðsson markvörður og fyrirliði Tindastóls virðist hafa náð sér af meiðslum þeim sem hann hlaut síðasta sumar, og á örugglega eftir að verða liði sinu mikill stvrkur í sumar. sumar, þökulagning sem fram fór haustið áður tókst mjög vel, og engar kalskemmdir hafa orðið tvo siðustu vetur. Sauðárkrókur upp úr 1920. valinkunnan sæntdarmann alsaklausan. Ástæðan tilþess að vér ekki tökum greinina lið fyrir lið, til að sýna þetta nánar, er aðeins sú að oss er jafnóljúft að atast í saurnum eins og ritstjóranum veitist, að hans eigin orðum, mikil ánægja að framleiða hann.... Og því skulum vér einnig að lokum lýsa því yfir að slík blaðamennska er oss viður- styggð. Hér virðist oss sem íslensk sorpblaðamennska hafi komist einna hæst - svo hátt, að nú mun hún standa nærri því að fylla mæli synda sinna”. Ekki taldi ritsjóri Dags eftir sér að fara tvívegis ríðandi frá Akureyri til Sauðárkróks á haustdögum 1925 til að sækja mál sitt, en það dæmdi Bogi Brynjólfs- son sýslumaður Húnvetninga. Að því er virðist sótti Jónas beysnustu bógana til saka. Kallaði hann 33 tilábyrgðar, en þegar í réttinn kom varð ljóst að ekki kollheimtist. Stafaði það mest að form- göllum í stefnubirtingum, enda fátt orðið manna í kauptúninu sem ekki voru á einhvem hátt viðriðnir málið. Broddborgarar á sakborningsbekk í litlu samfélagi var þetta stórviðburður, enda ekki daglegt brauð undir Nöfunum, að allir gildari menn kaup- túnsins, að kaupfélagsstjóianum undanskildum, sætu samtímis á sakborningsbekk með prófastinn, sýslumanninn, héraðslækninn og voldugasta kaupmanninn í forsæti. Vinna lá að mestu niðri í bænum í bæði skiptin sem réttarhöld- in fóru fram. Var talið að um 300 manns hafi sótt þá skemmtun, en einkum og sér í lagi varð úr þessu frídagur verslunarmanna, því flestum verslunarmönnum var stefnt. Jónas ritstjóri fékk Sauð- krækinga dæmda í 30 króna sekt hvern, auk þess að greiða sér sameiginlega 300 krónur í málskostnað. Fjórir hinna stefndu gagnstefndu Jónasi fyrir meiðyrði og unnu það mál: Hálfdán Guðjónsson prófastur, Jónas Kristjánsson héraðslæknir, Sigurður Sigurðsson sýslu- maður og Kristján Gíslason kaupumaður. Sigurgeir höfðaði sérstakt mál á Jónas fyrir meiðyrði og vann það að sjálfsögðu. Er sagt að vel hafi farið á með þeim meðan á réttarhöldum stóð á Akureyri. Mæltust þeir jafnvel til vináttu að sögn Jónasar ritstjóra, þótt skoðanir þeirra á þjóðmálum ættu enga samleið. J0LLI ÞÝSKUR MEISTARI „Þetta er búið að vera gífurleg spenna lengi og mest auðvitað síðustu dagana fyrir loka- umferðina, þar sem enn áttu þrjú lið nánast jafna mögu- leika á sigri. Þetta leit svo sem ekkert vel út hjá okkur, þegar Sammers var rekinn af velli korteri fyrir leikslok. Sigurinn var því enn sætari en ella og þetta hafa verið stanslaus hátíðarhöld hérna í horginni, hér upplifa allir sig sem meistara”, sagði Eyjólfur Sverrisson sem sl. laugardag var krýndur Þýskalands- meistari í knattspvrnu með liði sínu Stuttgart. Það voru fullar götur í Stuttgart þegar meistararnir lentu á nugvellinum á laugardagskvöld og þær flóðu í kampavíni. Stuttgart var síðast meistari 1984, þá með annan Islending innan- borðs, Ásgeir Sigurvinsson. Eyjólfur sagði að fyrir keppninstímabilið í haust hafi stefnan verið sett á flmmta sætið, eða keppnis- rétt í Evrópukeppnum næsta ár. „Þegar tíu umferðir voru eftir og við meðal þriggja efstu Iiða, voru að sjálfsögðu sett ný markmið”. Aðspurður hvað tæki nú við, sagði Eyjólfur að framundan væru léttir æfingaleikir og æfingar. Nú færu menn að æfa sig niður. Síðan væri lands- leikurinn í Ungverjalandi 3. júní. Eftir það færu þau Anna Pála í síðbúna brúð- kaupsferð, leyndarmál hvert, og kæmu svo heim til Islands upp úr miðjum júlí.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.