Feykir - 11.11.1992, Blaðsíða 5
39/1992 FEYKIR5
Hljómsveitin Afreg rifjar upp gamla takta: Ari Sigurðsson,
Kristjánsson, Fjölnir Asbjörnsson og Ellert Jóhannsson.
Kristinn Myndbandakóngurinn Róbert í hópi góðra vina við inngönguna í þriðja tuginn.
Um daginn og veginn
Já, það er margt spjallað þessa
dagana undir Borginni. Það er
víst og satt. Menn velta fyrirsér
atvinnumálum á alla vegu og
margar spurningar koma fram í
þeim efnum, en svörin liggja
ekki á lausu. Þeir sem helst gætu
gefið skýringar á stöðu mála og
róað fólkið niður, eru á ferð og
flugi um allartrissur. Þaðerekki
beinlínis hægt að segja að það sé
vorlegt i íslensku þjóðlífi um
þessar mundir. Það var annar
blærinn sem lék um vanga fyrir
tuttugu árum þegar allir hugs-
uðu til sóknar á öllum sviðurn.
Þá var vissulega önnur og
heilli hugsun til staðar. Lands-
byggðin var ekki talin ómagi á
þjóðinni og menn um allt Island
trúðu á framtíð sinna bæja og
sinna sveita. Nú er hinsvegar
búið að innprenta mönnum það,
að það sé hvergi lífvænlegt á
Islandi nema í óðaþéttbýlinu
syðra. Jafnframt því er unnið að
því að flæma allt þrek úr
mönnum með stöðugu barlóms-
tali og svartsýnisrausi sem ekki
nær neinni átt. Það er eins og
unnið sé markvisst að því að
enginn fái séð ljósa punkta í
tilverunni. Og hver er ávinningur
þess að tala þjóðlífið niður í
svartan dauða?
Það kemur urgur í menn,
óvissa og öryggisleysi skapa
hálfgert styrjaldar andrúmsloft.
Menn verða beiskir út i bróður
sinn. Það virðist vera búið að sá
inn í hugskot landsmanna
einhverri bölvaðri vanmetakennd
sem þrúgar og drepur hverja
jákvæða hugsun í dróma. Sumir
hafa á hraðbergi ýmsar
yfirlýsingar sem fela í sér allt að
því ofbeldiskennda andúð á
tilteknum forustumönnum. Leið-
andi menn í atvinnulífi og
viðskiptum, forvígismenn ríkis
og bæja eru skotspónar mjög
biturrar og sárrar ádeilu. Mér
hefur fundist í seinni tíð að menn
séu að fara yfir ákveðin mörk í
þessum efnum.
Það er í fullu lagi að gagnrýna
og segja sína meiningu og ég tel
allt í lagi að ráðamenn verðifyrir
smástríðni og glettum, því menn
sem sækja í sviðljósið verða að
þola það. En þegar bein óvild og
djúpstæður kali er kominn í
spilið, þá er komið að því að
afstaða manna til mála fer að
einkennast af skaðlegum við-
horfum.
A erfiðleikatímum ber fólki
að þjappa sér saman um hollar
lausnir og hver vill ekki verja
þau verðmæti sem þjóðin á,
íslenskt sjálfstæði, íslenskt atvinnu-
líf, íslenska menningu og íslensk
gildi í heild. Auðvitað eru allir
landsins þegnar trúir uppruna
sínum og arfleifð. Enginn skyldi
væna annan um sviksemi
varðandi það. Þjóðskáldið sagði
forðum að menn ættu að senda
sundurlyndisfjandann út á sextugt
djúp. Sú hvatning er enn í fullu
gildi. Lítil þjóð þolir ekki mjög
stóran skammt af sundurlyndi.
Eg sagði fyrr, að það væri
hálfgerður styrjaldarhugur í
sumum. Það er ekki ofmælt. Mér
brá nokkuð við að sjá baksíðu
Feykis þann 28. októbersl., því
mér sýndist þar komin mynd af
Rabín hinum ísraelska sem
jafnan glímir við styrjaldar-
ástand í sínu landi. Undraði mig
hvað mynd af honurn hefði að
gera i Feyki. Datt mér í hug hvort
Þórhallur hefði virkilega tekið
viðtal við kallinn, svona til að
vita hjá þrælvönum manni
hvernig taka ætti á málum,
þegar allt væri komið í hnút og
hver höndin upp á móti annarri í
þjóðfélaginu. Það er aldrei að
vita hvað þessum ritstjórum
getur dottið í hug, samanber
kveðjuna til Vilhjálms Egils-
sonar í blaðinu fvrir skömmu.
Þetta eru yfirleitt hugkvæmir
menn og framtakssamir, þó
stundum kunni sitthvað að vera
á misskilningi byggt.
En allar þessar vangaveltur
mínar urður sér brátt til
skammar, því við nánari
athugun reyndist umrædd mynd
ekki vera af Ytshak Rabin,
heldur einhverjum Sigurfinni
Jónssyni á Sauðárkróki, manni
sem ég þekki hvorki haus né
sporð á. Svona getur glám-
skyggnin leitt menn illilega
afvega. Það var mér þó til
nokkurrar huggunar að lesa í
greinarkorni því sem fylgdi
myndinni, að Sigurfinnur þessi
væri byssumaður mikill og því
trúlega hernaðarlega sinnaður
eins og Rabin.
En hvað sem öllu líður, þá er
nauðsyn númer eitt að menn
haldi ró sinni í umræðum um
Iandsins gagn og nauðsynjar.
Islenskt þjóðfélag mun rétta sig
af ef menn beita skynsemi og
láta ekki kreppudraug kaffæra
hverja heilbrigða hugsun. Astandið
gæti verið miklu verra en það er.
Sumir vilja ef til vill spyrja í
uppgjafatón, yfir hverju er svo
sem hægt að gleðjast í dag? Eg
get svarð þvi fyrir mína parta.
Eg er ákaflega glaður yfir þvi að
Hannes Hólmsteinn er ekki
forsætisráðherra íslands.
Rúnar Kristjánsson.
„Afmæli aldarinnar“
Það var dúndrandi stuð í
félagsheimilinu í Bifröst sl.
laugardagskvöld. Að þessu
sinni var þó ekki árshátíð eða
dansleikur í húsinu, heldur
afmælisveisla. Það gerist jú
stundum þegar stórafmæli ber
að höndum að ekkert minna en
félagsheimili dugar fyrir
fagnaðinn, sérstaklega ef
ættbogi viðkomandi aðila er
mikill og vinahópurinn orðinn
stór á langri ævi. Að þessu
sinni skartaði afmælisbarnið
þó ekki mörgum tugum,
reyndar aðeins tveimur. Róberti
Baldvinssvni, myndbandakóngi
bæjarins, fannst þó ærin
ástæða til að fagna tímamót-
unum með pompi og pragt.
„Það var orðið þónokkuð
langt síðan ég hélt upp á
afmælið mitt síðast og löngu
ákveðið að halda góða
afmælisveislu og fagna göng-
unni inn í þriðja tuginn”,
sagði Róbert í samtali við
Feyki.
Eins og vænta mátti lét
yngri kynslóðin sig ekki
vanta í afmælið og voru
gestir um 50 talsins. Róbert
fékk kunningja sína og vini
sem áður skipuðu unglinga-
hljómsveitirnar Afreg og
Og að sjálfsögðu opnaði
afmælisbarnið freyðvínsílösku í
tilefni tímamótanna.
Segulbandið til að rifja upp
gamla takta. Þekktur skemmti-
kraftur úr bænurn hafði lofað
að troða upp og skemmta og
einnig var gestum boðið til að
reyna sig í Karaoki söngkerfi.
Létu þeir ekki segja sér það
tvisvar og allir tóku þeir
lagið, mismunandi oft, en
Guðbrandur oftast. Stóð
gleðin og gamanið frá því níu
um kvöldið til þrjú um
móttina, eða samkvæmt
venjulegum samkvæmistíma.
FRA KIRKJUKOR
SAUÐÁRKRÓKS
í tilefni af 50 ára afmœli Kirkjukórs
Saudárkróks býöur Kirkjukórinn öllum eldri
félögum og mökum til afmœlisfagnaöar
ífélagsheimilinu Bifröst á Sauöárkróki
sunnudaginn 29. nóv. mk. kl 14.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku til
Mínervu Bjömsdóttur í síma 235631
fyrir 22. nóv. n.k.
STJÓRNIN