Feykir - 11.11.1992, Qupperneq 8
11. nóvember 1992,39. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er aila virka daga frá kl. 9.15 -16.00 CÍNti OEOCO M Landsbanki
bimiv5v5J i Wi íslands Banki allra landsmanna
Staða KH sterk eftir
hlutafjáraukninguna
Óskar Þórðarson umsjónarmaður fiskmarkaðarins á
Skagaströnd.
Fiskmarkaðurinn á Skagaströnd:
Stendur undir vonum
sem við hann voru
Skagfirðingar
óska undanbágu
frá sauðfjárböðun
Héraðsnefnd Skagafjarðar
ákvað á fundi sínum í siðustu
viku að óska eftir því við
yfirdýralækni, að undanþága
fáist frá sauðfjárböðun i
vetur. Astæðan er sú að
nokkur ár eru síðan kiáði
fannst í fé hér í sýslu. Þá þykir
sauðfjárböðun, sem fram-
kvæma á annaðhvert ár
nokkuð, kostnaðarsöm.
Hreppsnefnd Lýtingsstaða-
hrepps hafði áður samþykkt
að beina þessum tilmælum til
héraðsnefndar og óformleg
tilmæli höfðu einnig komið
frá bændum í héraðinu.
Dærni eru þess að sauðfjár-
böðun kosti á meðalbúi á
sjöunda tug þúsunda.
Elín Sigurðardóttir oddviti
Lýtingsstaðahrepps segir nokkur
fordæmi fyrir því að undan-
þága sé veitt frá böðun.
Héraðsdýralæknir muni gefa
yfirdýralækni skýrslu um
ástand mála í sýslunni og
yfirdýralæknir væntanlega
taka ákvörðun í framhaldi
þess.
Verulegir fjárskaðar
á nokkrum bæjum
í Fljótum
Ljóst er að verulegir fjár-
skaðar hafa orðið á nokkrum
bæjum í Fljótum í sumar og er
skaðinn að mestu rakinn til
Jónsmessuhretsins í vor. Nú er
öllum eftirleitum lokið og
menn nánast búnir að afskrifa
það fé sem vantar.
Afföllin á fénu eru mjög
mismunandi milli bæja. A
þremur heimilum vantar um
30 kindur á bæ en víðast er
saknað 10-20 kinda. Áber-
andi er hvað mikið vantar af
fullorðnu fé og virðist sem
það hafi orðið verr úti en
lömbin.
Til viðbótar fjárskaðanum
reyndust dilkar í haust mun
Iakari í Fljótum en undanfar-
in ár, þannig að útkoman á
fjárbúskap í heild er mun
lakari en menn eiga að
venjast á þessum slóðum.
ÖÞ.
„B-stofnsjóðurinn kemur til
með að styrkja stöðu félagsins
gífurlega. Þetta er sú lausn
sem viðskiptabanki samvinnu-
félaganna á Blönduósi, Búnaðar-
bankinn, sættir sig mjög vel
við, enda væri Sölufélagið
ekki að hætta 90 milljónum
nema um mjög varanlega
lausn væri að ræða. Sameigin-
legt eigið fé Sölufélagsins og
Kaupfélagsins er með því
betra sem gerist í íslenskum
atvinnurekstri í dag, 22% á
móti 15% meðaltali”, segir
Guðsteinn Einarsson kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Hún-
vetninga.
Enn er spenna í hinu
pólitíska andrúmi á Blöndu-
ósi eftir að bæjarstjórnin
ákvað í síðustu viku að kaupa
hlutafé í b-stofnsjóði kaup-
félagsins fyrir 12 milljónir.
Aðspurður sagði Guðsteinn
að menn hefðu álitið að ekki
fengist nægjanlegur styrkur
Hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps hafnaði á fundi sínum i
síðustu viku beiðni Arbliks,
sölufyrirtækis saumastofunnar
Drífu, um kaup á hlutafé fyrir
6.5 milljónir krókna. Hvamms-
tangahreppur jók í haust
hlutafé sitt i Drífu um 1100
þúsund og er hreppurinn einn
stærsti eignaraðili fyrirtækis-
ins. Beiðni Arbliks til hrepps-
nefndar byggist á miklum
viðskiptum þess við Drífu.
Eins og svo margar
saumastofur í landinu, á
Drífa við rekstrarörðugleika
að etja. Hvammstangahreppur
leitaði eftir mati rekstrar-
ráðgjafarfyrirtækis, en beiðni
Árbliks barst hreppsnefnd
fyrir nokkrum vikum. Það
var á grundvelli þess mats
sem hreppsnefndin tók ákvörð-
un sína. Hinsvegar vilja
hreppsnefndarmenn reyna
aðrar leiðir varðandi rekstur
út úr því að Sölufélagið eitt
kæmi með fé inn í kaupfélagið,
því hefði frekari hlutafjár-
aukning í gegnum stofnsjóð-
inn verið nauðsynleg. Eigin-
fjárstaða Kaupfélags Hún-
vetninga var samkvæmt
reikningum neikvæð unt 37
milljónir í lok síðasta árs, en
eiginfjárstaða Sölufélags Hún-
vetninga jákvæð um 270
milljónir.
„Þessi félög hafa verið
rekin sitt í hvoru lagi í rúm 80
ár, og menn vildu ekki steypa
rekstri þeirra saman nú
frekar en áður. Hitt er svo
annað mál að þetta er ekki í
fyrsta skipti sem fé er fært á
milli félaganna”, sagði kaup-
félagsstjóri.
Framan af ári leit út fyrir
taprekstur hjá KH ef ekkert
yrði að gert. Utlitið hefur
lagast og vonast Guðsteinn
til að góð verslun í jóla-
mánuðinum fleyti félaginu
nálægt núllinu.
Drífu og áframhaldandi
samstarf við Árblik. Var
ákveðið að Bjarni Þór
Einarsson sveitarstjóri og
Guðmundur Haukur Sigurðs-
son oddviti gengju í það ntál.
Söluverðmæti sjávarafla í
gegnum fiskmarkaðinn á
Skagaströnd í síðustu viku
nam tæpum tveim milljónum.
Frá því markaðurinn tók til
starfa í ágústlok hefur fiskur
verið seldur fyrir rúmar 10
milljónir króna. Aðstandendur
markaðarins eru þokkalega
ánægðir með þær viðtökursem
hann hefur fengið, en Skaga-
strönd virðist liggja mjög vel
við, enda stutt af Skagagrunn-
inu. Hafa bátar frá Dalvík,
Akureyri, Sauðárkróki og
Hólmavík lagt upp afla á
markaðnum.
Mestur hluti fisksins sem
boðinn var upp á markaðnum í
síðustu viku, var af Arnari í
byrjun vikunnar, en hann
landaði unt 100 tonnum um
fyrri helgi og þar af fóru 15
tonn á markaðinn. Af
heimabátum hefur einnig
línubáturinn Sæstjarnan lagt
upp reglulega, og 3-4 aðrir
línubátar annað slagið.
Að sögn Óskars Þórðar-
sonar forstöðumanns markaðar-
ins, sent jafnframt er bókari
hjá Skagstrendigi, hefur það
komið starfseminni til góða,
að vinnulaunum og húsa-
leigu er ekki til að dreifa og
annar fastakostnaður er í
lágmarki. „Öðruvísi væri
ekki um rekstrargrundvöll
að ræða. Við nýtum þá
aðstöðu sem til staðar er hjá
okkur og í Hólanesi. Þá
hefur samvinnan við Faxa-
markað gengið vel. Við erum
tölvutengdir þeim og getum
eins og nokkrir aðrir markaðir
um landið fylgst með og tekið
þátt í uppboðununt. Þá sjá
þeir hjá Faxamarkaði urn
viðskiptabókhald við bátana
fyrir okkur, gegn greiðslu”,
sagði Óskar.
Stórmút skagfirskra kóra:
Sjö einsöngvarar í Miðgarði
Sjö einsöngvarar syngja með
kórununt fjórum á stórmóti
skagfirskra kóra í Miðgarði
nk. laugardagskvöld. Búist er
við að fjöldi söngfólks á
mótinu verði fast að 200 en
kórarnir syngja sameiginlega
í lokin.
Einsöngvarar eru bræð-
urnir Pétur og Gísli Péturs-
synir og Einar Halldórsson
með Heimi, Valgeir Þorvalds-
son með Rökkurkórnum,
Jóhann Már Jóhannsson og
Sigurdríf Jónatansdóttir með
Kirkjukór Sauðárkróks og
Sigurlaug Maronsdóttir með
sameiginlegum kirkjukór átta
kirkna, sem skipaður er
mismunandi mörgu söng-
fólki úr hverjum kór kirkn-
anna að Reynistað, Glaumbæ,
Víðimýri, Miklabæ, Flugu-
ntýri, Hofstöðum, Viðvík og
Hólum. Kóramótið hefst kl.
20,30 í Miðgarði á laugar-
dagskvöldið.
Hvammstangahreppur
eykur hlutafé í Drífu
en hafnar hlutafjárbeiðni Árbliks